Morgunblaðið - 02.10.1994, Page 24

Morgunblaðið - 02.10.1994, Page 24
24 B SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ísland er landið EINS og sjá má er aðstreymi fólks nokkurt í Tónlistarhúsið. FRÁ opnun íslenzku menningardaganna í Árósum. Borgarstjóri Árósa, Thorkild Simonsen, og Ólafur G. Einarsson. ÞEGAR þetta er skrifað eru íslenzk- ir menningardagar á suðupunkti í Árósum, en þeir hófust mánudaginn 26. september og lýkur sunnudag- inn 2. október. Norræna húsið hefur veg og vanda af framtakinu, sem á að minna borgarbúa á 50 ára lýðveldis- afmæli íslendinga, og er myndar- lega að verki staðið, því að flestar listgreinar eru kynntar. Leikhús, myndlist, byggingarlist, tónlist, kvikmyndalist, bókmenntir, list- hönnun, — og jafnvel matarlist er sett á stall. Auk þess eru ýmsir aðrir dagskrárliðir í gangi, sem ekki heyra beinlínis undir listir, öllu frekar mannleg samskipti. Og eins og Danir orða það, má heyra, nema og jafnvel bragða ís- lenzka listmenningu vikuna út. Haft var og á orði í dagblöðum, að listhúsið Profílen hafí þjófstartað með því að opna sýningu fjögurra málara og þriggja grafíklistamanna laugardaginn 24. september, og má það kannski til sanns vegar færa, en fyrir vikið var skammtur-' inn ekki eins stór_og yfirþyrmandi opnunardaginn. Á mánudeginum var mikið um að vera í ráðhúsi borgarinnar, en þá var menningarveizlan formlega opnuð með sýningunni „Gullaldar- listamennirnir" eins og það er orðað í kynningarskrá, ennfremur sögu- sýning í máli og myndum og sýnis- hornum af íslenzka þjóðbúningnum. Frumlega var staðið að fram- kvæmdinni, á þann veg að á tröppu- pallinum fyrir framan húsið, tóku á móti gestum fjórir íslenzkir gæð- ingar og uppábúnir knapar með ís- lenzka fánann á lofti, og var það skemmtileg og uppörvandi sjón. Forstjóri Norræna hússins, K. Torben Rasmussen, var fyrsti ræðu- maður og var mál manna að hann hafí talað á dönsku gullaldarmáli. Borgarstjórinn Thorkild Simonsen tók næstur til máls, og þarnæst voru hátíðahöldin formlega opnuð af menntamálaráðherra Ólafí G. Einarssyni. Seinna um kvöldið voru svo sérstakir opnunartónleikar í Tónlistarhúsinu, þar sem Erling Blöndal Bengtson lék á selló við undirleik Ninu Kavtaradze, og á eftir íslenzkur veizlumatur. Rýninn hefur lengi langað til að kynnast slíkum menningarhátíðum íslendinga í útlandinu í sjón og raun, og sá sér leik á borði er hann millilenti \ Kaupmannahöfn á Ieið V2 ísland E R t A N D E T FORSÍÐA kynningarrits um menningardagana. heim frá Kína, — framlengdi dvöl- inni um nokkra daga og brá sér til Árósa. Að sjálfsögðu lagði hann áherslu á að kynna sér myndlistina og skoða sig um í borginni, þar sem svo margt er að sjá af perlum danskrar byggingarlistar, og væntanlega munu svo réttir aðilar greina frá öðrum dagskrárliðum. Sé hægt að nota skilgreininguna þjófstart, sem í þessu tilviki var að sjálfsögðu danskur húmor, má minna á að staðið hefur yfir sýning á íslenzkri byggingarlist í Arkitektaskólanum frá 3. september. Um er að ræða yfirlit frá 17. öld til dagsins í dag, og er hún í senn skilvirk og vel fyrir komið. Hins vegar var dálítið erfítt að fínna sýningarrýmið, sem var bakatil í byggingunni, og leiðin þangað í engu merkt, sem er óvenjulegt í þessari borg þar sem maður var hvarvetna að rekast á skilti er vísuðu veginn til hinna aðskiljanlegustu safna. Kom ég þar á sunnudagseftirmiðdegi í fýlgd Hrafnhildar Schram listsögufræð- ings, og við lá að við héldum að lokað væri daginn þann er við loks fundum réttu leiðina. Dvöldum í drjúga stund á staðnum, enda sýn- ingin vel þess virði, en tókum vel eftir því að við vorum allan tímann alein í salarkynnunum, og vorum svo nokkra stund að kalla á vett- vang starfsmann er gat útvegað okkur sýningarskrána, sem eins og allt við framkvæmdina var vel úr garði gerð, þó kápumyndin væri nokkuð fráhrindandi. Eðlilega fahnst okkur sýningin þó verð- skulda meiri aðsókn, betri kynningu og umfram allt skilmerkilega veg- vísa á staðinn. Eigendur listhússins Profilen, sem eru tveir menn á besta aldri, virðast hafa dijúgan áhuga á að kynna íslenzka myndlist, og þætti mér eðlilegt að réttir aðilar komi á móts við þá, því ekki er of mikið um slíkan áhuga í útlandinu. Hins vegar er brýn nauðsyn til að kynna sem flestar hliðar íslenzkrar mynd- listar á erlendum vettvangi. Þeir félagar gerðu sér ferð til landsins á sl. ári til að kynna sér íslenzka myndlist af sjón og raun. Hin rúmgóðu og ágætu húsa- kynni voru prýdd málverkum þeirra Svavars Guðnasonar, Þorvaldar Skúlasonar, Tryggva Ólafssonar, Jóns Reykdals og Braga Ásgeirs- sonar, ásamt grafík eftir Hafdísi Ólafsdóttur, Margréti Birgisdóttur og Ragnhildi Ragnarsdóttur. Sýn- ingin var vel sett upp, en hins veg- ar var sýningarskráin vægast sagt hin búralegasta, og minnti á prent- verk í Austur-Evrópu á árum áður. Aðalframkvæmdin var að sjálf- sögðu sýning gullaldarlistamann- anna í Ráðhúsinu, sem samanstóð af málverkum þeirra Jóns Stefáns- sonar, Kjarvals, Þorvaldar Skúla- sonar, Nínu Tryggvadóttur og Júlí- önu Sveinsdóttur, ásamt högg- myndum eftir Einar Jónsson. Mynd- verkin voru vel valin, og íslenzku stuðlabergssúlurnar í salnum lyftu upp stemmningunni. Hins vegar réðu menn ekki við hluta af innra skipulagi sýningarinnar, sem gerði það að verkum að helmingur mál- verkanna naut sin ekki sem skyldi, þannig að fæstir gestanna við opn- unina vissu af þeim, og hætta er á að þau fari fram hjá þorra manna. En þetta var skipulag gestgjafanna og því varð ekki hnikað með jafn litlum fyrirvara. Hins vegar naut sögusýningin, sem var í sama sal og byggðist mest á ljósmyndum, sín mun betur, og það er trúa mín að hún muni vekja sýnu mesta athygli enda um viðamikinn fróðleik að ræða, sem trúa mín er að forvitni veki hjá mörgum. Einkum held ég að mynd- irnar frá hernámsárunum muni vekja athygli, því að þetta er sá hluti íslenzkrar nútímasögu sem ég hygg að útlendir þekki minnst, en þyki mjög forvitnilegur. Undarlegt hve landinn hefur verið tregur að kynna þetta tímaskeið, sem olli án efa mestu hvörfum í íslenzku þjóð- félagi frá upphafi byggðar. í Tónlistarhúsinu er sýning á nútíma íslenzkri listhönnun, sem áður var uppi í safninu í Sönder- borgarhöll. Að henni er mjög vel staðið og sýningarskráin framúr- skarandi handhæg og skilvirk, þótt æskilegt hefði auðvitað verið að myndimar af verkunum hefðu verið í lit. Sýningin undirstrikar uppgang íslenzkrar listhönnunar á undan- gengnum árum, og hér er skiptir miklu að við höldu vöku okkar og styðjum við bakið á listafólkinu með því að kynna verk þess sem víðast. Hárrétt er almennt staðið að kynningu íslenzkrar listhönnunar með því að senda jafnan fagmann á staðinn til að fylgjast með uppsetn- ingu gripanna, og auðvitað má alls ekki senda neinar mikilsháttar list- sýningar úr landi án þess að slíkir fylgi þeim eftir og hafí úrslitavald um uppsetningu þeirra. Og eins og í beinu framhaldi af listhönnunar- sýningunni var kynning Danska bankans gegnt ráðhúsinu á framúr- skarandi glerlist þeirra Sigrúnar Ó. Einarsdóttur og Sören S. Larsens. Tónlistarhúsið er mikil og glæsi- leg bygging, og hefur verið svo vel rekið að hagnaður er á viðamikilli starfseminni, og upp er að rísa við- bótarbygging við það. Hér er um fjölnota menningarhöíl að ræða. Eins og fram hefur komið, var íslenzk listsýning __ í smáborginni Brovst í nágrenni Álaborgar á Jót- landi fýrr í sumar, og var hún flutt til Árósa í tilefni hátíðarinnar, og er til húsa í AMC-byggingunni við höfnina. Sýningin í Brovst fékk mjög upp- örvandi dóma í dagblöðunum, í senn héraðsblöðum sem Jyllands Posten, svo og blöðum í Álaborg. Mun það vafalaust hafa komið ýmsum sýn- endum á óvart, því þeim þótti upp- setning sýningarinnar frekar slök. Ekki sá ég sýninguna þar, en mér fannst uppsetning hennar í Árósum þunglamaleg og húsnæðið erfitt til sýningahalds. Eins og fram hefur komið eru sýnendur Baltasar, ásamt þeim Dröfn Friðfínnsdóttur, Karólínu Lárusdóttur, Guðbjörgu Lind, Helgu Magnúsdóttur, Krist- jönu Samper, Björgu Þorsteinsdótt- ur og Söru Vilbergsdóttur. Loks er sýning á íslenzkri nú- tímagrafík í bókasafninu í Aby, sem er í einu úthverfi borgarinnar og átti hún að vera þverskurður af afmælissýningu félagsins í Nor- ræna húsinu fyrr á árinu. Er til kom var sérstaklega valið á hana, og virðist minni áhugi hafa verið á þátttöku vegna þess að myndirnar skyldu afhentar innrammaðar. Geldur hún þess og einkum fyrir fjölskrúðuga flóru innrömmunar, sem gerir hana sundurlausari en ella. Rauðir múrsteinsveggir hins fallega bókasafns eru heldur ekki ákjósanlegasti kostur fyrir slíka sýningu og myndir á skilrúmum njóta sín ólíkt betur. Hér hefur einungis verið greint lítillega frá einstökum listviðburð- um, en ég mun koma nánar inn á þann vettvang sem nefnist „List- kynningar í útlöndum“ í Sjón- menntavettvangi innan tíðar. Bragi Ásgeirsson Kuldaskór - frábært verð Skóverslun Kópavogs Sunli Stærö: 31-41. Loöfóöraöir. Litir: Svartir, brúnir, dökkgrænir. stsendum samdægurs Drengjakór Laugarneskirkju Undirbúningsdeild kórsins auglýsir eftir duglegum drengjum á aldrinum 8-10 ára. Boðið er upp á kennslu í söng, raddþjálfun og tónfræði. Kennt erápriðjudögum frá kl. 17.30-18.30. Með Drengjakórnum starfar öflugt foreldrafélag. Getum einnig bætt við drengjum 10—13 ára í altrödd Drengjakórsins. Áhugasamir hringi í síma 641380 (Friðrik) eða í Laugarneskirkju, sími 889422.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.