Morgunblaðið - 09.09.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 11
Morgunblaðið/Theodór
Töpuðu í fótboltanum en
komust í flugsögu Borgnesinga
Ráðstefna í Reykholti í Borgarfirði
Norrænir stærðfræðingar
báru saman bækur sínar
Borgarnesi - Stærsta flugvél
sem lent hefur á Kárastaðaflug-
velli í Borgarnesi til þessa kom
þangað sl. laugardag. Það var
þegar Twin Otter-flugvél
flugfélagsins Ernis hf. á
ísafirði, TF-öRN, lenti þar með
knattspyrnulið BÍ frá ísafirði,
alls um 20 manns. Liðið fór
halloka fyrir Skallagrími í
knattspyrnunni en bætti það
upp með því að komast í flug-
sögu Borgarness. Eftir lend-
inguna var flugsljórinn, Hálf-
dán Ingólfsson, tekinn tali og
sagði hann það móðgun að kalla
flugvöllinn „frímerkið" því
hann væri orðinn það langur,
hins vegar mætti hann vera
breiðari. Aðflug væri gott og
Laxamýri - Um 100 manns komu
til starfa hjá kaupfélaginu á Húsa-
vík í sláturtíðinni sem nú er hafin
og stendur fram í miðjan október.
Stefnt er að því að fá fullt útflutn-
ingsleyfi á Evrópumarkað, en það
er kostnaðarsamt að mæta öllum
þeim kröfum sem Evrópusam-
bandið gerir.
Nýtt fláningsband í slátursal
tryggir betri verkunaraðferðir sem
viðurkenndar eru í Evrópu og þá
skal þess getið að í ágústmánuði
var unnið að því að malbika bíla-
stæði hússins.
góðir möguleikar til að gera
stærri flugvöll. Það eru með-
limir Flugklúbbsins Kára í
Borgarnesi sem hafa haft veg
og vanda að uppbyggingu á
aðstöðu til flugs í Borgarnesi.
Hefur flugklúbburinn notið
stuðnings frá Flugmálastjórn
og fyrirtækjum og stofnunum í
Borgarnesi á liðnum árum. Fé-
lagar í flugklúbbnum unnu að
lengingu brautarinnar sl. vetur
og í vor var borið ofan í völl-
inn. Mikil umferð lítilla flugvéla
hefur verið um völlinn í sumar
og þó að Twin Otter-vélin sé sú
stærsta sem lent hefur á vellin-
um, hafa fleiri tveggja hreyfla
vélar lent þar, t.d. Piper Chi-
eftain og Piper Apache.
Útflutningur frá Sláturhúsi KÞ
er þegar nokkur, en si. vetur voru
flutt út nær 50 tonn til Svíþjóðar,
15 tonn til Færeyja og 15 tonn
til Grænlands. Þá voru 20 tonn
af ærkjöti seld til Bandaríkjanna
og 7 tonn til Japans.
í framhaldi af þeim viðræðum
sem hafnar eru við svissneska
aðila um kjötkaup frá Islandi eru
bændur bjartsýnni en oft áður að
úr rætist í sölumálum og takast
megi að gera lambakjötið að eftir-
sóttri lúxusvöru.
Borgarnesi - í ágústlok var hald-
in fimm daga norræn ráðstefna í
Reykholti í Borgarfirði. Fjallað var
um stöðu og hlutverk stærðfræði-
kennslu í norrænni menningu og
þá einkum með tilliti til þess hlut-
verks skólans að búa nemendur
undir líf og starf í lýðræðisþjóðfé-
lagi. Verndari ráðstefnunnar var
forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, og sat hún hana fyrsta
daginn. Að ráðstefnunni stóðu
norræna rannsóknanetið Stærð-
fræðikennsla og lýðræði, danska
rannsóknanetið, sem ber sama
nafn, og Kennaraháskóli íslands.
Undirbúning og framkvæmd leiddi
Anna Kristjánsdóttir prófessor við
Kennaraháskóla Islands.
Að sögn Önnu Kristjánsdóttur
var ráðstefnan liður í norrænu
samstarfi sem verið hefur á þessu
sviði undanfarin 5 ár. En það hófst
með því að hugvísindadeild danska
vísindasjóðsins veitti myndarlegan
styrk til fimm ára rannsókna á
samhengi stærðfræðikennslu í
skólum og undirbúnings nemenda
fyrir virka þátttöku í tæknivædd-
um þjóðfélögum nútímans.
Hauksbók
Að aflokinni setningarathöfn-
inni fluttu erindi þeir Stefán Karls-
son forstöðumaður Stofnunar
Arna Magnússonar og dr. Otto
B. Bekken frá Noregi og fjölluðu
báðir um Hauksbók. Stefán varp-
aði ljósi á fjölbreyttni handritsins
og sérstöðu ásamt því að greina
frá tilurð þess og tíðaranda í upp-
hafi 14. aldar þegar Hauksbók
mun hafa verið rituð. Otto B. Bek-
ken fjallaði síðan um algorismus
í Hauksbók, elstu umfjöllun um
talnakerfi okkar sem varðveitt er
á norrænni tungu. Otto setti algor-
ismus í samhengi við eldri skrif
um stærðfræði sunnar í Evrópu
og ræddi um það hvað handritið
gæti sagt okkur um kunnáttu nor-
rænna manna og skilning á stærð-
fræði á 13. og 14. öld.
Stærðfræðin og lýðræðið
Síðdegis sama dag flutti Gun-
hild Nissen prófessor í Hróar-
skeldu erindi um stærðfræði-
kennslu og lýðræði og leiðir til
rannsókna og þróunar á þessu
sviði. Gunhild Nissen var frum-
kvöðull að því að norrænir sér-
fræðingar á sviði stærðfræði og
stærðfræðimenntunar beindu
sjónum sínum að samhengi stærð-
fræðikennslu og lífs í lýðræðis-
þjóðfélagi. í erindi sínu benti Gun-
hild Nissen á að hvarvetna glíma
menn við það vandamál að skapa
aðstæður fyrir börn og unglinga
til að ná tökum á þeirri stærð-
fræði sem þarf til að skilja sam-
hengi og ákvarðanatöku í tækni-
væddum heimi. Hún vakti einnig
athygli á því að hefðbundinn og
gamalgróinn skilningur manna á
grundvallaratriðum almennar
menntunar og menningar gáefi
ekki alls staðar rúm fyrir stærð-
fræði og stærðfræðilegar áherslur.
Því væri nauðsynlegt að fólk tæki
höndum saman af vettvangi
stærðfræði og af vettvangi mann-
vísinda og brúaði það bil sem skap-
ast hefur. Hlutverk fjölmiðla í
þessu samhengi væri mikilvægt
en engan veginn einfalt.
Sagði Anna Kristjánsdóttir að
á ráðstefnunni hafi komið skýit í
ljós hve mönnum almennt verður
æ ljósara gildi nothæfrar stærð-
fræðiþekkingar í tæknivæddum
þjóðfélögum og mikilvægi þcss að
stærðfræðikennsla taki mið af
þessum veruleika. Skilningur hafi
aukist á því að einstaklingar læra
á mismunandi hátt og að mjög
einhliða miðlun frá kennara til
nemenda getur oft valdið það að
nemandi nái í raun ekki tökum á
viðfangsefni sínu auk þess að hann
kann að gera sér rangvísandi hug-
mundir um námsgreinina, gildi
hennar og eigin hæfni á því sviði.
Bændur binda vonir
við Evrópumarkaðinn
Mikill áhugi
á líkams-
rækt á
Egilsstöðum
Egilsstöðum - Líkamsræktar-
stöðin Táp og Qör kynnti vetrar-
starfsemi sína á opnunardegi sem
haldinn var sunnudaginn 4. sept.
Þar var gestum boðið að taka þátt
í þrautaleikjum, útierobik og skoða
stöðina sjálfa.
Unnar Vilhjálmsson og Hólm-
fríður Jóhannsdóttir tóku við
rekstri fyrirt.ækisins í byrjun ágúst
og hafa unnið að undirbúningi
starfsins.
Fjölbreytt starfsemi
Unnar og Hólmfríður eru starf-
andi íþróttakennarar og leiðbeina
flestum hópunum sem stunda lík-
amsrækt við stöðina, ásamt öðr-
um. Boðið er upp á hópa fyrir
byijendur sem lengra komna, og
einnig er aðstaðan opin fyrir þá
sem stunda einir skokk og líkams-
þjálfun.
Táp og fjör er búið þremur söl-
um, þar sem hægt er að stunda
leikfimi, þrekþjálfun og lyftingar.
Ennfremur eru ljósabekkir, gufu-
bað og „trimform“-bekkur. Vöru-
úrval í verslun fyrirtækisins hefur
verið aukið og eru nú íþróttavörur
í úrvali.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Á OPNUNARDEGINUM mættu margir gestir og tóku þátt í
ýmsum leikjum og meðal annars voru erobikæfingar.
HÓLMFRÍÐUR Jóhannsdóttir og Unnar Vilhjálmsson, eigendur
Táps og fjörs.
r
__STEINAR WAAGE_
SKÓVERSLUN
s
I RÉTTIRNAR _
—
Fallegir kuldaskór fyrir
smáa og breiða fætur.
Ur vatnsvörðu leðri
i grófum fótlaga
gúmmísóla og
ullarfóðri.
Stærðir: 22-30
Litir: Svartur og blár
Verð: 3.995
Höfumtafiðsölu
áhinumvinsflu
fótlagabamaskom
Góðir fótlaga skór úr
vatnsvörðu leðri,
með skinnfóðri
og fótlaga
gúmmísóJa.
Stærðir: 22-30
Litir: Svartur og blár
Verð: 3.495
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN &
SÍM118519 <P
STEINAR WAAGE s
OIUINMK vv
oppskórinn skóvers
r r SIMI 68921
VEITUSUNDI ■ SÍMI: 21212
LUN ^
VIÐ INGÓIFST0RG
J
kjarni málsins!