Morgunblaðið - 02.10.1994, Side 6

Morgunblaðið - 02.10.1994, Side 6
6 B SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Þ AÐ VAR rúmlega vika til frumsýningar á Skýjahöll- inni og Þorsteinn Jónsson, höfundur hennar og fram- leiðandi, var á kafi í kynningarstörf- um. Hann hefur verið með annan fótinn í Þýskalandi undanfarnar vik- ur og var á leiðinni út eina ferðina enn til viðræðna um það sem hann vonar að verði næsta mynd sín. Hann sagði það erfíðasta augnablikið að hætta að hugsa um Skýjahöllina og taka að hugsa um kynninguna á henni, auglýsingamar og söluna. Með því stigi hann inní allt annan heim sem honum fínnst í andstöðu við myndina. En þetta tilheyrir. Það er barist um athyglina á öilum víg- stöðvum og þeir herskáustu njóta hennar. Skýjahöllin, sem frumsýnd hefur verið'i Sambíóunum og er væntanleg í Danmörku og Þýskaiandi með dönsku og þýsku tali, er byggð á sögu Guðmundar Ólafssonar um Emil og Skunda. Hún kostar 105 milljónir króna og er gerð í samvinnu ísienskra, danskra og þýskra framleiðenda undir stjórn Þorsteins, sem er handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi. Með aðalhlutverk- in í henni fara Kári Gunnarsson, sem leikur Emil, Guðrún Gísia- dóttir og Hjalti Rögnvaldsson, sem leika foreldra hans, Helgi Þorsteinsson, Sturla Sighvats- son, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigurður Siguijónsson, Steindór í Hjörleifsson, Gísli Halldórsson, ' Flosi Ólafsson og Róbert Arn- finnsson. Kvikmyndataka var í höndum Sigurðar Sverris Páls- sonar. leikmynd gerði Erla Sól- veig Óskarsdóttir, Geir Óttarr Geirsson sá um búninga og Chri- stoph Oertel sá um tónlistina. Framleiðslustjórn var í höndum Hlyns Óskarssonar og Martins Schliiters, en myndin var styrkt af Kvikmyndasjóði íslands, Kvikmyndasjóði Evrópuráðsins — Eurimages, dönsku kvik- myndastofnuninni og Berliner filmförderung. Sagan af Emil og Skunda Eins og þeir þekkja sem lesið hafa söguna segir Skýjahöllin af hinum átta ára gamla Emil í Reykjavík sem er einbirni og heldur einmana því foreldrar hans eru uppteknir við að koma yfír sig stærra húsi. Emil iangar í hvolp sem minnir á hund afa hans á Ólafsfirði og pabbi hans samþykkir að hann megi kaupa hvolp ef hann geti unnið fyrir honum. Honum tekst það en þá hefur pabbi hans um annað að hugsa — hugurinn er allur við húsbyggingar og bankavafstur — og Emil fær neitun og strýk- ur til afa síns. „Þetta er einlæg mynd fyrir Þorsteins Jónssonar, var frumsýnd í Sambíóunum á fímmtudag og hér ræðir Þorsteinn um gerð myndarinnar eftir Arnold Indriðoson krakka allt niður í þriggja ára ald- ur,“ sagði Þorsteinn. „Það er ekki verið að leggja fyrir áhorfandann gátur heldur fær hann að lifa sig tilfinningalega inn í söguna. Emil kynnist mismundandi afstöðu til vinnunnar. Pabbi og mamma vinna til að eignast hluti eins og nýtt hús. Og í Slippnum verður Emil vitni að því að starfsmenn beijast fyrir því að halda vinnunni. Gömlu mennimir eins og afi trúa á vinnuna sem hluta af lífínu. Heimurinn er einfaldur með augum barnsins. Reynslan hefur enn ekki gert hann flókinn og iilskiljan- legan og sagan hefur þennan einfald- leika að leiðarljósi." ;; ■ Kári Gunnarsson er 11 ára snaggaralegur strákur í Víðistaðaskóla í Hafnarfírði og fer með hlutverk Emils í Skýjahöll- inni. Upptökurnar voru mikill ævintýratími fyrir hann þar sem hann fór um landið með kvik- myndagerðarmönnunum, upplifði allt það sem kemur fyrir Emil í sögunni og kynntist því hvernig bíómynd verðurtil. Hann segist fara í bíó þegar hann á pening og besta myndin sem hann hefur séð þessa stundina er Skyttumar þtjár. Ýmsir skrítnir hlutir Leikstjórinn Þorsteinn Jónsson valdi hann úr hópi skólakrakka og kom svo heim til hans og lagði fyrir hann furðulegar þrautir. „Hann lét mig leika ýmsa skrítna hluti eins og tré og fugla og ketti. Síðan hafði hann samband aftur og sagði að ég hefði fengið hlut- verkið," sagði Kári í samtali þar sem við sátum á heimili hans í Hafnarfirðinum. Kári hafði næst- um enga leikreynslu áður en hann tók til við Emil en hafði mjög gaman af að leika strákinn sem strýkur að heiman með hvolpinum sínum. Hann sagðist ekkert vita um það hvort hann myndi leggja fyrir sig leiklist í framtíðinni. „Maður ákveður að verða eitthvað en svo verður maður alltaf eitt- hvað annað,“ sagði hann. STRAKUR MIKIÐ ævintýri; Kári Gunnarsson í Skýjahöllinni. Hann hafði lesið söguna um Emil og Skunda áður en farið var að tala um að kvikmynda hana og þótt hún skemmtileg. Nú sagð- ist hann vera búinn að lesa hana svona þrisvar, fjórum sinnum. „Hann er mjög góður strákur," sagði hann þegar hann var beðinn um að lýsa Emil, „og mikill dýra- vinur." Kári sagðist hafa engu minni áhuga á dýrum en Emil sjálfur og er með fískabúr í her- berginu sínu. Hann hafði mjög gaman af að leika á móti hvolpin- um Skunda og hefur hitt hann tvisvar eftir að tökum lauk. „Hann er svolítill ólátabelgur," sagði hann. Töfrabrögð í Húnaveri Kári sagði að skemmtilegustu tökurnar höfðu verið með Hunda- konunni Ingu, sem selur Emil hvolpinn. í þeim var svo mikið af dýrum. „Erfiðustu tökurnar voru fyrir norðan hjá Húnaveri þegar Emil fer í ána. Sem betur fer þurfti bara að taka það einu sinni þegar Emil fer allUr á kaf en ég var í þurrbúningi svo mér var eiginlega bara kalt á hausn- um, fótunum og höndunum." Við Húnaver kynntist Kári töfra- brögðum Sigurðar Sigurjónsson- ar, sem fer með hlutverk í mynd- inni. „Hann sýndi okkur galdra- brögð og reyndi að láta okkur finna út hvernig hann gerði þau. Mér tókst bara að ná einu þeirra." Kári var búinn að sjá myndina á forsýningu þegar við spjölluðum saman og hann var ánægður með útkomuna. Þegar hann var spurð- ur að því hvort hann væri stress- aður fyrir frumsýninguna sagði hann: „Myndin var svo góð að það er engu að kvíða.“ -ai. _ Alls koma um 40 krakkar fram í myndinni í stórum og litlum hlutverk- um og sagði Þorsteinn það hafa gengið mjög vel að vinna með þeim. „Þeir þurfa að fínna að þetta er vinna en ekki leikur en maður þarf líka að gefa þeim pláss til að athafna sig, frið og slökun og reyna að hafa ekki of mikinn þrýsting á þeim. Það þarf að láta þá vita hvenær vinnunni er lokið og þeir geta leikið sér. Undir- búningstími fyrir tökur getur orðið langur og biðin mikii og þá mega börnin ekki fá leið á öllu saman áður en kemur að tökum svo það er heil- mikil sálfræði á bak við það að leik- stýra börnum." Og Þorsteinn bætti við: „Svo ger- ist það oft þegar búið er að undirbúa allt og vélin er farin í gang að þá kemur það besta fram í krökkunum og einbeitingin verður mest. Þannig verður þetta oft spurning um að hitta á rétta augna- biikið þegar skilyrði eru best fyrir töku.“ Þorsteinn iíkti leikstjór- anum við verkstjóra. „Hann gefur öllum tæki- færi til að gera sitt besta — leikurum, tónskáldinu, tökumanninum — allt eru þetta menn sem búa yfir mikilli kunnáttu og leikni og málið er að láta það koma fram óþvingað svo ekkert tapist. Þetta er stórt púsluspil þar sem allir kubbamir þurfa að passa á sinn stað.“ Eftirspurn eftir barnamyndum íslenskar bíómyndir, þar sem böm fara með stór hlutverk eða eru gerð- ar sérstaklega fyrir börn, hafa orðið talsvert áber- andi hin síðari ár og að- spurður hveiju þetta sætir sagðist Þorsteinn jafnvel eiga. einhvern hlut í þvi sjálfur. „Þau tvö ár sem ég var framkvæmdastjóri Kvikmyndasj óðs íslands tók ég eftir því að mikil eftirspurn var eftir bama- myndum frá Norðurlönd- unum og sérstaklega frá fslandi. Ein ástæðan var sú að menn litu Norður- Evrópu í einhveiju róm- antísku ljósi, þar sem íbú- amir em í meiri tengslum við náttúruna og dýrin. Sjónvarpsstjómendur, sem em að sýna efni fyrir börn sem búa í stórborg- um, leita mikið að efni þar sem böm og dýr em úti í náttúrunni. Ég rak svolít- inn áróður fyrir því á með- al okkar kvikmynda- gerðarmanna að þama væri pláss fyrir okkar framleiðslu, hvort sem það hefur haft þessi áhrif eða ekki. Önnur ástæða er sú að við erum ekki í stakk bún- ir til að keppa við Holly- wood í gerð hasarmynda, sem fyrirferðarmestar em LEIfllN Afl EINFALD- LEIKANUM Skýjahöllin, bama- og flolskyldumynd Þorsteinn sagðist hafa hitt um 3.000 krakka í ieit sinni að rétta drengnum í hlutverk Émils. Hann var í heilan mánuð að fara á milli grunnskólanna á Reykjavíkursvæð- inu, fór inní bekkjardeildir í öllum skólum, fylgdist með krökkunum og prófaði stráka í aðalhlutverkið og önnur smærri líka. „Áður höfðu nokkrir hringt að fyrra bragði eins og gerist alltaf," sagði Þorsteinn þar sem við sátum á skrifstofunni hans, „og þar á meðal var strákur úr Hafn- arfirði. Ég sinnti því þó lítið vegna þess að ég var svo önnum kafínn í skólunum og þegar ég kom í Víði- staðaskóla í Hafnarfirði og í bekkinn hjá Kára Gunnarssyni sá ég strax að þarna var rétti pilturinn kominn. Hann hafði reyndar verið fýrstur til að hringja í mig.“ Leitin að hvolpinum Skunda var næstum eins umfangsmikil, en hann er frá Garði í Kelduhverfi. Þorsteinn sá systur hans á ljósmynd í Reykja- vík eftir að hafa farið vítt og breitt um landið í leit að rétta hvolpinum og gerði fyrirspumir sem leiddu til ráðningu Skunda. Leikstjórinn er verkstjóri i ► I f I í I I i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.