Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 13

Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 13 Ný skýrsla birt um samkeppnishæfni þjóða Bandaríkin skáka Japan íframleiðni Genf. Reuter. BANDARÍKIN eru komin í fyrsta sæti hvað varðar framleiðni í efna- hagslífinu og samkeppnishæfi og hafa þar með skotið Japan, sem hefur lengi verið í efsta sætinu, aftur fyrir sig. Japan er raunar ekki nema í þriðja sæti á eftir Singapore á lista yfir 41 ríki í árlegri skýrslu um samkeppnis- hæfi, World Competitiveness Rep- ort. Það eru tvær virtar stofnanir, Lausanne Institute of Manage- ment Development (IMD) og Geneva World Economic Forum, sem hafa tekið hann saman. IMD skilgreinir alþjóðlega sam- keppnisgetu sem „hæfileika eins ríkis til að skapa tiltölulega meiri verðmæti en keppinautarnir á markaðinum" og styðst í því við hagtölur og mat 16.500 frammá- manna í viðskipta- og atvinnulífinu víða um heim. í skýrslunni er lögð áhersla á, að samkeppnisgetu þróaðra ríkja eins og Bandaríkjanna stafi mikil ógnun frá löndum í Austur-Asíu og Rómönsku Ameríku þar sem laun eru enn mjög lág. Á eftir Japan kemur Hong Kong, þá Þýskaland og Sviss og Danmörk er komin í sjötta sæti. Holland er í áttunda og Nýja Sjá- land hefur skotist upp í það níunda. Er það þakkað róttækum breytingum í efnahagslífinu þar í landi. Hvað launakostnað varðar eru Evrópa fímm sinnum og Bandarík- in flórum sinnum dýrari en Aust- ur-Ásía, sem ræður auk þess yfir æ meira af menntuðu vinnuafli. Listinn fer hér á eftir: 1. Bandaríkin; 2. Singapore; 3. Japan; 4. Hong Kong; 5. Þýska- land; 6. Sviss; 7. Danmörk; 8. Holland; 9. Nýja Sjáland; 10. Sví- þjóð; 11. Noregur; 12. Austurríki; 13. Frakkland; 14. Bretland; 15. Ástralía; 16. Kanada; 17. Malasía; 18. Tævan; 19. írland; 20. Finn- land; 21. Belgía og Luxemborg; 22. Chile; 23. Tæland; 24. Suður- Kórea; 25. Spánn; 26. Mexikó; 27. Argentína; 28. Porúgal; 29. Tyrk- land; 30. Kólombía; 31. Indónesía; 32. Ítalía; 33. Filippseyjar; 34. Indland; 35. Suður-Afríka; 36. Tékkland; 37. Grikkland; 38. Brazilía; 39. Ungveijaland; 40. Venezúela og 41. Pólland. Stefntað 70% veltu- aukningu hjá Nestle NESTLE, stærsta mat- og drykkj- arvörusamsteypa í heimi, virðist vera óseðjandi þegar kemur að yfirtöku annarra fyrirtækja. í síð- ustu viku gleypti hún í sig enn meira af San Pellegrino, ítölsku drykkjarvatnssamsteypunni, og nú hefur hún fengið augastað á þýska ijómaísframleiðandanum Warncke. Forstjóri Nestle, Þjóðveijinn Helmut Maucher, er metnaðarfull- ur maður og hefur sett sér það mark að hafa aukið veltuna um 70% um aldamótin eða upp í 75 Símabylt- ing boðuð á Indlandi • Nýju Delhí. Reuter. STJÓRNVÖLD á Indlandi hyggjast tengja öll 600.000 þorp landsins með símalínum fyrir árið 1998 í samvinnu við erlend fyrirtæki og er áformunum lýst sem „síma- byltingu". „Þessi áform skapa gífur- lega viðskiptamöguleika," sagði Sukh Ram, fjarskipta- ráðherra Indlands, sem er með þriðja stærsta hagkerfið í Asíu. Stjórnin afnam ára- tugagamla einokun ríkisins á símaþjónustu og framleiðslu síma í maí og Ram sagði að það hefði verið nauðsynlegt vegna mikils skorts á símum og símalínum. Þijár milljónir manna bíða eftir símum og stjórnin stefnir að því að út- rýma biðlistunum ekki síðar en árið 1997. milljarða dollara. Á síðustu tíu árum hefur veltuaukningin hjá Nestle fyrst og fremst stafað af kaupum á öðrum fyrirtækjum, til dæmis Carnation-mjólkurfyrir- tækinu í Bandaríkjunum, Buitoni- pastafyrirtækinu á Ítalíu, Rown- tree-sælgætisframleiðandanum í Bretlandi og Source Perrier- ölkelduvatninu í Frakklandi, en talsmenn Nestle segja, að ekki séu fyrirhuguð nein stóruppkaup á borð við þessi. Búið sé að fylla upp í allar eyður í framleiðslunni. Keppinautar Nestles á mark- aðnum eru fyrst og fremst tveir, ensk-hollenska fyrirtækið Unile- ver og Philip Morris í Bandaríkjun- um, og slagurinn stendur yfirleitt um að verða fyrstur til að koma fram með nýja vöru. Búist er við, að Nestle, sem er stærsti framleið- andi ölkelduvatns, vilji treysta tök- in á þeirri grein enn frekar með kaupum á fyrirtækjum í Banda- ríkjunum og Svíþjóð. Um tíma á síðasta ári voru heildarskuldir Nestles 7,8 milljarð- ar dollara en um áramótin höfðu þær lækkað í sex milljarða og búist er við, að þær lækki um 750 milljónir dollara á þessu ári. Segja sérfræðingar, að vegna mikillar veltu og þægilegrar eiginfjárstöðu hafi það góða getu til áframhald- andi yfírtöku og auk ölkelduvatns- ins þykja fyrirtæki í þessum grein- um líklegust: Gæludýrafóðri þar sem Nestle er sterkt í Bandaríkj- unum en veikt í Evrópu; morgun- verðarkorni en þar er Nestle í sam- starfi við General Mills; ijómaís þar sem Nestle er næst á eftir Unilever og í sælgætisframleiðslu. Sennilegast þykir þó, að fyrst muni Nestle reyna að komast yfir snyrtivörusamsteypuna L’Oreal en frá 1974 hefur það átt 49%% í Gesparal, eignarhaldsfélaginu, sem á L’Oreal. Tonnið nálgast 1600 dollara London. Reuter ÁLVERÐ fór í 1,583 dollara tonnið á málmmarkaðinum í London í gær og hafði hækkað um 6,50 dollara frá deginum áður. Álverð hefur stigið jafnt og þétt allt frá byijun ágústmánaðar þegar verðið var um 1,500 dollarar tonnið. Álverð hefur ekki verið hærra en nú síðasta þrjú og hálft árið og sérfræðingar telja einungis daga- spursmál hvenær verðið fer yfir 1600 dollara tonnið. Álframleiðend- ur hafa á þessu ári séð mikinn úmsnúning í rekstri eða úr miklu tapi yfir í hagnað vegna hækkandi álverðs. Frá því í janúar þegar helstu álframleiðsluríkin gerðu með sér samkomulag um að draga úr framleiðslunni, hefur markaðsverð áls hækkað um 32%. Klassískur ballett... KIASSISKI LISTDANSSKÓLINN Álfabakka 14a Símar 879030 og 879040 Metnaður - Þjálfun Hvatning - Vellíðan - Árangur Ný námskeið að hefjast Innrítun er hafin. Bjóðum faglega kennslu í klassískum ballett. Kennt er í litlum hópum. Tökum nemendurfrá 8 ára aldrí. Bjóðum einnig einkatíma og framhaldsþjálfun, eftir samkomulagi. Frekari upplýsingar gjarnan veittar í síma alla daga milli kl. 17 og 20. KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN er einkarekinn ballettskóli, sem leggur sérstaka áherslu á þjálfun einstaklingsins. Hann fái aö þroska og þróa hæfileika sína frá upphafi, undir faglegri leiðsögn. Áhersla er því lögð á einstaklingsbundna kennslu i minni hópum. Skólastjóri og aðalkennari er Guðbjörg Skúladóttir listdansari F.Í.L.D. (Fél. islenskra listdansara).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.