Morgunblaðið - 02.10.1994, Síða 8

Morgunblaðið - 02.10.1994, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ SÚ SAGA gekk í eina tíð að íslenskir ungling- ar brytu í sér framtenn- ur til að líkjast átrúnað- argoði sínu, Björgvini Halldórssyni. Þetta var á „poppstjörnutímabil- inu“ sællar minningar og síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Sjálfur á Björgvin að- eins sársaukafullar minningar um þetta tannbrot. „Atvikið átti sér stað í skólasundi þegar ég var unglingur. Við vorum í eltingarleik á sundlaugarbarminum og ég rann til og skall beint á andlitið. Eg man það bara að þetta var ofboðslega sárt,“ segir hann þegar við rifjum upp söguna um brotnu tönnina. „Annars held ég að þetta hafi verið orðum aukið, að krakk- amir væru að mölva í sér tennumar. Eg hef að minnsta kosti aldrei séð þetta fólk sem á að hafa brotið í sér tennur til að líkjast mér. En það var nú svo margt skrifað og skrafað á þessum árum og ekki allt sannleikanum sam- kvæmt. En hver veit?“ Björgvin Halldórsson segist standa á ákveónum tímamótum á tónlistarferli sinum. Nú sé kominn tími til aó loka hringnum. Sveinn Guó|énsson ræddi vió hann um árin sem lióin eru frá því hann hljóóritaói fyrsta lag sitt og litríkan feril í aldarfjóróung. ♦ rið 1969 var mikið umbrotaár á hinum ólíklegustu sviðum mannlífsins. Bandaríkjamenn sendu mannað geimfar til tunglsins og súpergrúppan Blind Faith var stofnuð í Bret- landi svo tvö dæmi séu nefnd. Fyrmefnda atvikið markaði tímamót í sögu mannkynsins, en hið síðara olli straumhvörf- um í lífi Björgvins Halldórs- sonar. Hann var þá farinn að syngja með hljómsveitinni Flowers og þótti lofa góðu í bransanum. En þegar súp- ergrúppuáhrifín frá Bretlandi bárust til íslands flosnaði Flowers upp í samruna við Hljóma frá Keflavík og úr varð hljómsveifln Trúbrot. Björgvin þótti hins vegar of ungur og óreyndur til að taka þátt í svo „heavy“ pælingum og hann stofnaði hljómsveit- ina Ævintýri, ásamt tveimur úr Flowers sem ekki komust í Trúbrot, þeim Siguijóni Sig- hvatssyni og Amari Sigur- bjömssyni og þeir fengu til liðs við sig Birgi Hrafnsson úr Pops og Svein Larsson úr Bendix. Ævintýri fór að spila fyrir yngri krakkana í Tónabæ, en Trúbrot réri á önnur og þyngri mið. Og það var einmitt þetta sama ár sem popphátíðin mikla var haldin í Laugardals- höllinni. Tónabæjarliðið íjöl- mennti og Bjöggi í Ævintýri var kosinn poppstjama ársins. Á einni nóttu varð Björgvin átrúnaðargoð íslenskra ung- linga og vinsælli en dæmi voru um í sögu íslenskrar dægur- tónlistar. { framhaldi af því var honum boðið að syngja inn á plötu og fyrir valinu varð erlent lag með íslenskum texta, „Þ6 líði ár og öld“, en undirspilið var fengið erlendis frá. Það eru sem sagt liðin 25 ár, eða fjórðungur úr öld, síðan þetta gerðist og upp á það heldur Björgvin Halldórs- son nú, með söngskemmtun á Hótel Islandi, sem hefst um næstu helgi. Ennfremur verða gefnar út tvær geislaplötur, sem hafa að geyma 40 laga úrval af vinsælustu lögum Björgvins frá löngum og litrík- um ferli í dægurtónlistar- bransanum. „Á þessari söngskemmtun lít ég yfir dagsverkið sem dægurlagasöngvari og þama verður farið f um 70 lög, frá blómatímanum og til dagsins í dag. Og það er gaman að geta sagt frá því, að vinur minn Kristján Jóhannsson verður heiðursgestur á frum- sýningunni og mun væntan- lega taka með mér nokkur lög. Með þessari sýningu er ég í rauninni að loka hringn- um. Ákveðnu tímabili á ferli mínum er þar með lokið og ég get farið að fást við eitt- hvað nýtt. Mig langar til að gera öðruvísi plötur en ég hef gert fram að þessu. Hvemig útfærslan á þeirri tónlist verð- ur á svo eftir að koma í ljós, en ég er fullur af hugmynd- um,“ segir Björgvin. Sleipur i ensku Við erum stödd á skólaballi í Flensborg um miðjan sjöunda áratuginn. Skólahjjómsveitin Bendix er að spiía og fyrir framan sviðið er renglulegur strákur sem þeir kannast við, Bjöggi á Álfaskeiðinu, sonur Halldórs togaraskipstjóra Baldvinssonar og konu hans Sigríðar Þorleifsdóttur. Bjöggi er að setja út á textana og framburðinn hjá þeim félögum S Bendix. Það fer dálítið S taug- amar á þeim, en þeir vita upp á sig sökina og það verður úr að Björgvin er fenginn til að skrifa upp fyrir þá textana. En á næstu æfíngu fer Björg- vin líka að setja út á sönginn hjá þeim. „Lögin eru ekki al- veg rétt hjá ykkur, strákar," segir hann. „Nú, syngdu þetta þá sjálfur," segja þeir. Daginn eftir koma þeir til hans og bjóða honum í bandið. „Það hafði aldrei hvarflað að mér að fara í hljómsveit. Ég hafði þó frá blautu bams- beini haft mjög gaman af allri tónlist, fylgdist vel með rokk- inu og þegar Baldi bróðir fór að spila með hljómsveitum í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði fékk ég stundum að bera fyr- ir hann magnarann. Svo komu Bltlamir og Stones og maður hreifst með eins og allir ung- lingar á þessum árum. Ég var nokkuð sleipur í ensku, hlust- aði mikið á Kanann og horfði á Kanasjónvarpið hjá frænku minni. Ég lagði mig fram um að læra textana og þess vegna pirraði það mig þegar strák- amir fóru ekki rétt með þá og voru með alls konar „flyr- um og flarum" innskot til að redda sér. Fyrsta lagið sem ég söng opinberlega með Bendix var bítlalagið „Penny Lane“, ef ég man rétt, en ég gæti ekki sungið það í dag. Er löngu búinn að gleyma textanum." Framtíóin ráöin Um leið og Björgvin steig fyrst á svið með Bendix var framtíð hans ráðin. „Það var engin leið til baka. Þetta hel- tók mig gjörsamlega. Ég hafði heldur ekki gert nein sérstök plön fyrir framtíðina. Það kom aldrei til tals á mínu heimili að ég ætti að verða sjómaður eins og pabbi. Ég fór í Iðnskól- ann til að læra „viðhald skrif- stofuvéla", en hugur fylgdi ekki máli og ég hætti. Mér finnst, þegar ég lít til baka, að ég hafi verið heppinn. Ég held að söngurinn sé það sem ég geri best. Ég er ekki viss um að ég hefði orðið eins vandvirkur í viðgerðunum. í söngnum hefur mér líka tekist að sameina áhugamál og vinnu og það er ekki svo lítils virði. Ég held ég myndi ekki breyta til þótt ég ætti þess kost að hverfa 25 ár aftur í tímann. Ég myndi kannski standa öðruvísi að ákveðnum hlutum og breyta áherslum, en þegar á heildina er litið hefði ég fetað þessa sömu slóð. Það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki verið duglegri við að semja sjálfur.“ (Það skal hins vegar upp- lýst hér, þótt ekki hafi farið hátt, að Björgvin hefur samið fjölda laga, sem vinsæl hafa orðið í flutningi hans sjálfs og annarra og má þar nefna Riddari götunnar, 1 útvarpinu heyrði ég lag, Vertu ekki að plata mig, og Skýið, sem Björgvin samdi við texta Vil- hjálms heitins Vilhjálmssonar og eru þá aðeins örfá nefnd.) Ég las þaó i Samúel Þegar poppstjömuævintýr- ið stóð sem hæst var Björgvin mikið á milli tanna fólks. Hann var líka frakkur og lét ýmislegt flakka í hita leiksins enda hafði ímynd töffarans verið troðið upp á hann, þótt hann væri í raun ekki annað en krakki. Hann varð skot- spæni ákveðinna fjölmiðl- unga, sem reyndu að gera lít- ið úr honum og slíta úr sam- hengi það sem hann sagði, eða eins og segir í Brimklóar-slag- aranum landsfleyga: „Hann sagði allt af létta, en þegar þú lest það þá virkar það al- veg fatalt...“ - Því hefur ver- ið haldið fram að textinn hafi verið saminn með þessa fjöl- miðlareynslu Björgvins í huga, en hann þvertekur fyrir það: „Þetta er nákvæm þýðing úr erlendu lagi, „I read it in Rolling Stone“, þótt kannski megi finna einhvern samhljóm með því sem ég upplifði í þess- um fyrstu viðskiptum mínum við fjölmiðla. Ég tók hins veg- ar þessi skrif ekki svo alvar- lega, þótt mér hafi kannski einhvern tíma sámað, enda voru það bara ákveðnir menn, sem ég virtist fara 5 taugamar á. Samskipti mín við fjölmiðla hafa síðan, nær undantekn- ingalaust, verið mjög góð. En við í Ævintýri vorum dálítið teknir fyrir út af þeirri stefnu okkar að spila svokallað vin- sældapopp. Það þótti miklu fínna að vera „progressive" eins og Trúbrot og Náttúra. Svipuð viðhorf komu svo upp tíu ámm seinna með pönkinu, þegar Bubbi söng um „löggilta hálfvita sem hlustuðu á HLH og Brimkló“. Sfðan hefur Bubbi mýkst vemlega og í sumar unnum við saman að gerð plötu, þar sem Bubbi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.