Morgunblaðið - 09.09.1994, Side 21

Morgunblaðið - 09.09.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 21 I ) ) ) w ) ) I ) ) ) ) ) ) ) I Fjallkonu- ljóð í Hafn- arfirði ÆSKULÝÐS- og tómstundaráð Hafnarfjarðar, sem hefur umsjón með 17. júní-hátíðarhöldum í bæn- um, hefur undanfarið verið að safna saman ljóðum er flutt hafa verið af fjallkonunni á 17. júní- hátíðarhöldunum í bænum frá 1944. Ennþá vantar fjallkonuljóð frá eftirfarandi árum: Allt að árinu 1954, árin 1955, 1956 og 1958, jafnframt árin 1963-1966. Þeir sem kunna að hafa þessi ljóð og jafnvel myndir af fjallkonunum í farteski sínu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Árna Guðmundsson æskulýðsfull- trúa í síma 53444, eða senda ljóð- in og myndir til Æskulýðs- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10, Hafnarfirði. -----♦ ♦ ♦----- Gospelkórinn hefur starfsemi GOSPELKÓRINN er að hefja starfsemi sína að nýju eftir sumar- leyfí. Kórinn er skipaður ungu fólki úr hinum ýmsu kirkjum og söfnuð- um og er áhersla lögð á létta gospeltónlist. Á síðasta starfsári kom kórinn fram við ýmis tæki- færi. Æfingar kórsins eru í sal Hjálp- ræðishersins, Kirkjustræti 2, á hverjum föstudegi milli kl. 18 og 20. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í starfi kórsins í vetur eru boðnir velkomnir á fyrstu æfing- una sem verður í dag, föstudaginn 9. september. Stjórnandi kórsins er Ester Daníelsdóttir. -----1 » 4----- Þórdís sýnir olíumálverk í Listasafni ASÍ ÞÓRDÍS Rögnvaldsdóttir opnar sýningu á olíumálverkum á morg- un, laugardaginn 10. september, í Listasafni ASÍ við Grensásveg. Verkin eru öll unnin á sl. tveim árum, þó flest á þessu ári. Fimm þeirra hafa verið sýnd áður á samsýn- ingu í Lycksele, Svíþjóð, þar sem Þórdísi var ásamt fimm öðrum íslenskum listakonum boðið að sýna í júní sl. Þetta er þriðja einkasýning Þórdísar. Hún nam við MHÍ árin 1968-72 og 1988-90, stundaði „art therapy" hjá Sigríði Björnsdóttur 1988-90, einnig starfaði hún sem myndlist- arkennari í sjö ár. Sýningin í Listasafni ASÍ stend- ur til 25. september og er opið daglega frá kl. 14—19 nema mið- vikudaga. -----♦■■♦ ■♦--- Dagskrá RúRek ’94 Ingólfstorg kl. 17: Karnivala með götudjass. Menningarstofnun Bandaríkj- anna: Tríó Ólafs Stephensens. Hótel Saga kl. 22: Stórsveit Reykjavíkur undir stjórn Bob Grauso. Kombo Ellenar Kristjáns- dóttur, Jazz of C-H-O-R-S. Þórdís LISTIR BENEDIKT Ólafsson og Sigrún Edda í hlutverkum sínum. Leikfélag Rey;kj avíkur frumsýnir Óskina LEIKFÉLAG Reykjavíkur frum- sýnir á litla sviðinu Öskina (Galdra- Loft) eftir Jóhann Siguijónsson laugardagskvöldið 10. september kl. 20. í fréttatilkynningu segir: „Loftur er að ljúka námi við Háskóla. Fað- ir hans, ráðsmaðurinn, ætlar honum mikinn frama, auð og völd. Stein- unn, vinnukonan á setrinu, elskar Loft og vill fóma öllu fyrir ást sína. Dísa, biskupsdóttirin unga, ann honum ekki síður. Álengdar bíður Ólafur vinur hans átekta. En Loftur ætlar sér stóran hlut. Hann vill halda inn í dimmuna og beisla myrkrið. Óskin, eins og verkið hét upphaflega, er ótvírætt eitt af fáum snilldarverkum leikbókmennta okk- ar og er verðugt viðfangsefni hvem nýrri kynslóð leikhúsfólks og áhorf- enda.“ Þetta er ný leikgerð unnin af Páli Baldvini Baldvinssyni sem jafnframt er leikstjóri. í upphaf- lega verkinu er gert ráð fyrir stór- um leikarahópi, en í þessari leik- gerð eru hlutverkin sex, einnig er meiri áhersla lögð á óskina og sam- band Lofts við Steinunni vinnukon- una á heimilinu og Dísu dóttur biskupsins og þau öfl sem þær standa fyrir í samfélaginu, en einn- ig leit hans að þekkingu. Leikarar era Árni Pétur Guð- jónsson, Benedikt Erlingsson, Ell- ert A. Ingimundarson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Theódór Júlíusson. Leikmynd gerðir Stígur Steinþórs- son, hljóðmynd Hilmar Örn Hilm- arsson og lýsingu annast Lárus Björnsson. Pizzubeyglurnar eru komnar á markaöinn, svo aö nú geturöu valiö um fjórar geröir af beyglum frá Samsölubakaríi: Fínar, grófar, meö kanil og rúsínum og pizzubeyglur. Taktu pizzubeyglu úr frystinum, kipptu henni í sundur, ristaöu hana og skreyttu meö áleggi eöa hitabu hana í ofni með pizzusósu og osti ofan á og hún er tilbúin og alveg ómótstœbileg! - bakar brauðið þitt!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.