Morgunblaðið - 09.09.1994, Side 16

Morgunblaðið - 09.09.1994, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Átök að tjaldabaki í Líbýustjórn Gaddafi sagður einangraður Tripoli. Reuter. MIKIL átök eiga sér stað að tjaldabaki í stjórn Líbýu og virðist Muammar Gaddafi, leiðtogi landsins, vera að einangrast. Er þetta haft eftir erlendum stjórnarerindrekum, sem benda á, að tveir nán- ustu samstarfsmenn Gaddafis hafi ekki verið viðstaddir mikil hátíðar- höld fyrir rúmri viku þegar minnst var 25 ára valdaafmælis leiðtog- ans. Japanir deila um fasta- aðild að öryggisráðinu Tókýó. Reuter. JAPANIR deila nú um hvort þeir eigi að sækjast eftir fastafulltrúa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og gegna auknu hlutverki á alþjóða- vettvangi í framtíðinni. vopnahléi ÖFGAMENN mótmælenda á Norður-írlandi, sem fylgja áframhaldandi sambandi við Bretland, höfnuðu því í gær að fara að fordæmi kaþólskra and- stæðinga sinna og lýsa yfir vopnahléi. í yfirlýsingu her- sljórnar sambandssinna, CLMC, sagði að fyrst þyrfti hún að fá fullvissu fyrir því að vopnahlé IRA væri varanlegt, að klofn- ingsflokkur frá IRA, írski þjóð- frelsisherinn INLA, tæki þátt í friðarumleitunum og tryggingar fengjust fyrir því að vopnahlé IRA hefði ekki orðið til vegna leynisamninga milli fulltrúa hersins og bresku stjórnarinnar. Breski herinn á Norður-írlandi hefur slakað á viðbúnaði sínum undanfarna daga. I gær settu hermennirnir upp alpahúfur í fyrsta sinn í 25 ár í stað stál- hjálma svo sem sjá má á mynd- inni sem tekin var í Belfast í gær. Fast er lagt að japönskum stjórnvöldum að gera upp hug sinn í málinu áður en allsheijarþing Sameinuðu þjóðanna kemur sam- an síðar í mánuðinum. Nokkrir stjórnarerindrekar segja að skýr skilaboð frá stjórninni um að hún vilji fá fastafulltrúa í öryggisráð- inu myndu einnig merkja að hún væri reiðubúin að láta ekki lengur nægja að beita fjármagni til að hafa áhrif á heimsmálin. Utanríkisráðuneytið og nokkrir þingmenn hafa beitt sér ákaft fyr- ir því að Japanir sækist eftir fasta- fulltrúa, en stór hluti þingsins er tregur til þess. Samkvæmt skoð- anakönnunum er um helmingur Japana hlynntur því að þeir fái fastafulltrúa eins og Bretar, Kín- veijar, Rússar, Frakkar og Banda- ríkjamenn. Samflot líklegt Samkvæmt stofnskrá Samein- uðu þjóðanna verða tveir þriðju fulltrúanna á allsheijarþinginu og einnig fimmveldin í öryggisráðinu að leggja blessun sína yfir fasta- fulltrúa til handa Japönum. Tíu önnur ríki eru kosin í öryggisráðið til tveggja ára og Japanir hafa sjö sinnum fengið þar sæti með þeim hætti. Stjómarerindrekar í Tókýó ef- ast um að Japanir einir fái fasta- fulltrúa. Þeir telja að innganga Japana kunni að verða liður í heild- arsamkomulagi um fjölgun fasta- fulltrúa, sem næði hugsanlega einnig til Þjóðvetja og fjölmennra ríkja eins og Brasilíu og Indlands. Reuter Lestarverkfall í Bretlandi MERKJAMAÐUR hjá bresku járnbrautunum sendir vinnuveitendum sínum óblíðar kveðjur í Blackpool á vesturströnd Bretlands í gær. Þar efndu verkfallsmenn til mótmæla til að ítreka kaupkröfur sín- ar. Langvarandi launadeila hefur raskað lestarsamgöngum í Bret- landi. Hafa starfsmannafélögin gripið til tíðra eins og tveggja daga verkfalla til að fylgja kröfum sínum eftir. 1969 og gekk Jalloud næstur Gaddafi í ríkisstjórninni. Þeir voru ekki viðstaddir byltingarafmælið og erlendir stjórnarerindrekar segja, að Jalloud hafi horfið úr forystunni vegna andstöðu við stefnu Gaddafís í utanríkis- og innanlandsmálum. Er haft eftir lí- býskum vinum hans, að hann hafi ákveðið að hætta afskiptum af stjórnmálum og gefast upp. Jalloud þótti mun raunsærri en Gaddafi og hafði yfirstjórn efna- hagsmála landsins á 'sinni hendi. Skarst í odda með þeim er Jalloud lagðist gegn áformum Gaddafi að uppræta ríkisstofnanir og stjórn- skipulag landsins og fela bylting- arráðum og svonefndum alþýðus- amkundum æðstu yfirráð 1.500 sveitarstjórna. Einnig lagðist Jalloud gegn því að helming olíu- tekna yrði dreift beint til almenn- igs. Af 12 fyrrum nánustu sam- starfsmönnum Gaddafis í hernum voru aðeins tveir viðstaddir bylt- ingarafmælið og erlendir sendi- ráðsmenn segja, að öll völd virðist vera í höndum Gaddafis. Abdel-Salam Jalloud og Khou- ilid Hamidi, báðir yfirmenn í hern- um, voru samheijar Gaddafís í byltingunni gegn Idriss konungi Hafna Ekki einir + með Is- lendingum VERÐI Noregur ekki aðili að Evrópusambandinu mun það hafa aivarlegar afleiðingar fyr- ir atvinnulífið á Vestfold, fækka störfum og minnka vel- ferð. Segir svo í skýrslu, sem tekin hefur verið saman fyrir fylkið Vestfold í Noregi. Nið- urstaða hennar er sú, að besta tryggingin felist í ESB-aðild. í svörum forsvarsmanna at- vinnulífsins í fylkinu kemur fram, að mesta martröðin, sem þeir geti hugsað sér, sé að verða einir eftir í Evrópska efnahagssvæðinu, ásamt ís- landi og Liechtenstein. Fagna um- ræðum WOLFGANG Schauble, þing- flokksformaður kristilegra demókrata, CDU, í Þýskalandi, kvaðst í gær vera ánægður með þær miklu umræður, sem orðið hefðu um tillögur flokksins um breytingar innan Evrópusam- bandsins. Eru þær um, að nokkur ríki, Þýskaland, Frakk- land, Holland, Belgía og Lux- emborg, verði kjarninn í ESB en þessum hugmyndum hefur verið vísað á bug annars stað- ar. Scháuble sagði, að megintil- gangur tillagnanna hefði raun- ar verið sá að vekja umræður um vandamál sambandsins. Clinton til Kína KÍNVERSK stjórnvöld til- kynntu í gær, að Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, hefði þegið boð um að koma til Pek- ing. Ekki væri þó enn ákveðið hvenær heimsóknin yrði. Hún yrði fyrsta heimsókn banda- rísks forseta síðan George Bush kom til Kína 1989. Samstarf á Eystrasalti DANIR og Rússar hafa gert með sér samstarfssamning í varnarmálum og er þar kveðið á um sameiginlegar heræfingar í Eystrasalti og gagnkvæm skipti á upplýsingum. Áður hafa Danir gert svipaðan samn- ing við Pólveija, Eista, Letta og Litháa. FVOITAVÉLAR UPPÞVOTTAVÉLÁR ELDUNARTÆKI KÆUSKAPAR SJÓNVÖRP MYNDBANDSTÆKl á góðu verði Fagor þvottavélar hafa sannað ágæti sitt hérlendis sem og víðar í Evrópu. Fjöldi ánægðra viðskiptavina er okkar besta viðurkenning. Ft-54 39.900 kr. stgr. FE-83 48.900 kr. stgr. RONNING BORGARTUNI 24 SÍMI 68 58 68 Munalán, Visa og Euro-raogreiaslur ÞVOTTAVELAR UPPÞVOl TAVIT.AR HLDUNARTÆKI KÆLISKAPAR SJONVORP MYNDBANDSTÆKI EGLA - röð ogregla Margir litir margar stærðir. Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. Múlalundur Vinnustofa SÍBS Símar: 628450 688420 688459 Fax 28819

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.