Morgunblaðið - 04.10.1994, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRÉTTIR
Líflegt á slóðum
sjóbirtings
TVEIR stórir úr Svartá undir lok veiðitímans, 12 og 13,5 punda.
SJÓBIRTINGSVEIÐITÍMINN er
í algleymingi um þessar mundir
og fregnir herma að meira sé af
þeim ágæta fiski í ám sunnanlands
og vestan heidur en hin seinni ár.
Gallinn er bara sá að veiði er iokið
í þeim ám þar sem mest er um
hann fyrir vestan, s.s. í Alftá,
Grímsá og Þverá. Eitthvað hefur
reyst upp af birtingi í Laxá í Kjós,
en iítið í Eliiðaánum og Leirvogsá
þar sem sjóbirtingsdagar á neðstu
svæðunum taka við af laxveiðitím-
anum á haustin.
Sunnanlands hefur fregnast af
ágætri veiði í Grenlæk neðanverð-
um, Hrauni, Vola og Hólsá. Þá
fréttist fyrir skömmu af veiði-
mönnum sem voru tvo daga í
Tungufljóti í Vestur-Skaftafells-
sýslu og fengu 14 sjóbirtinga. Sá
stærsti var 15 pund og auk þess
voru 12 og 13 punda fiskar í aflan-
um. Flestir hinna 4 til 7 pund.
Nokkrar lokatölur
Lokatölur úr ánum seytla inn á
borð. 276 laxar veiddust í Álftá á
Mýrum, sá stærsti 17 punda
hrygna sem veiddist í Lambafossi
á síðustu mínútum síðasta veiði-
daginn. Þeir sem lokuðu ánni
fengu 11 laxa og á fimmta tug
sjóbirtinga. Veiddir sjóbirtingar
voru næstum jafn margir og lax-
amir. Þeir voru flestir frá tæpu
pundi og upp í 2 pund, en dijúgur
reytingur af stærri físki, allt að 5
punda. Síðustu daga veiðitímans
komu stórar sjóbirtingsgöngur í
ána og svo er að sjá að þarna sé
á ferðinni á sem stæði undir fram-
lengingu á veiðitíma, sérstaklega
í ánni neðanverðri.
Korpa gaf 337 laxa sem er
furðu gott miðað við hversu ræfils-
leg áin varð í hinum löngu þurrk-
um sumarsins. Rann varla vikum
saman. Raunar heyrðust ljótar
sögur úr Korpu. Ein var á þá Ieið
að veiðimaður einn hafi „veitt“ 16
laxa, en einungis bókað fjóra. Allt
hafi verið húkkað enda hafi heima-
tökin sums staðar verið hæg, tals-
vert magn af laxi og lítið vatn.
Laxá á Ásum er sem fyrr með
lang bestu veiðina þegar miðað
er við magn á hverja dagsstöng.
Lokatölur urðu 795 laxar sem
þykir lítið í þeirri verstöð, en er
engu að síður feiknagott. Veiði-
tíminn var þó mun lengri en fyrr,
eða þrír og hálfur mánuður í sam-
ræmi við nýja reglugerð. Þrír 20
punda fiskar voru stærstir, allir
veiddir snemma á veiðitíma, einn
í Mánafossi og tveir í Kóka.
Haffjarðará var góð í sumar,
650 laxar veiddust, sem er nokkru
yfir meðalveiði. Stærsti laxinn var
20 punda, veiddur seint á veiði-
tíma. Grútleginn hængur sem
hefði verið allnokkru þyngri nýr
úr sjó.
Morgunblaðið/Kristinn
Kiwanismenn flytja
TÍMAMÓT urðu hjá Kiwanis-
hreyfingunni sl. laugardag, þeg-
ar höf uðstöðvar hennar voru
fluttar. Kiwanisfélagar söfnuð-
ust saman við gamla Kiwanis-
húsið í Brautarholti 26 og gengu
í fylkingu með fána og merki á
lofti að nýja húsinu á Engjateigi.
AKUREYRI
Samkomulag um skólaskipan í Skútustaðahreppi samþykkt
Foreldrar ábyrgjast rekst-
ur skólasels á Skútustöðum
Björk, Mývatnssveit - Meirihluti
sveitarstjórnar Skútustaðahrepps
hefur samþykkt samkomulag um
skólaskipulag skólaárið 1994-
1995. I samkomulaginu kemur
fram að foreldrar úr suðurhluta
Mývatnssveitar bera sjálfír ábyrgð
á skólagöngu barna sinna í 1. til
7. bekk. Til þess fá foreldrar skóla-
húsnæðið að Skútustöðum til af-
nota endurgjaldslaust til 31. maí
1995 en greiði heiming kyndingar-
kostnaðar og rafmagnsnotkun
utan fastagjalds og sjá um ræst-
ingu. Húsnæðinu verði skilað
hreingerðu og skemmdir bættar
sem ekki falla undir eðlilegt við-
hald.
Tilhögun þessi leiði hvorki til
minni eða meiri útgjalda fyrir
sveitarsjóð en orðið hefðu miðað
við að öll kennála færi fram í
Reykjahlíð. Starfsemin á Skútu-
stöðum fellur undir faglega um-
sjón Grunnskóla Skútustaða-
hrepps og er að því leyti starfrækt
sem skólasel við skólann án
ábyrgðar sveitarstjórnar og skóla-
nefndar.
Rekstrarsljórn ber ábyrgð
Foreldrar barna sem nýta
kennslu á Skútustöðum skipta með
sér rekstrarstjórn sem hefur með
höndum reikningshald og fjárreið-
ur og ber ábyrgð á aðbúnaði í
skólaselinu. Kennslugögn og bún-
„ÞAÐ ER ljóst að þetta er klúður
í kerfinu, dæmi um að menn hafí
ekki talað saman og ég vona að
þetta verði til að svona vinnubrögð
heyri sögunni til,“ sagði Bragi V.
Bergmann formaður íþrótta- og
tómstundaráðs Akureyrarbæjar
um bókun ráðsins vegna félags-
miðstöðvar í Síðuskóla.
Fram kemur í bókuninni að
bæjarstjórn hafi á síðasta ári sam-
þykkt að veija hálfri milljón króna
til að innrétta sal félagsmiðstöðv-
arinnar, smíða sófa og búa til af-
drep fyrir plötusnúða. Flýta átti
verkinu vegna afmælis skólans
síðastliðið vor. Hönnuður var feng-
in til verksins, en þrátt fyrir skýra
bókun og einfaldleik málsins eins
og segir í bókun ráðsins var nú í
september ekki farið að vinna í því.
Akureyringur
vann 8,7 millj.
í lottóinu
AKUREYRINGUR fékk tæplega
8,7 milljónir króna í Lottóinu síðast-
liðið laugardagskvöld, en hann
hafði ekki gefið sig fram við ís-
lenska getspá síðdegis í gær. Miðinn
var keyptur í Nætursölunni við
Strandgötu kl. 13 mínútur yfir átta,
eða rétt fyrir lokun.
Vinningstölur voru 7, 12, 18, 25
og 33 og bónustalan var 13. Einn
var með allar tölur réttar og hlýtur
því 8.671.835 krónur í vinning. Sjö
voru með fjórar tölur og bónustölu
og fá rúmar 100 þúsund krónur í
sinn hlut.
Sjá um akstur,
mötuneyti, gæslu
og laun vegna fé-
lagsstarfa
aður í eigu Grunnskóla Skútu-
staðahrepps sem ekki þarf á að
halda í Reykjahlíðarskóla að mati
skólastjóra fylgir húsnæðinu.
Rekstrarstjórn skuldbindur sig til
að sjá um rekstur á þeim búnaði
og endurnýjun sem er umfram
eðilegt viðhald. Kennslugögn og
búnað sem að mati skólastjóra og
kennara þarf til viðbótar vegna
kennslu á Skútustöðum sér rekstr-
arstjórn um eftir getu og á sam-
svarandi hátt og sveitarstjórnin
enda verði hann eign rekstrarfé-
lagsins.
Framlag úr jöfnunarsjóði
Rekstrarstjórn sér um skóla-
akstur, rekstur mötuneytis, gæslu
akstursnemenda og greiðslu launa
vegna félagssstarfa. Til að standa
straum af kostnaði þessu samfara
greiðir Skútustaðahreppur rekstr-
arfélaginu framlag sem hann fær
úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
vegna þeirra barna sem verði í
námi á Skútustöðum. Vegna óhag-
kvæmni sem skiptingin veldur í
Þijár milljónir
í bókun íþrótta- og tómstunda-
ráðs segir að aðilar innan bæjar-
kerfisins hafi tekið málið í sínar
hendur án vitundar þess, fram-
kvæmdastjóra og forstöðumanns
félagsmiðstöðvanna. Bygginga-
deild bæjarins tók við teikning-
unni, segir í bókuninni, og þar
þótti hún ófullnægjandi. Hönnuði
var fengin hún að nýju og falið
það verkefni að hanna sal félags-
miðstöðvarinnar nánast frá
grunni, m.a. var búið að hanna
ljósa- og hljóðkerfi í miðstöðina
sem þó var til fyrir. Reikningur
fyrir hönnunarvinnu hljóðaði upp
á 250 þúsund kr. og talið er að
framkvæmdir samkvæmt nýrri
teikningu kosti um þijár milljónir.
„íþrótta- og tómstundaráð hef-
ur ekki í hyggju að nýta sér hinar
nýju og ítarlegu teikningar. Það
hefur heldur ekki í hyggju að
leggja í framkvæmdir upp á rúmar
þijár milljónir króna í sal félags-
miðstöðvarinnar í Síðuskóla enda
yrði svo umfangsmikil fram-
kvæmd gersamlega úr takti við
það sem gert hefur verið í hinum
félagsmiðstöðvum bæjarins,“ segir
í bókun ráðsins og jafnframt er
þar tekið fram að með henni vilji
ráðið tryggja að það verði ekki
krafíð um greiðslu fyrir síðari
hönnun verksins. „Það er skoðun
Iþrótta- og tómstundaráðs að
Ákureyrarbær hafi annað við fjár-
muni sína að gera en að kasta
þeim á'glæ með þessum hætti þó
svona tvíverknaður kunni að vera
atvinnuskapandi,“ segir í bókun-
inni.
akstri 8. til 10. bekkjar úr suður-
hluta sveitarinnar mun rekstrarfé- I
lag Skútustaðaskóla annast hann.
Óskað verður eftir að fræðsluskrif-
stofa útfæri skiptingu á jöfnunar-
sjóðsframlaginu.
Framtíðarlausn
Skipaður verður starfshópur
sem hefur það verkefni að gera
úttekt á skólaskipulagi sem boðið
er í Skútustaðahreppi, nýtingu I
skólahúsnæðis og gera ábendingar |
um það sem betur má fara með
hag skólastarfs og nemenda í
huga. Óskað verði tilnefningar frá
menntamálaráðuneyti og fræðslu-
skrifstofu í starfshópinn með
heimamönnum. Starfshópurinn á
að skila áliti fyrir 1. mars 1995.
Á fundinum samþykkti meiri-
hluti sveitarstjórnar einnig eftir- |
farandi bókun: „Sveitarstjórn |
bendir á að allt starf Grunnskóla
Skútustaðahrepps fer nú fram í
nýja húsinu við Reykjahlíð eins og
samþykkt sveitarstjórnar frá 18.
ágúst sl. kveður á um.
Sveitarstjórn vill jafnframt
árétta að ef einhveijii' íbúar Skútu-
staðahrepps sætta sig ekki við það
námsframboð sem boðið verður
skólaárið 1995-1996 mun hún
ekki hafa forgöngu um lausn á ^
því. Nægur tími gefst nú til að I
gera viðeigandi ráðstafanir í þeim |
efnum fyrir viðkomandi aðila.“
Leiði Sveins föður
Nonna fundið í Akur-
eyrarkirkj ugarði
Zontakonur
setja stein |
á leiðið
ZONTAKLÚBBUR Akur-
eyrar hefur látið setja legstein
á Ieiði Sveins Þórarinssonar,
föður rithöfundarins og jesú-
ítaprestsins Jóns Sveinssonar,
Nonna. Það eru nokkur ár
síðan Zontasystur fóru að
spyijast fyrir um legstað
Sveins, sem fæddist árið 1821
í Krílakoti í Kelduhverfi og
lést í Nonnahúsi á Akureyri
16. júlí árið 1869. Með dyggri
aðstoð Dúa Björnssonar,
kirkjugarðsvarðar tókst að
fínna leiðið. Það er syðst í
Akureyrarkirkjugarði svo til
beint upp af Nonnahúsi.
Sveinn er sá eini af fjölskyld-
unni sem á legstað á Akur-
eyri, hún dreifðist víða um
lönd og eiga öll hin legstað í
útlöndum.
Sigríður móðir Nonna flutt-
ist til Kanada og lést þar 84
ára gömul árið 1910. Tvö
yngstu systkini hans, Sigríður
Guðlaug og Friðrik fluttust
einnig til Kanada og bjuggu
þar. Elsta systirin, Björg eða
Bogga sem oft er minnst á í
Nonnabókunum fluttist til
Kaupmannahafnar og lést þar
aðeins 28 ára gömul árið
1882. Ármann, Manni sem
gjarnan er nefndur í sömu
andrá og Nonni var við heim-
spekinám í Belgíu þegar hann
veiktist af berklum og dó 23
ára að aldri árið 1885. Nonni
lést í Köln 15. október 1944
og hlaut legstað í Melaten
kirkjugarði þar í borg þannig
að í haust eru 50 ára frá
dauða hans.
Innrétting í félagsmiðstöð tvíteiknuð
með umtalsverðum kostnaði
Ekki framkvæmt
eftir nýrri teikningu