Morgunblaðið - 02.10.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER1994 B 15
Mestur
ÞÓ LUTHER Yandross hafi verið kallaður
mesti (og besti) poppsöngvari síðustu ára
vestan hafs kannast líklega fáir við hann
hér á landi. Nú siglir loks inn á vinsælda-
lista lag sem hann syngur með Mariah Ca-
rey og kominn tími til að íslendingar leggi
við hlustir.
Luther Vandross hefur verið að í rúman
áratug og sent frá sér níu breiðskífur
sem allar hafa selst í bílförmum og til að
mynda byrjaði tíunda platan, Songs sem
kom út í síðustu viku, listaveru sína í Bret-
landi í efsta sæti. Luther, sem kallaður hef-
ur verið Pavarotti poppsins, hefur haft það
fyrir sið að láta gamlar lummur fljóta með
endurgerðar á plötun sínum. Þegar hann
lagði drög að Songs kviknaði hins vegar sú
hugmynd að stíga skrefið til fulls; hafa á
plötunni eingöngu þrautreynd uppáhaldslög,
þar á meðal lög eftir Crosby, Stills & Nash,
Robertu Flack, Lionel Richie, Supremes,
Arethu Franklin og Burt Bacharach.
EIN efnilegasta rokksveit
Skotland er Glasgow-
sveitin Dawson, sem er
væntanleg hingað til
lands í vikunni. FIRE-
félagsskapurinn flytur
sveitina inn, sem heldur
tvenna tónleika.
Dawson er frá Glasgow
og þykir ein kraft-
mesta rokksveit Skota
Skota
rokk
með pólitíska krassandi
texta. Sveitin er nokkuð
við aldur, hefur starfað í
tæp átta ár, en haldið sig
í framlinu rokksins alla
tíð, sent frá sér nokkrar
smáskífur og þijár breið-
skífur.
Dawson leikur 6. októ-
ber í Tveimur vinum og
7. í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. I Tveimur vin-
um hita upp fyrir sveitina
Maus og Plastic, en í MH
Stilluppsteypa og Curver.
Morgunblaðið/Sverrir
Þróttmiklir Þrír
Utangarðsmenn.
skífu sína. Að sögn liðs-
manna sveitarinnar er plat-
an fjölbreytt verk en þó
samfellt. Gegnumsneitt eru
lögin þyngri, en þeir segja
að á milli sé léttara efni.
Væntanlega plötu kynnir
Jet Black Joe í Rósenberg-
kjallaranum næstkomandi
fimmtudag og föstudag; á
fimmtudag verður platan
leikin fyrir boðsgesti með
myndbandssýningu, en á
föstudag verða tónleikar.
manna-
plata
ÞAÐ þykir frétt til næsta
bæjar að Utangarðsmenn
gefa út plötu, enda langt
síðan sveitin lagði upp
laupana. Á næstunni er
þó væntanleg breiðskífa
frá sveitinni sem á eru
áður óútgefnar tónleika-
upptökur.
Utangarðsmenn
fóru í Skandin-
avíuför vorið 1981.
Sveitin var venju frem-
ur þróttmikil á þessari
síðustu tónleikaferð,
en upptökurnar voru
gerðar í klúbb í Sví-
þjóð 15. júni 1981.
Þeir Bubbi Morthens
og Danni og Micael
Pollock brugðu sér í Sýr-
land í vikunni til að búa
upptökurnar undir útgáfu,
en alls verða fimmtán lög
á disknum sem Smekkleysa
gefur út. Þeir segja að lengi
hafi staðið til að gefa þetta
út, enda hafi aldrei tekist
að fanga kraftinn í Utan-
garðsmönnum í hljóðveri.
Þeir segjast hafa eytt tón-
leikadeginum á lögreglu-
stöð í Stokkhólmi og þurft
að bæta sér það rækilega
upp áður en þeir fóru á
svið og fyrir vikið sé þetta
besta plata Utangarðs-
manna.
rokksins
ÍRSKA söngkona Sinéad O’Connor er
helst þekkt fyrir það að binda bagga
sína ekki sömu hnútum og samferðar-
mennirnir. Síðustu ár má segja að hún
hafi frekar verið alræmd en alþekkt,
en ný plata ætti að bæta.hag hennar
svo um munar.
Fyrir stuttu sendi Sinéad frá sér
breiðskífu með frumsömdu efni
nánast eingöngu, en með flutu líka
lög eins og útgáfa hennar af Nirv-
ana-laginu No Apologies. Undanfar-
ið hefur mikið borið á baráttukon-
unni og um leið á ráðvillta eldhug-
þannig er það á þlötUhni
nýju. Gagnrýnendur hafa keppst
við að lofa hana fyrir fjölbreytni
og þó þar megi finna vafasama
Samviska Sinéad O’Connor
hefur átt erfiða daga.
pólitík, verður því ekki neitað að
Sinéad O’Connor á fáa sína líka í
söngmenntinni, þegar hún kemst
í tæri við gott iag og nær að gæða
það lífi og tilfmningu. Á plötunni
nýju er nóg af tilfinningum, meira
en nóg á köflum, en alltaf er hún
áheyrileg og oft ögrandi; einskonar
samviska rokksins.
Platan ber heitið Universal
Mother og eins og áður er getið
hafa ýmsir kvartað yfir því að
pólitík Sinéad sé lítt ígrunduð og
full öfgakennd. Enginn frýr henni
þó hæfileika og segja má að oft
sigri umhúðirnar innihaidið; þ.e.
iðulega dregur frábær tinfinninga-
ríkur söngurinn og hugmyndarík
útsetningin athyglina frá klénni
pólitík í texta og gerir að verkum
að platan er besta verk Sinéad
hingað til.
IDTAIII ICTP
Hver er klœbskeri keisarans?
Rokk mn-
armr ættar
PLÖTUJÓLIN nálgast óð-
um og þar á meðal eru
margar sveitir sem eru að
láta á sér kræla á plasti í
fyrsta sinn. Ein þeirra er
hljómsveitin Kol, sem er
snemma á ferð í jóiaslagn-
um, því plata hennar kom
út í síðustu viku.
Kol er kvintett, en fyrir
svörum um sveitina
varð Hlynur Guðjónsson
gítarleik-
ari og
lagasmið-
ur. Hann
segir að
piatan
hafi verið
tekin upp
á skömm-
um tíma.
eftir Áma
Matthiasson
„Við lentum að vísu í vand-
ræðum þegar trommuleik-
arinn hætti í miðjum klíð-
um og svo bættust við
nokkur lög, en við vorum
klárir á því hvað við vild-
um,“ segir Hlynur og bætir
við að þeir félagar séu af-
skaplega ánægðir með nið-
urstöðuna; hljómur sé til
að mynda betri en þeir áttu
von á og allur frágangur
til fyrirmyndar.
Kol leikur rokk annatTar
ættar en helst hefur heyrst
hér á landi undanfarin
misseri og Hlynur segist
telja það sveitinni tvímæia-
laust til tekna að vera öðru-
vísi, fólk leggi þá væntan-
lega frekar við hlustir.
Þó hljómsveitin sé
tveggja ára gömul hefur
hún lítið sést á sviði, en
Hlynur segir að tími hafí
verið kominn á að gefa út
Áhyggjulausir Liðsmenn Koia.
plötu; það hafi verið komið
mikið lagasafn og útgáfan
hafí staðið til í rúmt ár.
„Við ákváðum að gera
þetta sjálfir og vinna
heimavinnuna okkar áður
en að upptökum kæmi,“
segir Hlynur, „og við erum
búnir að leggja töluverða
vinnu í að undirbúa tón-
leikahald með nýjum út-
setningum og ýmsum til-
færingum til að allt gangi
betur upp á sviðinu,“ segir
hann, en útgáfutónleikar
Kola voru á Sólon íslandus
síðastliðinn fimmtudag.
„Það gengur rólega að
bóka tónleika, enda ekki
nema von því fáir kannast
við nafnið," segir Hlýnur,
„en við höfum ekki áhyggj-
ur af því. Frægðarsólin er
ekki að blinda okkur, það
skiptir öllu að hafa gaman
af þessu."
Utan-
garðs-
Samviska
Ljósmynd/Börkur
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Skífur
MARGUR bíður spenntur
eftir plötuflóði haustsins,
og þar _ verður margt
hnýsilegt. Þar á meðal eru
breiðskífur Birthmark og
Jet Black Joe.
Birthmark er sprottin úr
Orange Empire, en
lengi stóð til að skipta um
nafn og þegar kom að því
að gefa út fyrstu breiðskíf-
una, var ekki eftir neinu
að bíða. Sú kemur út í okt-
óberlok og Birthmark-
menn segja hana saman-
safn laga frá fimm ára ferli;
einskonar safn bestu laga.
Þyngra og kraftmeira
Jet Black Joe lauk fyrir
skemmstu við þriðju breið-