Morgunblaðið - 09.09.1994, Síða 1

Morgunblaðið - 09.09.1994, Síða 1
88 SIÐUR B/C 204. TBL. 82. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Gólan-hæðir Rabin ræð- ir brott- fhitning Jerúsalem. Reuter. YITZHAK Rabin, forsætisráðherra ísraels, kynnti í fyrsta skipti í gær áætlun um takmarkaðan brottflutn- ing ísraela frá Gólan-hæðum. Áætl- unin er til þriggja ára en að þeim liðnum leggur Rabin til að metnar verði líkur á friðarsamningum við Sýrlendinga. Sýrlendingar hafa vísað tillögu Rabins á bug, segja að ekki þurfl svo langan tíma til, m.a. vegna smæðar landsvæðisins. Rabin hef- ur vænst þess að skriður komi á við- ræður við Sýrlendinga en þær hafa staðið í þijú ár og eru nú í hnút vegna kröfu þeirra um að fá full yfírráð yfir hæðunum. ísraelar vilja ekki ræða það fyrr en Sýrlendingar fallast á að koma á fullum samskipt- um, m.a. opna landamæri, sendiráð og heija viðskipti. Um 13.000 ísra- elskir landnemar eru nú búsettir á Gólanhæðum, sem ísraelar náðu árið 1967. Vitnað í samning við Egypta Rabin tilkynnti ríkisstjórninni að fyrsti áfanginn fæli í sér takmark- aðan brottflutning, helst án þess að gefnar yrðu eftir neinar landnema- byggðir. Að því búnu yrði árangurinn metinn. Vitnaði Rabin í friðarsamn- inga ísraela og Egypta á níunda áratugnum en á tveimur árum opn- uðu þjóðirnar landamæri sín og komu á fót seridiráðum hvor hjá annarri eftir að ísraelar höfðu dregið sig að hluta brott frá Sínaí-skaganum. Létu þeir hann síðar að fullu af hendi til Egypta. Sarajevo- búar hlýða a pafa KAÞÓLIKKAR í Sarajevo, höf- uðborg Bosníu, hlýddu I gær á upptöku af ræðu Jóhannesar Páls páfa, sem hafði frestað fyr- irhugaðri för sinni til borgarinn- ar. Páfi hvatti til þess að bundinn yrði endi á það sem hann kallaði þjóðernislega og trúarlega villi- mennsku í Bosníu. Á myndinni dansa kaþólikkar í hring í kring- um kirkjuna eftir að hafa hlýtt á boðskap páfa. Reuter Kvenprest- ar í upp- reisnarhug Ósló. Morgunblaðið. FYRSTI kvenbiskup Noregs, Rosemarie Kohn, hefur ákveðið að segja sig úr norska prestafé- laginu eftir að Egil Morland var endurkjörinn formaður þess, en hann cr andvígur því að konur gegni prestþjónustu. Konur innan norsku kirkj- unnar eru í uppreisnarhug vegna fjölmargra heiftarlegra árása karlkyns samstarfsmanna þeirra að undanförnu. Á síðustu prestastefnu var hart deilt um andúð á kvenprestum og er Kohn sú sem hefur brugðist harðast við henni. Segist hún ekki geta sætt sig við að vera í félagi sem sé undir forystu þess manns sem gagnrýni kven- presta hvað mest. Fimmveldin vilja umbuna stjórnvöldum í Serbíu Bjóðast til að slaka á refsiaðgerðunum Búkarest, Lundúnum. Reuter. FIMMVELDIN, sem hafa beitt sér fyrir friði í Bosníu, hafa samþykkt að bjóðast til að slaka á refsiaðgerðunum gegn Serbíu á næstu vikum ef þarlend stjórnvöld heimila að alþjóðlegir eftirlitsmenn fylgist með því að viðskiptabanni landsins á Bosníu-Serba sé framfylgt, að sögn stjórnar- erindreka í gær. Stjómarerindrekamir sögðu að embættismenn fímmveldanna - Bandaríkjanna, Rússlands, Þýska- lands, Bretlands og Frakklands - hefðu samþykkt þetta á fundi sínum í Berlín sem lauk á miðvikudag. Þeir sögðu að margt benti til þess að stjórnin í Serbíu myndi fallast á að alþjóðlegir eftirlitsmenn fylgdust með landamærunum að Bosníu þótt hún hefði áður hafnað því. Flugsam- göngur til og frá Serbíu kynnu að verða heimilaðar að nýju, svo og íþrótta- og menningarsamskipti. Hins vegar kæmi ekki til greina sem stendur að afnema viðskiptabannið og bann við sölu á olíu til Serbíu. Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í gær að slakað Reuter Bandamenn halda heim frá Berlín TÍU klukkustunda hátíðardagskrá var í Berlín í gær í tilefni þess að herir banda- manna halda nú á brott frá Þýskalandi eftir hálfrar aldar veru. Þakkaði Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, bandamönn- um fyrir varnir Vestur-Berlínar frá stríðslokum og sagði að Þjóðverjar myndu aldrei gleyma því sem bandamenn hefðu gert fyrir þá. Dagskránni lauk í gærkvöldi með hersýningu þar sem her- menn báru kyndla að Brandenborgar- hliðinu. Pjöldi fyrirmanna var viðstaddur athöfnina, auk Kohls voru m.a. John Major, forsætisráðherra Bretlands, Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Francois Mitterrand Frakklandsforseti. Athygli vakti að Mitt- errand var ekki viðstaddur alla dag- skrána, sem ýtti undir vangaveltur um heilsubrest hans. Tilkynning þýsks emb- ættismanns um að forsetinn gæti ekki sótt öll atriðin af heilsufarsástæðum ýtti enn frekar undir þetta en þær fréttir voru dregnar til baka. Mitterrand þjáist af krabbameini í blöðruhálskirtli og sagði hann í viðtali við Le Figa.ro sem birtist í gær, að hann ætti ef til vill aðeins fáa mánuði ólifaða. Á myndinni stendur Mitt- errand við hlið Kohls. kynni að verða á refsiaðgerðunum á næstu vikum ef viðskiptabanni Serb- íu á Bosníu-Serba yrði framfylgt. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, fagnaði þeirri ákvörðun fímmveldanna að biðja öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að ræða hvort slaka bæri á refsiaðgerðunum. Vítalíj Tsjúrkin, aðstoðarutanríkis- ráðherra Rússlands, sagði að emb- ættismennirnir hefðu samþykkt að umbuna bæri stjómvöldum í Serbíu fyrir viðskiptabannið sem þau settu á Bosníu-Serba í síðasta mánuði eft- ir að þeir höfnuðu friðaráætlun fimmveldanna. Rússar, Bretar og Frakkar knýja nú á Bandaríkjastjórn um að hætta við áform sín um að afnema vopna- sölubannið á múslima í Bosníu. Þjóð- imar þijár höfðu áður sagt að þær kynnu að fallast á afnám vopnasölu- bannsins sem neyðarúrræði til að knýja á Serba um að fallast á friðar- áætlunina. SÞ spá skæru- hemaði í Rúanda Kigali. Reuter. HERSVEITIR hinnar föllnu stjórnar hútúa í Rúanda undirbúa nú stríðs- átök, að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í landinu. Segir hann að hermenn SÞ hafi séð menn í hermannabúningum vopnaða byssum og með vistir, fara yflr landamærin í suðvesturhlutanum frá Búrúndí og Zaire. Talsmaðurinn, Shaharyar Khan, lýsti herflutningunum sem dæmi- gerðum undirbúningi skæruliðahern- aðar. SÞ og stjórn tútsa segja að skot- árásir hafi aukist mjög á fyrrum griðasvæði Frakka í suðvesturhlut- anum á síðustu tveimur sólarhring- unum. Þá segja tútsar að fjölmörg dæmi séu um árásir hútúa annars staðar í landinu auk þess sem þeir skipi fólki að halda á brott. Fyrrum stjómarhermenn slógust í hóp almennra borgara sem flúðu Rúanda eftir að Þjóðfrelsisfylking tútsa náði völdum í júlí sl. Talið er að stjórnarhermenn og vopnaðar sveitir hútúa hafí drepið um eina milljón tútsa áður en Þjóðfrelsisfylk- ingin sigraði í stríðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.