Morgunblaðið - 09.09.1994, Side 9

Morgunblaðið - 09.09.1994, Side 9
MQRGUNBLAÐÍÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 9 FRÉTTIR Umferðarráð kynnir þjár kannanir Nokkrar upplýsingar úr umferöarkönnun Umferbarráös 1994 Kveikt ökuljós bifrei&ar Barn í aftursæti á bílpúba e&a í bílstól Ökumabur með spennt bílbelti ■ 95,0% | 90,5% 89,3% Karl u. stýri 67,8% Bifreib 32,2% 17,6% yngri en tveggja ára í bifreiö Vibvörunar- 14,8% Bílasími 14,8% Radarvari 42,9% þríhyrningur 39,1% Fjöldi bifreiba: 1.755 Ökumaður einn í meira en öðrum hverjum bíl ÖKUMAÐUR reyndist vera einn á ferð í meira en öðrum hveijum bíl sem lögregla stöðvaði vegna umferð- arkönnuna, sem hún gerði fyrir Umferðarráð í júní í sumar. Öku- menn voru karlkyns í 67,8% tilfella ;en konur stýrðu 32,2% bifreiðanna. 1.755 bifreiðar voru stöðvaðar í könnuninni. Tæplega 90% ökumanna höfðu bílbelti spennt og rúmlega 90% far- :þega í framsæti. Nákvæmlega sama ' hlutfali barna reyndist nota bílstól, bílpúða eða belti í bíl. í 0,4% tilvika voru börn laus í framsæti. Ökuljós reyndust vera kveikt á 95% allra bílanna, sem er svipað hlut- fall og í könnunum undanfarinna ára. Bílarnir sem stöðvaðir voru r'eynd- ust í 17,6% tilfella vera nýir eða tveggja ára og yngri en voru 43,8% þegar mest var 1988. Útvarp var í 95,5% bifreiða, bílasími í 15,3% og radarvari í 4,8% þeirra bifreiða sem stöðvaðar voru í tengslum við könn- unina. Að sögn Óla H. Þórðarsonar, fram- kvæmdastjóra Umferðarráðs, á um- ferðarkönnun sem þessi sér ekki hlið- stæður í öðrum löndum svo vitað sé. Gefa þær upplýsingar sem safnað hefur verið úr umferðarkönnunum hér á landi allt frá árinu 1985 því einstakt yfirlit um þróun mála í umferð á Islandi í 10 ár. Hjálma- notkun eykst um 25% milli ára HJÁLMANOTKUN hjólareiðamanna hefur aukist um 25% milli áranna 1993 og 1994. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem starfs- fólk í vinnuskólum í nokkrum sveitar- félögum gerðu fyrir Umferðarráð í júlí. Á síðasta ári notuðu 20,6% hjól- reiðamanna hjálm en þeir voru 25,7% í sumar. Hjálmanotkun er margfalt meiri meðal barna yngri en 12 ára en eldri hjólreiðamanna. Sérstaklega dettur hjálmanotkun niður hjá stúlk- um við 12 ára aldur. í úrtakinu í sumar voru tæplega 3.300 manns og þar af voru 849 með hjálm. Notkun hjólreiðahjálma er mjög misjöfn eftir bæjarfélögum. Þannig voru 41% barna yngri en 12 ára í Reykjavík með hjálm, 54,7% á Sel- tjarnarnesi, 61,3% á Akureyri og 54,3% á Dalvík. Að sögn Guðmundar Þorsteinssonar, fræðslustjóra um- ferðarmála, hafa foreldrasamtök, klúbbar og samtök víða í bæjarfélög- um tekið sig saman um að gefa eða niðurgreiða hjálma fyrir ákveðna ald- urshópa -barna og hefur það aukið hjálmanotkun til muna. Guðmundur segir að viðhorf til hjálmanotkunar hafi einnig breyst í þá átt að nú sé hún litin mjög jákvæð- um augum. Hveijir eru dæmi- gerðir slysaökumenn? HINN dæmigerði slysaökumaður er ungur karl með sögu um ofneyslu áfengis og hefur oft lent í því að hafa nærri sofnað við stýrið. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var í samvinnu rannsóknarstofu geðdeildar Landspítala og Umferð- arráðs. Markmið hennar var að leita upplýsinga hjá hópi ökumanna er 1 lent höfðu í umferðarslysi og meta þær síðan heilsufarslega. Umferðarráð leitaði upplýsinga í lögregluskýrslum um alla ökumenn 1 er lent höfðu í slysi (slysahópur) þar 1 sem aðeins eitt farartæki átti hlut að máli og jafnframt hafði orðið : slys á fólki. Rannsóknin náði til áranna 1989-91. Samtals var um , að ræða 471 ökumann, 336 karla og 135 konur. Meðalaldur var 30 ár. í samanburðarhópi voru 1.000 einstaklingar, 17 ára og eldri, vald- ir af handahófi úr þjóðskrá. Spurningar Spurt var um helstu einkenni kæfisvefns, um einkenni drómasýki, um langvinna sjúkdóma, lyfjanotk- un, ökuskírteini, fjölda ekinna kíló- metra á ári, tildrög umferðarslyss i og þá sérstaklega hvort viðkomandi j teldi að syfja eða þreyta hefði stuðl- að að óhappinu. Spurt var um neyslu áfengis og einnig íjögurra annarra I spurninga um áfengisneyslu, svo- ; kallaðra CAGE-spurninga. Ef þrem- • ur eða fjórum þeirra er svarað ját- andi þykir það vera vísbending um áfengissýki. Lyfjanotkun svipuð Við samanburð á aldurs- og kyn- dreifingu í slysahópi og samanburð- arliópi kom í ljós að ökumenn í slysa- hópi eru nær þrisvar sinnum oftar karlar og hlutfallslega miklu yngri I en í samanburðarhópnum. Árlegur i meðalakstur í slysahópi var meiri j en hjá samanburðarhópnum. Við tölfræðilegan samanburð á lang- ; vinnum sjúkdómum í samanburðar-- hópi og slysahópi var munur ekki marktækur. Notkun svefn- og ró- andi lyfja var sambærileg í báðum hópum. Syfjusjúkdómar Einkenni syfjusjúkdóma voru at- huguð sérstaklega. Algengara var að ökumenn í slysahópnum teldu sig ekki fá nægan svefn. Svarendur í eldri aldurshópum töldu sig oftar fá nægan svefn, bæði í samanburð- arhópi og slysahópi en svör voru ekki háð kyni. Hrotur voru algeng- ari í samanburðarhópnum en 13,2% hrutu að staðaldri og 22,5% stund- um, en sambærilegar tölur í slysa- hópnum voru 6,8% og 26,6%. Dagsyfja var algengari í slyshópi en samanburðarhópi. Áfengisneysla í heildina svöruðu ökumenn í slysahópi fleiri CAGE-spurningum jákvætt og svöruðu alls 14,3% þeirra þremur eða fjórum þeirra jákvætt miðað við 6,3% úr samanburðar- hópi. Karlar svöruðu oftar en konur þremur eða fjórum CAGE-spurning- um jákvætt í báðurn hópum. Þeir ökumenn sem töldu að syfja hefði stúðlað að umferðarslysinu svöruðu þessum spumingum nær helmingi oftar jákvætt en aðrir ökumenn. í umræðukafla könnunarinnar segir að spurningunni um hvað valdi hafi syfju þeirra 48 sem telja að syfja hafi stauðlað að slysinu verði ekki svarað á grundvelli þeirra upp- lýsinga sem liggja fyrir í niðurstöð- um. Flestir í hópnum séu ungir, kvarti yfir syfju en hrotur séu ekki áberandi. Fyrirhugað er að kanna betur þennan hóp ökumanna, hvort þar ieynist einstaklingar með syfju- sjúkdóma eða hvort syfjan stafi af lífsstíl með ónógum nætursvefni og/eða áfengisvandamáli. Á að svipta ákveðna hópa ökuréttindum? Þá segir einnig að nokkur atriði skipti rháli frá sjónarmiði forvarna. Áfengissýki sé þrefalt algengari meðal karla en kvenna í samanburð- arhópi en í slysahópi sé áfengissýki meira en sexfalt algengari hjá karl- kyns en kvenkyns slysaökumönnum. Meðal kornungra ökumanna sé áfengissýki fimmfalt algengari en meðal jafnaldra. „Þetta leiðir hug- ann að því, að þegar keppt er að fækkun umferðarslysa tengdum áfengi, eigi að beina athyglinni fyrst og fremst að ungum ökumönnum sem misnota áfengi, körlum frekar en konum og þeim sem misnota áfengi og hafa einhvern tímann fundið fyrir syfju við stýrið. Miðað við hlutfall áfengissjúkra meðal kornungra ökumanna mætti varpa fram þeirri spurningu hvort 17-20 ára ungmenni með sögu um áfengis- misnotkun ættu að hafa ökurétt- indi.“ DAMAN auglýsir Frá Fiiinwear Bómullar rúllukraga bolirnir koinnir. Fallejrir litir. 1 Falleg satín náttföt ineð bóniull að imian. DAMAN Seildmn í póstkröfu. Laugavegi 32, sími 16477. Urval af síðbuxum Beint eða þröngt snið TESS Neðst viS Dunhaga, sími 622230 Opið virka dag kl. 9-18, lauqardaqa kl. 10-14 a andi Ný sending - ekki ntissa Fólk er alltaf að vinna íGullnámunnk 64 milljónir Vikuna 1. til 7. september voru samtals 64.568.702 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum vinningum. Silfurpottar í vikunni: Dags. Staöur: Upphæö kr.: 1. sept. Háspenoa, Hafnarstræti.... 212.084 2. sept. HardRockCafé................ 128.056 2. sept. Mamma Rósa, Kópavogi...... 61.923 2. sept. Hótel Örk, Hveragerði..... 87.745 3. sept. Ölver........................ 86.445 4. sept. Háspenna, Laugavegi....... 171.166 5. sept. Hafnarkráin.................. 98.299 5. sept. Háspenna, Hafnarstræti.... 58.095 5. sept. Háspenna, Laugavegi....... 65.242 7. sept. Háspenna, Laugavegi....... 315.642 Staða Gullpottsins 8. september, kl. 13:30 var 3.042.765 krónur. Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta. Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.