Morgunblaðið - 09.09.1994, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
íslandgetur
náð ödru sæti
- segir í iDAG eftir leikinn við Svía
Grétar Þór
Eyþórsson
skrifar
frá Sviþjóð
SÆNSKIR fjölmiðlar eru á
einu máli um að Svíar hafi
sloppið með skrekkinn, þeg-
ar þeir unnu íslendinga 1:0 á
Laugardalsvelli í 1. umferð
Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu í fyrrakvöld.
ÆT
Íslenska liðinu er hælt fyrir marga
þætti og það talið eiga framtíð-
ina fyrir sér. „ísland á frískt og
teknískt lið, sem er
tvímælalaust á Evr-
ópumælikvarða,"
segir í Expressen.
„Hamingjudísirnar
halda áfram að
koma Svíum til bjargar í alþjóða-
mótum,“ er skrifað í iDAG. „Leikur-
inn við ísland varð
eins erfiður, harð-
ur og skemmtileg-
ur og allir höfðu
vónast til. íslend-
ingar skutu Ra-
velli & co skelk í
bringu í báðum
hálfleikjunum. ís-
lendingar hafa alla
möguleika á að
hreppa annað sæt-
ið í riðlinum, því
það er styrkur og
geta í þessu stór-
kostlega, baráttu-
glaða liði frá sögu-
eyjunni."
Aftonbladet
tekur í ámóta
streng. „Þið getið
betur Svíar,“ segir
Lasse Sandlin í blaðinu. „Gangið
hægt um gleðinnar dyr yfir sigrin-
um. Leikurinn hér sýndi okkur þó
svo ekki varð um villst að Sviss
mun eiga erfitt uppdráttar hér á
Laugardalsvellinum. ísland á gott
lið þó aðeins vanti í það broddinn."
Og um leikinn sjálfan: „Jafnvel þó
íslendingar hafí haft boltann meira
en Svíar, þá sköpuðu þeir sjálfir
varla nokkur marktækifæri. Patrik
Andersson sá um að bjóða upp á
þau.“
Arnar skemmtilegastur
Tvíburabræðumir Arnar og
Bjarki vöktu mesta athygli Svíanna.
Aftonbladet kallar Arnar „íslenska
stormsveipinn“ og telur að hann
hafi verið skemmtilegasti leikmaður
vallarins. Sænskir sjónvarpsmenn,
sem lýstu leiknum til Svíþjóðar,
voru einnig mjög hrifnir af tvíbur-
unum og þökkuðu sínum sæla fyrir
að Bjarka skyldi ekki skipt inn á
fyrr. Hins vegar vom þeir ekki jafn
hrifnir af vörninni hjá íslendingum
og markvörðurinn Birkir Kristins-
son fékk ekki háa
einkunn fyrir
frammistöðu sína
hjá fyrrum at-
vinnumönnunum
Hans Holmqvist
og Ronnie Hell-
ström.
Sænsk blöð eru
sammála um að
Kennet Anders-
son og Thomas
Ravelli hafi verið
bestu menn Svía
og sagði Tommy
Svensson, þjálf-
ari, að Ravelli
hefði bjargað öll-
um stigunum
með markvörslu
sinni, en 1:1 hefði
verið sanngjarnt.
Tomas Brolin sagði að 1:0 sigur
gegn íslandi væru úrslit, sem fiest-
ar knattspyrnuþjóðir gætu verið
hreyknar af í dag. „íslenska liðið
spilar árangursríkan og fastan fót-
bolta. Miðjumenn okkar áttu mjög
erfitt uppdráttar og töpuðu barátt-
unni um mikilvægasta hluta vallar-
ins.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ásgelr Elíasson
landsllösþjálfari
OPIÐ MÓT
SJÓVÁ ALMENNAR
OPIÐ MOT
VERÐUR HALDIÐ ÞANN
11. SEPT. N.K.Á
VÍFILSSTAÐAVELLI í GARÐABÆ.
KEPPNISFYRIRKOMULAG 18 HOLUR
MEÐ/ÁN FORG.
Vegleg verðlaun fyrir
1.-2.-3. sæti
Fyrir hoiu í höggi á 7/16
braut utanlandsferð
með SAS.
Verðlaun fyrir næst holu á
2/11 og 7/16.
Verólaun fyrir lengsta
upphafshögg á 6/15 og
8/17 braut.
Skráning í golfskálanum í síma: 657373
fyrir kl. 15.00 laugardaginn 10. sept. n.k.
„íslenski stormsveipurinn“
Morgunblaðið/Sverrir
ARNAR Gunnlaugsson vaktl athygli Svíanna í lelknum og var hann kallaður íslenskl storm-
sveipurlnn í einu sænsku blaðanna í gær. Hér er hann sloppinn framhjá markaskoraranum,
Klas Ingesson.
Hverjir komast áfram
í úrslitakeppnina?
Sextán lið verða í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í knattspymu
í Englandi sumarið 1996, en þau hafa verið átta hingað til. En
hveijir verða það sem komast til Englands?
• Englendingar eru eina þjóðin sem þegar er örugg með sæti, sem
gestgjafi.
• Efsta liðið í hverjum riðlanna átta fer auðvitað beint í úrslitakeppn-
ina, og þá eru níu sæti farin af 16.
• Sex þeirra liða, sem verða í öðru sæti í riðlunum, fara einnig sjálf-
krafa áfram í úrslitakeppnina í Englandi — þau sex lið sem ná bestum
árangri í öðru sæti.
•Þá er eitt sæti eftir. Um það bítast þau tvö lið sem ná lökustum árangri
í öðm sæti riðlakeppninnar, þegar tillit er tekið til árangurs leikja þeirra
við þau lið sem eru í fjórum efstu sætum viðkomandi riðils — þ.e. úr-
slit leikja gegn liðunum númer eitt, þijú og fjögur. Þetta er gert vegna
þess að mis mörg iið em í riðlunum — sex í sumum og sjö í öðrum.
Umrædd tvö lið mætast á hlutlausum velli í desember 1995, og sigurliðið
í þeirri viðureign hlýtur 16. sætið í úrslitakeppni EM í Englandi árið eftir.
UN6L1N6AM0TIÐ
LAU6ARDA6INN 10.SEPTEMBER
'' ---Rástímar kl. 8 -10 oq 13 - 15.
Flokkar: Stúlkur, 18 ára oq yngri.
Drenqir, 14 ára oq ynqri.
Piltar, 15 -18 ára.
Stúlkur oq drenqir hafa mest Z8 höqq í forqjöf ——
en piltar mest 24 höqq.
Stórqlæsileq verðlaun í öllum flokkum fyrir 1.2. oq 3. saeti
með oq án forqjafar. Verðlaunaafhendinq kl. 19.
Skráninq í Golfskálanum, sími 91-611930. ——
Pátttökugjald er 500 krónur.
Nesklúbburinn - Golfklúbbur Ness
jfe SPARISIÓÐUR
REYKJAVÍKUR OC NÁGRENNIS
■ EMIL Kostadinov, landslið-
smiðheiji Búlgaríu, hefur verið
lánaður frá Porto í Portúgal til
Deportivo Coruna á Spáni. Leigan
er sögð vera um 70 millj. kr., en
spænska félagið á rétt á að kaupa
kappann í júní á næsta ári.
■ JOE Jordan, þjálfari Stoke í
ensku 1. deildinni hætti störfum í
gær, og er ástæðan slæmt gengi liðs-
ins undanfarið. Þorvaldur Orlygs-
son leikur sem kunnugt er með lið-
inu. Líklegt þykir að Lou Macari
taki við liðinu. Hann stjórnaði Stoke
þar til í fyrra, er hann hætti og fór
til Glasgow Celtic, en var rekinn
þaðan.
■ ENSKA úrvalsdeildarliðið
Ipswich keypti í gær Adrian Paz,
25 ára landsliðsframheija frá Pena-
rol Montevideo í Urugvæ fyrir eina
milljón punda.
■ TONY Polster skoraði þrennu
og Franz Aigner gerði eitt mark
er Austurríki sigraði Liechtenstein
4:0 í 6. riðli Evrópumóts landsliða í
fyrrakvöld.
■ DARKO Pancev, fyrirliði
Makedóníu, var rekinn af velli
snemma í seinni hálfleik í l:l-jafn-
teflisleiknum gegn Evrópumeistur-
um Dana í fyrrakvöld. Dómarinn
taldi Pancev hafa slegið mótheija
með olnboga, en hann leikmaðurinn
sagðist blásaklaus.
■ BILLY Wright, fyrrum fyririiði
enska landsliðsins í knattspyrnu og
Wolves, lést á laugardag úr krabba-
meini, sjötugur að aldri. Hann var
fyrsti enski leikmaðurinn sem náði
100 landsleikjum; þeir urðu 105 alls
Wright var fyrirliði landsliðsins í
90 leikjum.
■ NASKO Sirakov, landsliðs-
framheiji Búlgaríu, var á föstudag
úrskurðaður í átta leikja bann frá
Evrópukeppninni vegna slæmrar
framkomu í leik. Þá var Svíinn
Jörgen Petterson úrskurðaður í
átta landsleikja bann, vegna fram-
komu hans í leik með landsliði 21
árs og yngri gegn Frökkum í lok
júlí.
■ TONY Cottee var í vikunni seld-
ur frá Everton til West Ham.
Cottee var sex ár hjá Everton.
H DAVID Borrows fyrrum leik-
maður Liverpool, var í vikunni seld-
ur frá West Ham til Everton.
Borrows var seldur frá Liverpool í
fyrra.