Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.07.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 37 SIGRIÐUR ASLA UG JONSDOTT- IR OGHERMANNS. BJÖRNSSON + Sigríður Áslaug Jónsdóttir var fædd í Hafnarfirði 5. janúar 1922. Hún andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði 23. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Isa- fjarðarkapellu í gær. Hermann Sigurður Björnsson var fæddur á Isafirði 4. desember 1917. Ilann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á ísafirði 14. maí síðast- liðinn og var útför hans gerð frá ísafjarðarkapellu 24. maí. Með aðeins tveggja mánaða milli- bili eru hjónin Hermann Sigurður Bjönsson og Sigríður Áslaug Jóns- dóttir fallin frá. Sjálf nefndi ég þau Hermann og Bíbí oftast í sömu andránni. Því finnst mér erfitt að minnast annars án þess að minnast hins. Hugurinn reikar til haustsins 1972 er ég var að hefja 2. námsár mitt í Menntaskólanum á ísafirði. Ég hafði fengið húsnæði og fæði að hluta til á Engjavegi 32 hjá þeim Hermanni og Bíbí. Hjá þeim bjó ég svo næstu þrjá vetur. Minningarnar af Engjaveginum eru ljúfar og hlýj- ar. Á köldum vetrarmorgnum var það notalegt að setjast inn í heitan Birting afmælis- ogminning- argreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðs- ins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarn- ar í símbréfi í númer 691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600- 4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Skilafrestur vegna minn- ingargreina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skila- írestur sem hér segir: I sunnu- dags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laug- ardagsblað þarf greinin að bcrast fyrir hádegi tveimur virkum dög- um fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur ei' útr- unninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. bílinn hjá Hermanni og fylgjast með honum er hann ók í vinnuna. Þau voru ekki mörg skiptin sem ég þurfti að ganga í skólann. Kvöld- matartíminn og sjónvarpsfrétta- tíminn voru ávfallt samverustundir okkar þriggja. Þá var skipst á skoð- unum, farið yfir atburði dagsins og fékk ég að fylgjast með fréttum af börnum Hermanns og Bíbíar í Árósum, Hafnarfirði, Vestmanna- eyjum og auðvitað á ísafirði. Þau voru líka áhugasöm um það sem fram fór í skólanum hjá mér og ég held að Bíbí hafi lesið allar „kjörbækur" sem ég þurfti að til- einka mér og ég man að hún las allar danskar bækur sem tilheyrðu náminu. Bæði voru þau áhugasöm um tón- list og létu sig ekki muna um að taka píanóið mitt inn í stofuna til sín. Sérstaklega er mér minnisstætt er þau eignuðust hljómflutnings- tæki hve vel þau nutu þess. Alltaf var sest niður með virðingu fyrir tónlistinni er ný hljómplata bættist í safnið og hlustað með at- hygli. Ein þeirra mun þó alltaf minna mig sérstaklega á aðventuna á Engjaveginum. Það er jólaplata með söngkonunni Leontyne Price. Það varð síðan fyrsta jólaplatan sem ég keypti fyrir mitt heimili. Ekki er mér síður minnisstætt samband þeirra hjóna. I raun voru þau á margarn hátt ólík. Hermann glaðvær, söngvinn og hrókur alls fagnaðar, en Bíbí fremur til baka í fjölmenni, en hafði einstaklega fágaða og yfirvegaða framkomu sem eftir var tekið. Samband þeirra einkenndist af ást og virðingu. Ég minnist áranna þriggja á Engjaveginum með þakklæti. Tryggð þeirra hjóna, gjafir og vin- semd í minn garð verða ávallt geymd með mínum ljúfustu minn- ingum. Blessuð sé minning þeirra. Ester Jónatansdóttir. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, ÓLAFUR HALLDÓRSSON, Tangagötu 4, ísafirði, verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu þriðjudaginn 2. ágúst kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Ágústa Magnúsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför sonar okkar, bróður, mágs og frænda, BRYNJÓLFS ÁRNASONAR, Sogavegi 107, sem andaðist í Svíþjóð 20. júlí, fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 3. ágúst kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnst hans, er vin- samlegast bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Ingibjörg Stefánsdóttir, Guðmundur Árnason, Lára Hrönn Árnadóttir, Sigriður Árnadóttir Clarke, Haraldur Árnason, Árni Árnason, Árni Guðmundsson, Júliana Árnadóttir, Ari Jónsson, Kenneth Clarke, Aðalheiður íris Hjaltadóttir og frændsystkini. + Þökkum innilega stuðning og samúð í veikindum og við andlát og útför ást- kærs eiginmanns míns, föður og sonar, HLYNS ÞÓRS HINRIKSSONAR kennara, Kríuhólum 2. Sérstakar þakkir til Þóreyjar Sigurðar- dóttur fyrir ómetanlega hjálp. Guð blessi ykkur öll. Valgerður Anna Sigurðardóttir, Sigurður Þór Hlynsson Lilja Þorleifsdóttir. + Þökkum af alhug öllum þeim fjölmörgu, nær og fjær, er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HAUKS KRISTJÁNSSONAR, Viðilundi 1, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við Oddfellowbræðrum, gömlum Geysis- félögum, Verkstjórafélagi Akureyrar og nágrennis, Kaupfélagi Eyfirðinga og vinnufélögum í Mjólkursamlagi KEA. Anna Steindórsdóttir, Úlfar Hauksson, Hólmfrfður Andersdóttir, Selma Hauksdóttir, Þengill Ásgrfmsson og barnabörnin. + Bestu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts GUNNARS MAACK. Einnig sendum við starfsfólki krabba- meinslækningadeildar og lyflækninga- deildar 11A á Landspítalanum sérstak- ar þakkir. Eygló Baldursdóttir, Baldur Maack, Karl Maackyngri, Karl Maack eldri, Sæmundur Pétursson, Katrín Egilsdóttir, Pétur Maack, Sóley Ingólfsdóttir, Runólfur Maack, Stefanía Kjartansdóttir. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ÁSGEIRS STEFÁNSSONAR, Hraunbraut 17, Kópavogi. Dóra M. Georgsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Berglind Ólafsdóttir, Fanný Fjóla Ásgeirsdóttir, Hallgrfmur Guðmundsson, Viðar Ásgeirsson, Guðrún María Einarsdóttir, Richarður Þór Ásgeirsson og barnabörn. + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar raóður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MARÍU ÁSGRÍMSDÓTTUR frá Minni-Reykjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks bæklunardeildar FSA fyrir hlýja og góða umönnun síðastliðin fjögur ár. Hólmfríður Guðvarðardóttir, Ásta Guðvarðardóttir, Úlfur Ragnarsson, Helga Guðvarðardóttir, Sigurður Guðvarðsson. Bæringur Guðvarðsson, Helena Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Guðvarðsson, Sólveig Márusdóttir, Pétur Guðvarðsson, Guðrún Einarsdótttir, Sigurlaug Guðvarðardóttir, Jónatan Ástvaldsson, Ragna Guðvarðardóttir, Haukur Bergsteinsson, Hreinn Guðvarðsson, Ingibjörg Einarsdóttir, Páll Jónsson, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug við andlát og útför MAGNÚSARGUNNARS GÍSLASONAR, Stað, Hrútafirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landakotsspítala á deildum 2B og 3B. Bára Guðmundsdóttir, Edda Björk Karlsdóttir, Vilborg Magnúsdóttir, Elín Elísabet Magnúsdóttir, Magnea Torfhildur Magnúsdóttir, Guðmundur Magnússon, Ingibjörg Magnúsdóttir, Gísli Jón Magnússon, Eiríkur Gíslason og barnabörn. Sigurður Reynisson, Kristinn Reynir Guðmundsson, Sigurður Rögnvaldsson, Mikael Bjarki Eggertsson, Jónína Hafdís Kristjánsdóttir, Ottó Berg Magnússon, Lokað Vegna jarðarfarar SKARPHÉÐINS D. EYÞÓRS- SONAR verða skrifstofur okkar lokaðar frá kl. 13.00-16.00 þriðjudaginn 2. ágúst. Hópferðamiðstöðin hf. Lokað Skrifstofa BSÍ, hópferðabíla, verður lokuð frá kl. 13.00-17.00 þriðjudaginn 2. ágúst vegna jarðarfar- ar SKARPHÉÐINS DALMANNS EYÞORSSONAR. BSÍ, hópferðabflar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.