Morgunblaðið - 04.10.1994, Side 8

Morgunblaðið - 04.10.1994, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Dómsmálaráðherra: P&S efast um að rými sé fyrir tvo aðila í rekstri GSM-kerfis Auglýsa ætti eftir fleiri rekstraraðilum INNAN Pósts og síma gætir efa- semda um að innlendi markaðurinn rúmi tvo rekstraraðila að GSM- símkerfi, að sögn Kristjáns Indr- iðasonar, aðstoðarframkvæmda- stjóra fjármálasviðs P&S, en fyrir- tækið Nat hf. hyggst sækja um leyfi til að reka GSM-símkerfi í samkeppni við P&S. „í stofnuninni er það sjónarmið ríkjandi, að þegar opnað er fyrir leyfisveitingar á rekstri GSM-kerf- is sem er afar takmörkuð tekjulind og aðeins viss fjöldi getur stundað, sé ekki óskynsamlegt að ráðuneyt- ið auglýsi eftir hugsanlegum áhugaaðilum um rekstur GSM- kerfis. Okkur fínnst ekki eðlilegt að sá fyrsti sem biður um leyfí fái það, heldur beri að leita eftir fleiri aðilum í einhvers konar ígildi út- boðs,“ segir Kristján. Póstur og sími myndi ekki svara slíkri auglýsingu að sögn Krist- jáns, þar sem stofnunin er þegar með leyfi og byijuð að reka GSM- kerfi. Samkeppnisaðilar sitji við sama borð „Við erum að ræða um kerfí sem er mjög dýrt í uppbyggingu og við höfum takmarkaðan fjölda mögu- legra áskrifenda að þjónustunni. Hins vegar er of snemmt að vera með fullmótaðar skoðanir á áform- um annarra sem hyggja á rekstur GSM-kerfis, við vonum einungis að teknar verði skynsamlegar ákvarðanir. Við erum að ganga inn í veröld þar sem meiri eða minni samkeppni gætir, þannig að hugs- anleg samkeppni frá þessum aðil- um er ekki í andstöðu við okkur og við óttumst hana alls ekki, eink- um þar sem við væntum þess að samkeppnisaðilar sitji við sama borð. Póstur og sími þarf að reka kerfi sem nær til alls landsins, sem þýðir dýrari og meiri fjárfestingu, og við teljum að ef aðrir rekstrar- aðilar koma hár inn, verði þeim gert að geta boðið þjónustu sem nær einnig til alls landsins. Við lítum til þjóðhagslegrar hag- kvæmni og slíks, og óvíst að ís- lenskar aðstæður beri kostnað við tvö kerfí. Samkeppni getur að vísu leitt til lækkunar á vérði þjón- ustunnar en við höfum einnig dæmi um að óheft samkeppni getur virk- að öfugt, því ekki lifa allir hana af,“ segir Kristján. Kostnaður við uppbyggingu GSM-kerfís Pósts og síma er ekki endanlega ljós, að sögn Kristjáns, en talan 1,5 milljarðar hafi verið nefnd með mjög miklum fyrirvara. Starf flugumferðarstjóra 6 af 102 ráðnir eftir hæfnispróf EPTIR ströng hæfnispróf verða 6 af 102 um- sækjendum um starf flugumferðarstjóra ráðnir til starfsins. Aðeins 33 af 102 standast lágmarkskröfur valnefndar og sækja þeir ítarleg viðtöl, þreyta sálfræði-, einbeitingar- og skipulagspróf, um þessar mundir. Ellefu umsækjendur komast á sjö mánaða grunnnámskeið og 6 til 8 verða valdir til náms á tilteknum vinnustað. Þar tekur við um eins árs nám ti! fyrstu deildarréttinda. AIIs geta flugumferðarstjórar þurft að ná sex slíkum réttindum. Námið tekur því 4 til 6 ár. Flugumferðarstjórar á íslandi eru um 100 og hefur þeim ekki fjölgað síðustu árin þrátt fyrir aukna flugumferð. Heistu ástæður fyrir endurnýjun í stéttinni er að hámarksaldur var fyrir nokkru lækkaður úr 68 til 70 árum í 60 til 63 ár. Atvinnurekendurí Brussel Breytingar á EES vefjast fyrir mönnum Sveinn Hannesson Um 20 forystumenn úr íslensku atvinnu- lífi fóru til viðræðna við forystumenn og embætt- ismenn Evrópusambandsins í Brussel í síðustu viku til að kynna sér hvernig best sé fyrir ísland að haga sam- skiptum við ESB í framtíð- inni. Vinnuveitendasam- band íslands, Samtök iðnað- arins og Verslunarráð stóðu fyrir ferðinni. Sveinn Hann- esson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, sagði að ferðin hefði verið mjög gagnleg. „Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér Evrópu- sambandið og það sem það stendur fyrir. Þessi þrenn samtök eru að vinna að út- tekt á stöðu íslands í um- heiminum. Það snýr mest að Evr- ópusambandinu, en einnig að GATT og NAFTA. Við erum að taka saman heilmikla skýrslu um þessi mál og ferðin var farin til að kynna okkur þessi mál.“ - Er í þessarí skýrslu ætlunin að komast að ákveðinni niður- stöðu um hvort ísland eigi að sækja um aðild að ESB? „Nei, við leggjum aðaláherslu á hlutlausa og fordómalausa skoð- un á þessum málum út frá sjónar- miðum atvinnulífsins. Þessi ferð er sama eðlis. Seinna í þessum mánuði verður síðan haldin ráð- stefna um þessi mál. Ég svara ekki fyrir hin samtökin, en Sam- tök iðnaðarins líta svo á að þau verði að taka afstöðu til þess hvort ísland eigi að sækja um aðild að ESB. Þessi ferð er liður í því að undirbyggja þá ákvörðun okkar.“ Gagnleg ferð - Var þetta gagnleg ferð að þínu mati? „Já, hún var það. Við voru heppnir að því leyti að við hittum marga menn sem okkur fannst fróðlegt að ræða við. Ég held að óhætt sé að segja að menn hafí verið margs fróðari eftir þetta. Við ræddum fram og aftur um sjávarútvegsmálin. Þau mál eru mjög flókin. Við hittum m.a. menn frá sjávarútvegsdeildinni, sem tóku þátt í samningunum við Noreg og eru sérfræðingar í sam- bandi við kvóta, sjávarútvegs- stefnu sambandsins, efnahagsleg tengsl, kvótahopp og fleira. Mér fannst þeir raunar gefa í skyn við okkur að menn væru orðnir dálít- ið þreyttir á þessari sjávarútvegsumræðu íslendinga. íslending- ar eru alltaf að spyrja sömu spurninganna, um hvort þeir geti fengið undanþágu frá sjávarút- vegsstefnunni og annað. Það kom fram hjá þeim að þjóðir sem hafa gengið í ESB hafa fengið tíma til að laga sig að reglum sambands- ins, en ekki öfugt. Þegar menn fara fram á frávik frá reglunum eru þeir í reynd að fara fram á viðbætur við reglurnar. Svíar, Norðmenn og Finnar sömdu um það sem kallað er heimskauta- landbúnaður. Þetta var eitthvað sem var ekki til í reglum ESB áður og er því viðbót. Akvæði um heimskautalandbúnað felur hins vegar ekki í sér undanþágu frá landbúnaðarstefnu ESB.“ ESB horfir til austurs - Var eitthvað í þessum við- ræðum sem kom þér á óvart? ► Sveinn Hannesson er fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnað- arins og nýkominn frá Bruss- el, en þangað fór hann til að kynna sér Evrópusambandið og hvernig hægt er að haga samskiptum þess og Islands í framtiðinni. Sveinn, sem er 44 ára gamall, lauk stúdentsprófi frá MR1970 og prófi frá við- skiptadeild Háskóla íslands 1974. Sveinn hóf störf hjá Landssambandi iðnaðar- manna 1975. Hann varð dejld- arstjóri hjá Iðnaðarbanka ís- lands 1980 og framkvæmda- stjóri Lýsingar 1987. Arið 1992 varð Sveinn fram- kvæmdastjóri hjá Félagi ís- lenskra iðnrekenda og fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnað- arins á síðasta ári. „Það kom mér dálítið á óvart þessar vangaveltur manna um að það fari eftir hraðanum í þróun A-Evrópu hversu mikil áhersla lögð verði á að endurskipuleggja stofnanir sambandsins. Það gæti alveg eins verið að þessi ríkjaráð- stefna, sem allir eru að horfa á með mikilli eftirvæntingu, dragist á langinn eða klári ekki að gera breytingar á stofnunum ESB. Það myndi hugsanlega þýða frestun á inntöku nýrra þjóða eitthvað fram yfir aldamót. Það er yfirlýst stefna að ESB muni á komandi árum stækka til austurs, en jafn- framt viðurkenna menn að löndin í A-Evrópu eru ekki tilbúin efna- hagslega til að fara inn. Menn eru því að velta fyrir sér að A-Evrópu- ríki taki upp reglur ESB í áföngum, hugs- anlega verði farin ein- hvers konar EES-leið. Menn telja jafnframt að þróunin kunni að ráðist af öryggismálum í austri." - Þið hafið væntanlega eitt- hvað rætt um EES-samninginn og framtíð hans? „Mikið af tíma okkar fór í að ræða hvernig við gætum breytt samningnum um Evrópskt efna- hagssvæði I það horf að hann gæti gengið upp og gagnast okk- ur áfram. Það er ljóst að EES er sú lausn sem við verðum að búa við um nánustu framtíð. Á vegum EFT'A starfar eftirlitsstofnun og dómstóll og ef við verðum einir eftir í EFTA verðum við í því hlut- verki að hafa eftirlit með sjálfum okkur og dæma í eigin málum. Það virðist vefjast fyrir þeim embættismönnum sem við töluð- um við hvernig best sé að breyta þessu." Framtíð ESB ræðst af þró- uninni í austri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.