Morgunblaðið - 02.10.1994, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. GKTÓBER 1994 B 3
Lengi hefur verið landlægt á íslandi
að gefa ekki upp sölu- eða kaupverð
á reiðhesti. Kunnugir segja mér að
verð á reiðhesti innanlands sé frá 100
þúsund krónum og allt upp í milljón
eða meira. Góður taminn hestur kosti
alla vega á annað hundrað þúsund
krónur.
Tamningar stór atvinnugrein
Að gera fola í stóði að góðum reið-
hesti kostar vitanlega bæði fé og
fyrirhöfn. Enda tamningar orðin stór
atvinnugrein á íslandi. Sumir temja
sjálfir en flestir láta hesta a.m.k. í
frumtamningu. Bændur ráða gjarn-
an tamningamann og er eftirspum
eftir þeim og tamningastöðvar eru
um allt land. Mér var sagt að í Skaga:
firði væru þær allt að 40 talsins. í
hverri stöð má gera ráð fyrir að séu
2-3 tamningamenn. Þetta er orðin
veruleg atvinnugrein og tamninga-
menn víða. í félagi tamningamanna
eru um 100 manns. Kostnaður við
að temja hest í einn mánuð mun
vera 25 þúsund krónur. Fyrir fjög-
urra mánaða tamningu, sem varla
má minna vera fyrir góðan fola, kost-
ar tamningin orðið 100 þúsund krón-
ur.
Við Hólaskóla er nú rekin tamn-
ingabraut, þar sem tamningamenn
geta fengið menntun. Sú menntun
er bæði munnleg, skrifleg og verk-
leg. Því má skjóta hér inn í að frá
1973 hefur ríkið rekið uppeldis- og
tamningastöð fyrir stóðhesta í Gunn-
arsholti. í fyrstu voru verðandi stóð-
hestar yfirleitt í eigu stöðvarinnar
sjálfrar, en nú orðið yfirleitt í eigu
einstaklinga og félagasambanda.
Óhætt mun að fullyrða að starf-
andi séu á annað hundrað tamninga-
menn. Á Reykjavíkursvæðinu og
nálægum bæjum munu vera um 60
tamningamenn í starfi, sumir allan
ársins hring eða frá því í janúarbyij-
un og fram í ágúst. Er við höfðum
samband við Sigurbjöm Bárðarsson
var hann að koma frá Bandaríkjun-
um, þar sem hann var að kenna hjá
bandarísku hestamannafélagi og
hafði námskeið í reiðmennsku á ís-
lenskum hestum. Kvaðst hann gjam-
an nota haustið til að kenna hér
heima og erlendis.
{ reiðkennslunni eru eitthvað færri,
en hún tengist á vissan hátt bæði
tamningunni og erlendu hestafólki.
Innan Félags tamningamanna er listi
sem nefnist reiðkennarar b, sem á
eru eitthvað yfir 30 manns. Til
kennslu þurfa menn réttindi. Fyrst
tekið próf inn í félagið til að temja,
síðan tekið próf til að mega kenna,
sérstakt til að vera leiðbeinandi og
kenna bömum og fullorðnum. Þá
bætt á meiri réttindaprófum í b- og
a-flokki. Sigrún Sigurðardóttir, reið-
kennari, sem er með reiðnámskeið,
segir gífurlegan fjölda sem þátt taki
í slíku námi. Sjálf er hún með nám-
skeið hér heima á íslandi frá janúar
til júní og á haustin kennir hún erlend-
is. Var t.d. nú að fara til Þýskalands
til að kenna hópi sem var í hestaferð
á íslandi í sumar. Erlendis eru mest
helgamámskeið, á eigin hestum eða
leigðum hestum. Á íslandi tekur hún
6-8 manns í 10 tíma og var með 9
slíka hópa sl. vetur, sem í voru allt
frá 5 ára bömum og upp í fólk á
sextugsaldri. Verðið fyrir slíkt nám-
skeið er 3.800 kr. fyrir börn og 4.500
fyrir fullorðna. Af þessu dæmi má
sjá að kennsla er talsverð atvinnu-
grein í hestamennskunni og mjög ört
vaxandi eftirspum um leið og hestum
og hestafólki fjölgar, að því er hún
segir.
Mikió kynbótastarf
Eftirsókn íslenskra og erlendra
hestamanna í íslenska reiðhestinn
byggist auðvitað á því að vel sé til
vandað í ræktun og meðferð hestsins,
enda hafa orðið gífurlegar framfarir
á undanfömum árum. Kynbótastarfið
er orðið ákaflega umfangsmikið. Sýn-
endur kynbótahrossa og þeir sem
tengjast ræktuninni eru orðnir á ann-
að þúsund. Búnaðarfélag íslands er
opinber ábyrgðaraðili kynbóta hrossa
jafnt sem annars búfénaðar á ís-
landi. Tveir hrossaræktarráðunautar
em þar í starfi, Þorkell Bjamason og
Kristinn Hugason, og hafa þeir veitt
fomstu dómum kynbótahrossa um
allt land, annast skráningu undaneld-
ishrossa og séð um að skýrslur hafi
verið haldnar um notkun og afkvæmi
kybótahesta hjá hrossaræktarsam-
böndunum, auk alls kyns vottorða-
vinnu. Hefur sú starfsemi vaxið mjög
og em þeir í ferðum um allt land.
Dómum hefur fjölgað mjög mikið og
era 2.000 hross dæmd á ári hveiju
og fá einkunnir.
Hrossakjötsútflulningur
til Japans
Félag hrossabænda er einskonar
stéttarfélag þeirra sem framleiða líf-
hross og hrossakjöt. Kjötframleiðslan
hefur staðið í stað á íslandi, enda
mikið kjötframboð. Því var ráðist í
að finna markaði erlendis fyrir
hrossakjöt og nú em árlega flutt um
100 tonn til Japans, sem fyrir fæst
mjög gott verð. Þessi 100 tonn gefa
gróft reiknað um 50 milljónir króna,
að sögn Halldórs Gunnarssonar. Þá
fá bændur um 30 milljónir, 15 miilj-
ónir fara í flugfragt og 15 milljónir
koma í hlut sláturleyfishafa. Til Jap-
ans er flutt svonefnt pistólukjöt, þar
sem um 50% fara í afskurð og flutti
Kjötumboð Goða út 42.232 tonn, en
SH 55 tonn, um helming pistólikjöt
en helming af unnu kjöti sl. ár.
Kvaðst Halldór ákaflega ánægður
með að sölumiðstöðin stæði að út-
flutningi á kjötinu, sem sé alger
nýjung, en þeir séu með á sinni könnu
mjög færa sérfræðinga í útflutning-
sviðskiptum. Erlendis er mjög al-
gengt að sami aðili annist sölu á
kjöti og fiski. Hrossakjötið til Japans
hefur skilað fullu verði til allra aðila.
Þarna er um að ræða kjöt, sem flog-
ið er með ferskt til Japans og þess
vegna verður að slátra og flytja á
markað jafnt og þétt allan ársins
hring, að lágmarki 30 hross vikulega
til að viðhalda markaðinum. Slátrað
er á fjórum stöðum í öllum lands-
fjórðungum tvisvar í viku. Það veitir
töluverða vinnu, því kjötið er unnið
hér á landi í kjötvinnslunum. Þetta
er unnið með öðru og má ætla að í
sláturhúsunum komi þar að 15-20
manns. Engin önnur búgrein skilar
jafn góðu verði til bænda. Fæst 10%
meira verð fyrir þetta útflutta kjöt.
Þarna er um að ræða kjöt af full-
orðnu. Erlendis er folaldakjöt óþekkt
og fer það á innlendan markað. Það
alvarlega ástand, sem nú er á kjöt-
markaðinum, hefur orðið til þess
markaðsverð kjötsins hefur lækkað
og mun innanlandssalan vera um 600
tonn.
Áður höfðu bændur tekjur af blóði
úr fylfullum hryssum til hormóna-
framleiðslu og það mun vera rétt að
byija aftur eftir stöðvun og lofar
góðu um að nú þegar það er aftur
komið í gang verði hægt að vinna
meira úr því. Binda menn miklar
vonir við þennan útflutning í framtíð-
inni. Þá hafa verið seldar húðir og
fást 100-120 kr. fyrir kílóið, en
hrosshár sem fyrr var nýtt er nú
ekki mikið notað, nema í minjagripa-
gerð og listiðnað.
Þúsundir útlendinga
i hestaferdum
Hestar og hestamennska hefur í
framhaldi af aukinni hestamennsku
innanlands og kynningu erlendis haft
gífurlegt aðdráttarafl á erlenda
ferðamenn. Óhætt að tala um
sprengingu á fáum árum, sagði Bolli
Gunnarsson hjá íshestum þegar við
ræddum við hann um skipulegar
hestaferðir, en íshestar eru þar um-
svifamiklir. Um 2.000 manns tóku í
sumar þátt í vikuferðum og lengri
hjá þeim einum, en fleiri koma þar
við sögu, svo sem Arnbjörn á Arnar-
vatnsheiði og Eldhestar í Hvera-
gerði, svo þeir stærsu séu nefnir.
Má ætla að í ferðum á hestum taki
þátt 4.500-5.000 manns á ári og að
fólk sem bregður sér á bak yfir sum-
arið sé ekki undir 10 þúsund manns,
en þá meðtaldir þeir sem leigja hesta
í nokkra klukkutíma eða hluta úr
degi. í ferðunum hjá íshestum eru
yfir 90% útlendingar, en íslendingum
fjölgar þó. Löngu ferðirnar þjappast
því mjög á hinn stutta ferðamanna-
tíma, sex vikna háannatíma í júlí og
SJÁ NÆSTU SfÐU
CLIO
Einn allra besti bíllinn í sínum verðflokki
„Ekkert er svo gott að það geti ekki
orðið betra" höfðu hönnuðir Renault
að leiðarljósi þegar ákveðið var að
bæta enn við kosti Renault
Clio, þessa margverð-
launaða afbragðs bíls, sem
nú er kominn á markað
betri en áður, þótt hann sé
að grunni til sami bíllinn.
Ný og fallegri afturljós,
nýjir hliðarlistar, breytt grill,
betur mótuð framsæti
með bættum og stillan-
legum höfuðpúðum og
endurbætt innrétting er
meðal þess sem prýðir
hinn nýja Clio. Og síðast
SYNING
95
-ARGERÐ-
UM HELGINA!
en ekki síst: betri styrkingar í hliðum
og kippibelti.
Aksturseiginleikar Renault Clio eru
ósviknir, hann liggur
afburða vel og er gangviss,
öruggur og sparneytinn.
Það er sama hvar borið er
niður, aðrar bíltegundir í
þessum verðflokki hafa
ekkert fram yfir Renault
Clio í samspili vecðs og
gæða.
Komdu á sýninguna um
helgina og reynsluaktu
þessum glæsilega og
stórskemmtilega bíl.
VERÐ FRA KR. 1.049.000,-
M/ RYÐVÖRN OG SKRÁNINGU
OPIÐ FRÁ KL.12 -17 LAUGARDAG OG SUNNUDAG
CLIO
stærri en sýnist!
Bílaumboðið hf.
Krókhálsi 1 • Reykjavík • Sími 876633
RENAULT
-fer á kostum!