Morgunblaðið - 09.09.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 09.09.1994, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýtt félag innan Alþýðubandalagsins í Reykjavík stofnað á morgun Vilja ekki taka þátt í deilum ABR og Birtingar FRÁ blaðamannafundi um stofnun Framsýnar. Frá vinstri: Þorsteinn Óskarsson rafeindavirki, Sig- ríður Þorsteinsdóttir fjölskylduráðgjafi, Björn Grétar Sveinsson formaður VMSÍ, Bryndís Hlöðvers- dóttir lögfræðingur ASÍ, Halldór Guðmundsson útgáfustjóri Máls og menningar, Róbert Marshall laganemi og Leifur Guðjónsson starfsmaður Dagsbrúnar. NÝTT félag innan Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík verður stofnað í dag á Hótel Sögu. Lagt hefur ver- ið til að félagið verði kallað Fram- sýn. Hvatamenn að stofnun félags- ins hafa meðal annars samfylkingu jafnaðarmanna og félagshyggju- fólks á stefnuskrá sinni og hyggjast „virkja þá, sem staðið hafa álengd- ar, til þátttöku og áhrifa í flokkn- um“. Bjöm Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambandsins og einn úr undirbúningshópi um stofn- un félagsins, segir að Framsýn eigi að verða vettvangur fyrir þá, sem ekki vilji taka þátt í deilum Alþýðu- bandalagsfélags Reykjavíkur (ABR) og Birtingar um mál, sem enginn skilji. Stofnendur hins nýja félags hyggjast sækja um aðild að kjör- dæmisráði Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Þar eru fýrir ABR og Birting. Einnig starfar á vegum Alþýðubandalagsins í borginni fé- lagið Verðandi, sem er félag ungs Alþýðubandalagsfólks og óflokks- bundins félágshyggjufólks. Bæði Birting og Verðandi hafa samfylk- ingu jafnaðarmanna á stefnuskrá sinni. Er Framsýn ekki þriðja félag- ið um samfylkingu vinstri manna, sem stofnað er innan Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík á fáum árum og hver er munurinn á henni og hinum tveimur? Bjöm Grétar Sveinsson svarar því til að sam- skipti ABR og Birtingar hafi ein- kennzt af „pirringi". „Við erum ekki þátttakendur í þeim pirringi og ætl- um ekki að verða það. Margir eru orðnir þreyttir á deilum félaganna," segir Bjöm Grétar. Hann segir Framsýnarfólk vonast til að geta jafnvel gengið á milli í deilum ABR og Birtingar. „Við vonum að þarna sé að verða til vettvangur fyrir fólk, sem vill koma til starfa án þess að taka þátt í deilum um mál, sem enginn skilur," segir hann. Samfylking jafnaðarmanna í fundarboði til stofnfundarins segir meðal annars: „Framsýn mun innan og utan flokksins veita braut- argengi þeim kröftum sem samfylk- ingarframboð Reykjavíkurlistans hefur leyst úr læðingi. Draumurinn um öflug sameiningarsamtök á sér djúpar rætur í hreyfíngu íslenzkra jafnaðarmanna, en nú er ljóst að næstu ár em tími athafna. Framsýn ætlar í starfi sínu að beita sér fyrir sem víðtækustum og öflugustum samtökum jafnaðarmanna og fé- lagshyggjufólks.“ Bjöm Grétar var spurður hvort stofnun nýs, breiðs jafnaðarmanna- flokks vekti fyrir Framsýnarmönn- um. „Það er ekki markmiðið, en við getum ekki horft framhjá þeim hræringum, sem vom undanfari borgarstjómarkosninganna. Ég held að allir, sem fjalla um stjómmál, hljóti að horfa til þess, sem þar gerðist,“ sagði hann. Betur má gera í kjarabaráttu í fundarboði Framsýnar segir jafnframt að félaginu sé í mun að hagsmunabarátta launafólks og neytenda verði kraftmeiri en verið hafi á vettvangi stjórnmálanna. „Fé- lagið vill beita sér fyrir endurnýjun á umfjöllun um verkalýðs-, kjara- og neytendamál og stuðla að því að lífskjör, réttindi og skyldur verði sæmandi nútímaþjóðfélagsháttum og samboðin öflugri hreyfmgu jafn- aðarmanna og félagshyggjufólks," segir þar. Morgunblaðið spurði Bjöm Grétar hvort þetta þýddi að Framsýnarmenn teldu Alþýðu- bandalagið ekki hafa sinnt þessum málum nóg. „Við teljum að þar megi betur gera. Umræður um þessi mál verða aldrei of miklar. Það er meira en krónurnar í umslagið, sem skipta máli, við viljum líka taka réttindamálin meira til umræðu,“ sagði hann. Stofnfundur á Sögu Stofnfundur Framsýnar verður haldinn á Hótel Sögu á morgun kl. tvö eftir hádegi. Fundarstjóri verður Halldór Guðmundsson útgáfustjóri. Að stofnfundarstörfum loknum fara fram pallborðsumræður undir yfir- skriftinni „réttindi í hættu? - sam- tök launafólks á tímamótum". Hild- ur Jónsdóttir ritstjóri stjómar um- ræðunum, en í pallborðinu munu sitja Bryndís Hlöðversdóttir lög- fræðingur Alþýðusambandsins, sem einnig flytur innngangserindi, Björn Grétar Sveinsson, Bijánn Jónsson formaður Iðnnemasambandsins, Grétar Þorsteinsson formaður Sam- iðnar, Guðrún Kr. Óladóttir varafor- maður Sóknar og Ögmundur Jónas- son formaður Bandalags starfs- manna ríkis og bæja. Bjöm Grétar Sveinsson var spurður hvort hann ætti von á fjöl- mennum stofnfundi. „Það fer ekki eftir íjöldanum á stofnfundinum hvað verður, heldur hvemig félagið þróast í framtíðinni," sagði Bjöm. „En það er alveg á tæm að við emm ekki að gera þetta til höfuðs einum eða neinum.“ Á veiðum í Smugunni Útbjuggoi flottroll úr tveimur gulltoppum BARÐINN frá Neskaupsstað kom flottrollslaus í Smuguna fyrir sjö dögum þegar sem mest veiddist í flottroll, en sáralítið í botntroll. „Jú, það var vissulega ekki skemmtilegt að koma þannig, en við reyndum að bjarga okkur með því að útbúa sjálfir flottroll,“ sagði Sveinn Benediktsson, skipstjóri þegar blaðamaður skaust um borð til hans í Smugunni. Barðamenn settu saman toppa út tveimur gulltoppum (botntroll) og höfðu annað á hvolfi undir og settu svo fleyga aftur í belginn til að víkka hann. „Þeir vom með svona svipað mix á Selvogsbanka upp úr 1950,“ segir Sveinn. Hjörvar Hjálmarsson 1. stýri- maður segir að trollið hafi komið að einhverjum notum, þeir hafi fengið allt að 10 tonnum þegar moksturinn var sem mestur í flot- trollin, en lítið þegar dró úr veið- inni. Þetta hafi alla vega gengið betur en með botntrollið. Flottroll er nú á leiðinni til Barða með öðru skipi. Saltið skilar ágætu Aflinn er saltaður um borð í Barða. Sveinn segir að það komi ágætlega út þegar þorskurinn sé stór og gefi góðan pening. „Það er góður fiskur hér á norð- ursvæðinu, en hann var smærri og verri í saltið þar sem við vomm með flotið," segir Sveinn. Hjörvar segir að saltfiskurinn sé góður, betri en i landi. Hann sé hvítari, enda sé góð aðstaða um borð til að blóðrenna. Fiskurinn er pækilsaltaður í ker og síðan stæðusaltaður í landi, þegar þangað er komið. „Ég veit það ekki. Auðvitað eru allir að hugsa um það, en það yrði að koma skipun um það frá útgerð- inni,“ segir Sveinn, þegar hann er spurður hvort hann sé að hugsa um að fara á Svalbarðasvæðið. Barðamenn stefna að því að ljúka túrnum á þremur vikum, hámarki fjómm. Sveinn segir vel koma til greina að fara annan túr hingað, en segist ekki hafa trú á að farið verði í nóvember. Barði fór í Smuguna um mán- aðamótin október-nóvember í fyrra eins og fleiri. Ekkert fískað- ist og fór skipið heim aftur eftir viku. „Það var búið að vera góður afli 100-200 mílur hér norður í Smugu, en svo gerði sterka norð- anátt og ísinn fór yfír veiðisvæð- ið,“ segir Sveinn. Konunum líkar vel á Smugumiðunum NOKKRAR konur em á skipunum í Smugunni. „Jú, jú, strákamir fara vel með mig,“ sgði Hrönn Hjálmarsdóttir háseti á Barða frá Neskaupstað í samtali við blaða- mann. Hrönn segist hafa leyst af á skipinu í fjögur ár, yfírleitt í kokknum, en er háseti í þessum túr. Hún sagði að túrinn legðist ágætlega í sig, það væri allt í lagi að fara einn túr svona langt norður, en hún hefði engan áhuga á að vera hér mánuðum saman. Halldóra Ragnarsdóttir, að- stoðarmaður í eldhúsi, er ei konan um borð í Óðni. Halldc sagði að þó ferðin gæti orðið tvi mánuðir gengi allt sinn vanaga eins og í venjulegri eftirlitsfe varðskipsins. Það eina sem bre; ist er að þau þvo sjálf dúka diskaþurrkur, sem annars er si í þvottahús. Óðinn er eina varðskipið s« er með tvo matsali, yfir- og und mannamessa, og er þjónað borðs. í hinum varðskipunum búið að koma upp sjálfsafgreiðs í sameiginlegum borðsal. Sljórn Listahátíðar Hafnarfjarðar segist ekki bera ábyrgð á fjármálum Skýrsla unnin um fjármál Listahátíðar BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar sam- þykkti samhljóða í gær að ráða lög- giltan endurskoðenda til að semja, eftir því sem kostur er, miðað við fyrirliggjandi gögn, rekstrarreikning Listahátíðar Hafnarljarðar 1993 og jafnframt að semja endurskoðunar- skýrslu. í bréfí stjórnar Listahátíðar Hafnarfjarðar hf. til bæjarráðs firrir hún sig ábyrgð á fjármálum hátíðar- innar, en vísar á bæjaryfirvöld. Endurskoðandi Hafnarfjarðar- bæjar óskaði eftir því að stjórn Lista- hátíðar Hafnarfjarðar hf. sendi bæj- aryfírvöldum Hafnarfjarðar aftur öll bókhaldsgögn vegna hátíðarinnar. í svari stjórnarinnar segir að bókhald og meðferð fjármuna á framkvæmd Listahátíðar Hafnarfjarðar á árinu 1993 hafí ekki verið í höndum fé- lagsins heldur í höndum bæjaryfir- valda í Hafnarfírði. Vakin er at- hygli á að bærinn hafí gert verktaka- samning við Arnór Benónýsson í febrúar 1993. í samningnum segir að Amór taki að sér listræna ráðgjöf og eftirlit með Listahátíð Hafnarfjarðar. Hann skuli einnig hafa umsjón með fjár- málum og fylgja starfinu eftir þar til uppgjör hafi farið fram. Stjórn Listahátíðar segir að Arnór hafi verið ráðinn í andstöðu við sig. Ekki hafi verið þörf á listrænni ráð- gjöf þar sem dagskrá hátíðarinnar hafi þá þegar verið fullmótuð. Stjórnin segir ennfremur að með ráðningu hafi öllum eðlilegum vinnu- reglum verið kasta fyrir róða og stjórnin hafí ekki haft neina mögu- leika á að fylgjast með fjármálunum. Þá segir stjórnin að kaup Hafnar- fjarðar á listaverki eftir listamann- inn Alberto Gutierrez sé Listahátíð- inn algjörlega óviðkomandi. Það sé Hafnarfjarðarbæjar að svara því hvemig hann kjósi að færa sitt bók- hald. Enginn getur firrt sig ábyrgð Magnús Jón Árnason, bæjarstjóri í Hafnarfírði, sagði ljóst að enginn sem tók þátt í rekstri Listahátíðar Hafnarfjarðar geti firrt sig ábyrgð. Hann sagðist á þessu stigi ekki vilja ásaka neinn einn aðila fyrir hvernig haldið hefði verið á málum. Nauð- synlegt væri að fá álit löggilts end- urskoðanda áður. Á fundi bæjar- ráðs í gær var lagður fram reikning- ur frá Listahátíð Hafnarfjarðar hf. vegna kaupa bæjarsjóðs Hafnar- fjarðar á boðsmiðum á hátíðina. Bæjarsjóður keypti 4.300 boðsmiða fyrir rúmlega 3,9 milljónir króna. Kennedy fékk 3 milljónir F'iðlusnillingurinn Nigel Kennedy fékk rúmar þrjár milljónir íslenskra króna fyrir að koma fram á listahá- tíð Hafnarfjarðar 1993. Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi bæjart stjóri í Hafnarfirði, og Sverrir Ólafs- son og Gunnar Gunnarsson, stjórn- armenn Listahátíð Hafnarfjarðar hf., gerðu samning um þetta við umboðsmann Kennedy 6. apríl 1993. Þremenningarnir undirrita samning- inn fyrir hönd Listahátíðar Hafnar- fjarðar.en Arnór Benónýsspn undir- ritar ekki samninginn. í öðrum samningi sem gerður var við um- boðsmanninn og dagsettur er sama dag er kveðið á um að samningurinn nái til listahátíða Hafnarfjarðar 1993 og 1995.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.