Morgunblaðið - 04.10.1994, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Aætlun um
ísjakaflugbraut
skotin í kaf
London. The Daily Telegraph.
ÁÆTLANIR Breta um
að byggja risastóran
flugpall úr ís til að
geta haldið uppi vörn-
um fyrir flutningaskip
í heimsstyijöldinni síð-
ari, voru skotnar í kaf
af Bandaríkjamönnum,
að sögn Kanadamanns
sem hefur rannsakað
örlög ísjakaáætlunar-
innar. Hún var hugar-
fóstur sérviturs fjöl-
fræðings, Geoffreys
Pyke, sem var einn af
þremur vísindaráðgjöf-
um Louis Mountbatt-
ens lávarðar, náfrænda
konungs og eins af
æðstu mönnum breska flotans.
Pyke kynnti áætlun sína í 35.000
orða skýrslu árið 1942 þar sem
hann færði rök fyrir því að ís hent-
aði betur en steypa eða stál þar sem
hann væri ódýr og auðveldur í fram-
leiðslu. „ísskipið" sem hann sá fyr-
ir sér, var 1.200 m á lengd, 90 m
á breidd og tæplega 30 m hátt.
Fullyrti Pyke að það mætti ein-
angra og kæla ísinn nóg til þess
að hann bráðnaði ekki og að þykk-
ir veggimir myndu draga mjög úr
áhrifum tundursskeytis, yrði skotið
á hann.
Sagt er frá áætluninni j bók eft-
ir Lome Gold, hjá Rannsóknarráði
Kanada, „Kanadíska Habbakuk-
áætlunin". Mountbatten lávarður
mun hafa verið heillaður af hug-
myndinni en þó er efast um að
hann hafi lesið alla skýrslu Pykes,
enda hefur síðari hluta hennar ver-
ið líkt við vísindaskáld-
sögu. Kynnti Mount-
batten hugmyndina
fyrir Winston Churc-
hill forsætisráðherra í
desember 1942.
Nefnd var stofnuð
undir forystu lávarðar-
ins og verkefnið fékk
heitið „Habbakuk“, en
það nafn hafði Pyke
gefið hugmynd sinni.
I árslok 1942 var
rannsóknarverkefnið
komið í fullan gang og
tveimur mánuðum síð-
ar höfðu skipafram-
leiðendumir J T
Thornycroft og Co
komist áð þeirri niðurstöðu að þrátt
fyrir að verkefnið væri einstaklega
athyglisvert, væm ýmis ljón á veg-
inum.
Gerð vom próf í Kanada, þar sem
ísjaka, sem var einn fimmtugasti
af stærð flugbrautarinnar, var
fleytt á Patricia-vatni í Jasper-þjóð-
garðinum. Var jakinn á tréramma
og með kæliútbúnaði. Á sama tíma
höfðu bandarískir vísindamenn
komist að því að best væri að nota
efni sem þeir nefndu pykrít í höfuð-
ið á Pyke en pykrít var úr tijá-
mauki og ís.
Bretar sáu sér ekki fært að gera
fiugbrautina og leituðu til Banda-
ríkjamanna með hugmynd sína.
Þeir höfðu hins vegar uppi eigin
áætlanir um byggingu hefðbund-
inna stálbrauta og vora undirtektir
litlar. Bretar gáfust því upp á hug-
mynd Pykes í janúar 1944.
Mountbatten
lávarður
ERLENT
GORDON Brown, fjármálaráðherra í skuggaráðuneyti breska Verkamannaflokksins. Reuter
Verkanmimaflokkuriim boð-
ar fjárfestingu og hagvöxt
Blackpool. Reuter.
HÓFSÖM stefna í efnahagsmálum
var kynnt á þingi breska Verka-
mannaflokksins í Blackpooi í gær
og er vonast til, að hún leggi grunn-
inn að sigri flokksins í næstu þing-
kosningum. Leiðtogar flokksins
lögðu um leið áherslu á, að þótt
hann fikraði sig inn á miðjuna í
þessum efnum væri ekki verið að
segja skilið við hugsjónina um þjóð-
félagslegt réttlæti.
„I stað vítahrings efnahagslegra
mistaka, atvinnuleysis og hárra
skatta viljum við stuðla að aukinni
fjárfestingu, hagvexti, bættri
heilsugæslu og annarri opinberri
þjónustu," sagði Gordon Brown,
talsmaður Verkamannaflokksins í
efnahagsmálum og hægri hönd
Tony Blairs, leiðtoga flokksins.
í síðustu viku kynnti Brown áætl-
anir, sem eiga að breyta því áliti,
að flokkurinn sé samnefnari fyrir
óhóflegan íjáraustur til félags- og
velferðarmála, sem síðan sé tekinn
aftur með háum sköttum, einkum á
þá efnameiri. í kosningunum 1992
kaus meðaltekjufólkið íhaldsflokk-
inn af ótta við skattahækkanir kæm-
ist Verkamannaflokkurinn til valda
en Brown vill snúa þessu dæmi við
með því að flokkurinn lýsi yfir, að
aukin útgjöld til velferðarmála verði
að byggja á hagvexti og auknum
þjóðartelq'um. Vonast hann til, að
það verði þá íhaldsflokkurinn, sem
fái á sig skattastimpilinn. Brown
sagði hins vegar, að Verkamanna-
flokkurinn vildi afnema ýmis skatt-
fríðindi hátekjufólksins.
Robin Cook, talsmaður Verka-
mannaflokksins í iðnaðarmálum,
sagði að Verkamannaflokkurinn
myndi stöðva yfirtöku fýrirtækja
sem ekki þjónaði hagsmunum al-
mennings, kæmist hann til valda.
Cook sagði að það væri hlutverk
verðbréfamarkaðarins að byggja
upp iðnfyrirtæki en ekki kaupa upp
hlutabréf í þeim til þess eins að
koma öllum eignum þeirra í verð.
VænÉaitlegÉ
í nýjum
umbúðum:
Sama
góða
súkkulaðikexið
✓
Aður:
Sími641005-6
Sjábu
hlutina
í víbara
samhcngi!
Ný bók um ástir Díönu sögð
ómerkilegur subbuskapur
Meintur elskhugi
sagður vera í
fjárhagskröggum
London. Daily Telegraph. Reuter.
TALSMENN bresku hirðarinnar
sögðu að bók, sem út kom í gær
og á að fjalla um ástir Díönu prins-
essu og fyrrum ofursta í breska
hernum, væri ómerkilegur subbu-
skapur. Lögmenn prinsessunnar
hvöttu almenning til þess að kaupa
ekki bókina og láta þannig í ljós
fyrirlitningu á þeim sem reyndu
að gera sér erfiðleika í hjónabandi
Díönu og Karls prins að féþúfu.
Mikil leynd_ hvfldi yfir útkomu
bókarinnar, Ástfangin prinsessa,
og var talið að útgefendurnir, Blo-
omsbury Press, vildi með þvi koma
í veg fyrir að prinsessan fengi sett
lögbann á útgáfuna. Kom bókin í
verslanir í gær og rann út eins og
heitar lummur.
Höfundur bókarinnar, Anna
Pasternak, sem er frænka Boris
Pasternaks, höfundar sögunnar Dr.
Zhivago, þvertók fyrir það að
gróðahyggja hefði ráðið því að
meintur elsknugi Díönu, James
Hewitt, hefði ákveðið að segja frá
sambandi þeirra. Hefði vakað fyrir
honum að frásögnin, sem öll er í
3. persónu, yrði geðfelld og samúð-
arfull í garð Díönu.
í bókinni er því haldið fram að
ástir hafi tekist með Díönu og
Hewitt árið 1986 og samband
ANNA Pasternak með eintak
af bókinni Ástir prinsessu.
James Hewitt
Kynni tókust með
Díönu og Hewitt er
hann var liðsmaður
riddaraliðssveitar sem
heldur vörð um bresku
konungsfjölskylduna.
Vinátta þeirra óx er
Hewitt fékk það hlut-
verk að kenna Díönu
þeirra hafi staðið fram á árið 1991.
Hafi þau elskast í Kensington-höll-
inni, á sveitarsetri Díönu og Karls
prins í Highgrove, við sundlaugar-
barminn á heimili foreldra Díönu
og á heimili móður Hewitts í De-
von. Lýst er fyrstu ástarfundum
þeirra í Kensington-höllinni og því
haldið fram að upp frá því hafi þau
verið reglulega saman um helgar
sem liðið hafi hjá í „taumlausri
sællífísþoku."
að sitja hest. Hann var
skriðdrekastjóri í Persaflóastríðinu
og hermt er að Díana hafi skrifað
honum mörg bréf þangað. Pastern-
ak söguritari sagðist hafa lagt
trúnað á frásögn Hewitts af ástar-
sambandi þeirra Diönu er hann
sýndi henni bréfin.
í kröggum
Sambandið fór í hundana í mars
er Hewitt, sem er 36 ára, gortaði
af vináttu þeirra í viðtali við Daily
Express í mars sl. Kallaði hann
yfir sig útskúfun úr hemum og
vinir hans og kunningjar sneru við
honum baki. Er hann sagður hafa
átt í miklum fjárhagskröggum og
leitt er að því getum að það ásamt
útskúfuninni hafi orðið til þess að
hann ákvað að segja allt af létta
um samband þeirra Díönu og
græða á öllu saman. Fyrrum kunn-
ingi hans, þingmaðurinn Sir Nichol-
as Bonsor, sagði I gær að Hewitt
væri „mesti drullusokkur“ sem
hann hefði kynnst á lífsleiðinni.
Breskir fjölmiðlar vom undirlagð-
ir af frásögnum um bókarútkomuna
í gær og fyrradag. Þar var sagt að
Hewitt gæti fengið allt að þijár
milljónir punda, eða ríflega 320
milljónir króna, í sinn hlut. Hann
fer huldu höfði en blöðin sögðust
hafa heimildir fyrir því að hann
dveldist á búgarði í Argentínu.
Vinstriblað hneykslað
Sérfræðingar í stjórnlagarétti
sögðu að fræðilega væri hægt að
saka Díönu og Hewitt um landráð
reyndust fullyrðingar hans réttar.
Málshöfðun af því tagi væri þó ólík-
leg. Viðurlög við landráðum í Bret-
landi er dauðarefsing.
Bresk léttmetisblöð snerust Dí-
önu til varnar. Jafnvel vinstri-
mannablaðið Daily Mirror, sem
fjandskapast hefur út í drottningar-
hirðina, sagði: „Hann er viður-
styggilegt kvikindi. Það væri of vel
sloppið að hýða hann með hesta-
svipu.“
i