Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 13
Laxeldis-
stöðin
Miklilax
gjaldþrota
LAXELDISSTÖÐIN Miklilax
hf. í Fljótum er gjaldþrota og
verður fyrirtækið formlega tek-
ið til gjaldþrotaskipta á þriðju-
daginn kemur. Reynir Pálsson
framkvæmdastjóri Miklalax hf.
segir, að fjárhagsstaða fyrir-
tækisins hafi lengi verið slæm.
Það hafi þó gert útslagið að
nýrnasjúkdóms varð vart í stöð-
l inni með þeim afleiðingum að
stór hluti af einum árgangi
hafi drepist.
„Við mátum stöðuna þannig,
að ekki væri lengur grundvöllur
fyrir rekstrinum," sagði Reynir.
„Við áttum ekki fé fyrir fóðri
og áhvílandi skuldir á fyrirtæk-
inu nema um 270 milljónum
króna.“
Hann segir, að ekki sé ljóst
hvað verði um rekstur fyrirtæk-
| isins, en það verði skoðað í
framhaldi af gjaldþrotaskipt-
unum. „Eg veit það eitt, að það
yrði skelfilegt fyrir sveitarfé-
lagið ef reksturinn leggst nið-
ur,“ sagði Reynir og bendir á
að 12-14 störf séu i hættu.
Líf slíkur jarðarbúa
► WHO biður
Islendinga
afsökunar
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun
Sameinuðu þjóðanna (WHO)
hefur beðist velvirðingar á þeim
mistökum að ríki með minna
en hálfa milljón íbúa voru ekki
talin með í nýlegri fréttatil-
j kynningu stofnunarinnar, þar
k sem gerður var alþjóðlegur
samanburður á lífslíkum jarð-
arbúa.
Þegar samanburðurinn var
gefinn út í fréttatilkynningu
stofnunarinnar, sendu utanrík-
isráðuneytið og embætti land-
læknis mótmæli vegna þess
hvernig staðið var að þessari
framkvæmd. Utanríkisráðu-
neytinu barst fyrir fáeinum
dögum svarbréf frá dr. Jean-
I Paul Jardel, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar, þar
sem beðist er veivirðingar á
þessum mistökum og tekið
fram að ríki með minna en
hálfa milljón íbúa, verði tekin
með í tölfræðilegum gögnum
stofnunarinnar í framtíðinni.
Bíl flæddi
> við Hjörsey
PÓLSK hjón búsett í Sviss festu
bíl sinn í Hjörseyjarsundi við
Mýrar fyrir nokkrum dögum og
fór bíllinn á kaf á flóði. Ekkert
amaði að hjónunum, en bílinn
skemmdist nokkuð þar sem salt-
vatn fór um hann allan.
| Vegslóði liggur úr landi og
niður í Hjörsey og er hægt að
komast um hann á fjöru. Slóðinn
I er hins vegar varasamur fyrir
ókunnuga. Pólverjarnir munu
hafa misst bílinn úr hjólförunum
og út í leirinn þar sem hann
stóð fastur. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir náðu þau bílnum ekki
upp fyrr en eftir að hann hafði
flætt.
Kranabíll frá GH verkstæði í
, Borgarnesi náði í bílinn út í
eyju daginn eftir óhappið. Að
sögn viðgerðarmanns er bíllinn,
I sem er nýlegur jeppi af fínustu
gerð, ekki traust eign lengur.
tviiialdur
1. mningur!
Vertu með
draumurínn gæti orðið að veruleika!