Morgunblaðið - 30.07.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 19
ERLENT
Jeffrey
Archer
sýknaður
London. The Daily Tclegraph.
ARCHER lávarður, betur þekktur
sem Jeffrey Archer, hefur verið
sýknaður af grun um innheijavið-
skipti í tengslum við sölu á Anglia
sjónvarpsfyrirtækinu. Breska við-
skiptaráðuneytið upplýsti fyrir
skömmu að verið væri að rannsaka
þátt Archers í málinu og er það
talið hafa orðið til þess að hann kom
ekki til greina sem ráðherraefni, er
John Major forsætisráðherra stokk-
aði upp í stjórn í síðustu viku.
Archer, sem er einn þekktasti
metsölurithöfundur Bretlands,
gegndi ráðherraembætti í tíð Marg-
aretar Thatcher og var einnig vara-
formaður íhaldsflokksins. Varð
hann að segja af sér í kjölfar þess
að blaðið New of the World greindi
frá viðskiptum hans við vændis-
konu. Er hann talinn hafa mikinn
áhuga á að hefja á ný afskipti af
stjórnmálum og nú er fátt talið
standa í vegi fyrir því að hann fái
veigamikið embætti á vegum Ihalds-
flokksins.
Eiginkonan hjá Anglia
Archer var grunaður um inn-
heijaviðskipti sökum þess að eigin-
kona hans, Mary, er í yfirmanns-
stöðu hjá Anglia. Er tilkynnt var
um að fyrirtækið MAI hygðist taka
yfir Angiia hækkuðu hlutabréf í síð-
amefnda fyrirtækinu úr 180 pens-
um í 664 pens. Hafði verið nokkuð
um viðskipti með hlutabréf áður en
tilkynnt var um samrunann og
beindist rannsókn viðskiptaráðu-
neytisins að þeim.
Yfirheyrslur vegna rannsóknar Bandaríkjaþings á Whitewater-málinu
BERNARD Nussbaum ber vitni fyrir bankanefnd Bandaríkjaþings.
Ráðgjafi Clintons
játar mistök
Washington. The Daily Telegraph.
BERNARD Nussbaum, sem var helsti lögfræðiráðunautur bandarísku
forsetahjónanna þegar Whitewater-málið skaut fyrst upp kollinum,
neitaði við yfirheyrslur að hafa reynt að hlífa Clinton-hjónunum við
armi laganna. Hann viðurkenndi þó að hafa „gert mistök". Hann
var kallaður fyrir bankanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, til
þess að gera grein fyrir hlutdeild sinni i Whitewater-málinu.
Fjórða mannránið í Suður-Rússlandi á átta mánuðum
Fimm létust í árás
á mannræningja
Moskvu. Reuter.
FJÓRIR menn að minnsta kosti
týndu lífi þegar rússneskir lögreglu-
menn létu til skarar skríða gegn
mannræningjum í gær en þeir höfðu
upphaflega tekið 41 gísl. Átti at-
burðurinn sér stað í Suður-Rúss-
landi, í Kákasushéruðunum, en þar
ríkir mikil óöld og mannrán og alvar-
iegir glæpir algengir.
Þrír gíslanna, þijár konur, og einn
mannræningjanna létu lífið þegar
lögreglumenn réðust inn í þyrlu, sem
komið hafði verið með til bæjarins
Míneralníje Vody að kröfu mann-
ræningjanna. Sprengdi einn þeirra
handsprengju inni í þyrlunni en áður
höfðu þeir stöðvað langferðabíl og
tekið 41 gísl og voru að reyna að
flýja með nokkra þeirra. Þetta var
fjórða mannránið á þessum slóðum
á átta mánuðum.
Fréttir al' atburðinum eru fremur
óljósar vegna þess, að lögreglan setti
á fréttabann þar sem ræningjarnir,
sem allir voru frá Tsjetsjníju, voru
með fjarskiptatæki. Alls slösuðust
19 manns í sprengingunni og fjórða
konan liggur enn þungt haldin.
Undir áhrifum eiturlyfja
Mannræningjarnir, sem voru fjór-
ir, voru með svartar grímur fyrir
andliti, vopnaðir skammbyssum og
handsprengjum. Höfðu þeir fengið
rúman milljarð ísl. kr. í lausnargjald
og tvær þyrlur til afnota. Talið er,
að sá þeirra, sem sprengdi hand-
sprengjuna, hafi verið undir áhrifum
eiturlyfja.
Tsjetsjeníja er hluti af Rússlandi
en lýsti sig sjálfstætt ríki 1991. Leið-
togi þess, Dzhokhar Dúdajev, hefur
skipað iögreglunni að hafa samstarf
við Rússa í málum af þessu tagi en
völd hans sjálfs eru mjög ótrygg. í
Tsjetsjeníju ríkir lögleysan ein og
menn þaðan hafa látið mikið til sín
taka í glæpastarfseminni í Rússlandi.
Þingið stendur nú fyrir rannsókn
á meintri, óviðurkvæmilegri íhlutun
starfsmanna í Hvíta húsinu í alrík-
isrannsókn á gjaldþroti sparisjóðs
í Arkansas, og tengslum Clinton-
hjónanna við það mál.
Ber við skyldu sinni
Nussbaum sagði sér hafa borið
skylda til að vara Clinton við yfir-
vofandi rannsókn á gjaldþroti
sparisjóðsins, og að sú rannsókn
gæti beinst að forsetanum sjálfum,
til þess að fjölmiðlar hefðu ekki
komið að honum óvörum vegna
málsins.
Nussbaum neyddist til að láta
af störfum ráðunautar fýrir fjórum
mánuðum, vegna ásakana um emb-
ættisafglöp, en hlutverk hans var
meðal annars að gefa forsetanum
ráð í lagalegum efnum er vörðuðu
embættisfærslur Clintons.
Þrír aðrir ráðgjafar hafa verið
yfirheyrðir, George Stephanopou-
los, Bruce Lindsay og Thomas
McLarty. Báru þeir allir að ekkert
hefði verið aðhafst til þess að hafa
áhrif á rannsóknina. Reyndar hefðu
menn í Hvíta húsinu litið á White-
water sem smámál á þeim tíma.
HDNDA CIVIC
Ott farþegarými
rum
Að utan sem innan er
Honda Civic lagaður að þínum þörfum.
Sportlegur, rúmgóður og öruggur smábíll.
Verð frá kr. 1.127.000
MÁTTUHINN S. DÝRÐIN