Morgunblaðið - 04.10.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
. AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 13
Ný og langþráð 25 metra löng sundlaug tekin í notkun á Dalvík við hátíðlega athöfn
24 ára
bið lokið
Dalvík - Ný sundlaug var tekin
í notkun á Dalvík við hátíðlega
athöfn siðastliðinn sunnudag.
Það voru skólabörn á Dalvík sem
tóku fyrstu sundtökin í hinni
nýju laug og að lokinni vígsluat-
höfn var byggingin til sýnis og
gestum boðið upp á léttar veit-
ingar.
Hönnuður laugarinnar er Fann-
ey Hauksdóttir frá Akureyri en
Arkitekta- og verkfræðistofa
Hauks Haraldssonar á Akureyri
sá um burðarþol og lagnir. Aðal-
verktaki byggingarinnar var
Tréverk hf. á Dalvík.
Árið 1970 var sett niður lítil
plastlaug á Dalvík, jafnlöng og
nýja laugin er breið, og átti hún
að vera til bráðabirgða á meðan
verið væri að finna nýrri laug
stað. Sú leit er á enda nú 24 árum
síðar en gamla laugin hefur á
þeim tíma þjónað almenningi og
sem kennslulaug.
Fyrsta skóflustungan að hinni
nýju laug var tekin 20. júní 1992
af Hjalta Þorsteinssyni. Bygging-
in var gerð fokheld árið 1992,
laugarsvæðið steypt upp 1993 en
innréttingu og frágangi lokið
árið 1994.
Aðallaugin er 25 m löng og 12,5
m breið með útskoti fyrir 40 m
langa vatnsrennibraut. Dýpt
laugarinnar er 95-170 sm. í
lauginni eru alis um 450 ms af
vatni. Þrír heitir pottar eru við
laugina auk um 35 sm djúprar
vaðlaugar fyrir börn. Upphitað-
ar stéttar eru umhverfis laugina
alls um 600 m- að flatarmáli og
eru gúmmíhellur næst lauginni.
Hreinsibúnaður laugarinnar er
ítalskur en í henni er lokuð
hringrás vatns sem tryggir að
klórinn rennur ekki út í frá-
rennslið. Sundlaugarhúsið er
samtals 758 m2 að stærð og heild-
arkostnaður við sundlaugina er
um 160 milljónir króna með öll-
um búnaði.
5% staðgreiðsluafsláttur, s
einnig af póstkröfum |
greiddum innan 7 daga.
SSúmJFf&SI
- cumsmjm • sImi aiasxa
„ Morgunblaðið/Hermína
DALVÍKINGAR tóku á sunnudag í notkun nýja sundlaug sem leysir af hólmi bráðabirgðalaug til tuttugu og fjögurra ára, en það voru
fulltrúar yngstu kynslóðarinnar sem fyrst fengu að stiga sér í laugina.
KR. 2.495.000
Jeep Cherokee hefur 130 ha. vél, en vegur aðeins
1430 kg. Jeep Cherokee stendur enginn á sporði í
sparneytni eða afli- hvað þá með 190 ha. vélinni.
VfJeep
NÝBÝLAVEGUR 2, KÓPAVOGUR, SÍMI 42600
Samlæsingar með fjarstýringu, rafstilltir speglar,
rafknúnar rúðuvindur, rafmagnsloftnet, fjórir
hátalarar, leðurklætt vökva— og veltistýri, fimm
álfelgur, stillanleg toppgrind og fleira fylgir
hverjum cinasta Jeep Cherokee.
10 ára reynsla af Jeep Cherokee á íslandi sannar
styrkinn, endinguna og gæðin.
Samkcppnin á ekkert svar við verðinu á Jeep
Cherokee. Vorum að fá aukasendingu-
Jeep Cherokce til afgreiðslu strax!
Hreinir yfirburðir!
BESTU jeppakaupin!
jeep cherokee Jamboree