Morgunblaðið - 02.10.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1994' B 9
Á undanförnum árum hefur Björgvin verið afkastamikill
upptökustjóri og framleiðandi hljómplatna, en þær eru
nú hátt í 200 talsins, hljómplöturnar, sem hann hefur
komið nálægt með einum eða öðrum hætti. Með honum
á myndinni er Óskar Páll upptökumaður i Stúdíó Sýrlandi.
söng gamalt lag sem Haukur
heitinn, frændi hans, sem ég
hef alltaf haft mikið dálæti
á, hafði hljóðritað á sjötta ára-
tugnum „Stína, ó Stína“. Það
hefði Bubbi ekki gert fyrir tíu
árum og þetta minnir okkur
kannski á að allt er breyting-
um háð. Raunar hef ég aldrei
skilið hvaða tilgangi það þjón-
ar að gera lítið úr ákveðnum
tónlistarstefnum fyrir það eitt
að þær njóta vinsælda. Sjálfur
hef ég alltaf reynt að gera
mér far um að meta þá að
verðleikum sem á undan koma
í þróuninni, ég hef til dæmis
alltaf borið virðingu fyrir
Ragga Bjarna og því sem
hann stendur fyrir.“
Rekinn úr Brimkló
Björgvin var einn af stofn-
endum hljómsveitarinnar
Brimklóar, snemma á áttunda
áratugnum, en var fljótt rek-
inn vegna ágreinings við fé-
laga sína um vinnubrögð. „Ég
vildi reka bandið sem atvinnu-
hljómsveit, en þeir vildu bara
vera í þessu sem hobbýi. Ég
var frekur og erfiður í sam-
starfi á þessum árum og þeir
ráku mig. Fljótlega upp úr því
fór ég að vinna með Gunna
Þórðar, Rúna Júl og Engilbert
Jensen í Hljómum og út úr
því kom platan Hljómar ’74,
en hún virkaði ekki, þótti of
þung.
En þarna hófst samstarf
okkar Gunnars Þórðarsonar,
sem hefur staðið nær óslitið
síðan. Seinna var Brimkló svo
endurreist, gaf út margar
plötur og naut óhemju vin-
sælda. En í millitíðinni bjó ég
í Englandi um tveggja ára
skeið, reyndi að „meika“ það
með Change, gerði plötur með
„ðe Lónlí Blú Bojs“ að
ógleymdum vísnabókarplöt-
unum með Gunna Þórðar, en
sú fyrri varð söluhæsta plata
á íslandi frá upphafi til þessa
dags.“
Björgvin hefur oft tekið
þátt I forkeppni „Júróvision"
hér heima en aldrei yerið val-
inn sem fulltrúi íslands í
keppninni þótt ósjaldan hafi
hann verið nærri því. Hann
hefur hins vegar náð langt í
ýmsum söngvakeppnum er-
lendis, til dæmis á írlandi.
Þegar ég spyr hann út í þetta
stendur hann upp til að sækja
meira kaffi og ég fæ á tilfinn-
inguna að hann vilji eyða tal-
inu. En varðandi „Júróvision-
keppnina" er það athyglisvert
að mörg þeirra laga, sem
Björgvin söng í forkeppninni,
hafa lifað lengur en lögin sem
unnu. En látum það liggja á
milli hluta.
Morgunblaðið/RAX
i „gumbó" meó Dominó
Þegar rætt er um Björgvin
Halldórsson vill það oft gleym-
ast að söngurinn er ekki það
eina sem hann hefur fengist
við um dagana. Síðustu árin
hefur hann verið afkastamikill
upptökustjóri og gildir þar
einu hvort hann vinnur með
rokktónlistarfólki eða óperu-
söngvurum. Hann stjórnaði
upptökum á hljómplötum
Kristjáns Jóhannssonar, þar
sem Lundúnasinfónían og
Konunglega Fílharmoníu-
sveitin voru fengnar til að
annast undirleikinn. Hann
stjórnaði upptökum á fyrstu
sólóplötu Diddúar, sem vænt-
anleg er á markað innan
skamms, og í rauninni er .allt
of langt mál að telja upp allar
þær hljómplötur sem hann
hefur stjórnað upptökum á,
eða komið nálægt með ein-
hveijum hætti. Þær eru hátt
í 200 talsins. Við nefnum að-
eins eina þeirra, „Kom heim“,
sem Björgvin vann fyrir
Krossgötur á síðasta ári og
hann segir að skipi á vissan
hátt sérstöðu í huga sér. „Ég
hef sjaldan fengið önnur eins
Sjá næstu síðu
Björgvin Halldórsson við
styttu Einars skálds Bene-
diktssonar á Miklatúni. Á
minni myndinni má sjá
unglingaskarann úr Tóna-
bæ ásamt hljómsveitinni
Ævintýri við styttuna sum-
arið 1969, en atvikið þótti
fréttamatur og olli hneyksl-
an.
Nýtt á íslandi!
VITUND
kynnir
' MELROSE
Nýjungar í kennslu-
gögnum m.a. um:
Sköpunargáfu - Breytingar
Hvatningu
Þjónustu við viðskiptavini
Veita starfsmönnum möguleika
Gæði
Sími620086
Minnum á
Málstofu Melrose
í Norræna húsinu
3. okt. kl. 9-13.
Kynnin Richard Roxburgh.
Verð kr. 1.500,-
Hárgreiðslustofan, Miðvangi 41, sími 654250
WFLLA
1BJU
gtmgi
þér hwaö viö
upjs ó að bjóöa.
stentíur yfír í oktöher og nóvemtíer.
uerið ueiKomin
storfsfólk cormen