Morgunblaðið - 04.10.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 04.10.1994, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Jóhanna Sigurðardóttir leggur fram frumvörp um skattamál Forsætisráðherra telur samþykkt krata gallaða Vill stofna skattadómstól JÓHANNA Sigurðardóttir hefur lagt fram nokkur lagafrumvörp á Alþingi sem miða að því að auka eftirlit og herða viðurlög við skattsvikum. Þar á meðal leggur Jóhanna til að stofnaður verði sérstakur héraðsdómur í skatta- og bókhaldsmálum. Stefnu- ræða flutt í kvöld DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld klukkan 20.30. Ræðunni og umræðum um hana verður sjónvarpað og útvarpað í Ríkisút- varpinu. Forsætisráðherra hefur 30 mín- útur til að flytja ræðu sína. Þing- flokkarnir hafa 20 mínútur hver til umráða í fyrri umferð umræðna um stefnuræðuna en 10 mínútur í þeirri síðari. Jóhanna Sigurðar- dóttir, sem er utan þingflokka, fær 15 mínútra ræðutíma á milli um- ferðanna tveggja. Ekki lá fyrir í gærkvöldi hveijir yrðu fulltrúar stjómmálaflokk- anna í umræðunum eða í hvaða röð þeir flyttu ræður sínar. Samkvæmt frumvörpum Jóhönnu skulu mál sem skattrannsóknar- stjóri tekur til rannsóknar sæta meðferð opinberra mála. Heimilt verði að sekta þann sem skýrir af ásetningi eða af hirðuleysi villandi frá einhveiju sem skiptir máli varð- andi tekjuskatt, eignarskatt eða virðisaukaskattskýrslu. Sektirnar verði frá þrefaldri til tífaldrar þeirr- ar upphæðar sem skipta máli. Einnig er í frumvörpunum gert ráð fyrir að sekta megi þá sem gefa rangar upplýsingar um skatt- framtöl eða virðisaukaskattskýrslur annarra. Þessar sektir verði frá tvö- faldri til fjórfaldrar þeirrar upphæð- ar sem máli skiptir, þó aldrei lægri en ein milljón. Jóhanna leggur einnig fram þing- sályktunartillögu um að nefnd end- urskoði viðmiðunarreglur um reikn- að endurgjald vegna eigin atvinnu- reksturs eða sjálfstæðrar starfsemi. í greinargerð tekur Jóhanna undir það sjónarmið, sem fram kom í skattsvikaskýrslunni svonefndu á síðasta ári, að ótækt sé með öllu að viðmiðunarreglur þær sem not- aðar hafi verið séu mun lægri en meðallaun launþega í sömu starfs- greinum. Morgunblaðið/Kristinn JÓHANNA Sigurðardóttir, sem nú er utan flokka, hlýðir á um- ræður á þingi í gær ásamt Svavari Gestssyni, Alþýðubandalagi. Ráðherrar hafa 83,7 millj. ráðstöfunarfé RÁÐHERRAR ríkisstjórnarinnar hafa samtals 83,7 milljónir króna í ráðstöfunarfé samkvæmt fjárlagafrumvarpi 1995. Hveiju ráðuneyti er úthlutað ákveðinni upphæð sem ráðherra ráðstafar hveiju sinni, til ein- staklinga, samtaka og heimila. Upphæðin er óbreytt frá núgildandi fjár- lögum. Þá hefur ríkisstjórnin 100 milljónir króna til slíkrar ráðstöfunar í fjárlagafrumvarpi 1995 og er það sama upphæð og í ár. Upphæð ráðstöfunarfjár ráð- ráðherra, 6 milljónir, Davíð Odds- herra er misjöfn eftir stærð og son, forsætisráðherra, Jón Baldvin umfangi ráðuneytanna. Hæsta upphæðin er hjá menntamálaráð- herra, sem hefur 18 milljónir króna til ráðstöfunar. Ráðherra dóms- og kirkjumála, heilbrigðis- og tryggingamála og iðnaðar hafa 8 milljónir hver yfir að ráða. Sex milljónir eru til ráðstöfunar hjá ráðherrum landbúnaðar og fjár- mála. Forsætisráðherra, utanríkis- ráðherra, félagsmálaráðherra og samgönguráðherra hafa 5 milljón- ir hver, umhverfisráðherra 3,7 og sjávarútvegs- og viðskiptaráð- herra 3 milljónir hver. Sighvatur hefur yfir 19 milljónum að ráða Hannibalsson utanríkisráðherra og Guðmundur Árni Stefánsson félagsmálaráðherra 5 milljónir hver og lestina rekur Össur Skarp- héðinsson, umhverfisráðherra, sem getur tekið ákvörðun um fjár- veitingar til einstaklinga, samtaka og heimila fyrir samtals 3,7 millj- ónir króna. Ráðstöfunarfé einstakra ráðherra skv. Frumvarpi til fjárlaga 1995 Sighvatur Björgvinsson Olafur G. Einarsson Halldór Blöndal Þorsteinn Pálsson 111 |11 6 Friðrik Sophusson Davíð Oddson Guðmundur Árni Stefánsson Jón Baldvin Hannibalsson 3,7, Össur Skarphéðinsson Alþingi tekur til starfa á ný eftir sumarleyfi Salome endurkjörin Þar sem ráðherrar fara gjarnan með fleiri en eitt ráðuneyti skipt- ist ráðstöfunarfé þeirra þannig: Sighvatur Björgvinsson hefur samtals 19 milljónir til ráðstöfunar í ráðuneytum heilbrigðis- og tryggingamáia og iðnaðar og við- skipta. Olafur G. Einarsson hefur 18 milljónir í menntamálaráðu- neytinu, Halldór Blöndal 11 millj- ónir samtals í ráðuneytum land- búnaðar og samgangna, Þorsteinn Pálsson 11 milljónir í ráðuneytum dóms- og kirkjumála og sjávarút- vegs, Friðrik Sophusson, fjármála- SALOME Þorkelsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks var endurkjörin forseti Alþingis við upphaf þing- fundar í gær með 43 atkvæðum en 11 þingmenn skiluðu auðu. Valgerður Sverrisdóttir þing- maður Framsóknarflokks var kjörin 1. varaforseti, Gunnlaugur Stefáns- son þingmaður Alþýðuflokks 2. varaforseti, Guðrún Helgadóttir þingmaður Alþýðubandalags 3. varaforseti, Sturla Böðvarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks 4. varaforseti, Kristín Einarsdóttir þingmaður Kvennalista 5. varafor- seti og Pálmi Jónsson þingmaður Sjálfstæðisflokks var kjörinn 6. varaforseti. Þetta eru sömu menn og gegndu þessum störfum á síð- asta þingi. Nýr formaður efnahags- og viðskiptanefndar Fastanefndir Alþingis verða að mestu óbreyttar frá síðasta þingi. Halldór Asgrímsson formaður Framsóknarflokks hefur þó hætt störfum bæði í efnahags- og við- skiptanefnd þar sem hann var for- maður á síðasta þingi, og í sjávarút- vegsnefnd en tekur þess í stað sæti í utanríkismálanefnd þar sem Stein- grímur Hermannsson fyrrverandi formaður flokksins átti áður sæti. Finnur Ingólfsson tekur sæti Hall- dórs í efnahags- og viðskiptanefnd en Jóhannes Geir Sigurgeirsson tekur við formennsku í nefndinni. Ingibjörg Pálmadóttir tekur sæti Halldórs í sjávarútvegsnefnd. Þá tekur Guðrún. Halldórsdóttir þingmaður Kvennalistans sæti Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg- arstjóra í þeim nefndum sem hún sat í á síðasta þingi. En Guðrún tók í sumar við af Ingibjörgu Sólrúnu sem þingmaður Kvennalistans. Ekki endanleg afgreiðsla FORSÆTISRÁÐHERRA telúr það galla á niðurstöðu Alþýðuflokksins varðandi málefni Guðmundar Árna Stefánssonar, félagsmálaráðherra, að málið skuli ekki afgreitt endan- lega. Búast megi við að það skjóti aftur upp kollinum þegar Ríkisend- urskoðun hafi lokið við gerð skýrslu sinnar. Þetta kom fram í fréttum ríkis- fjölmiðlanna á laugardagskvöld, en Morgunblaðinu tókst ekki að ná tali af Davíð Oddssyni, forsætisráð- herra í gær. í fréttum Ríkissjón- varpsins á laugardagskvöldið sagði forsætisráðherra aðspurður hvað hann teldi vera afgreiðslu á málinu: Ekki ljóst hvað Ríkisendurskoðun á að gera „Ég hefði talið það niðurstöðu í málinu ef Alþýðuflokkurinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að greinargerð félagsmálaráðherrans væri fullnægjandi og gæfi ekki til- efni til neinna viðbragða af hálfu þingflokksins varðandi ríkisstjórn- arsetu hans eða þá hin ákvörðunin að það væri hollara fyrir flokkinn, félagsmálaráðherrann og ríkis- stjórnina að hann viki úr henni vegna þessara atburða sem þarna hafa átt sér stað. Þetta hefði verið niðurstaða og þá endanleg hvað þetta mál varðar en nú er málinu vísað til Ríkisendurskoðunar og mér ekki alveg ljóst hvað Ríkisendur- skoðun á að gera í málinu. Það er dálítið flókið.“ Málinu haldið opnu Síðar sagði forsætisráðherra einnig: „Þetta finnst mér óþægilegt að málinu skuli vera haldið opnu um lengri tíma, ég held að það sé vont fyrir félagsmálaráðherrann og vont fyrir Alþýðuflokkinn ög vont fyrir ríkisstjórnina að halda málinu opnu með þessum hætti. Ég sagði þetta við bæði utanríkisráðherrann og félagsmálaráðherrann að ég teldi þetta vera óþægilegt að flokkurinn skyldi ekki komast að endanlegri niðurstöðu í málinu." -----» ♦ ♦--- Kosið til sveitarstjórna á tveimur stöðum Kjörsókn var ágæt KJÖRSÓKN var um 88% í tveimur kosningum til sveitarstjórnar sem fram fóru á laugardag í Stykkis- hólmsbæ og á Hólmavík, en endur- taka þurfti kosningarnar frá því í vor vegna formgalla. í Stykkishólmi fékk listi sjálf- stæðismanna og óháðra 405 at- kvæði og fjóra menn kjörna, B-listi Framsóknarflokks fékk 193 at- kvæði og tvo menn kjörna og H- listi Vettvangs fékk 144 atkvæði og einn mann kjörinn. Þetta eru mjög svipuð úrslit og í kosningunum í vor. Á kjörskrá yoru 820 manns og greiddu 767 kjósendur atkvæði eða 88,2%. Auðir seðlar voru 21 og fjórir ógildir. Á Hólmavík voru 343 á kjörskrá og greiddu 298 atkvæði. Atkvæði féllu þannig að L-listi framfarasinn- aðra borgara fékk 140 atkvæði og þijá menn kjörna, H-listi almennra borgara fékk 79 atkvæði og einn mann kjörinn og N-listi framboðs sjálfstæðismanna og óháðra 74 at- kvæði og einn mann kjörinn. 5 seðl- ar voru auðir og ógildir. i i I I \ i I I I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.