Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ
82 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994
BREF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
BG MUN SVO SANNARLEGA\iei&A
AÐOÁUNflGGU i KVÖLP
( VlP EtZVM AP FAR. A
\flNAN ]/BlTIN6ASTAÐ
WGBNIG SEGItZ T
MAÞUR
Tommi og Jenni
Svar til íslenskunema
við Háskólann
í Bonn, Þýskalandi
Frá Eddu Kristjánsdóttur:
KÆRU íslenskunemar.
Ég þakka ykkur kærlega fyrir
bréfið „Burt með kynþáttahatara"
sem birtist á lesendasíðu þessari 16.
júlí sl. þar sem þið furðið ykkur á
skeytingarleysi Morgunblaðsins um
greinar Magnúsar Þorsteinssonar er
birtust í blaðinu 6. mars og 24. júní
1994. Ég vinn ekki fyrir Morgunblað-
ið, en er lesandi þess og háskólanemi
eins og þið og leyfi mér því að svara
bréfi ykkar.
Svívirðileg skrif
Viðbrögð flestra íslendinga er lásu
skrif Magnúsar hafa eflaust verið á
þá leið að greinamar væru ekki
svarsins verðar. En „þögn er sama
og samþykki" segir vort eigið mál-
tæki og það er alveg rétt hjá ykkur
að einu gildir þótt hin svívirðilegu
skrif hafi bara verið eftir einn „bónda
úr Grímsnesi" - það veit enginn með
vissu hverrar skoðunar hinn þögli
meirihluti íslendinga er á meðan við
leyfum mönnum eins og Magnúsi að
hafa síðasta orðið um alvarleg mál
sem þessi.
íslendingar hreykja sér af því að
vera friðsæl og gestrisin þjóð. Sann-
leikurinn er sá að kynþáttahatur
hefur aldrei þótt vera „vandamál" á
íslandi af þeirri einföldu ástæðu að
við höfum verið nánast einlit þjóð
um alda raðir. Með hækkandi tölu
nýbúa á landinu reynir æ meir á
hina margrómuðu gestrisni, því að
nú er að sjá hvort íslendingar eru
reiðubúnari en aðrirtil að stíga skref-
inu lengra - bjóða gestunum að vera
ekki lengur gestir heldur landar okk-
ar og náungar og umgangast þá sem
íbúa fremur en nýbúa.
Ofsóknarbrjálæði
Ég er þakklát fyrir að ungir Þjóð-
veijar skuli taka það að sér að vara
oss við því að standa aðgerðarlaus
hjá þegar einstaklingar vaða uppi
með ofsóknarbijálæði. Engin þjóð
veit betur en ykkar hvílík smán get-
ur hlotist af slíkri vangá. Það er því
virðingar vert að þið skulið kjósa að
forða íslendingum undan sömu
skömm í stað þess að reyna að
gleyma biturri fortíð.
Um leið og ég þakka ykkur aftur
fýrir hollar ábendingar vil ég nota
tækifærið og bjóða alla nýja Islend-
inga velkomna til landsins og skora
á þá sem fyrir eru að bæta ekki
kuldalegu viðmóti ofan á kalda veðr-
áttu, spoma af krafti við hvers kyns
kynþáttahatri og muna að við emm
öll gestir á þessari jörð.
Virðingarfyllst,
EDDA KRISTJÁNSDÓTTIR,
deild indó-evrópskra fræða,
Kalifomíuháskóla, Los Angeles
Ljóska
Tíminn er búinn Má ég sem liðsstjóri spyrja þig Gætirðu verið svo vænn að
að dálitlu? hætta að hugsa um að sofa
og hugsa um hornabolta?
Gullnáma fundin
Frá Björgvini Ómari Ólafssyni:
NÚ HEF ég fundið gullnámu. Ég
hef hafið útgáfu á Sambandsblaði
hér í Báros. Þar sem ég bý búa
110.000 manns, á útbreiðslusvæði
blaðsins búa 150.000 manns. Til að
blaðið standi undir sér þurfa aðeins
0,1% af íbúunum að auglýsa í því,
en ég er mjög hógvær og áætla í
útreikningum að 0,3% af íbúunum
auglýsi í blaðinu. Miðað við að 10%
af íbúunum kaupi blaðið, sem er
varlega áætlað vegna þess að ég
ætla mér að kynna blaðið vel, þá
mun gróðinn verða 270.000 sænskar
krónur, eða 2.430.000 íslenskra kr.,
bara í Báros.
En blaðið verður gefið út um allt
landið, í öllum borgum þar sem búa
yfir 80.000 íbúar, en það em 17
borgir alls. Stokkhólmur ein hefur
1.517.285 íbúa. Alls búa í borgum
með yfir 80.000 íbúa 4.254.296 íbú-
ar. Miðað við sömu forsendur verður
hagnaðurinn 9.900.000 sænskar
krónur á mánuði, eða 89.100.000
íslenskar á mánuði.
Hagnaðinum verður að miklum
hluta varið til að stuðla að uppbygg-
ingu fjölskyldunnar og verður keypt-
ur auglýsingatími í sjónvarpinu til
að koma boðskap blaðsins til skila.
Boðskapur
Boðskapurinn verður meðal ann-
ars hvatning til foreldra að sinna
börnum sínum betur og veita þeim
athygli, ástúð og kærleika. Um-
fangsmikil rannsókn í Danmörku
hefur sýnt að foreldrar sinna börnum
sínum aðeins að meðaltali 5-20 mín-
útur á dag, eflaust minna á Islandi
vegna mikillar yfiivinnu foreldra.
Það verður einnig hvatning til for-
eldra sem horfa mikið á sjónvarp og
vanrækja bömin sín vegna þess, að
slökkva á sjónvarpinu og spila t.d.
eitthvert skemmtilegt spil í staðinn,
leika við bömin ef þau eru lítil eða
leysa fyrir þau deilur með réttlæti,
jafnt utan og ekki síst innan fjöl-
skyldunnar.
Það verða einnig reglubundnar
áminningar um að gefa hrós fyrir
allt sem þér líkar, að gleyma ekki
að tala um það þegar þér líkar eitt-
hvað. Allir elska hrós og hrósið hefur
undraverð áhrif á mannleg samskipti
til góðs, en hrósið verður að koma
frá hjartanu. Vandamálið með sam-
félagið er að börnin gera mjög sjald-
an kröfu um athygli og ástúð, heldur
samþykkja hið ástlausa samband við
foreldrana.
Meðal annars verða margar falleg-
ar bamakvikmyndir frá almenningi
með fallegri klassiskri tónlist og
hvatningu til að sýna börnum okkar
og annarra ást, hlýju og kærleika.
Möguleikar
I mannlegum samskiptum gildir
meðal annars ,já-reglan“. Því oftar
sem þér tekst að fá andstæðing þinn
til að segja ,já“ við spumingum þín-
um, þeim mun stærri er möguleikinn
að fá hann til að samþykkja þín sjón-
armið, þótt hann hafí verið þijóskur
og þrár í byijun. Þeir sem sýna
gæsku, hlýju og velvilja lenda aldrei
í deilum eða illindum.
Sambandsblaðið er bæði fyrir þá
sem vilja sambúð eða hjónaband og
líka fyrir þá sem bara sækjast eftir
félaga eða vini. Þeir sem hafa sömu
áhugamál hafa mikið til að tala um.
Þetta er fyrir alla, konur og karla,
einstaklinga og ellilífeyrisþega sem
eru margir einmana. í Sambands-
blaðinu er Ijósmynd af viðkomandi
einstaklingi.
Það er ætlun mín að ráða mjög
fljótlega mann til að sjá um útgáfu
á íslandi.
BJÖRGVIN ÓMAR ÓLAFSSON,
Váglándsgatan 71,
50246 Báros, Svíþjóð.