Morgunblaðið - 02.10.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER1994 B 17
ATVINNU
Vélfræðingar (VF-I)
1. vélstjóra (yfirvélstj. í afleysingum) vantar
á Örvar HU-21.
Búseta á Skagaströnd er skilyrði.
Upplýsingar í síma 95-22690.
Skagstrendingur hf.
Byggingatækni-
fræðingur/
byggingafræðingur
Fyrirtæki í Reykjavík með verklegar fram-
kvæmdir og viðhald fasteigna óskar eftir að
ráða byggingatæknifræðing/byggingafræðing.
Starfið felst í eftirliti með viðhaldsfram-
kvæmdum, gerð útboðs- og verklýsinga, svo
og áætlanagerð.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
tæknimenntaðir, auk iðnmenntunar. Reynsla
af eftirlitsstörfum og gerð útboðslýsinga er
nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til og með 7. október nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustig la - 101 Reykjavlk - Slmi 621355
Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2 - Sími: 91-685554 - Fax: 91-687116
HJÚKRUNAR-
FRÆÐINGUR
VIÐ LEITUM AÐ dugmiklum og drífandi
sölufulltrúa í hjúkrunarvörudeild fyrirtæk-
isins.
STARFIÐ FELST f faglegri ráðgjöf og
sölu á hjúkrunarvörum og öðrum tengdum
vörum m.a. til sjúkrahúsa, heilsugæslu-
stöðva, dvalarheimila aldraðra, lyfjaversl-
ana og annarra viðskiptavina RV. Viðkom-
andi mun einnig annast gerð upplýsinga-
efnis auk annarra faglegra verkefna.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur
séu menntaðir hjúkrunarfræðingar, þjón-
ustuglaðir og liprir í mannlegum samskipt-
um og eigi auk þess auðvelt með að vinna
sjálfstætt og skipulega.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með
12. október nk. Gert er ráð fyrir að viðkom-
andi muni hefja störf í nóvembermánuði
nk. Eigin bifreið er nauðsynleg í starfi.
REKSTRARVÖRUR er sérhæft versl-
unar- og framleiðslufyrirtæki er þjónustar
stofnanir og fyrirtæki um land allt á sviði
hreinlætis- og rekstrarvöru. Markmið fyrir-
tækisins er að sinna þörfum viðskiptavina
fyrir almennar rekstrarvörur ásamt tengdri
þjónustu og ráðgjöf.
VixiLsamlega athugið að umsóknar-
eyðublöð og allar nánari upplýsingar
eru eingöngu veittar hjá STRA,
Starfsráðningum hf. Skrifstofan er
opin alla virka daga frá kl. 10.00-
16.00, en viðtalstímar eru frá kl.
10.00-13.00.
A
ST
I. Starfsrádningar hf
I Suðurlandsbraut 30 ■ 5. hœð ■ 108 Reykjavík
, Simi: 88 30 31 ■ Fax: 88 30 10
Cuiný Harbardóttir
Blindrafélagið
Kvöld- og helgar-
vinna
Okkur vantar sölufólk í símasölu á kvöldin
og um helgar.
Upplýsingar í síma 687333 frá kl. 14.00 til
16.30, mánudag og þriðjudag.
A
iS&J
Leikskólastjóri
Laus er staða leikskólastjóra í leikskólann
Kópastein við Hábraut.
Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á
tónlistarstarfi með börnum.
Umsóknarfrestur er til 15. okbóber og skal
skila umsóknum á eyðublöðum sem liggja
frammi í Fannborg 4.
Upplýsingar gefur leikskólafulltrúi í síma
45700.
Starfsmannastjóri.
Löglærður fulltrúi
Staða löglærðs fulltrúa við embættið er laus
til umsóknar.
Upplýsingar gefur undirritaður á skrifstofu-
tíma í síma 97-81363.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk í neðangreinda
leikskóla:
Funaborg v/Funafold, s. 879160.
Hoitaborg v/Sólheima, s. 31440.
Nóaborg v/Stangarholt, s. 629595.
Steinahlíð v/Suðurlandsbraut, s. 33280.
Suðurborg v/Suðurhóla, s. 73023.
í 50% starf e.h.:
Sæborg v/Starhaga, s. 623664.
Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir
vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
LANDSPITALINN
.../ þágu mannuðar og vísinda...
HANDLÆKNINGADEILD
Yfirlæknir
Staða yfirlæknis við æðaskurðlækningaskor
handlækningadeildar Landspítalans er laus
til umsóknar. Umsækjandi skal vera sérfræð-
ingur í æðaskurðlækningum og hafa reynslu
í stjórnun sjúkradeildar. Umsækjandi láti
fylgja umsókn sinni nákvæma skýrslu um
fyrri störf og stjórnunarreynslu svo og
kennslu- og rannsóknastörf.
Starfinu fylgir kennsluskylda læknanema,
yngri lækna og annarra heilbrigðisstétta.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk. en
staðan veitt frá 1. janúar 1995. Umsóknir,
ásamt upplýsingum um náms- og starfsferil,
sendist Stjórnarnefnd ríkisspítala, Rauðarár-
stíg 31, 105 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita prófessor Jónas
Magnússon og Páll Gíslason, yfirlæknir og
sviðsstjóri handlækningasviðs Landspítal-
ans, í síma 601000.
SVÆFINGAR-OG
GJÖRGÆSLUDEILD
Staða aðstoðarlæknis við svæfinga- og gjör-
gæsludeild Landspítalans er laus til umsókn-
ar. Ráðningartími er frá 1. febrúar 1995 í 6
mánuði eða 1 ár. Umsóknarfrestur er til 27.
október nk. Upplýsingar gefur Þórarinn
Ólafsson, forstöðulæknir, í síma (91) 601380
eða 601375.
ENDURHÆFINGAR- OG
HÆFINGARDEILD LANDSPÍTALANS
í KÓPAVOGI
Á Endurhæfingar- og hæfingardeild Land-
spítalans í Kópavogi eru lausar tvær stöður
félagsráðgjafa. Annars vegar staða yfirfé-
lagsráðgjafa (75%) og hins vegar staða deild-
arfélagsráðgjafa (75%). Skipting getur verið
eftir nánari samkomulagi. Umsóknir sendist
Gísla Einarssyni, yfirlækni fyrir 15. október,
1994. Upplýsingar veita Gísli Einarsson, yfir-
læknir og Kristinn G. Kristinsson, yfirfélags-
ráðgjafi, í síma 602700.
SKURÐDEILD LANDPITALANS
Laus er til umsóknar staða aðgerðarstjóra á
skurðdeild Landspítala. Aðgerðarstjóri er
ábyrgur fyrir skipulagi og umsjón aðgerðar-
dagskrár á skurðstofu. Á skurðdeild Land-
spítala eru 6 aðgerðarstofur. Umsækjandi
þarf að hafa viðbótarnám í skurð- eða svæf-
ingahjúkrun. Staðan verður veitt frá 1. nóv-
ember nk.
Allar nánari upplýsingar veitir Anna Stefáns-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
601366 og Svala Jónsdóttir, deildarstjóri
skurðdeild, í síma 601317. Umsóknir berist
til skrifstofu hjúkrunarforstjóra fyrir 20. októ-
ber nk.
LYFLÆKNINGA- OG KRABBA-
MEINSDEILDIR
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra við lyflækninga- og krabba-
meinsdeildir Landspítalans. Starfið felst m.a.
í ábyrgð á rekstri, skipulagningu, stjórnun,
fræðslu og faglegri ráðgjöf. Æskilegt er að
umsækjandi hafi MS gráðu í stjórnun eða á
viðkomandi sérsviði. Staðan veitist frá 1.
janúar 1995. Upplýsingar um starfið veitir
Vigdís Magnúsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í
síma 601300. Umsóknir, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist Vigdísi
Magnúsdóttur, hjúkrunarforstjóra, fyrir 1.
nóvember nk.
OLDRUNARLÆKNINGADEILDIR
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á öldr-
unarlækningadeildir 1 og 3 frá 1. nóvember
eða áramótum. Um er að ræða 62,5% stöð-
ur, vinnutími frá 8 til 13. Unnið er aðra hvora
helgi og 4 virka daga.
Báðar deildir eru endurhæfingar- og með-
ferðardeildir með 20 sjúkrarúm. Á deild 1
er verið að koma á einstaklingshæfðri hjúkr-
un, og hún er þegar til staðar á deild 3.
Megináhersla er lögð á sjálfstæði í starfi og
teymisvinnu. Nánari upplýsingar gefa Lúðvík
Gröndal á deild 3 í síma 602263 og Jóhanna
Benediktsdóttir, deildarstjóri á deild 1, í síma
602261. Einnig veitir Guðrún Karlsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, upplýsingar í
síma 602266.