Morgunblaðið - 04.10.1994, Page 1
64 SÍÐUR B
225. TBL. 82. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þróunarríki og iðnríki deila hart á IMF-fundi í Madrid
Mikil aðstoð við
Rússland araarnrýnd
Madrid. Reuter. ^ WS
ÞRÓUNARRÍKIN stóðu upp í hárinu á ríku iðnþjóðunum í fyrsta sinn í
manna minnum á fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, í Madrid um helg-
ina. Var tekist á um áætlun sjóðsins um mikla aðstoð við Rússland og
önnur fyrrverandi sovétlýðveldi en þróunarríkin eru óánægð með þá miklu
athygli, sem kommónistaríkin fyrrverandi njóta hjá helstu íðnríkjunum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er 50
ára um þessar mundir og hafði verið
búist við, að fundurinn í Madrid yrði
aðallega eins konar afmælisfagnað-
ur. Það kom því á óvart þegar fulltrú-
ar þróunarríkjanna snerust gegn iðn-
ríkjunum.
Iðnríkin, sem eru að reyna að
koma böndum á fjárlagahallann hjá
sér, vilja, að Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn auki aðstoðina við ríkin í aust-
urvegi í gegnum sérstakan kerfis-
breytingasjóð en tii þess þarf sam-
þykki 85% fulltrúanna.
Áhyggjur iðnríkja
Þróunarríkin snerust hins vegar
gegn þessu og settu sem skilyrði,
að sjóðurinn yki íjárstreymi til allra
aðildarlandanna, þar á meðal þeirra
sjálfra. Vildu þau, að sjóðurinn léti
af hendi rakna 50 milljarða dollara
í sérstökum dráttarréttindum en þau
eru nokkurs konar gjaldmiðill hans.
Segja má, að með þeim búi hann tii
peninga úr loftinu einu saman.
Iðnríkin hafa áhyggjur af seðla-
prentun af þessu tagi og tóku því
tillöguna ekki í mái. Niðurstaðan
varð svo sú, að enginn fékk það, sem
hann vildi, heldur var ákveðið að
auka fastalán sjóðsins en þau fá ríki,
sem beita sér fyrir umbótum í efna-
hagslífinu.
Deilan milli þróunarríkjanna og
iðnríkjanna snýst líka um framtíð
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en sum þau
fyrrnefndu viija að hann þróist upp
í eins konar alheimsseðlabanka, sem
búi til peninga með sérstökum drátt-
arréttindum til að örva efnahagslífið.
Reuter
Myndir af Estoniu á hafsbotni
Læsingar á
stefnishluta
brugðust
Turku. Reuter.
MYNDIR sem teknar voru af flaki
fetjunnar Estoniu síðla á sunnudag,
sýna að stefnishluti skipsins hefur
losnað af. Á blaðamannafundi í gær
sagði nefnd sem rannsakar slysið
að við það hefði sjór flætt inn í
skipið og sökkt því. Læsingar á
stefnishluta hefðu bilað og um eins
metra op væri á milli efri brúnar
innri hlera og falsins sem sjór hefði
flætt inn um.
Eigendur skipafélagsins Estline,
sem gerði út Estoniu, létu í gær í
ljós efasemdir sínar um hönnun
skipsins er þeir tilkynntu að stafn-
hlerar Vironiu, feijunnar sem tæki
við hiutverki Estoniu, yrðu soðnir
aftur. Sagði útgerðin, að ákvörðun-
in hefði verið tekin í framhaldi af
slysinu og öðrum óhöppum sem
orðið hefðu á sænskum og finnskum
feijum á Eystrasalti.
Þriðji vélstjóri Estoniu, sem lifði
slysið af, kvaðst í gær hafa heyrt
þung högg í skipinu áður en það
sökk, hljóð líkt og þegar öldur skyllu
á því. Þessi hljóð hefðu hins vegar
skekið allt skipið og verið undarleg.
Fram kom hjá rannsóknarnefnd-
inni, að stefnishlutinn, sem lyft er
í höfn, hefði ekki fundist enn.
Fyrirtækið Silja Line rekur feijur
er sigla.á milli Helsinki og Stoíck-
hólms. Ákveðið var í gær að sjóða
aftur stafnhlera feijanna.
■ Ómsjármyndir af flaki /19
Forsetakjör
í Brasilíu
Ráðist til atlögu gegn haítískum lögreglumönnum
Öryggisráðgjafi Cedras
í bandarískri vörslu
ÞING- og forsetakosningar voru
í Brasilíu í gær og benti allt til,
að markaðshyggjumaðurinn
Fernando Henrique Cardoso
yrði næsti forseti. Samkvæmt
síðustu skoðanakönnun naut
Cardoso fylgis 46% kjósenda en
næstur honum kom vinstrisinn-
aður öldungadeildarþingmaður,
Luiz Ignacio Lula da Silva, með
22%. Cardoso er þjóðfélagsfræð-
ingur að mennt og var í útlegð
þegar herforingjar fóru með
völd í landinu en þótti standa
sig afburða vel í embætti efna-
hagsmálaráðherra fyrr á árinu.
Hann var einn af forystumönn-
um Jafnaðarmannaflokksins
þegar hann var stofnaður 1988
en þykir hafa færst nær miðju
stjórnmálanna síðan; varafor-
setaefni hans er úr hægriflokki.
Á myndinni eru stuðningsmenn
Lula í Sao Paulo vongóðir og
kátir í gær þrátt fyrir skoðana-
kannanirnar.
Poi*t-au-Prince, New York. Reuter.
BANDARÍSKIR hermenn réðust í
gær inn í höfuðstöðvar helstu hreyf-
ingat' stuðningsmanna herforingja-
stjórnarinnar á Haítí. Bandaríkja-
menn handtóku fyrr um daginn
Romeo Haloun, öryggismálaráð-
gjafa Raouls Cedras, leiðtoga herfor-
ingjastjórnarinnar, og hann var
fluttur í bandarískt herskip við
strönd landsins. Aðgerðirnar eru lið-
ur í heitum aðgerðum Bandaríkja-
manna til að afstýra mannskæðum
átökum áður en Jean-Bertrand Ar-
ist.ide, útlægur forseti, snýr aftur til
Haítí.
Ekkert mannfall varð í árásinni á
höfuðstöðvarnar. Hermennirnir voru
vopnaðir vélbyssum og beittu skrið-
drekum í árásinni. Þeii' afvopnuðu
níu haítíska lögreglumenn sem voru
sendir á vettvang og þyrlur flugu
yfir svæðinu. Óbreyttir borgarar,
sem fylgdust með atburðinum, fögn-
uðu ákaft aðgerðum Bandaríkja-
mannanna.
Um 40 manns munu hafa verið
handteknir og mikið af vopnum og
fíkniefnum gerð upptæk í aðgerðum
á íjórum stöðum í Poit-au-Prince.
Alls telja Bandaríkjamenn sig nú
hafa komist yfir 4.000 af á að giska
30.000 skotvopnum í eigu einstakl-
inga á Haítí með því að bjóða 50
Bandaríkjadollara, tæplega 3.500
krónur, fyrir hveija byssu.
„Helstu þorparar"
Romeo Haloun er bandarískur rík-
isborgari af haítískum ættum og
hefur stjórnað sérsveit hermanna
sem ætlað er að vernda Cedras.
Bandarískur embættismaður í Port-
au-Prince sagði að Haloun kynni að
verða frámseldur til Bandaríkjanna.
Hann hefði fyrirskipað sveit sinni
að afvopna embættismann banda-
rísku fíkniefnalögreglunnar á Haítí
og liðsmenn hans hefðu einnig lagt
hendur á kanadískan embættis-
mann.
Margir stuðningsmenn Aristides
fóru aftur í felur í gær eftir handtök-
una af ótta við að vopnaðir liðsmenn
herforingjastjórnarinnai' myndu
leita þá uppi. „Þessir menn svífast
einskis. Þeir eru til alls líklegir,"
sagði atkvæðamikill stuðningsmaður
Aristides áður en hann flúði frá
heimili sínu. Hugh Shelton, yfirmað-
ur bandarísku hersveitanna á Haítí,
Reuter
BANDARÍKJAHERMAÐUR
rekur á undan sér haítískan
lögreglumann í handjárnum.
sagði að bandaríski herinn hefði
handtekið fjóra af „helstu þorpur-
um“ landsins undanfarna fjóra daga.
Bandarískui' hermaður varð fyrir
byssuskoti í bardaga í bænum Les
Cayes í suðurliluta landsins í fyrri-
nótt. Maðurinn er ekki í lífshættu,
en þetta er í fyrsta sinn sem banda-
rískur hermaður særist í skotbar-
daga á Haítí eftir að liðið kom á
vettvang.