Morgunblaðið - 24.07.1994, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
hOLl
FASTEIGNASALA
s? 10090
SKIPHOLTI 50B, 2. hæðt.v.
Hverafold 15 - bflskýli - Opið hús
Góð 81 fm íbúð á 3. hæð. Parket og flísar á gólfum.
Gott útsýni. 21 fm bílskúr með fjarstýringu. Verð 7,6
millj. Þessi íbúð sem er laus er á 3. hæð f.m. (03.02.)
og verður til sýnis í dag, sunnudag, kl. 14-16. 362.
Hörðaland 4 - Opið hús
Afar björt og falleg 3ja-4ra herb. 88 fm íbúð á 2. hæð.
Laus strax. Verð 7,4 millj. íbúð sem er á 2. hæð t.h.
verður til sýnis í dag, sunnudag, kl. 14-17. 3705.
Miðleiti 5 - Gimliblokk - Opið hús
3ja herb. 82 fm (auk sólstofu) glæsileg íbúð á 4. hæð
í þessari eftirsóttu blokk. íbúðin skiptist m.a. í stofu,
borðstofu, herb., eldhús, þvottahús, bað og sólstofu.
Suðursv. Vandaðar innr. Bílast. í bílgeymslu. Hlutdeild
í mikilli og góðri sameign. íb. getur losnað nú þegar.
Verð 10,9 millj. Þessi íb. er á 4. hæð nr. 2 (04.02.) og
verður til sýnis í dag, sunnudag, kl. 13-16. 3804.
Skúlagata 54 - Opið hús
2ja herb. góð íbúð á 3. hæð. Suðursvalir. Góður garð-
ur. Leikvöllur. Laus strax. Verð 4,4 millj. íbúðin er á
2. hæð t.h. 3884.
Tvær íbúðir f sama húsi
við Sörlaskjól
Mjög falleg neðri hæð með bílskúr. íbúðin skiptist í 2
saml. parketlagðar stofur, 2 herb. o.fl. Nýleg eldhúsinn-
rétting. Falleg lóð. Verð 9,5 millj. 3967.
Rúmgóð og björt 4ra herb. rishæð, um 100 fm, auk
geymsluriss. Falleg lóð. Bílskúr. Verð 8,5 millj. 3968.
Hringbraut 69.
Þetta virðulega hús á 3 hæöum i vesturbaanum er tll sýnis f. þig og þína fjölskyldu I
dag milli kl. 14 og 17. Verð 10,9 millj. Þú ert velkominn til að skoða hjá Dóru og Hans
í dag.
Stórglæsil. einb. á einni hæð hér
besta stað í Garðabæ. Góöur bílskúr.
Vandaðr innr. Verð 17,3 millj. Þetta hús
fer fljótt.
Glæsil. „penthouse"-ib. Einmitt hér þar
sem hjartaö slær getur þú nú eignast
frábæra 2ja herb. 80 fm ib. í nýju húsi.
Bílskýli. Hagstæð greiðslukjör. Verð 7,8
millj.
Stórglæsil. 125 fm sérbýli á 2 hæðum
i hjarta Reykjavikur. Sérhannaðar innr
í eldhúsi. Þetta er íb. sem hentar unga
parinu og/eða listamanninum. Ótrúiega
hagstætt verð 8,4 millj.
Suðurhólar
Laus strax. Björt og rúmg. 4ra herb. í
seilingarfjarl. frá Hóiagarði, sundlaug,
skólum og SVR-stöö. Utborgun 2 millj.
og 35 þús á mán. Sjón er sögu ríkari.
Lyklar á Hóli.
Lækjargata - miðbær
Franz Jezorski, lögg. fast.sali.
Veghúsastígur
Tómasarhagi
Falleg 105 fm hæð á þessum frábæra
stað. Steinsnar frá sjónum og fjörunni
v. Ægi8íðu. Nýtt þak og gler, bilskúr
að auki fylgir með. Verð 9,9 millj. Laus
í dag.
Langamýri - Gbæ.
EIGNAMIÐLUNIN %
Opið á Hóli í dag kl. 14-17
OPIÐ HÚS
MINNINGAR
HANS JAKOB BECK
+ Hans Jakob Beck, fyrrum
bóndi á Sómastöðum í Reyð-
arfirði, fæddist 16. júlí 1907.
Hann lést á St. Jósefs spítala
7. júlí síðastliðinn og var útför
hans gerð frá Fossvogskirkju
15. júlí.
Á FERÐ frá átthögunum eystra
barst mér að eyrum andlátsfregn.
Fyrrum sveitungi minn og mætur
vinur, Hans á Sómastöðum, eins
og mér var og er tamast að kalla
hann, var allur og orðin „of seint“
ómuðu við eyrum mér. Ég minntist
þess ofur vel er hann við síðustu
samfundi mælti á sinn hljóða hátt,
að ég mætti nú alveg líta til sín
við tækifæri. Það tækifæri er end-
anlega liðið og þó var engan mann
betra að hitta en Hans, alltaf eins,
ljúflyndið og einlægnin alltaf söm
við sig, hinn einstaki hlýi hlátur
ógleymanlegur. í mínum huga var
hann merkisberi staðfestu, hóg-
værðar og hlýju — hlýjunnar þó
helzt og fremst. Hann varð hveijum
manni minnisstæður sem honum
fékk að kynnast, enda mikill mann-
kostamaður í hvívetna svo sem
hann átti kyn til í báðar ættir, þá
breiðfírzku sem hina austfírzku.
Hans var afar trúr maður í hverju
einu og um leið einkar samvizku-
samur, hann lagði öllum gott eitt
til, umtalsgóður svo af bar, eðlis-
greindur hið bezta og athugull vel,
dugmikill og eljusamur með af-
brigðum, búhöldur góður og glögg-
ur fjármaður. Honum fóru öll verk
vel úr hendi, aðgætinn og karskur,
þó ekki væri hann ýkja hár í loft-
inu. Hann var bóndi í beztu merk-
ingu þess orðs, enda ævistritið bú-
skapnum bundið, en vissulega hefði
Hans orðið liðtækur hvar sem hann
hefði borið niður. Hann var mikill
ræktunarmaður og byggði myndar-
lega upp á ættatjörð sinni þar sem
mikil snyrtimennska einkenndi allt.
Hans var rómaður fyrir umhirðu
sína og umhyggju fyrir búpeningi
sínum. Hann átti löngum afar vænt
fé og kostaríkt. Hirðusemi hans og
nýtni var við brugðið og greiðvikni
sömuleiðis. Það mun sannmæli allra
kunnugra í gegnum árin, að allur
heimilisbragur og heimilisandi á
Sómastöðum hafi til fyrirmyndar
verið. Þar voru þau systkini bæði
samhent hið bezta, en Hans kvænt-
ist aldrei, en saman bjuggu þau
stykini, Ástríður Guðrún og hann,
á ættaijörð sinni í um fjóra ára-
tugi. Sómastaðir eru í þjóðbraut í
þess orðs fyllstu merkingu og þar
allajafna miklar gestakomur, enda
ekki í kot vísað hjá húsráðendum.
Það var einstaklega ánægjulegt að
sækja þau systkini heim, gestum
tekið tveim höndum og veitingar
ekki við nögl skornar í neinu.
Þau voru nokkuð ólík systkinin
á ytra borði, skemmtilega ólík, en
hugarþel og hjartalag afskaplega
áþekkt. Guðrún var kraftmeiri,
ákafari og átti meira frumkvæði í
orðræðunum, en athugasemdir
hans um mannlífið og tilveruna
ekki síður meitlaðar og oft sem
þaulhugsaðar og ekki hló hann síð-
ur innilega, því grómlaus var glettni
þeirra beggja. Þjóðfélagsmál voru
báðum afar hugleikin og þó grunn-
hugsjón samhjálpar ætti sér ötula
talsmenn í báðum og bæði væru
samvinnumenn af beztu gerð voru
þau þó ekki alltaf með öllu sam-
stíga, en fóru svo vel með að vart
mátti greina nema af vel kunnug-
um, svo virtu þau skoðanir hvors
annars. Þau voru stefnuföst bæði
en skoðanamyndun þeirra var sjálf-
stæð og einurð mikil í eftirfylgni.
Mörg slík minningarbrot geymi
ég þakklátum huga og þau rifjast
upp nú þegar Hans hefur nú kvatt
okkur, en Guðrún systir hans er
látin fyrir nokkrum árum. Þessi ein-
lægni félagshyggjumaður unni
landi sínu og mat vel gögn þess og
gæði, vildi sjá það herlaust og al-
fijálst í öllu, gegnheill í því sem
öðru. Hann unni fírðinum okkar og
sveitinni, jörðinni sinni fallegu og
búsældarlegu afar mikið og sárt var
honum að þurfa að yfírgefa hana,
en kraftar beggja voru á þrotum
og einskis annars úrkosta.
En þessi vel gerði maður með
sína léttu lund og einstaka jafnaðar-
geð undi hag sínum syðra ótrúlega
vel, enda þar mikið af hans nánasta
fólki og m.a. margt af því fólki sem
hafði á yngri árum átt góða dvöl
austur á Sómastöðum, en þar var
alltaf gnægð slíkra sumargesta. Þá
samfundi kunni Hans vel að meta
svo mannblendinn sem hann var
og vinmargur að sama skapi.
Að leiðarlokum vil ég þakka það
að hafa mátt eiga Hans að góðum
sveitunga, sem veitti mér vináttu
sína og hlýju. Drenglyndur mann-
kostamaður er kvaddur í hljóðri
þökk og hlýrri. Það er sólríkt á
Sómastöðum í vörmum vestanblæn-
um, en þannig kvaddi ættarsetrið
hans hann á brottfarardaginn. Sól-
rík minning hugþekks samferða-
manns lifir í huga þeirra sem
þekktu hann.
Blessuð sé minning mæt og góð.
Helgi Seljan.
Fellsmúli 18 2.h.t.h.
Til sölu glæsileg og rúmgóð 4ra herb.
íbúð í Fellsmúla 18. Ein íbúð á stiga-
palli. 3 svefnherb., þar af eitt forstofu-
herb. Sérhiti. Húsið er allt nýmálað
og sprunguviðgert. Suðursvalir.
Upplýsingar fást hjá:
KAUPMIÐLUN h.f.
Austurstræti 17-101 Reykjavík
S: 621700
Opið hús sunnudag f rá 15-18
JBí FASTEIGIUAMIDSTÖDIM" Wt
SKIPHOLTÍ S0B ■ SÍMI62 20 30 - FAX 62 22 90
Opið hús
Leirubakki 20 - verðhrun
Falleg 93 fm 4ra herb. íb. á 2. hæð í góðu fjölbýli.
Þvottah. í íb. Suðursv. Frábært verð, aðeins 6,5 millj.
(Þetta er verð sem gengur á 3ja herb. sambærilegri
íb.) Tækifæri sem þú mátt ékki sleppa.
Allir velkomnir milli kl. 14 og 17 í dag, sunnudag.
BORGIN
sími 11440
5U$HI
MIÐVIKUDAGS - SUNNUDAGSKVÖLD
-Borð fyrirþig-
BORGIN
sími 11440
I.Júlísl. veitti heilbrigðisráðuneytið heimild til sölu á FAMEX 20
án lyfseðils, mest 30 töflur.
Ertu sárímaga?
FAMEX er lyf, sem dregur úr myndun sýru í
maga og er notað til að lækna maga- og skeifu-
garnarsár. FAMEX er áhrifarflct við brjóstsviða
sem myndast, þegar sýra flæðir frá maga til
vélinda. FAMEX fæst í apótekum.
FAMEX 20 mg.
Framleiðandi: OMEGA FARMA hf. Hver tafla inniheldur: Famotidinum
INN 20 mg. Eiginleikor: Lyfið dregur úr myndun saltsýru f maga. Ábendingar:
Sársjúkdómur í skeifugörn eða maga og fyrirbyggjandi gegn slíkum sárum.
Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Vorúð: Barnsha'fandi konur og konur með
barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið nema að lænisráði. Aukaverkanir:
Niðurgangur, höfuðverkur og þreyta kemur fyrir. Skammtar handa full-
orðnum: 2 töflur fyrir svefn eða I tafla tvisvar á dag. Meðferð skal standa
f a.m.k. 4 vikur, þótt einkenni hverfi fyrr. Fyrirbyggjandi meðferð: I tafla fyrir
svefn. Lyfið er ekki ætlað börnum.