Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 2

Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994_____________________ FRÉTTIR Óðinn fékk kaldar kveðjur við komuna til Hammerfest Sjómenn á norskum smá- bátum sögðu íslensku „sjó- ræningjunum“ að fara heim Hammerfest, Noregi. Morgunblaðið. „FARIÐ heim, sjóræningar." Þetta voru fyrstu móttökur sem slösuðu íslendingarnir úr Smug- unni og varðskipsmenn fengu frá Norðmönnum þegar siglt var inn í norsku landhelgina snemma í gærmorgun. Þar voru nokkrir smábátar að veiðum og kölluðu þetta í talstöðina. Fréttamenn tóku á móti varðskipinu þegar það kom til hafnar á Hamm- erfest, en Hammerfestbúar sýndu ekki annars áhuga á mál- inu. Jan Henry T. Olsen, sjávarút- vegsráðherra Noregs, var stadd- ur í Hammerfest og höfðu norsk- ir fjölmiðlar eftir honum að Is- lendingar hefðu bætt viðskipta- jöfnuðsinn með veiðum í Smug- unni. Óvissa var um hafnarleyfi norskra yfirvalda og þjónustu við skipið fram eftir nóttu, en skipið fór inn í norsku landhelgina rétt fyrir klukkan sex að íslenskum tíma. Enn var þá óljóst hvaða afgreiðslu skipið fengi og kom það ekki í ljós fyrr en skipamiðl- arinn kom um borð þegar það kom til hafnar og hafði upp á vasann hið opinbera leyfi til að selja sjúklinga í land og fá þjón- ustu. Á bryggjunni beið hópur nor- skra blaðamanna. Aðrir voru ekki í móttökunefndinni, nema hvað einhver sagðist hafa séð tvo menn frá Norges fiskarlag, sam- tökum sjómanna og útgerðar- manna, en þeir gáfu sig ekki fram við skipherrann. Og kennari kom með þijá nemendur sína og fengu þeir að skoða skipið.Kristján skipherra leyfði fréttamönnum að koma um borð og svaraði spurningum þeirra. Skýrði hann út þjónustuhlutverk Óðins við ís- lensku sjómennina í Smugunni. Norsku blaðamennirnir spurðu af hverju norskar þyrlur hefðu ekki verið sendar eftir slösuðum mönnum og hvort íslendingar væru ekki að reyna á velvild Norðmanna með þvi að koma til hafnar til að taka olíu og vistir. Kristján svaraði því til að skipið gæti alltaf tekið olíu og vistir hjá birgðaskipum úti á sjó en því fylgdi mengunarhætta og hrein- legra væri að gera það í landi. Þá benti hann á að Islendingum þætti sjálfsagt að veita þjónustu skipum sem fylgdu norskum fiskiskipum upp að 200 mílna fiskveiðilögsögu íslands. Hann sagði að menn væru ekki hífðir upp í þyrlu nema brýna nauðsyn bæri til, því fylgdi alltaf viss áhætta. Kristján sagði að alltaf væri erfitt að deila við vini og þessa deilu yrðu þjóðirnar að leysa. Slösuðu og veiku sjómennirnir sex fóru á sjúkrahúsið til rann- sóknar, sérstaklega til röntgen- myndatöku til að athuga hvort þeir væru brotnir. Ljóst er að sumir þeirra fara heim, væntan- lega í dag, en aðrir fara aftur í Smuguna til að ljúka túrum sín- um. Þeir sögðust vera fegnir því að lenda ekki í verri málum í Noregi. Kváðust þeir hafa getað átt von á einhveijum mótmælum, þó þeim sjálfum þætti engin ástæða til þess. Sögðust þeir tala sem minnst við norsku frétta- mennina til að spenna málið ekki meira upp. Krislján skipherra tók fram í samtali við blaðamenn að sér hefði aldrei verið neitað um aðgang að höfninni. Hann sagðist hafa fengið mjög góðar viðtökur í Hammerfest, eins og yfirleitt alltaf hjá Norðmönnum. Oðinn skilaði af sér óhreinni olíu og tekur olíu, vatn og vistir. Meðal annars þarf að fá lyf og lækn- ingaáhöld vegna óvænts álags á Sigurð Ágúst Kristinsson lækni. Ekki fékkst afgreidd olía í fyrstu tilraun, en eftir að norsk stjórn- KRISTJÁN Jónsson, skipherra á Óðni, um borð í varðskipinu í Hammerfesthöfn. ÍSLENSKIR sjómenn, sem hafa slasast við veiðar í Smugunm, um borð í Óðni í Hammerfest í gær. Frá vinstri: Bragi Einars- son af Júlíusi Geirmundssyni ÍS, Ólafur Henriksen af Siglfirð- ingi SI, Ingvar Freysteinsson af Barða NK og Ingvar Stefáns- son af Margréti EA. Á myndina vantar þá Jóhann Halldórsson af Sigli, sem skráður er í Belize og Davíð Sveinsson af Snorra Sturlusyni RE. völd höfðu fyrirskipað afgreiðslu Smuguna og ljúki túrnum, sem var ákveðið að Óðinn fengi olíu áætlað var að stæði í tvo mánuði. á föstudagsmorgun. Þá er búist - " við að skipið haldi aftur áleiðis í ■ A veiðum í Smugunm/6 Katrín í ! eitt af efstu sætunum KATRÍN Fjeldsted fyrrverandi borg- arfulltrúi ætlar að bjóða sig fram í j prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykja- vík fyrir komandi alþingiskosningar. ' Katrín sagði við Morgunblaðið, | að hún hefði ákveðið að taka þátt í prófkjörinu og stefndi á eitt af efstu sætunum. Aðspurð sagðist hún þá eiga við eitt af fimm efstu sætun- um. Búist hefur verið við að Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfull- trúi muni taka þátt í prófkjörinu. Vilhjálmur sagði við Morgunblaðið að hann hefði ekki enn gert það upp i við sig hvort hann byði sig fram eða ekki. ' ------*--------- I 140 lögreglu- menn til ráð- stefnuhalds UM 140 lögreglumenn frá 20 lönd- um, sem allir hafa hlotið menntun s við skóla bandarísku alríkislögregl- j unnar, FBI, eru væntanlegir hingað , til lands um helgina til ráðstefnu- ' halds. Þrír íslenskir lögreglumenn, sem stundað hafa nám við þá deild í skóla FBI í Quantico í Virginíu-fylki, sem ætluð er almennri löggæslu, munu taka þátt i ráðstefnunni, sem sett verður á sunnudag, að viðstöddum dómsmálaráðherra. 12-15 þátttakendanna eru banda- rískir starfsmenn alríkislögreglunn- ar FBI. ---------------- Hjálmar sendi- herra í Kína HJÁLMAR W. Hannesson, sendi- herra íslands í Þýskalandi, verður sendiherra íslands í Kína frá 1. jan- úar 1995, með búsetu í Peking. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver tekur sæti Hjálmars í Þýska- landi. Morgunblaðið/Knstinn IEAN Chretien heilsar Halldóri Ásgrímssyni, formanni Fram- sóknarflokksins, á Reykjavíkurflugvelli. Halldóri á vinstri hönd er Steingrímur Hermannsson. Forsætisráðherra Kanada í Reykiavík Gagnrýnir veiðar utanlandhelgi JEAN Chretien, forsætisráðherra Kanada, kom til landsins í gær- kvöldi en hann er fulltrúi á heims- þingi fijálslyndra flokka i Reykja- vík. Hann sagði að hann teldi rangt að telja aðskilnað Quebec frá kanadíska ríkjasambandinu yfirvofandi en kosið verður til þings héraðsins nk. mánudag. Chretien var spurður um fisk- veiðar erlendra skipa, þ. á m. ís- lenskra, rétt fyrir utan 200 mílna fiskveiðilögsögu Kanada. Hann sagði að Kanadamenn teldu nauð- synlegt að vernda fískistofna eftir föngum og veiðamar, sem oft væru stundaðar undir hentifána, græfu undan þeirri stefnu. Ráð- herrann vildi ekki tjá sig um deil- ur Norðmanna og íslendinga á Barentshafi. Chretien iseddi í gærkvöldi við Davíð Oddsson for- sætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra í stjómarráðinu. Kanadíski for- sætisráðherrann mun eiga fund í dag með Halldóri Ásgrímssyni, formanni Framsóknarflokksins, sem var kjörinn einn af varaforset- um samtakanna í gær. Hörð samkeppni í fraktflugi milli íslands og Bandaríkjaima Flugleiðir bæta við vikulegu leiguflugi Hefur ekki áhrif á áætlanir Cargolux FLUGLEIÐIR hafa í hyggju að hefja fraktflug til Bandaríkjanna með leiguvélum og er áætlað að fyrsta ferðin verði 18. september næstkom- andi. Stefnt er að því að fljúga viku- lega með vélum sem taka um 40 lestir af frakt. Flugleiðir flytja daglega frakt til Bandaríkjanna með áætlunarferðum félagsins, en að sögn Einars Sigurðs- sonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, hefur aukin eftirspum leitt til þess að félagið eykur fraktflutninga þangað. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í gær mun Cargolux á næstu dögum sækja um leyfi til íslenskra og bandarískra stjómvalda til þess að hefja vikulegt fraktflug frá Lúx- emborg til íslands og þaðan áfram til Bandaríkjanna. Fáist leyfið er stefnt að því að hefja fraktflugið í lok september. Þórarinn Kjartansson, eigandi Nortran, sem er umboðs- og sölu- aðili Cargolux á íslandi, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að sér kæmi á óvart að heyra um áform Flug- leiða. „Ég á hins vegar ekki von á því að þau breyti neinu um hugsan- legt fraktflug Cargolux og ég mun halda ótrauður áfram að undirbúa það,“ sagði Þórarinn. 25% aukning í fraktflugi Fyrstu sex mánuði ársins jókst heildarvelta í fraktflutningum Flug- leiða um 25% miðað við sama tíma- bil í fyrra að sögn Einars Sigurðs- sonar. „Eftirspumin hefur aukist mikið, bæði til Bandaríkjanna og Evrópu, og við erum komnir í þá aðstöðu að hafa ekki meira rúm fyr- ir frakt í áætlunarvélum okkar í Bandaríkjafluginu," sagði Einar og ennfremur að undirbúningur að leigufluginu hefði staðið yfír í nokk- um tíma. „Við sendum fyrir nokkrum dög- um tilkynningu til viðskiptaaðila okkar um þau áform okkar að hefja vikulegt fraktflug til New York með vélum sem bera um 40 tonn sem okkur sýnist að henti best fyrir þenn- an markað." „Við erum þegar komnir með ákveðinn viðskipta- mannahóp í gegnum starfsemi Nortran, sem hefur verið með leigu- flug til Bandaríkjanna, og þar hafa menn lýst yfír fullum stuðningi við væntanlegt fraktflug Cargolux. Það er allt útlit fyrir að útflytjendur verði þeir sem hagnist á þessari hugsan- legu samkeppni í fraktfluginu með lækkandi verði í kjölfar heilbrigðrar samkeppni," sagði Þórarinn Kjart- ansson. ------♦-■♦ ♦--- * Oskirumsam- starf Þuríðar og Osvarar STJÓRN Þuríðar hf. á Bolungarvík hefur sent Ósvör hf. á Bolungarvík bréf þar sem óskað er eftir viðræðum um samstarf. Stjóm Ósvarar mun fjalla um bréfið á fundi í dag. Umsóknarfrestur um sérstök lán til sjávarútvegsfyrirtækja á Vestfjörð- um rennur út í dag. Fyrirtækin skiptu á milli sín eignum þrotabús Einars Guðfinnssonar hf. á síðasta ári. Ósvör keypti togarana en Þuríð- ur keypti fiskvinnsluhúsið. í sumar Iandaði Ósvör rækjuafla til vinnslu á Isafirði meðan rækjuvinnsla Þuríð- ar var verkefnalaus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.