Morgunblaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 15 FRETTIR Héraðsdómur Reykiavíkur sýknar ríkissjóð Lög um bifreiðagjöld standast stjórnarskrá HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað ríkissjóð af kröfum Jónasar Haraldssonar lögfræðings, sem krafðist endurgreiðslu á bif- reiðagjaldi, þar sem hann taldi að gjaldtakan samrýmdist ekki stjóm- arskránni. Jónas hefur ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Forsaga málsins er sú, að Jónas á Chevrolet-bifreið, árgerð 1979. 30. mars sl. greiddi hann með fyrir- vara bifreiðagjöld fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní, samtals rúmar 9.000 krónur. Þá greiddi hann sömu upphæð fyrir síðari hluta ársins, einnig með fyrirvara. Jónas benti á, að sér væri gert að greiða 20% af verðmæti bifreiðarinnar í bif- reiðagjald, en til samanburðar greiddi eigandi jafnþungrar nýrrar 4 milljóna króna bifreiðar sömu upphæð, sem þá næmi 0,5% af verð- mæti. Jónas sagði að skatt bæri að leggja á eftir eðlisrökréttum og málefnalegum sjónarmiðum miðað við verðmæti þess sem skattlagt væri. Skattháttur þessi samrýmdist ekki 67. grein stjórnarskrárinnar um friðhelgi eignarréttarins. Raunhæft að miða við þyngd Sjónarmið ríkissjóðs fyrir réttin- um voru þau, að ef bifreiðar ættu að vera skattandlag yrði að leggja til grundvallar einhvern mæli- kvarða, til dæmis kaupverð eða þyngd. Kaupverð gæti ekki talist réttari mælikvarði þar sem afföll af bifreiðum væru talsverð. Raun- hæfara væri að miða við þyngd, þar sem eðli gjaldsins mætti rekja til afnota. Með þessu væri ekki vikið frá viðurkenndum skattlagning- arsjónarmiðum og ákvæði 67. grein- ar stjórnarskrárinnar segði ekkert hvernig haga ætti álagningu lög- festra skattstofna. Sömu sjónarmið W1 Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Ðömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Bensinstöðvar og helstu ~ ' byggingavöruverslanir. Dreifing: Hringás hf., sími 677878-fax 677022 Tilbúinn stíflu eyðir I sambandi vib neytendur frá morgni til kvölds! - kjami málsins! giltu um alla bifreiðaeigendur og enginn væri tekinn út úr. Dómarinn, Jón Finnbjörnsson, sagði bifreiðagjaldið leggjast að stofni til á eigendur allra skráðra bifreiða í landinu. Gjaldið væri ekki að neinu leyti miðað við verðmæti og yrði ekki fallist á það með Jónasi að bundið væri í stjómarskrá að slík- ir skattar skuli ævinlega miðaðir við verðmat á þeim munum sem skatt- lagðir væra. Þá væri fjárhæð skatts- ins ekki svo há að hann fæli í sér almenna eignaupptöku. Lög um bif- reiðagjöld brytu því ekki í bága við 67. grein stjómarskrárinnar. HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð? Viltu margfalda afköst í námi um alla framtíð? Viltu lesa meira af góðum bókum? Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju? Ef svar þitt er jákvætt, skaltu skrá þig strax á næsta hraðlestrar- námskeið sem hefst fimmtudaginn 13. október nk. Skráning í símum 64 21 00 og 64 10 91 HRAÐ^ESTFIARSKOUNN Það er margt sem aðrir bflar eiga sameiginlegt með Peugeot 306. Þak Framrúða Spegill 4 dekk ARGERÐ 1995 KOMIN Þér fínnst kannski eins og allir bílar í dag séu eins. En ef þú lítur aðeins í kringum þig í stað þess að fljóta með straumnum sérðu að til er bíll sem er ekki eins og allir hinir. Bíll sem er öðruvísi. Bíll sem sem sker sig úr fyrir fágað yfirbragð sitt og góða hönnun. Bíll sem þú ert alltaf öruggur í. Bíll með eiginleika sem þú finnur hvergi annarsstaðar. Bíll sem þú nýtur að aka, hvert sem er, hvenær sem er. PEUGE0T. A SER ENGAN LÍKA! Þessi bíll er Peugeot. Peugeot á vissulega margt sameiginlegt með öðrum bílum, en hann skarar einnig framúr í mörgu. Peugeot er eins og sniðinn fyrir íslenska vegi. Mjúkur, stöðugur, sparneytinn og sætin eru frábær. Hvað kostar þá að veraöðruvísi? Minna en ekkert. Hvernig líst þér t.d. á glæsilegan, vel búinn PEUGE0T 306 Á KR. 1.088.000 PEUGEOT Nýbýlavegi 2, Kópavogi, sími 42600.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.