Morgunblaðið - 30.07.1994, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.07.1994, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 30. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR Ferðamannaversl- un er framtíðin FRÍDAGUR versl- unarmanna hefur frá upphafi tengst ferða- lögum og verslunar- mannahelgin er löngu orðin þjóðar- eign sem mesta ferðahelgi ársins. Það er því ekki úr vegi einmitt nú að velta fyrir sér hug- taki sem kalla má „ferðamannaversl- un“ (travel shopping) og mun á næstu árum hafa afgerandi áhrif á möguleika til atvinnusköpunar og verðmætaaukningar á Islandi. Verslun er í víðum skilningi stundum skilgreind sem fundur þar sem finnast framleiðandinn, varan sjálf og svo kaupandinn. Ferða- mannaverslun er í tölfræðilegum samantektum skilgreind sem inn- kaup ferðamanns sem hefur búsetu í öðru landi en því sem kaupin fara fram í. Ferðamannaverslun innifel- ur því ekki kaup innlendra ferða- manna í sínu eigin heimalandi. Árið 1992 voru heildartekjur af alþjóðlegri ferðamannaverslun um 3.500 milljarðar króna, sem nam um 1,5% af heimsviðskiptum með vöru og þjónustu. Það ár var áætlað að um 20 milljónir manna hafi haft lífsviðurværi sitt af ferðamanna- verslun. Ferðamannaverslun er meðal þeirra atvinnugreina sem vaxa hraðast í heiminum í dag. Frá 1950 til 1992 hefur þessi grein 250-fald- ast í tekjum og fram til aldamóta er reiknað með að umsetning ferða- mannaverslunar muni a.m.k. tvö- faldast. Einn milljarður ferðamanna fór milli landa árið 1992 og íjöldinn mun halda áfram að aukast, einkum í flugi þar sem flugtími mun styttast, flugvélar stækka og fargjöld lækka. Afnám landa- mærahindrana, aukinn frítími, breytt lífsviðhorf og lengri ferðir, ásamt með frjáisari viðskiptum, ekki síst vegna GATT- samninganna, munu stórauka möguleika og tækifærí á sviði ferða- mannaverslunar. Ein athyglisverðasta breytingin í ferða- mannaverslun er minnkun verslun- ar „án gjalda" (Tax Free), en í upphafi sjötta áratugarins, þegar ferðamannaverslun fór að eflast, var nær öll verslunin í þeim flokki. Við næstu aldamót er áætlað að aðeins fjórðungur ferðamannaversl- unar verði án gjalda vegna sam- ræmingar gjalda og skatta milli landa, en einnig vegna áhrifa af einkavæðingu flughafna, ríkisflug- félaga og minnkandi þátttöku hins opinbera í verslunarrekstri eins og t.d. áfengiseinkasölu. Afleiðing af þessu verður m.a. að ferðamanna- verslunin mun dreifast frá flughöfn- um, flugvélum og skipum til al- mennra verslana í miðborgum, út- hverfum og dreifbýli. Athyglisvert fyrir okkur íslend- inga er að lítil lönd eiga ekki síður möguleika í samkeppni um ferða- mannaverslun en stór lönd. Þannig eru Singapore og Hong Kong með- al fimm stærstu tekjuaflenda í ferðamannaverslun, miðað við íbúa- ljölda, á undan margfalt stærri löndum eins ogt.d. Þýskalandi, ítal- Lítil lönd eiga ekki síður möguleika í samkeppni um ferðamannaverslun, segir Birgir Rafn Jóns- son, en stór lönd. íu og Spáni. Einnig er áhugavert fyrir okkur að stærsti hluti ferða- mannaverslunarinnar fer fram í okkar heimsálfu, Evrópu, u.þ.b. 50%. Margir telja að ferðaþjónusta vaxi hraðast allra atvinnugreina og sé að verða, eða sé orðinn, stærsta atvinnugrein heims. Þetta segir m.a. John Naisbitt í bók sinni „Glob- al Paradox" (Alheimsþverstæða) og heldur því fram að ferðaþjónusta veiti fleirum atvinnu, greiði hærri skatta, velti meiru og standi fyrir meiri verðmætasköpun en nokkur önnur atvinnugrein. Hagstofa Evr- ópusambandsins telur að hlutur ferðamannaverslunar í heildartekj- um af ferðaþjónustu sé 24%. Þar til viðbótar kemur sala matar- og drykkjarvöru um 25% og nálgast þá tekjuöflun verslunar í ferðaþjón- ustu 50%, sem sýnir glöggt hversu mikilla hagsmuna verslun hefur að gæta. Það má segja að hagsmunir ís- lenskrar ferðamannaverslunar séu tvíþættir. Annars vegar að hámarka sölu til erlendra ferðamanna, en hins vegar að jeitast við að lág- marka verslun íslendinga erlendis. í báðum tilfellum næst þetta mark- mið helst með því að hér á landi sé vöruverð lágt og vöruúival fjöl- Birgir Rafn Jónsson TEKJUÞROUN I FERÐAMANNAVERSLUN upphæ&ir i tnilljör&um króna Me5 gjöldum (Duty Paid) j An gjalda (Tax/Duty Free) i Samtals 1950 14 100% 14 1992 2.450 70% 1.050 30% 3.500 2000 5.250 75% 1.750 25% 7.000 ■ Heimild: FÍS FERÐAMANNAVERSLUN 1992 | effir löndum 1 ÍBÚAFJÖLDI TEKJUR AF FERÐA- || LAND MANNAVERSLUN || milljónir milljarSar króna 1 Bandarikin 255,0 392,0 1 Frakkland 57,3 231,0 P Bretland 57,8 227,5 É Singapore 2,8 224,0 P Hong Kong 5,8 203,0 É Þýskaland 80,4 105,2 ii Ítalía 57,9 185,5 Spónn 39,1 168,0 § Thailand 57,5 109,2 Austurríki 7,9 87,5 i Heimíld: FÍS || mmmmmMmmmmmmmm ÉÉÉÉSÉÚMÉÉÉÉÉ breytt miðað við önnur lönd. Banda- ríkin hafa hæstu tekjur allra landa af ferðamannaverslun, en þar er vöruverð einmitt hagstætt og hvergi meira vöruúrval. Það sem fyrst og fremst hefur áhrif á vöxt og viðgang ferða- mannaverslunar eru opinberar álög- ur á vörur. Hér á landi eru slíkar álögur háar miðað við önnur lönd. Virðisaukaskattur upp á 24,5% er meðal þess hæsta sem þekkist og að auki koma til tollar og vörugjöld sem yfirleitt þekkjast ekki í ná- grannalöndunum. Sérstakir skattar á verslun, eins og skattur á verslunar- og skrif- stofuhúsnæði og hátt tryggingar- gjald af launagreiðslum í verslun, sem er hærra en í t.d. iðnaði og sjávarútvegi, eru óþolandi mismun- un. Allt rýrir þetta samkeppnis- stöðu verslunar og möguleika til að öðlast hlutdeild í aukinni heims- verslun og láta gott af sér leiða með aukinni gjaldeyrisöflun, at- vinnu- og verðmætasköpun fyrir þjóðina alla. Höfundur er formnður Félags íslenskra stórkaupmanna og Islcnskrar verslunar. Rafmagn og* heilsufar LÍKAMINN er flókið og furðulegt apparat. Vísinda- menn og læknar eru enn ekki, þrátt fyrir alla tækni tuttugustu aldarinnar, komnir nema áleiðis í rann- sóknum á starfsemi og stjórnun manns- líkamans. Undanfarin ár hafa augu almenn- ings og fræðimanna beinst æ meira í átt að því að skoða um- hverfi okkar til að komast að hvort or- sakavaldar að sjúk- dómum og vanheilsu sé þar að finna. Eitt af því sem augu manna bein- ast æ meira að eru áhrif rafmagns á heilsufar. Er þá verið að skoða þá þætti rafmagnsins sem ekki eru sýnilegir, nefnilega rafgeislun ann- arsvegar og rafsegulsvið hinsvegar. Þar er verið að tala um rafsegul- geislun frá rafmagnstækjum, allt frá útvarpsviðtækjum til örbylgju- ofna og jafnframt radíóbylgjur hverskonar. Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að sanna hvernig rafsegulgeislun hef- ur áhrif á líf okkar og heilsu eru vísindamenn víðast hvar sannfærðir um að rafsegulgeislun hafi einhver áhrif á líkamann og það jafnvel töluverð. Milljörðum er eytt í rann- sóknir á þessu sviði og virðast sum- ar þjóðir hreinlega vera í sam- keppni um að finna hina raunveru- legu hættu af rafsegulgeislun. Það er ekki lengur spurning um að sanna „hvort“ heldur hvernig. í nýlegri skýrslu frá Sænska raf- magnsöryggiseftirlitinu, sem fjallar um hugsan- leg tengsl milli rafsegul- sviðs og krabbameins, segir að ekki sé sannað að segulsvið valdi krabbameini í fullorðn- um og líkurnar á slíku séu harla litlar. Hinsveg- ar hafa faraldsfræðileg- ar rannsóknir Dana og Svía sýnt fram á tengsl milli hvítblæðis í börnum og búsetu í nálægð við rafmagnsmannvirki. Þær rannsóknir eru nokkurnveginn sam- hljóða rannsóknum sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum. Við þessar rannsóknir hafa nokkrar athyglisverðar staðreyndir komið í ljós. Til dæmis hefur líkams- klukka okkar, sem stjórnar svefni og vöku, hormón í sinni þjónustu sem heitir melatónín. Melatónín eykst í líkamanum þegar við sofum en minnkar í vöku. Tekist hefur að sýna fram á að hormónið minnkar í líkamanum við áhrif frá rafsegul- sviði og getur þannig haft áhrif á svefn. Melatónín hefur áhrif á myndun annars hormóns sem nefn- ist serótónín. Serótónín er mikil- vægt í boðskiptakerfi heilans og hefur áhrif á líðan okkar. Truflist melatónínframleiðsla líkamans truflast einnig serótónínframleiðsl- an og líðan okkar breytist oftast til hins verra. I nýlegu tölublaði tímaritsins „Traveler" er grein sem fjallar um svokallaða þotuveiki. Þotuveiki kall- ast þreyta sem leggst á ferðalanga sem ferðast gegnum tímabelti og þurfa .að aðlagast nýjum tíma á Svo virðist sem segul- svið, segir Yaldemar Gísli Valdemarsson, hafi neikvæð áhrif á getu líkamans til að bregðast við sjúkdómum. komustað. Það getur tekið þá tölu- verðan tíma að jafna sig, allt frá nokkrum tímum upp í viku. Rann- sóknir hafa leitt í ljós að við það að fljúga í langan tíma verður lík- aminn fyrir áhrifum frá breytilegu segulsviði jarðar og minnkar heila- köngullinn " við það framleiðslu melatóníns. Til að vinna upp á móti flugþreytu er farið að mæla með inntöku melatóníns. Það hefur reynst vel og það flýtir töluvert fyrir að líkaminn jafni sig af flug- þreytunni. Rannsóknir vísinda- manna hafa jafnframt leitt í ljós að melatónín hefur hamlandi áhrif á skiptingu sumra tegunda krabba- meinsfruma og getur þannig hægt á vexti krabbameinsæxla. Sú stað- reynd að krabbamein er algengt í hópi flugmanna er e.t.v. tengt minnkandi framleiðslu melatóníns við flug. Hvað varðar tengsl milli líkams- kvilla og rafsegulsviðs hafa sjónir manna beinst helst að ónæmiskerf- inu. Svo virðist sem segulsvið hafi neikvæð áhrif á getu líkamans til að bregðast við sjúkdómum. Ónæm- iskerfið er flókið og sennilega lítið Valdemar Gísli Valdemarsson þekkt en mikilvægi þess er mjög mikið. Menn hafa jafnvel leitt að því líkur að áhrif segulsviðs á líkam- ann virki aðallega á getu ónæmis- kerfisins til að nema hættuástand, t.d. byijun óeðlilegrar frumuskipt- ingar, og hindri þannig að varnar- kerfi líkamans nái að hefta myndun æxla. Þar sem ekki hefur tekist að sanna samhengi milli krabbameins og segulsviðs hafa sjónir vísinda- manna beinst að svokölluðum „gluggaáhrifum“, það er, að ef til vill sé ekki um að ræða áhrif háð styrkleika (þ.e. að sterkara segul- svið kalli á meiri hættu á krabba- meini), heldur sé um að ræða ákveð- ið styrkbil sem gæti þess vegna verið mjög lágt. Svíar íhuga nú að setja staðal sem segi til um há- markssegulsvið á svæðum þar sem börn eru, t.d. á leikskólum, skólum og dagheimilum, eða um 2,5 mG- 3,5 mG (milli Gauss er mæíieining á segulsvið). Það vekur eftirtekt hversu lágur staðallinn er og liggur í augum uppi að töluverður kostnað- ur verður þessu samfara, ef af verð- ur. Svíar taka þessi mál alvarlega og er kannski full ástæða til. Eins og áður er getið hafa faraldsfræði- legar rannsóknir einna helst sýnt tengsl milli barnahvítblæðis og bú- setu í nærveru við rafmagnsmann- virki og flutningslínur. Rafsegulóþol er fyrirbæri sem vakið hefur mikla athygli. Það virð- ist í fljótu bragði fáránlegt að fá ofnæmi fyrir rafsegulgeislum, en engu að síður er það staðreynd að nokkur fjöldi fólks þjáist af þessum sjúkdómi. Rafsegulóþol lýsir sér með útbrotum, kláða og sviða í húð, þreytu, öndunarerfiðleikum, ásamt svitaköstum. Einkennin koma fram þegar sjúklingur nálg- ast rafmagnstæki og verður fyrir rafgeislun eða segulsviði. Tölvur, sjónvarpstæki, útvarpstæki og yfir- leitt öll tæki sem ganga fyrir raf- magni, eru þá ofnæmisvaldar. Fyrir stuttu birtist lesendabréf í tímarit- inu „Journal of Alternativ & Complementary Medicine", þar sem nuddari og praktíker í óhefðbundn- um lækningaaðferðum segir frá því að hún hafi náð góðum árangri í meðhöndlun sjúklinga sem þjáðst hafa af þrálátri bólgu í úlnlið og olnboga (Repetidive Strain Injury), sérstaklega í hægri handlegg, vegna vinnu við tölvu og með mús. Meðhöndlunin byggðist á því að eyða allri rafgeislun frá tölvubúnaði viðkomandi, sértaklega mús og lyklaborði. Varð í sumum tilfellum að láta sjúkling hafa fartölvu sem notaði rafhlöður. Fjöldi fólks finnur fyrir óþægind- um frá rafmagni, t.d. rafmagnshit- un, sjónvörpum, tölvum, vatnsrúm- um, eldavélum og svo mætti lengi telja. Óþægindi lýsa sér t.d. í höfuð- verk, kláða og sviða í húð og sjón- þreytu. Það er mjög einstaklings- bundið hvort og hvernig menn finna fyrir rafsegulgeislun, sumir finna ekki neitt meðan aðrir eru pirraðir, eiga erfitt um svefn og finna fyrir allskonar kvillum sem jafnvel eru greindir sem ímyndunarveiki. Ein- faldur hlutur eins og útvarpsvekj- araklukka getur raskað melatónín- jafnvægi líkamans, sé hún staðsett mjög nálægt höfði meðan sofið er. Hvað svo sem sönnunum líður þá er það Ijóst að það ber að um- gangast rafmagn með virðingu og varast óæskileg áhrif eins og raf- geislun, t.d. með því að jarðtengja allt sem hægt er að jarðtengja, sofa ekki með rafmagnsvekjaraklukkur nálægt höfði eða önnur rafmagns- tæki. Því jafnvel þótt ekki sé sann- að hvort né hvernig rafsegulsvið veldur krabbameini þá getur það valdið óþægindum því „fyrr má rota en dauðrota". Höfundur er rafeindavirki og áhugamaður um umbverfismál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.