Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 26

Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ H STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblðð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. I lausasölu 125 kr. eintakið. HLUTABREF HÆKKA í VERÐI VIÐSKIPTI með hlutabréf á Verðbréfaþingi íslands hafa verið með mesta móti síðastliðna þrjá mánuði. í viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær kemur fram að yfir sumarmánuðina hafi hlutabréfaviðskipti numið um 200 milljónum króna, sem er meira en nokkurt annað sumar. Þingvísitala hlutabréfa hækkaði á þessum tíma um 11,5%. Yfir sumarmánuðina hækkaði gengi hlutabréfa í ýms- um helztu hlutafélögum mikið og þar með markaðsverð- mæti fyrirtækjanna. Þannig hækkaði gengi bréfa í Eim- skipafélagi íslands um 13,5% og markaðsvirði skipafé- lagsins um 738 milljónir króna. Hlutabréf í íslandsbanka hækkuðu um 22,6% og markaðsverðmæti bankans þar með um 813 milljónir. Markaðsvirði Granda hf. jókst um 120 milljónir og Flugleiða um 308 milljónir. Bréf í Hamp- iðjunni, Þormóði ramma og Jarðborunum hafa einnig hækkað í verði. Markaðsverðmæti olíufélaganna hvers um sig hefur hækkað um á þriðja hundrað milljóna. Samtals hefur markaðsvirði tíu af stærstu hlutafélögun- um vaxið um 2,8 milljarða í sumar. í fréttaskýringu viðskiptablaðs Morgunblaðsins í gær kemur fram að verðhækkunin á hlutabréfamarkaðnum sé ekki sízt afleiðing af birtingu milliuppgjörs ýmissa stórfyrirtækja á almennum hlutabréfamarkaði, sem gefið hafi til kynna batnandi afkomu. Hlutabréfaviðskipti hafi því greinilegan meðbyr. Annað komi þó til, til dæmis vaxandi traust fjárfesta á þessum viðskiptum eftir að reglur hafi verið hertar og eftirlit með framkvæmd þeirra bætt. Verðhækkunin á hlutabréfamarkaðnum er ánægjuefni og enn ein vísbendingin um að efnahagslífið sé að rétta úr kútnum. Sömúleiðis bera þessar fregnir vott um að íslenzki hlutabréfamarkaðurinn sé byrjaður að virka eins og hann á að gera. Þó má slá varnagla í þessum efnum eins og gert er í fyrrnefndri fréttaskýringu: „[Fjárfest- ar] eru orðnir leiðir á neikvæðum fréttum. Góðar fréttir vinda því skjótt upp á sig eins og þegar snjóbolta er velt og það skýrir að einhveiju leyti verulega hækkun hluta- bréfa í kjölfar frétta um góða afkomu fyrirtækja, þrátt fyrir að margt sé á huldu um framhaldið." Þegar hlutabréf féllu í verði fyrir nokkrum misserum og markaðsvirði margra stórfyrirtækja fór lækkandi, var Morgunblaðið gagnrýnt fyrir að vekja athygli á því í fréttum og fréttaskýringum. Verðhækkun eða verðfall á hlutabréfum hlýtur hins vegar alltaf að vera fréttaefni, á hvorn veginn sem er. Fréttir af til dæmis 40% rýrnun á verðmæti hlutabréfa í Flugleiðum hlutu að vekja menn til umhugsunar um stöðu fyrirtækisins og ástandið í efnahagsmálunum almennt. Hlutabréfamarkaðurinn á auðvitað að vera mælikvarði á stöðu atvinnulífsins. Þeg- ar þessi markaður slítur barnsskónum, sem íslenzki hluta- bréfamarkaðurinn virðist vera að gera, hljóta menn að átta sig á því að flutningur tíðinda af verðbreytingum er ekkert annað en eðlileg fréttamennska og sjálfsagður hluti af umfjöllun um efnahags- og atvinnumál yfirleitt. Þegar verð á hlutabréfamarkaði er í uppsveiflu geta hlutabréf verið mjög ákjósanlegur ávöxtunarkostur. Hluti af skýringunni á miklum hiutabréfaviðskiptum í sumar er væntanlega sá að hlutabréf hafa verið hagstæðari en ýmis önnur verðbréf. Almenningur hefur í vaxandi mæli fest sparnað sinn í hlutabréfum. Hins vegar hafa stærstu fjárfestarnir, lífeyrissjóðirnir, ekki verið jafnvirkir á hlutabréfamarkaðnum og lífeyrissjóðir víða erlendis. Þetta er skiljanlegt í ljósi þess verðfalls, sem varð á hluta- bréfum á meðan efnahagslægðin var sem dýpst, og reynsla af hlutabréfum var mjög takmörkuð en nú má spyrja hvort lífeyrissjóðirnir ættu ekki að huga að því að festa fé sitt í auknum mæli í hlutabréfum íslenzkra fyrirtækja. Slíkt yrði til þess að efia atvinnulífið og bæta eiginfjárstöðu fyrirtækja. Jafnframt myndi slík fjár- festing draga úr eftirspurn eftir lánsfé og þannig stuðla að því að sá árangur, sem náðst hefur í vaxtamálum, geti orðið varanlegur og vextir jafnvel lækkað enn frekar. SAUMAÐ AÐ SVÍUM ÍSLAND, ÍSLAND, ÍSLAND Múgur o g margmenni kom saman á Laugar- dalsvelli á miðvikudag til að sjá íslenska lands- liðið í knattspymu etja kappi við félaga sína frá Svíþjóð. Orri PáU Ormarsson var á með- al áhorfenda og fékk því stemmningu, sem myndast sárasjaldan hér á landi, beint í æð. á er stundin runnin upp,“ segir þulurinn í hátalara- kerfinu. Ríflega fjórtán þúsund manns halda niðri í sér andanum þegar undirheimar stúkunnar í Laugardalnum opnast og 22 tuðrusparkarar ganga taktfast fram á völlinn. Það er landsleikur í knattspymu. Þetta er þó enginn venjulegur landsleikur því andstæð- ingar Islendinga eru bronsskreyttir Svíar, þriðja fremsta lið veraldar í greininni. Sambærilegar samkomur hafa því ekki verið jafn fjölmennar um langan aldur. Skyndilega ætlar allt um koll að keyra. Mannhafíð, sem umlykur völl- inn, berst um á hæl og hnakka. Útrás- in verður algjör og jafnvel duldustu tilfinningar eru leystar úr læðingi. Nokkuð sem samfélagið líður fólki sjaldan á opinberum vettvangi. Kring- umstæður eru kjömar til að sleppa fram af sér beislinu. „Svenska flickor“ Kynt er undir þjóðemiskenndinni með markvissum hætti og er há- punktinum náð þegar þjóðsöngvar landanna óma um dalinn. Að loknum þessum ómissandi þætti í múgsefjun- inni hefst hildurin. Strákarnir okkar mæta vígreifir til leiks. Þeir renna sér fótskriðu hver í kapp við annan og traðjóla andstæðingum sínum hressi- lega. Áhorfendur eru vel með á nótun- um enda ætlunin að láta Svíana fínna til tevatnsins. „Svenska flickor," heyr- ist galað úr stúkunni og Stefan Schwarz, harðjaxlinn í sænska liðinu, fórnar höndum í grassverðinum. Þess- ir heimsfrægu kappar hafa ekki einu sinni svigrúm til að athafna sig á bronspeningunum sínum. En Svíar em þekktir fyrir allt ann- að en uppgjöf og gera því heiðarlega tilraun til að malda í móinn. Þá kem- ur breyskleiki dómarans umsvifalaust í Ijós. Hann dæmir okkur í óhag. „Sá ætlar að dæma þetta illa, þessi Skoti!“ Það er ekki nóg með að allt sem illt er í heiminum persónugervist í sænsku leikmönnunum meðan á leiknum stendur heldur nýtur dómarinn sín jafnframt í hlutverki hins óforbetran- lega yfírvalds sem vinnur markvisst gegn hagsmunum íslendinga. Þúsundir sérfræðinga Mitt í þessu öllu dynur reiðarslagið yfir. Svíarnir skora. Það er sem blautri tusku sé slegið á brúnir aðdáenda ís- lenska liðsins. Skyndilega skýtur tví- hyrndum Svíum upp víðs vegar í stúk- unni. Ekki hefur farjð mikið fyrir þeim til þessa. „Áfram ísland" breytist á svipstundu í „heia Sverige." Ekki nóg með að Svíamir verði skyndilega fleiri í áhorfendastæðunum heldur fjölgar þeim einnig niðri á vellinum. Myrkrið færist yfir enda á ísland undir högg að sækja. Ölvaður miðaldra Svíi gefur íslenskum ungmeyjum þó gaum í stúk- unni. Það minnir okkur á að þrátt fyrir ófarirnar eru heimsins fegurstu fljóð enn okkar. „Áfram ísland," kall- ar hjáróma rödd í fjarska. Síðan er fyrri hálfleikur allur. í leikhléi stinga þúsundir sérfræð- inga saman neíjum. Hvað er til ráða? „Þeir mega ekki skora aftur, þá er þetta búið!“ „Hann verður að setja Bjarka inná!“ „Við berum alltof mikla virðingu fyrir þeim!“ „Við verðum að leggja meiri áherslu á sóknarleikinn!" „Aumingja Nonni, konan hans er far...“ Vonarneistinn fjarar út í síðari hálfleik er allt annað að sjá til íslenska liðsins. Svíarnir ná ekki að skora aftur. Bjarki kemur inná. Virðingin fyrir þeim gulklæddu hverf- ur sem dögg fyrir sólu og ríkari áhersla er lögð á sóknarleikinn. ís- lensku áhorfendurnir taka gleði sína á ný. Okkar menn leika við hvern sinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.