Morgunblaðið - 30.07.1994, Side 33

Morgunblaðið - 30.07.1994, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 33 SKARPHEÐINN DAL- MANN EYÞÓRSSON + Skarphéðinn Dalmann Ey- þórsson fæddist 8. október 1921 í Syðra-Tungukoti (nú Brúarhlíð) í Blöndudal í Austur- Húnavatnssýslu. Hann lést hinn 24. júlí sl. á Landakots- spítala. Foreldrar hans voru Eyþór Guðniundsson frá Blönduósi og Hólm- fríður Agústsdóttir sem búsett var á Blönduósi og sin síðustu ár í Reykjavík hjá syni sínum og tengdadóttur. Skarp- héðinn átti sex hálfbræður og eina hálfsystur samfeðra. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, Sigurmundu Guðmundsdóttur, hinn 18. maí 1946. Eignuðust þau þrjú börn. Þau eru Sigurð- ur Dalmann, f. 24.11. 1946, kvæntur Ingibjörgu Jóhanns- dóttur; Hólmfríður Guðrún, f. 17.4. 1951, gift Agnari Magnús- syni; og Sigurmunda, f. 28.4. 1960, í sambúð með Eggerti ísólfssyni. Barnabörn Skarp- héðins eru fimm og barna- barnabörn tvö. Skarphéðinn var framkvæmdastjóri Hóp- ferðamiðstöðvarinnar í 15 ár. Síðustu tvö árin starfaði hann hjá hópferðadeild Bifreiða- stöðvar Islands. Utför hans fer fram þriðjudaginn 2. ágúst frá Fossvogskirkju. MARGS er að minnast er við kveðj- um afa okkar Skarphéðinn Dal- mann, eða Dadda afa eins og við barnabörnin kölluðum hann. Afi var mjög góður og blíður, vildi allt fyrir alla gera. Barngóður var hann enda sóttu börnin mikið til hans. Stundum fórum við í tjaldferðalög og nú í seinni tíð var farið í sumar- hús einu sinni til tvisvar á ári. Þá var glatt á hjalla og var afi hrókur alls fagnaðar. Sagði hann okkur margar sögur bæði af sér úr sveit- inni og ferðum þar sem hann var rútubílstjóri og yfirleitt fylgdi ein draugasaga með í lokin. Alltaf var jafngaman að koma í heimsókn til afa og ömmu, þau áttu alltaf eitthvað gott í pokahorn- inu. Svo ekki sé minnst á þegar þau voru að koma úr utanlands- ferð, þá keyptu þau fallega kjóla handa okkur stelpunum og falleg föt á strákana. Fylgdu yfirleitt leik- föng og sælgæti með. Minnist ég þess er við barnabörnin komum í heimsókn þá tók afi okkur á hné sér og söng fyrir okkur nokkrar vísur. Langafabörnin tvö sóttu mik- ið til afa og ömmu og leita þau að langafa sínum er þau koma í heim-, sókn. Afi sinnti mörgum störfum á lífs- leiðinni, meðal annars var hann bifreiðarstjóri, var með eigið fyrir- tæki í nokkur ár og síðan fram- kvæmdarstjóri i 15 ár, auk annarra starfa, og alltaf sinnti hann sínum störfum af mikilli alúð og kost- gæfni. Afi var einn af stofnendum hestamannafélagsins Neista í Austur-Húnavatnssýslu, auk þess sem hann sat í ýmsum nefndum. Síðustu tvö árin átti afi við van- heilsu að stríða, sem hann barðist við af mikilli þrautseigju, dugnaði og lífsvilja. Aldrei heyrðist hann kvarta þótt hann væri sárþjáður. En að lokum varð hann að lúta í lægra haldi fyrir hinum illvíga sjúk- dómi seni hann barðist við. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku afi, nú kveðj- um við þig með sökn- uði og trega. Minning- in um þig mun lifa í hjörtum okkar um ókomin ár. Og elsku amma okkar, söknuður þinn er mikill, við biðj- um Guð að varðveita þig og styrkja í sorg þinni. Sérstakar þakkir færum við Sigurði Björnssyni krabba- meinslækni, starfsfólki Landakotsspítala og heimahlynningu krabbameinsfélagsins. Eyþór Dalmann, Helga Kristín og fjölskylda. Nú er hann Daddi afi okkar lát- inn. Við eigum svo margar góðar minningar um þennan góða mann sem við vorum svo heppin að þekkja eins vel og við gerðum. Fjölskylda hans var honum allt og umhyggja hans mikil í hennar garð. Afi vildi allt fyrir alla gera sem í hans valdi stóð, alltaf reiðubúinn og til staðar þegar eitthvað bjátaði á. Þá minn- umst við systkinin þess hve oft hann hringdi í okkur bara til að vita hvort allir væru ekki hressir og við góða heilsu, þó hann sjálfur hafi þjáðst af veikindum sern urðu honum ofviða, en aldrei hvarflaði að honum að gefast upp því hann var ákaflega duglegur og bjart- sýnn. Nú kveðjum við elsku afa okkar, þennan mikla baráttumann, með miklum söknuði. Þín mun sárt verða saknað. Elsku amma okkar, Guð blessi þig og styrki í sorg þinni. Skarphéðinn, Lilja Rós og Agnar Már. Þegar hópur rútubílaeigenda kom saman árið 1977 til að stofna nýtt fyrirtæki í ferðaþjónustu, Hóp- ferðamiðstöðina hf., þá skipti mikiu máli að velja þar til forystustarfa mann sem gæti tryggt uppgang og velgengni fyrirtækisins. Fyrir valinu varð Skarphéðinn D. Ey- þórsson. Hann var á þeim tíma starfsmaður Togaraafgreiðslunnar, en hafði mikla reynslu af rútubílum og rútubílaakstri, hafði m.a. verið bílstjóri og verkstjóri hjá Norður- leið auk þess að vera með eigin hópferðabíl. Skarphéðinn kom strax til starfa og á ótrúlega stutt- um tíma var fyrirtækið komið í fullan rekstur. Þessi ráðning var óneitanlega gæfuspor hjá Hópferð- amiðstöðinni hf. því næstu fimmtán árin var Skarphéðinn andlit fyrir- tækisins út á við og óþreytandi í að koma sínum mönnum á fram- færi. Öll samningagerð fyrir fyrir- tækið var á hans herðum og það var eitt af einkennum Skarphéðins að það þurfti ekki að standa í mik- illi pappírsvinnu því orð skyldu standa, ef menn höfðu tekist í hendur upp á gerða samninga þá stóð það og margir slíkir halda enn í dag. Hann starfaði einnig mikið að hagsmunamálum hópferða- leyfishafa og var kjörinn heiðursfé- lagi í Félagi hópferðaleyfishafa árið 1991. Hann sat auk þess í Ferðamálaráði og Skipulagsnefnd fólksflutninga fyrir hönd Félags hópferðaleyfishafa. Hópferðaakstur er nánast vertíð- arbundin atvinnugrein með mikilli vinnuskorpu á sumrin. Þá voru fáir sem gátu staðið vaktina til jafns við Skarphéðin. Sagt var að hann svæfi með símann á koddanum á næturnar, því það var alltaf hægt að ná til hans, nótt sem dag. Hann þekkti vel til manna út um allt land og ef þurfti að bjarga bílum þá var hægt að treysta á að Skarphéðinn þekkti menn. hér eða þar sem áttu bíla og gætu bjargað málunum. Þegar Hópferðamiðstöðin hafði slitið barnsskónum og reist sér eig- ið húsnæði undir starfsemina árið 1986 þá átti Skarphéðinn stærstan þátt að öðrum ólöstuðum í að þar tókst vel til. Þegar Skarphéðinn ákvað að velja sér annan vinnustað fyrir tveimur árum, var samt ljóst að ferðaþjónustan átti hug hans og fylgdi honum áfram, enda hefur Skarphéðinn verið einn af þeim MARGRET BERGSDÓTTIR + Margrét Bergs- ' dóttir fæddist á Bæjarskerjum í Sandgerði hinn 18. júní 1942. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja hinn 22. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Pálína Þ. Theodórsdóttir (f. 29. maí 1921) og Bergur V. Sigurðs- son (f. 4. mars 1916 d. 28. janúar 1993) í Sandgerði. Þau hjónin eignuðust níu börn, en þau eru: Þor- björg, Vigdís Theodóra, Mar- grét, Berglín, Einar, Hrönn, Guðveig, Valgerður og Sigurð- ur Skúli. Margrét átti sín upp- eldisár í faðmi fjölskyldunnar á Bæjarskerjum. Árið 1965 giftist hún Baldri Guðmundi Matthíassyni, f. 13. október 1941, flugafgreiðslumanni á Keflavíkurflugvelli, en Baldur er einnig formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerð- is. Þau hófu húskap á Tjarnar- götu 8 í Sandgerði, en fluttu árið 1968 í nýbyggt liús sitt á Vallargötu 23, og hafa búið þar síðan. Þau eignuðust þrjár dætur sem allar búa í Sand- gerði. Þær eru Elísa, f. 15. febrúar 1965, gift Ingþóri Karlssyni, þau eiga tvö börn, Margréti og Vilhjálm Karl; Bylgja, f. 16. sept- ember 1970, gift Þóroddi Sævari Guðlaugssyni þau eiga einn son, Bald- ur Matthías; Inga Rós f. 29. júlí 1976, býr í föðurhúsum. Margrét sinnti um árabil ýmsum störfum utan hús- móðurstarfanna, m.a. við mötuneyti, fiskvinnslu o.fl. Út- för Margrétar fer fram frá Hvalsnes- kirkju í Sandgerði þriðjudaginn 2. ágúst næst- komandi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Héðan skal halda, heimili sitt kveður heimilis prýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, er. heimavon góð í himininn. (V, Briem.) Það er alltaf áfall að heyra um andlát góðs vinar, jafnvel þó vitað sé að hveiju stefnir. Elskuleg vin- kona mín og frænka Margrét mönnum sem skildu hvað orðið þjónusta þýddi í heitinu ferðaþjón- usta. Starfsfólk Hópferðamiðstöðvar- innar, bæði skrifstofufólk og bíl- stjórar, horfa nú á eftir góðum samstarfsmanni sem minnst verður með söknuði. Við sendum fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur. Sfeirfsfólk Hópferðamið- stöðvarinnar. Þegar ég var ráðin til starfa á Hópferðamiðstöðina hf. haustið 1989 af þeim Jóni Ólafssyni endur- skoðanda fyrirtækisins og fram- kvæmdastjóranum Skarphéðni D. Eyþórssyni, hefði mig aldrei órað fyrir því að sami sjúkdómurinn myndi leggja báða þessa menn ein- ungis tæpum fimm árum seinna. Jón kvaddi okkur í febrúar og nú hefur kvatt minn gamli góði vinur Skarpi. Það er svo margt sem ber að þakka og mér er efst í huga umhyggjan sem þú sýndir mér og Andreu. Sérstaklega ef veður voru válynd og við að ferðast norður. Oftar en ekki varstu búinn að hringja „b'ara til passa stúlkurnar þínar“ að þær kæmust heilar heim. Þegar þú sendir allt að 30 sæta rútu til að ná í mig á morgnana ef snjóþungt var eða til að ná Andreu heini úr skólanum. Allar vísurnar sem þú kenndir mér og spilastundirnar okkar á vetrar- morgnum þegar var búið að fara í bakaríið og nýlagað kaffið kom í krúsirnar okkar. Þegar við vorum að kaupa konfektið fyrir jólin og skreyta Stöðina með greni og kert- um. Allar úrlausnirnar sem þú hafðir þegar eitthvað kom uppá og æðru- Ieysið sem þú bjóst yfir þegar stundum var hálftími í að senda þurfti bíl og enginn var til. Allt leystir þú vel og það að við geymd- um einu sinni hóp inni í Þórsmörk sólarhring lengur en til stóð meðan var verið að „teikna“ bíl, það var ævintýri sem allir tóku vel. Það sem einkenndi þig þó framar öllu var þín létta lund. Hvort sem heilsa eða annað plagaði þig gerðir þú það ekki að aðalumræðuefni dagsins. Minningarnar eru kærar og gott að muna það góða sem einkenndi þig- Kæri vinur, þakka þér samstarf- ið og viðkynninguna. Guð geymi Lillu, Hólmfríði og aðra aðstandendur á erfiðri stund. Ólöf V. Bóasdóttir. Orð megna oft lítið þegar sorgin knýr dyra. Samt langar mig í fáein- um orðum að minnast Skarphéðins Dalmanns Eyþórssonar eða „Dadda“ eins og hann var jafnan kallaður. Við hjónin kynntumst honum fyrir ellefu árum er kynni tókust með okkur og dóttur hans. Áður en langt um leið kom á dag- inn að ættir okkar tengdust og eftir það hélt Daddi því ætíð fram að ég væri frænka sín. Reyndar varð aldrei fullsannað hvort svo var, en Daddi lét sig ekki og „frænkan hans“ skyldi ég vera. Daddi var einkar ljúf og hjarta- góð sál og vinmargur var hann mjög. Hann unni ástvinum sínum og hvergi leið honum betur en í návist þeirra, einkum barnabarn- anna. Það var sannur heiður að fá að þekkja slíkan öðling. Daddi og kona hans voru gestris- in lijón og heimili þeirra hlýtt heim að sækja. Við fundum einlægt að þar vorum við velkomin og minn- ingarnar þaðan hverfa okkur seint. Fyrir rúmum tveimur árum kenndi Daddi þess meins sem átti eftir að draga hann til dauða. Hann æðraðist þó aldrei og slikur var hans innri kraftur að hann hélt sig sífellt að starfi þó sjúkur væri. Kraft máttarvaldanna fær þó eng- inn sigrað og nú er jarðvist Dadda lokið. Dapurleikinn grúfir yfir en djúpt í depurðinni örlar á ljós — ljós trúar og vissu um fagran heim handan lífs og dauða. Okkur hjónin langar til að þakka fyrir samveruna með góðum manni. Veit honum hvíld, Drottinn, og lát ljós þitt lýsa honum um eilífð alla. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Helga Áinundadóltir, Ari Ólafsson. Bergsdóttir er látin eftir erfiða baráttu, sem hún háði af æðru- leysi, við krabbamein, sjúkdóminn sem allt of marga leggur ótíma- bært að velli. Það eru að verða 30 ár síðan vinskapur okkar efldist til muna, þegar við tvenn ung hjón, fluttum inn í nýbyggðu húsin okkar við Vallargötu í Sandgerði. Alla tið síðan hefur ríkt með fjölskyldum okkar kærleiksríkur og traustur vinskapur og margar ánægjustund- ir höfum við átt saman. Það var gott að heimsækja Möggu og Baldur. Gestrisni og hlýjar móttökur voru þar í fyrirrúmi að ógleymdu heimabökuðu góðgæti sem alltaf var boðið upp á. Magga var mikil búkona og þau voru mörg veisluborðin sem voru hlaðin góm- sætu bakkelsi og matföngum sem voru hennar handverk, en margir leituðu liðsinnis hjá Möggu þegar halda þurfti veislu og alltaf var hún boðin og búin til hjálpar, hvort sem var í þeim efnum eða öðrum. Magga var atorkusöm kona. Dugnaður og vandvirkni voru henni í blóð borin. Til margra ára starf- aði hún utan heimilis og var eftir- sótt til vinnu. Þrátt fyrir það kom það ekki niður á umhyggjusemi liennar fyrir sínum nánustu og þeim málefnum sem hugur hennar stóð til. Hún hafði mikla ánægju af handavinnu og liggja mörg fal- leg handverk eftir hana. Til hinstu stundar, meðan henni entist þrek, var hún að pijóna á litlu sólargeisl- ana sína, barnabörnin. Við hinstu kveðju koma margar ljúfar og góðar minningar upp í hugann. Þegar við Nonni fórum okkar fyrstu utanlandsferð saman, þá fórum við til Lúxemborgar árið 1975, með Möggu og Baldri. Þessi ferð var einhver sú skemmtilegasta sem við höfum farið og var í mörg ár á eftir verið að rifja upp hin ýmsu skemmtilegu og skondnu at- vik sem upp komu. Stutt var í glettnina hjá Möggu og mikið var hlegið. Til margra ára var það tilhlökk- unarefni að fara saman á þorrablót þotufólks. Eitt slíkt bar upp á af- mælisdaginn minn. Þegar kom að því að seldir voru happdrættismiðar sagði Magga við mig: Jæja Lóa mín, nú verður þú heppin í kvöld í Lilefni dagsins. Þetta reyndust orð að sönnu því ég hreppti tvo góða ferðavinninga. Magga var tilfinningarík og næm, en því kynntumst við sem þekktum hana best. í sorg jafnt sem gleði var gott að eiga hana fyrir vin. Nú syrgja margir og sakna góðs vinar. Elsku Baldur, Elísa, Bylgja og Inga Rós, ykkar og barnanna er þó söknuðurinn og sorgin mest. Elsku Palla mín, þinn missir er mikill. Við Nonni og fjölskylda okkar sendum ykkur og öllum ástvinum innilegustu samúðarkveðjur og óskum ykkur Guðs blessunar. Megi minningin um Möggu lifa. Hvíli hún í Guðs friði. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, Þar áttu hvíld að hafa hörmunga’og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. (H.P.) Olafía Guðjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.