Morgunblaðið - 09.09.1994, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994 37
■
I
I
I
í
i
(
t
.
i
SKÁKMÓT í LOMPOM
Ovænt úrslit í
London
SKAK
London
LLOYDS BANK MÓTIÐ
19.-29. ÁGÚST
SAUTJÁN ára gamall Rússi,
Alexander Morozevich, sigraði með
ótrúlegum yfirburðum á árlega
Lloyds Bank mótinu í London. Hann
hlaut níu og hálfan vinning af tíu
mögulegum. Enskir reiknimeistarar
voru fljótir að finna það út að þetta
væri þriðji besti árangur skáksög-
unnar mældur í stigum, á eftir
Bobby Fischer sem vann allar skák-
ir sínar á bandaríska meistaramótinu
fyrir 30 árum og sigri Anatólí
Karpovs á Linaresmótinu í febrúar.
Lloyds Bank mótið var afar sterkt,
30 stórmeistarar mættu til leiks til
að freista þess að vinna eitt af fimm
sætum á atskákmóti Intel og at-
vinnumannasambandsins PCA sem
fram fer í London um mánaðamótin.
Það urðu þó afar óvænt úrslit og
enginn af tíu stigahæstu keppendun-
um hreppti eitt sætanna fimm. Þau
komu öll í hlut lítt þekktra meist-
ara. Auk Morozevich voru það Þjóð-
veijinn Mainka, Adianto frá Indó-
nesíu, Tkaciev frá Kazakstan og
sænski alþjóðameistarinn Ralf Akes-
son sem komust áfram, þeir þrir síð-
astnefndu eftir aukakeppni.
Úrslit mótsins:
1. Morozevich 9'A v.
2. Mainka, Þýskalandi 8 v.
3. -11. Adianto, Tkaciev, Akesson,
Englendingarnir Miles, Norwood,
Nunn og Wells, Markowski, Pól-
landi, og Yermolinsky, Bandaríkj-
unum, 7 lh v.
12.-25. Margeir Pétursson, Psakhis
og Alterman, ísrael, Asejev og Zil-
berman, Rússlandi, G. Garcia, Kól-
umbíu, D. Gurevich, Bandaríkjunum,
Kaminski, Póllandi, Hebden, King,
Howell, Davies og Kumaran, Eng-
landi, 7 v.
26.-47. Speelman, Mestel, Gallag-
her, Lane, Summerscale, Mortazavi,
Webster, Crouch og Byway, allir
Englandi, 011, Eistlandi, McNab,
Skotlandi, Wolff, I. Gurevich og
Frias, Bandaríkjunum, Thipsay og
Mitrakanth, Indlandi, Gufeld, Savc-
henko, Ragozin og Cherniaev, Rúss-
landi, 6V2 v.
Þátttakendur á mótinu voru tæp-
lega 300 talsins. Undirritaður byrj-
aði afar vel og í sjöundu umferð
náði ég að stöðva sigurgöngu Speel-
mans á mótinu, en hann sigraði tvö
undanfarin ár. En síðan tapaði ég
með svörtu fyrir Morozevich sem var
hreinlega í banastuði og klaufalega
með hvítu fyrir John Nunn eftir að
hafa átt mun betra tafl og hafnað
jafntefli. Þar með voru möguleikar
mínir á því að komast áfram úr sög-
unni. Þeir Sigurbjörn Björnsson, 18
ára, og Matthías Kjeld, 15 ára, tóku
þátt í mótinu og stóðu vel fyrir sínu.
Sigurbjörn hlaut 5 v. og tefldi aðeins
við andstæðinga með FIDE-stig.
Hann ætti því að fá u.þ.b. 2.300
stig á næsta lista um áramótin.
Matthías hlaut 4 v. og hækkar einn-
ig í stigum.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Speelman, Englandi
Móttekið drottningarbragð
1. d4 - d5 2. c4 - dxc4 3. e4 -
Rf6 4. e5 - Rd5 5. Bxc4 - Rb6
6. Bb3 - Rc6 7. Re2 - Bf5 8.
Rbc3 - e6 9. 0-0 - Dd7
Speelman þekkir þetta afbrigði
vel og endurbætir taflmennsku
Rússans Ibragimovs gegn undirrit-
uðum frá Reykjavíkurmótinu í febr-
úar. Þá lék svartur strax Be7 og
hrókaði stutt, en fékk mjög slæma
stöðu.
10. a3 - 0-0-0 11. Be3 — Kb8 12.
Ba2 - Be7 13. b4 - h5 14. Hcl
- h4 15. Bb3 - f6! 16. exf6 -
gxf'6 17. Ra4 - Hhg8 18. Rf4 -
Rd5!
Eftir 18. — Rxd4 hefði skákin lík-
lega leyst upp í jafntefli.
19. Bxd5 - exd5 20. Khl - Bd6
21. f3 - Hde8 22. Dd2 - Dg7?!
Hér fer svartur að tefla upp á
kóngssókn af mikilli bjartsýni og
fórnar peði. Rétt var hins vegar 22.
— Rxb4! 23. Rc5! — Dg7! og staðan
verður mjög tvísýn, en Speelman
yfirsást síðastnefndi leikurinn.
23. Rxd5 - Re7 24. Rac3 - Bd3?
Svartur hefur vissar bætur fyrir
peð en hér teygir hann sig alltof
langt. Nú vonast hann eftir 25. Hf2
sem svara má með 25. — Bg3! 26.
hxg3 — hxg3 27. Dxd3 — Dh6+
28. Kgl - Dh2+ 29. Kfl - gxf2
og svartur vinnur.
25. Hfel - Rf5 26. Bf4
26. - Rg3+ 27. Bxg3! - Hxel +
28. Hxel - Bxg3
Svartur fórnar nú öðrum manni,
en 28. — hxg3 29. Dxd3 — gxh2
30. He2 var einnig vonlaust.
29. hxg3 - hxg3 30. Dxd3 -
Dh6+ 31. Kgl - Dh2+ 32. Kfl -
Dhl+ 33. Ke2 - He8+ 34. Re3 -
Dxg2+ 35. Kdl - Dxf3+ 36. Kd2
- a6 37. De2 - Dc6 38. Dg4 -
f5 39. Dxg3 og í þessari vonlausu
stöðu féll svartur á tíma.
BURKNI í uppvexti á vordögum.
BURKNI
Síðari grein
BLOM
VIKUNNAR
300. þáttur
llmsjón Ájjúsla
Itjörnsdóttir
Hermann Lund-
holm heldur áfram
að segja frá burkn-
um: Burknarnir eru
ákaflega mismun-
andi, bæði að stærð
og gerð, frá nokkr-
um sentimetrum á
hæð og allt upp í 2
metra. Sumar teg-
undir hafa alveg
heil blöð, en aðrar
svo margskipt að
blöðin virðast nær
óteljandi. Hjá sum-
um tegundum eru
bllöðin mjúk og
næstum gagnsæ,
en hjá öðrum leður-
kennd, þykk og stinn. Liturinn
getur verið frá ljós-gulgrænu og
svo allt að því svartur. Mikil fjöl-
breytni getur líka verið í haust-
litum. Sumir visna fljótlega þeg-
ar tekur að hausta, aðrir standa
með græn blöð fram eftir vetri
eða eru næstum sígrænir.
Einkar skemmtilegt er að
fylgjast með vexti burknanna á
vorin þegar blöðin koma saman-
undin uppúr moldinni, eins og
hjól, og byija að vinda ofan af
sér — hver tegund á sinn sér-
stæða hátt. Fjöldamargar
burknategundir má rækta í
görðum, en frumskilyrði er að
þeir fái skjól, raka og hæfilegan
skugga, — og skal hér lýst fáein-
um tegundum:
Fjöllaufungur, (Athyrium filix
femina) mun allra burkna al-
gengastur í ræktun hér á landi,
nær allt að 80 sm hæð.
Þúsundblaðarós
(Athyrium alpestre)
líkist mjög fjöllauf-
ungum en er ívið
lægri og þéttvaxn-
ari.
Stóriburkni (Dry-
opteris filix mas) er
stórvaxnastur allra
íslenskra burkna.
Hann mun líka vera
sá sem þolir birtu
hvað best og gerir
minnstar kröfur til
skugga. Fer t.d. vel
upp við stóran stein.
Þríhyrnuburkni
(Dryopteris
phegopteris) er al-
gengur um vestanvert landið í
gjám og hraungjótum. Eins og
nafnið bendir til er blaðkan þrí-
hymd, dökkgræn, 30-40 sm há,
og er því auðþekkt.
Slqaldburkni (Polysticum lonc-
hitis) öðru nafni nefndur uxa-
tunga er ekki eins hávaxinn.
Algengt er að hann sé um 30
sm á hæð. Mjög fallegur burkni
en ekki sem auðveldastur í rækt-
un og því ekki algengur.
Köldugras (Polypodium vulg-
are) öðru nafni nefndur sæturót
hefur sígræn skinnkennd blöð
með stórum gróblettum. Vex í
klettum og hellisskútum.
Til smávaxinna tegunda ís-
lenskra burkna má t.d. nefna:
Tófugras (Cystopteris fragilis)
sem flestir þekkja, enda vex það
nær alls staðar í hraungjótum,
klettum og hellisskútum um
land allt.
Þrílaufungur (Dryopteries
linneana) vex víða um norðan-
og vestanvert landið í skjólgóðu
blómlendi og birkikjarri. Mjög
fíngerður burkni með ljósgræn-
um, þríhymdum blöðum á örfín-
um, gljáandi svörtum stönglum.
Liðfætla (Woodsia ilwensis) er
með allra smávöxnustu burkn-
um hérlendis, aðeins 6-16 sm á
hæð. Blaðstilkurinn rauðbrúnn.
Vex í klettum og urðum um
sunnan- og vestanvert landið.
Þessa upptalningu ætla ég að
enda á:
Körfuburkna (Matteuccia
struthiopteris) stundum líka
nefndur strútsfjaðraburkni,
stórvaxin erlend tegund sem
þrífst hér vel og getur — þar
sem hann kann vel við sig —
myndað heilt burknastóð. Hann
fjölgar sér með neðanjarðarr-
englum og á það til að skjóta
upp kollinum annars staðar en
til er ætlast.
Þær tegundir sem hér hafa
verið nefndar hef ég allar rækt-
að með góðum árangri.
Hvað jarðveg fyrir burkna
snertir þarf hann að vera gljúp-
ur, svampkenndur og næringar-
ríkur. Gott er að blanda hálfvi-
snuðu laufi, muldum mosa eða
jafnvel veðraðri mómold og
gömlum húsdýraáburði í mold-
ina, það ætti að gefast vel.
Burkna er heppilegt að rækta
undir tijám eða við veggi þar
sem þeir hafa skugga einhvern
hluta dagsins.
Hermann Lundholm.
Arnað heilla
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voni
saman 20. ágúst sl. í Selja-
kirkju af sr. Valgeiri Ástráðs-
syni Svava Rögn Þorsteins-
dóttir og Garðar Þór Ing-
varsson, til heimilis í Hrís-
rima 4, Reykjavík.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. ágúst sl. í Dóm-
kirkjunni í Rvík. af sr. Þór
Haukssyni Bryndís Krist-
jánsdóttir og Jóhann Örn
Arnarson, til heimilis í Lúx-
emborg.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. ágúst sl. í Skál-
holtsdómkirkju af sr. Guð-
mundi Óla Ólafssyni Sigríður
Egilsdóttir og Guðmundur
Sigurðsson, til heimilis í
Vatnsleysu í Biskupstungum.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 20. ágúst í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði af sr. Gunn-
ari Siguijónssyni Gréta H.
Grétarsdóttir og Gunnar B.
Finnbogason, til heimilis á
Móabarði 36, Hafnarfirði.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 27. ágúst í Fríkirkj-
unni í Reykjavík af sr. Cecil
Haraldssyni Júlía Björg Sig-
urbergsdóttir og Skúli Örn
Andrésson, til heimilis í Veg-
húsum 9, Reykjavík.
Ljósm.st. MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 27. ágúst sl. í Kópa-
vogskirkju af sr. Þorbergi
Kristjánssyni Kristín Emils-
dóttir og Helgi Björnsson,
til heimilis á Bakkasíðu 4,
Akureyri.