Morgunblaðið - 02.10.1994, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER1994
MORGUNBLAÐIÐ
■ Tveir breskir leikstjórar
senda frá sér nýjar myndir í
haust sem þeir gerðu fyrir
bandarísk kvikmyndaver.
Peter Medak („The Krays“)
leikstýrði „Pontiac Moon“
með Ted Danson og Mary
Steenburgen í aðalhlutverk-
um en myndin segir af föður
og syni sem halda í ferðalag
og mamman heldur loks {
humátt á eftir þegar hún er
borin út af heimilinu. Þá hefur
Chris Menges („A World
Apart"), sem áður var kvik-
myndatökumaður, gert „Sec-
ond Best“ með William Hurt
í aðalhlutverki en myndin ger-
ist í þorpi í Wales og segir
af einhleypum manni sem tek-
ur upp á því að ættleiða dreng.'
MAnnar breskur leikstjóri,
Richard Attenborough er
einnig með annan fótinn
vestra. Hann leikur jólasvein-
inn í endurgerð jólamyndar-
innar frægu „Miracíe on
34th Street" en nýja handrit-
ið er eftir John Hughes (Al-
einn heima). Attenborough
mun hafa spurt vin sinn Ste-
ven Spielberg hvort hann
ætti að leika jólasveininn —
hann bar ábyrgð á hversu
jólasveinalega Attenborough
leit út í Júragarðinum — og
Spielberg aftók það með öllu.
„Aldrei," sagði höfðinginn en
bætti svo fljótlega við að
maður ætti náttúrlega aldrei
að segja aldrei og eftir því fór
greinilega Attenborough.
■ Væntanleg er ný mynd frá
bandaríska leikritaskáldinu
David Mamet, sem m.a.
skrifaði handritið að Hinum
vammlausu. Hún heitir „Ole-
anna“ og segir frá háskóla-
kennara sem sakaður er um
kynferðislega áreitni.
í BÍÓ
Urvaiið í bíóhúsunum
hefur verið ágætt
undanfarnar vikur. í
spennumyndadeiidinni
hafa þijár myndir verið
mest áberandi: Sannar
lygar er lyginni líkust á
lokasprettinum, Umbjóð-
andinn er best heppnaða
myndin sem byggist á
bókum Johns Grishams
og Keanu Reeves er nýja
hasarmyndahetjan í
Leifturhraða, sem er
ótrúlega spennandi og
rétt að byrja þegar mað-
ur heldur að hún sé búin.
Af gamanmyndunum
er mest varið í Blaðið,
sem segir frá sólarhring
í lífi stórblaðs í New
York og kemur skemmti-
lega inná daglegan
rekstur dagblaðs. Fjögur
brúðkaup og jarðarför
hefur notið óhemju vin-
sælda og er vel að þeim
komin. I listrænu deild-
inni býður Regnboginn
loksins upp á frönsku
myndina Alla heimsins
morgna eftir Alain
Corneau og þótt eintakið
sé gatslitið er myndin
frábær. Af barnamynd-
um er íslenska myndin
Skýjahöllin sú sem allt
snýst um en einnig er
Þumalína með íslensku
tali í Sambíóunum.
Voðakvendi í New York; Fiorentino í „The Last Seduction".
SIÐASTA
TÆLINGIN
John Dahl heitir banda-
rískur leikstjóri sem gert
hefur tvær myndir fyrir Sig-
uijón Sighvatsson hjá
Propaganda Films, „Kill Me
Again“ og „Red Rock West“.
Hann hefur nú sent frá sér
nýja spennumynd sem heitir
„The Last Seduction" eða
Síðasta tælingin og hefur
komið talsvert á óvart, jafn-
vel verið líkt við „Blood
Simple". Sagt er að hún sé
besta mynd Dahl til þessa.
Síðasta tælingin er ekki
gerð á vegum Propaganda
en er með Lindu Fiorentino,
Peter Berg og Bill Pullman
í aðalhlutverkum og segir frá
voðakvendi einu og gufunni
eiginmanni hennar í New
York. Hún hefur fengið hann
til að stela fyrir sig lyfjum
og selja og flýr hann með
peningana til smábæjar þar
sem hún snarar annan mann
til að losa sig við sín fornu
tengsl.
Sambíóin hyggjast sýna
myndina í haust.
xxxxxKVIKMYNDI^vxxv
/Hverju eigum vid von áf
HAUSTMYND-
IRNARÍ
HOLLYWOOD
NÚ ÞEGAR sumarið er á
enda í kvikmyndahúsunum
vestra er tími haustmynd-
anna að renna upp ogþeirra
mynda sem frumsýndar
verða í kringum jólin. Þær
eru væntanlegar hingað til
lands í lok ársins og uppúr
áramótum en á meðan við
bíðum er hér forsmekkurinn
að því sem koma skal. Með
aðalhlutverkin fara Tom
Cruise, Schwarzenegger,
Woody Allen, Robert De
Niro, Jodie Foster, Demi
Moore, Michael Douglas,
Robert Altman og sá bekkur
allur.
Talsvert er gert út á
hryllingsbókmenntirn-
ar og leikur Cruise blóðsugu
í Viðtali við vampíru er bygg-
ist á sögu Anne Rice (hún
gerir hand-
ritið) og sá
írski Neil
Jordan leik-
stýrir.
Myndin var
í 17 ár á
teikniborð
inu og
vandamálin
sem komu upp við gerð henn-
ar voru ýmisleg; River Pho-
enix lést og Christian Slater
kom í hans stað og hinum
smávaxna Cruise þótti vand-
ræðalegt þegar fréttist að
hann var í sérstaklega upp-
hækkuðum skóm í atriðunum
á móti Brad Pitt en Cruise
leikur vampíruna Lestat sem
gerir hinn unga Louis (Pitt)
eilífan.
Schwarzenegger verður
pabbi í gamanmyndinni
„Junior" og það sem meira
er; hann er sá sem verður
óléttur af völdum móðurinn-
ar, Emmu Thompson, og
fæðir bamið. Aldrei hefur
keisaraskurðurinn komið í
betri þarfir. Danny De Vito
fer með eitt hlutverkanna og
Ivan Reitman leikstýrir svo
útkoman er glasa-
fijóvgunarútgáfan af
„Twins“.
Fyrir þá sem finnst það
of hrollvekjandi að sjá Arn-
ald í fæðingarstólnum er
Robert De Niro í hlutverki
skrímslis Frankensteins góð-
ur valkostur. Kenneth Bra-
nagh leikstýrir„Mary Shel-
ley’s Frankenstein" og mun
hann ber að ofan vera tal-
vert meira áberandi en De
Niro, sem enginn þorir að
hugsa um hvernig bjó sig
undir hlutverkið. Branagh
og De Niro lágu yfir krufn-
ingsbókum og hönnuðu gervi
skrímslisins úr dauðum lík-
amspörtum.
Jodie Foster leikur konu
eftir Amald
Indriðason
Bíttu mig, elskaðu mig; Tom Cruise í Viðtali við
vampíru undir stjóm Neils Jordans.
Ekkert káf á kontórnum; Douglas og Demi í
Afhjúpun undir stjórn Barrys Levinsons.
Segðu pabbi!; Emma Thompson og Schwarzeneg-
ger í „Junior", gamanmynd Ivans Reitmans.
sem alin er upp í afskekktum
fjallakofa í „Nell“ en Robert
Altman hyggst gera það
sama við hátískuheiminn í
„Pret-a-Porter“ og hann
gerði við Hollywood í Leik-
manninum. Woody Allen
reynir að hressa uppá feril-
inn með „Bullets Over
Broadway" þar sem John
Cusack, Rob Reiner og
Dianne Wiest fara með aðaL
hlutverkin. í Afhjúpun káfar
Demi Moore um_allt á Mich-
ael Douglas, sem aldrei fær
nóg af snarbijáluðu kven-
fólki, og hún kærir hann
fyrir áreitni. Barry Levinson
leikstýrir og er á síðustu
dropunum eftir tvær mis-
heppnaðar myndir í röð.
Frakkinn Luc Besson hefur
gert sína fyrstu bandarísku
bíómynd, „The Professional"
og sjálfsagt hafa stælarnir
ekkert minnkað; Gary Old-
man hressir uppá hana. Sly
Stallone og Sharon Stone
leika saman í „The Special-
ist“. Áhorfendur hafa hlegið
að rúmsenunum þeirra á
prufusýningum en leikstjóri
er Perúmaðurinn Luis Llosa.
Aðdáendur Tommy Lee
Jones geta séð hann í ham
í einu af fáum aðalhlutverk-
um sínum í ævisögulegu
myndinni „Cobb“, enn einni
íþróttamyndinni frá Ron
Shelton, í þetta sinn um
fyrstu amerísku hafnabolta-
hetjuna, Ty Cobb. Jack Nich-
olson og Anjelica Huston
leika saman í „The Crossing
Guard“ undir leikstjóm Se-
ans Penns og sá gamli góði
Paul Newman leikur á móti
Jessicu heitinni Tandy í
„Nobody’s Fool“.
Ilmurinn af
Yvonne
Ein eftirminnilegasta
myndin á Kvikmynda-
hátíð Listahátíðar árið 1991
var „Monsieur Hire“ eða
Gluggagægirinn eftir franska
leikstjórann Patrice Leconte.
Hann hefur nú sept frá sér
nýja mynd sem heitir „Le
parfum d’Yvonne" eða Ilmur-
inn af Yvonne.
Hún er byggð á smásögu
Patrick Modiano „Villa
Triste" og gerist árið 1962.
Hún rekur ástarævintýri
þriggja iðjuleysingja þar sem
4.000 hafa séð End-
urreisnarmanninn
þeir njóta lífsins í
frönskum ferða-
mannabæ. Einn er
ungur og upprenn- FRANSKT ást-
andi rithöfundur araevlntýrl; úr
nýkominn Úr stríð- myndLeconte.
inu í Alsír, Yvonne
dreymir um að verða fræg
kvikmyndastjama og Victor
er hommi sem dreymir um
að verða partur af iistalífinu.
Með aðalhlutverk fara Je-
an-Pierre Marielle, sem leikur
í Öllum heimsins morgnum,
Sandra Majani og Hippolyte
Girardot.
Alls höfðu um
4.000 manns
séð gamanmynd-
ina Endurreisnar-
manninn með
Danny De Vito 'í
Laugarásbíói eftir
síðustu helgi.
Þá höfðu 7.500 séð „Ser-
ial Mom“, 2.500 barna-
myndina Apaspil og spennu-
myndin Dauðaleikur byijaði
nokkuð vel um síðustu helgi
að sögn Magnúsar Gunnars-
sonar í Laugarásbíói.
Næsta mynd bíósins er
Sýnd á næstunni; leik-
ararnir í „Corrina, Corr-
ina“.
„Escape from Absolom"
með Ray Liotta en hún verð-
ur einnig í Stjörnubíói. Síðan
verður „The Mask“ með Jim
Carrey frumsýnd 14. októ-
ber. Eftir það koma m.a.
myndirnar „Corrina, Corr-
ina“ með Liotta og Whoopi
Goldberg í leikstjórn Jessie
Nelson,„Even Cowgirls Get
the Blues" eftir Gus Van
Sant og breska gaman-
myndin „A Good Man in
Africa“ með Sean Connery
í leikstjórn Bruce Beres-
fords.