Morgunblaðið - 02.10.1994, Page 22
22 B SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bestu myndirnar í samkeppni World
Press Photo sýndar í Kringlunni
Full ástæða
fyrir Islendinga
að taka þátt
SÝNING á verðlaunamyndum í
samkeppni World Press Photo var
opnuð í Kringlunni í gær. Til þessa
hafa verðlaunamyndirnar hangið
uppi í Listasafni ASÍ ár hvert, eða
frá 1984, en í fyrra var afráðið
að halda hana í Kringlunni. Kari
Lundelin einn af stjórnendum
World Press Photo segir Kringluna
ákjósanlegan stað þar sem þangað
komi fjöldi manns og margir stoppi
til þess að skoða. Þannig nái
myndirnar til fleiri en þeirra sem
hugsanlega myndu gera sér sér-
staka skoðunarferð í sýningarsal.
Við opnunina kom fram að
stefnt væri að því að efla þátttöku
íslenskra ljósmyndara í samkeppn-
inni og segja aðstandendur hennar
fulla ástæðu til því fleira sé mynd-
efni en stríðshörmungar og slys.
Að sýningunni standa Kringlan,
Hans Petersen og DV en hún er
þekktasta samkeppni í heiminum
á sviði fréttaljósmyndunar. Alls
bárust 22.775 myndir 2.439
fréttaljósmyndara frá 93 löndum
til keppni og var mynd Larrys
Towells af drengjum með trébyss-
ur á Gazasvæðinu vaiin fréttaljós-
mynd ársins.
En að mati alþjóðlegrar dóm-
•mm.
AÐSTANDENDUR World Press Photo skoða mynd ársins að mati barna. Páll Stefánsson auglýs-
inga- og sölustjóri DV, Kari Lundelin einn stjórnenda World Press Photo, Hildur Petersen fram-
kvæmdastjóri Hans Petersen og Einar I. Halldórsson framkvæmdasljóri Kringlunnar. - MYND árs-
ins að mati alþjóðlegrar dómnefndar níu barna.
nefndar níu barna á aldrinum
11-13 ára var mynd ársins svart-
hvít ljósmynd af litlum dreng að
safna rusli. Situr hann í tröllvöxn-
um ruslahaug á Filippseyjum, sem
hýsir 3.500 ijölskyldur og gjarnan
gengur undir heitinu Reykjafell,
eða „Smokey Mountain". Völdu
börnin úr 300 myndum sem flokk-
aðar höfðu verið niður eftir við-
fangsefnum; daglegt líf, íþróttir,
náttúrulíf og markverðar fréttir.
Til þessa hafa íslenskir ljós-
myndarar og starfsbræður þeirra
frá Norðurlöndunum ekki tekið
mikinn þátt í samkeppninni og
sagði Kari Lundelin að íslenskir
ljósmyndarar svöruðu því gjarnan
til að hérna gerðist ekkert nógu
merkilegt sem hægt væri að
mynda og senda í samkeppnina.
Þetta kvað Lundelin misskilning
því landið og búskaparhættir, svo
dæmi væru tekin, byðu upp á
óþijótandi uppsprettu myndefnis.
Nefndi hann sem dæmi að íslensk
landslagsmynd hefði eitt sinn
fengið tilnefningu en ljósmyndar-
inn hefði hins vegar verið þýskur.
Sýningin stendurtil 15. október.
R AD AUGL YSINGAR
Lundaball
Félag Vestmanneyinga á Suðurnesjum heldur
hið árlega Lundaball í félagsheimilinu Festi,
Grindavík, laugardaginn 8. okt. nk. Hljómsveit
Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi.
Upplýsingar hjá eftirtöldum aðilum: Bíbí sími
92-27260, Brynja sími 92-27177, Hebbs sími,
92-68294, Jón sími 92-11452, Erla sími
92-13167, Eiríkur sími 91-667358.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Úgerðarmenn línuskipa
athugið
Eigum til sölu beitningavélasamstæðu frá
Mustad í fyrsta flokks ástandi á frábæru
verði. Samstæðan er notuð en vandlega
uppgerð og yfirfarin. Verðið á niðursettri
samstæðu gæti verið ca 5.0 millj.
Atlas hf.,
Borgatúni 24, 105 Reykjavík,
sími 621155, fax 616894.
Athugið - athugið
Hrannast bókhaldið ófrágengið upp? Vantar
þig mann sem merkir og færir bókhald
þ.m.t. launabókhald, gerir VSK skýrsluna,
vinnur fjárhagsáætlanir o.fl.? Ef svo er, þá
er ég rétti maðurinn.
Hafirðu áhuga leggðu nafn og síma inn á
afgreiðslu Mbl. merkt: „Þjónusta - 15711“
fyrir 10. október.
Sma auglýsmgar
I.O.O.F. 10 = 17^1038 =
□ GIMLI 5994100319 I Fjhst.
I.O.O.F. 3 = 1761038 = F.L.
□ HELGAFELL 5994100319
IVA/
§Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Flóamarkaöur hjá Hjálpræðis-
hernum, Kirkjustræti 2, þriðju-
dag 4. október og miðvikudag
5. október frá kl. 10-18.
Komið og gerið góð kaup.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Félag austfirskra
kvenna
Fyrsti fundur vetrarins verður
haldinn mánudaginn 3, október
kl. 20.00 á Hallveigarstöðum.
Myndasýning úr sumarferðalag-
inu.
Frá Sálar-
rannsókna-
félagi
íslands
Breski miðillinn
Dorothy Toole
verður með
einkafundi hjá
félaginu 3.-22.
október. Hún er
mjög góður
sambands- og
sannanamiðill
og notast einnig við blóm og lita-
borða í einkafundum sínum. Hún
býður einnig uppá heilun og mun
vera með skyggnilýsingafund
fljótlega.
Bókanir í símum 18130 og
618130.
Stjórnin.
VEGURINN
rtv <1 n
v Knstið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Á sunnudag:
Morgunsamkoma kl. 11.00.
Brotning brauðsins. Kvöldsam-
koma kl. 20.00, Eiöur H. Einars-
son prédikar. Allir velkomnir.
„Drottinn Guð er styrkur
minn!“ Hab. 3.19.
Ungt fólk
með hlutverk
lýÍSt YWAM - island
Samkoma í Breiðholtskirkju í
kvöld kl. 20.30. Halldóra Ólafs-
dóttir prédikar. Mikill söngur,
lofgjörð og fyrirbaenir.
„Drottinn er minn hjálpari, eigi
mun ég óttast. Hvað geta menn-
irnir gert mér?''. Heb. 13:6.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma og sunnu-
dagaskóli kl. 11.00.
Allir velkomnir! Sjónvarpsút-
sending á OMEGA kl. 16.30.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund mið-
vikudaginn 5. október 1994 kl.
20.30 í Akoges-salnum, Sigtúni 3.
Húsið opnað kl. 19.30. Miðar
seldir við innganginn.
JL Nýja
. \ / postulakirkjan,
Vv\ \// Islandi,
l ér Ármúla 23,
108 Reykjavík
Guðsþjónusta sunnudag kl.
11.00. Ritningarorð: „Það er vilji
Guðs að þér verðið heilagir". (1.
Þess. 4.3).
Peter Tage, safnaðarprestur
þjónar.
Verið hjartanlega velkomin!
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Hafliöi Kristinsson.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Andý Arbuthnot frá
Englandi. Barnagæsla. Allir
hjartanlega velkomnir.
Fjölskyldusamkoma kl. 11.
Sven og Ragnheiður stjórna og
tala. Hjálpræðissamkoma kl.
20. Sven Fosse talar. Mánudag
kl. 16 heimilasamband. Anna
Guðrún Jónsdóttir talar.
Allir velkomnir.
fomhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Dorkas-konur sjá um sam-
komuna með fjölbreyttum söng
og vitnisburðum. Stjórnandi er
Ásta Jónsdóttir. Kaffi aö lokinni
samkomu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Aðalstöðvarl
KFUMog KFUK
Holtavegi 28
Gott líf með Guði. Lokasam-
koma í samkomuröðinni. ( dag
kl. 16.30 er samkoma fyrir alla.
Ræðumaður er Ragnar Gunn-
arsson. Barnagæsla og barna-
stundir á sama tíma. Við von-
umst til sð sjá þig í dag.
AuMnvtika 2 • Kópayoaur
Sunnudagur:
Almenn sámkoma í dag kl. 16.30.
Þriðjudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Hver laug þessu
að þér?
Námskeið fyrir blekkta og
svekkta. Lífefli - gestalt.
Sátfræðiþjónusta,
Gunnars Gunnarss.,
simi 641803.
Svölurnar
halda félagsfund í Síðumúla 25
(ath. breyttan fundarstað)
þriðjudaginn 4. október kl.
19.30. Pökkun jólakorta. Kaffi-
veitingar. Mætum allar.
Stjórnin.
Hallveígarstig 1 • sími 614330
Dagsferð sunnudag
2. okt. kl. 10.30
Lýðveldisgangan árið 1984.
Brottför með rútu frá Ingólfs-
torgi. Verð kr. 1600/1800.
Myndakvöld 6. okt.
Á þessu fyrsta myndakvöldi
vetrarins verða sýndar myndir
frá tveimur sumarleyfisferðum,
bakpokaferð frá Hvítanesi að
Hveravöllum og ferð um Fjalla-
baksleið syðri. Sýningin hefst kl.
20.30 í Fóstbræðraheimilinu við
Langholtsveg og að venju mun
kaffinefnd sjá um glæsilegt kaffi-
hlaðborð.
Ferðir um næstu helgi
8.-9. október: Fimmvörðuháls
og haustlitaferð í Bása.
Sunnudaginn 9. okt. kl. 10.30:
Dagsferð um Hengilssvæðið.
Útivist.
Kristniboðsfélag karla,
Reykjavík
Fundur verður í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60, mánu-
dagskvöldið 3. október kl. 20.30.
Skúli Svavarsson hefur Biblíu-
lestur.
Allir karlmenn velkomnir.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 68253 =•
Sunnudagsferðir 2. okt.
1. Kl. 10.30 Selvogsgata, göm-
ul þjóðleið. Gengið um Grinda-
skörð niður í Selvog. Mjög góð
og skemmtileg gönguleið sem
allir ættu að kynnast. Verð
l. 200,- kr.
2. Kl. 13.00 Selatangar, fjöl-
skylduferð. Gömul verstöð
miðja vegu milli Grindavíkur og
Krýsuvíkur. Margt að skoða m.a.
fornminjar er minna á útræði
fyrri tíma, refagildrur og sér-
stæðar klettamyndanir. Verð
aðeins 1.000 kr., frítt f. börn
m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ,
austanmegin, og Ferðafélags-
húsinu, Mörkinni 6. Einnig
stansað v/kirkjugarð, Hafnar-
firöi.
Helgarferðir næstu helgar
7.-9. sept.:
1. Haustlitaferð i Núpsstaðar-
skóga. 2. Hrafntinnusker -
Laugar (fyrsta helgarferð í nýja
skálann).
Sunnudagsferðir 9. október:
Kl. 10.30 Kálfstindar - Kálfsgil.
Kl. 13.00 Þingvellirfhaustlitum:
Hrauntún - Skógarkot.
Gerist félagar og elgnist árbók-
ina glæsilegu „Ystu strandir
norðan Djúps". Nánari uppl. á
skrifst., Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.