Morgunblaðið - 04.10.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
A C O
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 17
__________________VIÐSKIPTI_________________
Rekstrarafkoma Flugleiða batnaði um 400 milljónir
Tapið um 93 milljón-
ir fyrstu sjö mánuðina
REKSTRARAFKOMA Flugleiða
fyrstu sjö mánuði þessa árs batnaði
verulega frá sama tímabili í fyrra.
Þannig nam rekstrarhagnaður án
fjármunatekna og fjármagnsgjalda
alls 442 milljónum samanborið við
283 milljónir í fyrra. Eftir fjármagns-
liði nam tap félagsins af reglulegri
starfsemi alls 76 milljónum en var
468 milljónir á sama tíma í fyrra og
er því alls um að ræða 392 milljóna
bata á reglulegri starfsemi. Þennan
rekstrarbata má einkum rekja til
verulegrar fjölgunar farþega, spam-
aðar í rekstri og hagstæðra vaxtakj-
ara.
Óreglulegir liðir voru félaginu hins
vegar mun óhagstæðari fyrstu sjö
mánuði ársins en í fyrra og nam
heildartap Flugleiða því 93 milljónum
fyrstu sjö mánuðina samanborið við
79 milljóna tap árið áður. Tvær
ástæður eru einkum fyrir því að batn-
andi rekstrarafkoma skilar sér ekki
í betri heildarniðurstöðu. í fyrsta lagi
er munur á misvægi gengis og verð-
lags 228 milljónir króna sem fært
er til gjalda. Þetta má rekja til þess
að flugvélaeign félagsins er endur-
metin miðað við gengi dollars. Þessi
eign er töluvert hærri í bókum félags-
ins en skuldir í dollurum og hefur
gengislækkun dollars á þessu ári því
óhagstæð áhrif á áfkomuna að þessu
leyti.
I öðru lagi nýtur félagið ekki tekju-
skattsskuldbindingar á þessu ári sem
skilaði 180 milljóna tekjufærslu í sjö
mánaða reikningsskilum árið 1993.
A móti koma aðrir óreglulegir liðir
sem skila tekjufærslu að fjárhæð 62
milljónir en þar er einkum um að
ræða bata á afkomu dótturfélaganna
Kynnisferða og Úrvals-Útsýnar.
Handbært fé frá rekstri fyrstu sjö
mánuði ársins nam alls 1.025 millj-
ónum sem var 184 milljónum hærri
fjárhæð en á sama tímabili á síðasta
ári. Veltufjárstaðan batnar um 412
milljónir.
Sjö mánaða uppgjör Flugleiða sýn-
ir glögglega þær miklu sveiflur sem
verða á afkomu félagsins innan árs-
ins. Þannig var heildartap fyrstu
þijá mánuði ársins 963 milljónir. Á
öðrum ársfjórðungi var 231 milljónar
hagnaður og í lok júní var tapið því
732 milljónir. I júnímánuði einum vai-
hagnaður að flárhæð 639 milljónir en
einnig er gert ráð fyrir verulegum hagn-
aði í ágúst og september.
Stefnt að hagnaði á árinu
Markmið Flugleiða er að skila
hagnaði á þessu ári. Ennþá þykir þó
of snemmt að fullyrða um að það
náist þrátt fyrir góðan hagnað yfir
sumarmánuðina og töluvert betri
bókanir út þetta ár en í fyrra.
Staða dollarans mun hafa mikil
áhrif á heildarniðurstöðuna vegna
þess að eignir og skuldir eru endur-
metnar með hliðsjón af gengi hans,
að sögn Einars Sigurðssonar, for-
stöðumanns upplýsingadeildar.
Fyrstu sjö mánuði ársins voru far-
þegar Flugleiða í millilandaflugi tæp-
lega 432 þúsund og hafði fjöigað um
28% frá fyrra ári. Farþegar í innan-
landsflugi voru rúmlega 151 þúsund
og hafði fjölgað um 0,5% frá sama
tímabili árið 1993.
Sætanýting Flugleiða hefur verið
töluvert betri á þessu ári en í fyrra
og batnaði sætanýting um 7,3-7,4
prósentustig í júlí og ágúst.
Vatnsþolnar
Má möta og mála
Bæklingur á íslensku
HÚSASMIÐJAN
Súðarvogur S:687700
Hafnarfjörður S:6501 OO
f/A
A C O ■ ACO • ACO ■ ACO
COmPAOL
m
fra
© TÖIVUP
aca
SlMI: 91-627333 ■ FAX: 91-628622 i ,
SKIPHOLT117 • 105 REYKJAVÍK jOÖtA"/
Einfaldlega
Weetcrb/x
Myldu það bara
■ ef þú vilt brjóta upp línurnar
Hoilt
rir mömmu
rir unglinginn
- kjarni málsins!
Fislétt
en samt gróft og hollt fyrir meltinguna.
Weetabix - hjartans mál!