Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 25 AÐSENDAR GREINAR Guð hjálpar þeim sem hjálpar sér sjálfur Hugleiðing eftir heimsókn Bennys Hinns Á meðan mannkynið er Birna Smith ÉG TEL að það sé ekki á færi nokkurs manns á jörðu niðri að lækna annan mann. Það sama á við um Jesú Krist meðan hann dvaldi í jarðarlíkama. Við mannanna börn erum undir handleiðslu Guðs og það er aðeins á hans færi að ákveða hveijh' fái lækningu og hveijir ekki. Þeir menn sem gefa sig fram við að leggja hendur yfir aðra og biðja Guð um lækningu þeim til handa eru einungis farvegur fyrir hina himnesku orku Guðs og ráða engu um það hvort viðkomandi sé tilbúinn til lækninga eða ekki. Við verðum ævinlega að lúta vilja Guðs og hafa með í bæn okkar þegar við biðjum fyrir okkur sjálfum og öðrum: „En verði þinn vilji“ eða: „Ef svo má verða góður Guð“. Það á einnig við um allar bænasamkomur og bænagjörðir. Ef við biðjum Guð um bata handa einhveijum án þess að segja: „En verði þinn vilji“ eru bænir okkar eigingjarnar. Hvað hef ég lært af erfiðleikum mínum? Mannfólkið hefur alltaf þurft að ganga í gegnum þjáningar og myrk- ur til þess að öðlast meiri andlegan þroska, víðsýni og að komast nær hinu himneska ljósi Guðs, því það er jú tilgangur flestra okkar með jarðvistinni. Við getum því spurt okkur sjálf: „Hvað hef ég lært af erfiðleikum mínum eða þjáningu?" Ef svar okkar er: „Ekkert!“ er við- búið að við þurfum að ganga í gegn- um enn meiri erfiðleika þangað til við höfum lært það sem okkur er ætlað að læra. Lítum á erfiðleika okkar og sjúk- dóma sem prófverkefni sem við eig- um að leysa og það er ekki á færi nokkurs manns, ekki heldur Krists, að taka það prófverkefni frá okkur, né leysa það fyrir okkur. Því fá þá sumir erf- iðari prófverkefni að leysa en aðrir? gæti spuming þín verið. Kæri vinur, eftir að hafa munað atriði úr mínum fyrri lífum, eins og um gærdaginn hafi verið að ræða, get ég ekki séð að okkur sé mismunað á nokkurn hátt í þeim efnum. Það sem þú gengur í gegn- um í dag gekk ég í gegnum í gær (eða á morgun). Ótti biskups óskiljanlegur Mér skilst helst á séra Ólafi Skúlasyni og fleiri prestum þjóð- kirkjunnar að þeir óttist þá menn sem gefa sig fram við að vera græð- arar, þá sem með handaryfirlagn- ingu og bænum leitast við að lina þjáningar annarra. Hvað með prest- ana sjálfa? Þeir lyfta jú höndum og leggja þær á höfuð okkar þegar þeir skíra okkur, ferma og gifta. Þeir fara með krossmark yfir okk- ur. Til hvers? Eru þeir miðlar eða græðarar, eða vilja þeir að meina að handayfirlagning þeirra og bæn- ir séu algerlega gagnslausar og sýndarmennskan ein saman? Trúa þeir ekki lengur á kraftarverk Guðs? Hvað eru þeir að predika? Ótta og fordæmingu? Dæmið ekki svo þér verðið ekki dæmdur, eða var það ekki það sem Kristur boð- aði? Biskup talar aftur og aftur um ótta sinn um að þeir sem Benny Hinn bað fyrir og fengu bót meina sinna, fengju ekki varanalega lækn- ingu og þar með myndu þeir missa trúna á guð. Guð hjálpar þeim sem hjálpar sér sjálfur. Kæri biskup mig langar að spyija, í öll þau skipti sem ég hef beðið um hjálp frá Guði og Það er afar erfitt að sanna trú, segir Sigur- björn Þorkelsson, í þeim efnum stendur oft fullyrðing gegn full- yrðingu. varp til Guðs, að hann bjargaði honum út úr þessum vanda, sem hann var nú búinn að hleypa sér í. Það stóð ekki á svarinu frá Drottni. Um leið og trúmaðurinn endaði bæn sína, segir mágkona þess trúlausa, sem þarna var einnig stödd: „Eigum við ekki að draga orð úr Biblíunni, eins og svo oft er gert þegar gestir koma á þetta heimili?“ Faðir hennar, sem þarna var einnig staddur, tekur þá undir með henni og segir: „Já, það væri skemmtilegt. Hefurðu ekki ein- hversstaðar „Mannakornin" ykkar við höndina?“ (Mannakorn eru litlir þunnir bréfmiðar, sem á eru letrað- ar tilvitnanir í ákveðna Biblíutexta. Oft grípa menn til þeirra í einrúmi og eins þegar fleiri eru saman komnir í hóp.) Trúmaðurinn varð alls hugar feg- inn við að heyra þessar góðu tillög- ur vina sinna og þakkaði hann Drottni í hljóði, er hafði snúið þessu á þennan veg. Biblían sótt Nú var Biblían sótt og „Manna- kornin", sem a.m.k. sá trúlausi enn á valdi múgsefjunar og fíknar telur Birna Smith að það henti vel að „taka trúna inn á þennanhátt“. skilning og hjálpin virðist hvorki varanleg né skilningur minn alger, ætti ég þá að missa trúna á Guð? Eða ertu að meina að við ættum að líta á Benny Hinn sem Guð sjálf- an? Ef ég kæmi til þín og bæði þig að biðja fyrir mér (í hinu heilaga guðshúsi þínu að sjálfsögðu), ég færi jafnframt til læknis, hann léti mig frá rándýr meðul og leggði mig inn á sjúkrahús til lækninga, allt kæmi fyrir ekki. Lækningin yrði ekki varanleg. Hvað ætti ég þá að missa trúna á? Meðulin, lækn- ana, prestinn eða Guð? Þér að segja held ég að ég myndi missa, já trúna á allt nema sjálfa mig og trúa því, sem stúlkan á miðöldum sagði, er frelsaði Orleans og fleiri borgir Frakklands undan umsátri Eng- lendinga aðeins 17 ára gömul með trúnni og viljastyrk einum saman, og var síðan brennd á báli fyrir trúvillu sína: Guð hjálpar þeim sem hjálpar sér sjálfur. Múgsefjun presta, lækna og fréttamanna Spurningin er hvort mannkynið er nokkuð svo mjög lengra komið í andlegri þróun sinni en það var á mniðöldum. Jú, það brennir ekki lengur „trúvillinga" í orðsins fyllstu merkingu. En það fellir dóma sem að mínu mati geta haft alvarlegar afleiðingar. Prestar og læknar tala um múgsefjun, varla gefur að líta meiri múgsefjun en þá sem þeir, ásamt fréttamönnum, sjálfir við- hafa, enda greið leið inn á hvert heimili með því fjölmiðlafári sem hér ríkir. Læknar og prestar segja að við eigum að vara okkur á þeim loddurum og kuklurum sem leitast við að hjálpa (lækna) fólki með óhefðbundnum lækningum og handaryfirlagningu. Þetta er ekkert annað en múgsefjun að mínu mati. Fréttamaður, biskup og læknir láta óspart skoðun sína og óbeit í ljós á samkomu Benny Hinns. Múgurinn fær það beint í æð, hvað ber að varast og á hveiju við eigum að hneykslast. Varla viljum skera okk- ur úr, er það? Geta allir orðið græðarar (heilarar)? Aftur vil ég nota orð hinnar kærleiksríku og trúföstu ungu stúlku: „Ekkert get ég gert sem þú ekki getur gert.“ Hver sá sem hefur í sér brennandi löngun til þess að græða jörðina og allt sem á henni býr hefur hæfileika til þess. Þ.e.a.s. vera farvegur fyrir hina græðandi orku Guðs og hleypa henni í gegnum sig líkt og Kristur gerði forðum. Sterkir og miklir græðarar þurfa þó að vera fyrst og fremst sjálfum sér samkvæmir, búa yfir miídum sjálfsaga og kær- leika, hreinsa líkama sinn og sál af öllum sársauka sem þar kann að leynast, hatri, ótta, reiði, öfund, óþoli og vanmáttakennd. Dæmum ekki Benny Hinn Dæmum ekki græðara eins og Benny Hinn. Það er ekki í okkar valdi að dæma. Það er aðeins til einn dómari yfir mönnunum, látum hann dæma. Persónulega tel ég að á meðan mannkynið er á valdi múgsefjunar og fíknar þá henti því ákaflega vel að taka trúna inn á þennan máta. Ég get vel ímyndað mér að það að fara á samkomu hjá Benny Hinn sé álíka uppörvandi og að horfa á góða spennumynd með örvandi með- læti eins og kók, súkkulaði og sígar- ettum og endorfln líkamans þanið til hins ítrasta. Á meðan mannkynið er ennþá háð þessu líkamsmorfíni þarf það svo sannarlega á svona „æsingarpredikurum" að halda til þess að átta sig á því að kraftaverk eru enn að gerast. Góður Guð verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni. Höfundur er húsmóðir og áhugamanneskja um trúmál. hafði aldrei séð fýrr, tekin fram. Því næst drógu allir, sem við kaffi- borðið sátu hvert sitt „Mannakorn" og byijaði trúmaðurinn að fletta upp textunum jafnóðum í Bibl- íunni. Las hann síðan textana upp- hátt fyrir viðstadda. Þegar kom að þeim trúlausa, brá trúmanninum heldur en ekki i brún er hann leit yfir ritningarstaðinn, sem hann hafði dregið og var skráð- ur í Davíðssálmi 53:2. I fyrstu ætl- aði hann varla að þora að lesa hann upphátt. En þegar það sást eitt- hvert hik koma á hann, segir einn viðstaddra: Svona láttu okkur heyra, hvað hann fékk.“ Ritningar- staðinn las trúmaðurinn upp hik- andi, en hann hljóðaði þannig: „Heimskinginn segir í hjarta sínu: Enginn Guð er til.“ Alla setti hljóða og einnig þann trúlausa, sem þó rauf þögnina fyrstur. Hann sagði: „Margt er skrítið í þeirri görnlu". Hinn sami og um aldir Síðustu orðin sem síðan voru dregin á þessari sérstöku stundu voru á þessa leið: „Náðin Drottins vors Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé með yður öllum. Amen.“ Eftir þetta var ekki frekar minnst á trúmál og sátu nú allir hljóðari en áður. „Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.“ (Hebr. 13:8.) Höfundur er frnmkvæmdostjóri Gídeonsfélngsins á íslandi. FARSIMAKERFIÐ GSM farsímakerfið Póstur og sími hefur tekið í notkun nýtt farsímakerfi hér á landi. Kerfið kallast GSM (Global System for Mobile Communication) og er stafrænt farsímakerfi fyrir talsímaþjónustu innanlands og milli landa. Fyrst um sinn nær GSM kerfið aðeins til höfuðborgarsvæðisins, Suðurnesja og Akureyrarsvæðisins en það verður síðan byggt upp í áföngum út frá helstu þéttbýlissvæðum landsins. Alþjóðlegt kerfi Notandi fær einnig aðgang að GSM farsímakerfum í öðrum Evrópulöndum eftir að nauðsynlegir samningar hafa verið gerðir. GSM kortið - lykillinn að kerfinu Áskrift að GSM kortinu er bundin við kort, svokallað GSM kort sem stungið er í símann. Kortið er í senn lykill að kerfinu og persónulegt númer þess sem er notandi og greiðandi þjónustunnar. Kynntu þér nýja GSM farsímakerfið og stígðu skref í átt til framtíðarfjarskipta. Allar nánari upplýsingar um GSM farsímakerfið er að fá hjá seljendum farsímatækja. Þeir eru: Bónusradíó, Bræðurnir Ormsson hf., Hátækni hf., Heimilistæki hf., ístel hf., Nýherji hf., Radíóbúðin hf., Radíómiðun hf., Smith & Norland hf., söludeildir Pósts og síma í Ármúla, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og sfmstöðvum um land allt. FARSÍMAKERFI PÓSTSOGSÍMA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.