Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ 82 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 BREF TIL BLAÐSINS Dýraglens Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 BG MUN SVO SANNARLEGA\iei&A AÐOÁUNflGGU i KVÖLP ( VlP EtZVM AP FAR. A \flNAN ]/BlTIN6ASTAÐ WGBNIG SEGItZ T MAÞUR Tommi og Jenni Svar til íslenskunema við Háskólann í Bonn, Þýskalandi Frá Eddu Kristjánsdóttur: KÆRU íslenskunemar. Ég þakka ykkur kærlega fyrir bréfið „Burt með kynþáttahatara" sem birtist á lesendasíðu þessari 16. júlí sl. þar sem þið furðið ykkur á skeytingarleysi Morgunblaðsins um greinar Magnúsar Þorsteinssonar er birtust í blaðinu 6. mars og 24. júní 1994. Ég vinn ekki fyrir Morgunblað- ið, en er lesandi þess og háskólanemi eins og þið og leyfi mér því að svara bréfi ykkar. Svívirðileg skrif Viðbrögð flestra íslendinga er lásu skrif Magnúsar hafa eflaust verið á þá leið að greinamar væru ekki svarsins verðar. En „þögn er sama og samþykki" segir vort eigið mál- tæki og það er alveg rétt hjá ykkur að einu gildir þótt hin svívirðilegu skrif hafi bara verið eftir einn „bónda úr Grímsnesi" - það veit enginn með vissu hverrar skoðunar hinn þögli meirihluti íslendinga er á meðan við leyfum mönnum eins og Magnúsi að hafa síðasta orðið um alvarleg mál sem þessi. íslendingar hreykja sér af því að vera friðsæl og gestrisin þjóð. Sann- leikurinn er sá að kynþáttahatur hefur aldrei þótt vera „vandamál" á íslandi af þeirri einföldu ástæðu að við höfum verið nánast einlit þjóð um alda raðir. Með hækkandi tölu nýbúa á landinu reynir æ meir á hina margrómuðu gestrisni, því að nú er að sjá hvort íslendingar eru reiðubúnari en aðrirtil að stíga skref- inu lengra - bjóða gestunum að vera ekki lengur gestir heldur landar okk- ar og náungar og umgangast þá sem íbúa fremur en nýbúa. Ofsóknarbrjálæði Ég er þakklát fyrir að ungir Þjóð- veijar skuli taka það að sér að vara oss við því að standa aðgerðarlaus hjá þegar einstaklingar vaða uppi með ofsóknarbijálæði. Engin þjóð veit betur en ykkar hvílík smán get- ur hlotist af slíkri vangá. Það er því virðingar vert að þið skulið kjósa að forða íslendingum undan sömu skömm í stað þess að reyna að gleyma biturri fortíð. Um leið og ég þakka ykkur aftur fýrir hollar ábendingar vil ég nota tækifærið og bjóða alla nýja Islend- inga velkomna til landsins og skora á þá sem fyrir eru að bæta ekki kuldalegu viðmóti ofan á kalda veðr- áttu, spoma af krafti við hvers kyns kynþáttahatri og muna að við emm öll gestir á þessari jörð. Virðingarfyllst, EDDA KRISTJÁNSDÓTTIR, deild indó-evrópskra fræða, Kalifomíuháskóla, Los Angeles Ljóska Tíminn er búinn Má ég sem liðsstjóri spyrja þig Gætirðu verið svo vænn að að dálitlu? hætta að hugsa um að sofa og hugsa um hornabolta? Gullnáma fundin Frá Björgvini Ómari Ólafssyni: NÚ HEF ég fundið gullnámu. Ég hef hafið útgáfu á Sambandsblaði hér í Báros. Þar sem ég bý búa 110.000 manns, á útbreiðslusvæði blaðsins búa 150.000 manns. Til að blaðið standi undir sér þurfa aðeins 0,1% af íbúunum að auglýsa í því, en ég er mjög hógvær og áætla í útreikningum að 0,3% af íbúunum auglýsi í blaðinu. Miðað við að 10% af íbúunum kaupi blaðið, sem er varlega áætlað vegna þess að ég ætla mér að kynna blaðið vel, þá mun gróðinn verða 270.000 sænskar krónur, eða 2.430.000 íslenskra kr., bara í Báros. En blaðið verður gefið út um allt landið, í öllum borgum þar sem búa yfir 80.000 íbúar, en það em 17 borgir alls. Stokkhólmur ein hefur 1.517.285 íbúa. Alls búa í borgum með yfir 80.000 íbúa 4.254.296 íbú- ar. Miðað við sömu forsendur verður hagnaðurinn 9.900.000 sænskar krónur á mánuði, eða 89.100.000 íslenskar á mánuði. Hagnaðinum verður að miklum hluta varið til að stuðla að uppbygg- ingu fjölskyldunnar og verður keypt- ur auglýsingatími í sjónvarpinu til að koma boðskap blaðsins til skila. Boðskapur Boðskapurinn verður meðal ann- ars hvatning til foreldra að sinna börnum sínum betur og veita þeim athygli, ástúð og kærleika. Um- fangsmikil rannsókn í Danmörku hefur sýnt að foreldrar sinna börnum sínum aðeins að meðaltali 5-20 mín- útur á dag, eflaust minna á Islandi vegna mikillar yfiivinnu foreldra. Það verður einnig hvatning til for- eldra sem horfa mikið á sjónvarp og vanrækja bömin sín vegna þess, að slökkva á sjónvarpinu og spila t.d. eitthvert skemmtilegt spil í staðinn, leika við bömin ef þau eru lítil eða leysa fyrir þau deilur með réttlæti, jafnt utan og ekki síst innan fjöl- skyldunnar. Það verða einnig reglubundnar áminningar um að gefa hrós fyrir allt sem þér líkar, að gleyma ekki að tala um það þegar þér líkar eitt- hvað. Allir elska hrós og hrósið hefur undraverð áhrif á mannleg samskipti til góðs, en hrósið verður að koma frá hjartanu. Vandamálið með sam- félagið er að börnin gera mjög sjald- an kröfu um athygli og ástúð, heldur samþykkja hið ástlausa samband við foreldrana. Meðal annars verða margar falleg- ar bamakvikmyndir frá almenningi með fallegri klassiskri tónlist og hvatningu til að sýna börnum okkar og annarra ást, hlýju og kærleika. Möguleikar I mannlegum samskiptum gildir meðal annars ,já-reglan“. Því oftar sem þér tekst að fá andstæðing þinn til að segja ,já“ við spumingum þín- um, þeim mun stærri er möguleikinn að fá hann til að samþykkja þín sjón- armið, þótt hann hafí verið þijóskur og þrár í byijun. Þeir sem sýna gæsku, hlýju og velvilja lenda aldrei í deilum eða illindum. Sambandsblaðið er bæði fyrir þá sem vilja sambúð eða hjónaband og líka fyrir þá sem bara sækjast eftir félaga eða vini. Þeir sem hafa sömu áhugamál hafa mikið til að tala um. Þetta er fyrir alla, konur og karla, einstaklinga og ellilífeyrisþega sem eru margir einmana. í Sambands- blaðinu er Ijósmynd af viðkomandi einstaklingi. Það er ætlun mín að ráða mjög fljótlega mann til að sjá um útgáfu á íslandi. BJÖRGVIN ÓMAR ÓLAFSSON, Váglándsgatan 71, 50246 Báros, Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.