Morgunblaðið - 02.10.1994, Side 18

Morgunblaðið - 02.10.1994, Side 18
18 B SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER1994 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUA UGL YSINGAR Markaðs- og þjónustufulltrúi Nýja sendibílastöðin hf. óskar að ráða mark- aðs- og þjónustufulltrúa. Við leitum að aðila með menntun og/eða reynslu í markaðssetn- ingu og með góða bókhaldskunnáttu. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist stjórn Nýju sendibíla- stöðvarinnar, Knarravogi 2, 104 Reykjavík, fyrir 12. október nk. merktar: „MARKAÐSFULLTRÚI“. Bakari óskast Laust er til umsóknar starf bakara í stórmörk- uðunum þar sem bakað er á staðnum. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, eiga gott með að umgangast fólk og vera snyrtilegur í umgengni. Umsóknum skal skila eigi síðar en föstudag- inn 7. október til símamóttöku Myllunnar, þar er hægt að fá umsóknareyðublöð. Brauð hf., Skeifurmi 18. (P Leikskólar Reykjavíkurborgar Talmeinafræðingur Talmeinafræðingur óskast á Dagvist barna tímabundið vegna forfalla. Starfið felst í greiningu og ráðgjöf v/barna með mál- og talgalla á leikskólaaldri. Unnið er í nánu samstarfi við sálfræðinga og annað fagfólk. Nánari upplýsingarveita Jóhanna Einarsdótt- ir yfirtalmeinafræðingur, og Málfríður Lor- ange, forstöðumaður, í síma 27277. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Skipasala - sölumaður Fasteigna- og skipasala óskar eftir sölu- manni skipa. Eingöngu aðili með reynslu og þekkingu á skipum og sjávarútvegi kemur til greina. Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf sendist afgreiðslu Mbl. fyrir kl. 16 föstudag- inn 7. okt. nk., merktar: „Skipasala - 7511 Lögfræðingur Umsvifamikil fasteignasala í Reykjavík óskar eftir að ráða lögfræðing. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsreynsla er ekki skilyrði. Umsóknarfrestur er til og með 7. október nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Afleysinga- og ráðningaþjónusta Lidsauki hf. W Skólavörðustig la - 101 Reykjavlk - Sfmi 621355 Rafeindaverk- fræðingur/rafeinda- tæknifræðingur óskast til starfa við Veðurstofu íslands. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður Tækni- og athugunarsviðs Veðurstofunnar, Bústaðavegi 9, Reykjavík. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, og meðmælum ef fyrir hendi eru, skal senda til Veðurstofunnar ekki síðar en 20. október nk. Vesturbyggð Byggingafulltrúi Staða byggingafulltrúa í Vesturbyggð er laus til umsóknar. Um er að ræða mjög áhugavert og krefjandi starf í nýju sameinuðu sveitarfélagi á sunnan- verðum Vestfjörðum. Gerð er krafa um tæknimenntun samkvæmt byggingalögum. Umsóknarfrestur er til 12. október 1994. Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 94-1221. Bæjarstjóri. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI Yfirmaður mötuneytis Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði óskar að ráða yfirmann mötuneytis frá 15. október nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi. Um er að ræða ráðningu til eins árs í fyrstu og skilyrði er að viðkomandi sé fagmenntaður mat- reiðslumaður, hafi reynslu af stjórnunarstörf- um og sé áhugasamur. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, Guðjón S. Brjánsson, í vs. 94-4500 og í hs. 94-4660. it ST. JÓSEFSSPlTALI LANDAKOTI Læknaritari % Laus er til umsóknar 75% staða læknaritara við göngudeild augndeildar. Staðan veitist nú þegar. Aðeins umsækjendur með löggildingu sem læknaritarar koma til greina. Umsóknir skulu sendarÁsu Björgvinsdóttur, læknaritara, sem jafnframt veitir upplýsingar í síma 18181. Sauðárkrókskaupstaður Leikskólakennarar Sauðárkrókskaupstaður auglýsir eftir leikskóla- kennurum til starfa á leikskólum bæjarins. Um er að ræða bæði heila og hálfa stöðu deildarstjóra og aðstoðardeildarstjóra. Sauðárkrókur er skemmtilegur, ört vaxandi bær í sögufrægu héraði, þar sem m.a. er verið að endurnýja og byggja við eldri leik- skóla. Nánari upplýsingar gefa leikskólastjórar; Helga, sími 95-35496 og Herdís, sími 95-35945. Umsóknarfrestur er til 10. október nk. Umsóknir berist undirrituðum á Bæjarskrif- stofu, Faxatorgi 1, 550 Sauðárkróki. Bæjarstjóri. Sérfræðingur Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum óskar eftir sérfræðingi til starfa við verkefnin „erfðatækni fiska" og „erfða- fræði ónæmiskerfis fiska“. Verkefnin eru styrkt af Rannsóknasjóði Rannsóknarráðs og Vísindasjóði til eins árs í senn. Krafist er kunnáttu í erfðatækni og/eða sameinda- erfðafræði. Nánari upplýsingar veitir Ólafur S. Andrésson í síma 674769-118. Umsóknir sendist fyrir 23. október til Til- raunastöðvar Háskóla íslands í meinafræði að Keldum v/Vesturlandsveg, 112 Reykjavík. Sölumaður - rafmagnsvörur Heildsala með rafmagnsefni leitar að starfs- manni til að annast sölu á rafmagnsefni. Starf: Sala á rafmagnsefni til húsbygginga. Hæfileikar: Þekking á verktakastarfsemi og byggingavinnu. Traustvekjandi framkoma og frumkvæði við efnissölu. Nokkur tungumálakunnátta. Umsóknum skal skila til afgreiðslu Mbl. merktum: „Rafmagnsefni - 15713“ fyrir 6. október nk. S T E I K H Ú S Framreiðslunemar og aðstoðarfólk óskast í sal. Upplýsingar eru veittar á staðnum, Baróns- stíg 11 a, milli kl. 15 og 17 mánudaginn 3. október 1994. Aðalgjaldkeri Við embætti sýslumannsins á Patreksfirði er laus til umsóknar staða aðalgjaldkera. Að svo stöddu er um að ræða afleysingar í 13 mánuði og við það miðað að störf hefjist eigi síðar en 1. nóvember 1994. Starfsumsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf skulu berast fyrir 10. október 1994. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, 27. september 1994. Barnagæsla Óskum að ráða barngóða „ömmu“ til að gæta drengjanna okkar sem eru á aldrinum 5 og 8 ára frá kl. 8-13 fimm daga vikunnar. Einnig er um létt heimilisstörf að ræða. Æskilegt er að viðkomandi hafi yfir bíl að ráða. Upplýsingar um umsækjanda sendist til af- greiðslu Mbl. merktar: „Reyklaus - 10767“. Atvinna Vegagerðin óskar eftir að ráða bifvélavirkja eða vélvirkja á vélaverkstæðið á Reyðarfirði. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf berist til skrifstofu Vegagerðarinnar á Búðar- eyri 13, 730 Reyðarfirði, eða Borgartúni 5, 105 Reykjavík fyrir 12. október 1994. Upplýsingar veittar í síma 97-41171 (Her- bert), eða 91-631562 (Ásgeir).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.