Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 9-. SEPTEMBER 1994 23
Að spara of míkíð
— og of lítið
Seinni grein
í STÖRFUM mínum
sem heilbrigðisráð-
herra sem ég tók við í
júní 1993 var fljótlega
hafín umræða í þá
veru, að ég gengi of
langt í tillögum til
spamaðar. Þannig var
hamrað á leikskólamál-
um sjúkrahúsanna svo
dæmi sé tekið. Það mál
fékk farsælan endi.
Stærstum hluta spam-
aðar var náð, en börnin
fengu áfram inni eins
og ævinlega var
tryggt. Um þá sátt var
lítill áhugi hjá fjölmiðl-
um. Eftir situr þó í minningu DV,
að ég hafi farið á handboltaleik sem
ég hafði lofað að fara á með sonum
mínum, 8 og 10 ára, og gat því
ekki mætt á fund sem haldinn var
um þessi mál og ég fékk boð á með
nokkkurra klukkustunda fyrirvara.
Fundimir sem ég hélt um þessi mál
með hagsmunaaðilum skiptu annars
tugum. Það þótti ekki fréttaefni hjá
DV.
Fijótlega í kjölfar þess að ég fór
úr stóli heilbrigðisráðherra var plöt-
unni, þessum málflutningi, hins veg-
ar snúið við og því haldið fram að
ég hefði misst fjármál ráðuneytisins
úr böndum. Ekki sparað nóg. Nefnd-
ar voru háar fjárhæðir, en ekkert á
það hlustað að frá því að fjárlög
vora samþykkt og á fyrri hluta yfír-
standandi árs tók ríkisstjórnin
ákvarðanir sem leiddu til útgjalda-
aukningar upp á hundruð milljóna
króna, s.s. eingreiðslur til bótaþega,
frestun Alþingis á gildistöku lyfja-
laga, nýir kjarasamningar við
meinatækna og hjúkranarfræðinga.
Þaðan af síður var horft til þeirra
upphæða sem ráðuneytið fer með í
fjárlögum og þeirrar staðreyndar
að það era tíu sinnum hærri fjár-
hæðir en einstök önnur ráðuneyti
fara með. Þar hlaupa því tölur fljótt
á stóram stærðum, sérstaklega í
tryggingakerfinu. Það er líka þann-
ig að eftir því sem kreppa í efna-
hags- og atvinnulífi er langvinnari
sækir fólk í auknum mæli til trygg-
ingakerfisins. Til þess er það líka.
Þess vegna fóra bætur lífeyristrygg-
inga fram úr áætlun. Það sama gild-
ir um sjúkratryggingar. Svipaðar
sveiflur eru einnig í
útgjöldum atvinnleysis-
tryggingasjóðs eðli
máls samkvæmt.
Hvað sjúkratrygg-
ingarnar áhrærir var
reynt í minni ráðherra-
tíð að ná nýjum og hag-
stæðari samningum við
lækna. Það tókst ekki.
Mikið hefur verið unnið
í því máli og ýmsar leið-
ir útfærðar. Skýrsla
Ríkisendurskoðunar
um störf lækna sem ég
lét taka saman leiddi í
ljós að breytinga er
þörf. Ég hef kallað fjöl-
marga til að því máli.
Það er ekki einfalt.
Einn þeirra er fráfarandi trygginga-
yfirlæknir. Hann vék úr því starfi
í minni ráðherratíð, m.a. fyrir mín
orð, því honum var ekki lengur
vært á þeim stóli af ástæðum sem
ég tel ekki þörf á að rekja hér. Á
hinn bóginn hefur hann mikla
reynslu og þekkingu í þessum mál-
um. Þá þekkingu keypti ég með
skýrslu sem hann gerði um úrbætur
í þessum efnum með það í huga að
hún nýttist í endurskipulagningu
starfa og launakjara lækna.
Eins kallaði ég til starfa mann
sem ég hafði reynslu af úr störfum
mínum í Hafnarfirði. Þar setti hann
upp fyrir Hafnarfjarðarbæ
stórglæsilega sýningu sem bar nafn-
ið Vor ’93. Ég taldi hann því hafa
burði til að fara í gegnum marg-
þætt kerfi heiibrigðis- og trygginga-
mála með það fyrir augum, að
kynna fólki það sem þar er í boði;
reyna að auðvelda fólki að sækja
þá þjónustu sem það á rétt á lögum
samkvæmt. Með öðrum orðum ráð-
leggja í kynningarmálum. Hann var
ráðinn til skamms tíma. Hann hefur
lokið störfum. Hans laun voru verk-
takaiaun og jafngilda rétt rúmum
300 þúsund krónum á mánuði hjá
almennum launamanni, fyrir skatt.
Ekki 600 þúsund eins og fullyrt
var. Þau laun voru m.a. við það
miðuð að ekki væri um frambúðar-
starf að ræða.
í „annálum“ DV og slúðurblað-
anna tveggja um mín störf í heil-
brigðisráðuneytinu er ekki minnst
einu orði á verkaskiptingu sjúkra-
húsa, nýjan barnaspítala, fæðingar-
heimili, aukna þjónustu við aldraða,
í upphafi var sagt að
ég gengi of langt í til-
lögum um sparnað, seg-
ir Guðmundur Arni
Stefánsson, en síðar
að ég hefði misst fjár-
mál ráðuneytisins
úrböndum.
öryggisnet fyrir launalága sem
höfðu mikinn kostnað af heilbrigðis-
þjónustunni. Ekki orð um það að
heilbrigðisþjónustan gekk vel án
nýrra þjónustugjalda og teljandi
útgjaldaauka.
Aðalatriði og aukaatriði
Störf stjórnmálamanna eru eins
og önnur störf. Stundum gengur vel
í vinnunni, stundum miður. Stund-
um gerum við mistök - stundum
gerum við vel. Við stjórnmálamenn
vinnum hins vegar okkar störf fyrir
opnum tjöldum. Og þannig á það
að vera. Það gerir hins vegar þær
kröfur til þeirra sem miðla fréttum,
að þeir geri greinarmun á aðalatrið-
um og aukaatriðum og eins hitt að
þeir reyni eftir fremsta megni að
koma upplýsingum á framfæri við
fólk með skýrum og greinargóðum
hætti - og síðast en ekki síst að
byggja á sannleika og staðreyndum.
Eg vil ræða þau mikilvægu verk-
efni sem mér hefur verið trúað fyr-
ir. í félagsmálaráðuneytinu eru hús-
næðismálin, atvinnumálin, málefni
fatlaðra og samskipti við sveitarfé-
lög meðal þeirra verkefna sem ég
er að fást við.
Þetta eru málaflokkar sem ég
þekki býsna vel. Þar er víða verk
að vinna, sem ég og mitt samstarfs-
fólk erum að fást við frá degi til
dags. Um öll þau mál vil ég miðla
fréttum eftir því sem efni eru til og
svara málefnalegum spumingum.
Fréttaflutningur DV og slúður-
blaðanna tveggja eru ekki af því
tagi. Úm slík skrif hef ég ekki geð
í mér að fjalla frekar.
Höfundur er félagsmálaráðherra.
Guðmundur Árni
Stefánsson
Alltof margir ráðamenn
okkar vilja einangra
þjóðina, segir Eiríkur
Bergmann Einarsson,
og hættan á pólitískri
einangrun er yfírvof-
andi, ef ekkert verður
að gert.
komin inn í Evrópusambandið eru
forsendurnar fyrir EES-samningn-
um brostnar og Ijóst er að Islending-
ar geta ekki einir haldið uppi þeim
stofnunum sem samningurinn hvílir
á. Samningurinn mun því að öllum
líkindum breytast í tvíhliða samning
milli Islands og Evrópusambands-
ins. Þrátt fyrir að það muni takast,
sem enn er óvíst um, þá er vandséð
að um jafn virkan samning sé að
ræða, því að ef og þegar ágreinings-
atriði koma upp munum við ekki
hafa samflotsríki okkar í EES með
okkur að samningaborði. Þau munu
sitja hinum megin við borðið. Sem
aðilar að Evrópusambandinu þá
myndum við þó geta haft einhver
áhrif á viðskiptahagsmuni okkar
og tryggja okkur gegn brotum á
samningum. Fyrir utan eram við
áhrifalaus og auðveld bráð.
Fjölbreytileg menningarflóra
Einnig er það nauðsynlegt ís-
lenskri menningu að vera hluti af
stærri menningarheild. Enda er það
svo að þau menningarsvæði sem
vinna saman og hafa áhrif á hvert
annað verða ríkari fyrir bragðið,
en þynnast ekki út eins og margir
hafa viljað halda fram. Ríki Evrópu-
sambandsins hafa til að mynda
ekki misst neitt af sínum menning-
arlegu einkennum heldur hefur að-
eins fjölbreytileg menningarflóra
annarra þjóða bæst við og þannig
auðgað mannlífíð. Nú þegar er ljóst
að það mun draga gífurlega úr
Norðurlandasamstarfi þegar
bræðraríki okkar eru komin inn í
Evrópusambandið því að af augljós-
um ástæðum mun það samstarf
taka mestan þeirra tíma og áhuga.
Mikilvægi NorðurlandaráðSj sem
hefur verið helsti vettvangur Islend-
inga til alþjóðlegra áhrifa, mun
minnka til muna og Norðurlanda-
samstarf mun færast inn í Evrópu-
sambandið. Þar munu Norðurlöndin
standa saman en íslendingar standa
fyrir utan.
Sækjum til sóknar
Af þessu má sjá að hættan á
pólitískri einangrun íslands er yfir-
vofandi ef ekkert verður að gert.
Við íslendingar verðum að fara að
vakna til meðvitundar um að við
eram ekki ein í heiminum og það
þýðir ekki að beija hausnum enda-
laust við steininn og neita að ræða
þá samrunaþróun sem á sér stað í
næsta nágrenni við okkur. Því mið-
ur eru allt of margir íslenskir ráða-
menn því marki brenndir að vilja
einangra þjóðina og ef einráðir
væru vildu helst að íslendingar
slægju upp varanlegum varnargarði
í kringum landið og hyrfu aftur til
sjálfsþurftarbúskapar. Það er ís-
lendingum lífsnauðsynlegt að halda
afturhaldsöflunum í skefjum og
sækja þess í stað fram á við, til
sóknar í samskiptum við önnur lönd.
Ég tel því rétt að ísland sæki um
aðild að Evrópusambandinu og láti
á það reyna hvort viðunandi samn-
ingur næst. Þótt margir telji mig
föðurlandssvikara fyrir að voga mér
að skrifa viðlíka setningu þá tel ég
það vera meiri svik við föðurlandið
að loka það af og skella hurðum
framan í alla þá sem því vilja kynn-
ast á jafningjagrundvelli.
Höfundur er ritstjóri málgagm
Sambands ungrajafnaðarmanna
og formaður Félags ungra
Evrópusinna á íslandi (JEF-ÍS).
Tískufataefni - Bútasaumsefni
Haust- og vetrartískan komin.
Somkvæmisefni, brúðarkjólaefni,
saumavörur, bútasaumsefni
og námskeið á staðnum.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 9-18,
á laugardögum frá 1. sept. til 1. júní frá kl. 10-14.
VIRKA
MÖRKINNI 3, SÍMI 687477.
IMORDMEIMDE
HÁGÆÐASJÓNVARP Á
HAGSTÆDU VERÐI !
Thomson 70 DS 50:
• PalSecanvNIBCwfeo
• Mö^ileðd á 16:9 breiðijaldsmóttöku • Aðgeritastýring á slqá
•40Wfastereofflagrari
• 4 hátalarar, Stereo Wide
• IWfflYGGT Spðial Efiect, san eyfaff
hljóðmögulákana
• Tengi fyrir heymartó með sá^
stfkstSli, óháð hátíiB^m tækisins
•fflstóiramim
•Sjáiitðöyá
•Tmarofi
•Scarttengi
Spatial sound-hljómmögnun:
Þetta er sérstök hljóöblöndun, sem
eykur hljóminn og gefur möguleika á
hljóöáhrifum líkt og í kvikmyndahúsum.
Mono útsending fær blæ af stereo-
útsendingu og stereo-útsending gefur
aukin áhrif, þannig aö áhorfandinn
færist eins og inn í kvikmyndina.
Aöeins þarf að stmga bakhátohirum í sam-
band viö sjónvarpið til aö heyra muninn !
áraraoirverwi
sjónvarpiö
Verö: Stgr.verö:
79.900,-kr. 14.900
VISA-18 mán: EUHO-11 mán:
Ca. 5.035,- kr. á mán. 8.081,-kr. á mán
kr. Munalán: 19.975 kr. útb.