Morgunblaðið - 04.10.1994, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 04.10.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 19 Myndir teknar af flaki Estonia í Eystrasalti Ómsjár sýna stóran hlut nærri flakinu Talið að um stafnhlera ferjunnar sé að ræða Stokkhólmi, Turku. Reuter. NEFND sem vinnur að rannsókn á flaki feijunnar Estonia, sagði í gær að stefnishluti skipsins hefði losnað og að við það hefði sjór fossað inn í ferjuna. Þetta komi m.a. fram á myndbandi sem tekið var af skipinu. Leitarskip sneri í gær til hafnar í Finnlandi með um 15 klukkustunda myndbandsupptökur af feijunni Estonia, þar sem hún liggur á um 70 metra dýpi. Þá sýna ómsjármyndir af flakinu stóran hlut sem er fáein- um metrum þar frá. Giskað er á að það sé stafnhlutinn. Að sögn þeirra sem rannsaka flak Estonia tókust myndatökumar af flakinu vel. Omsjá var notuð til að staðsetja flakið og þá kom einnig í ljós stór hlutur nærri því. Sögðust rannsóknarmenn sem kvikmynduðu flakið ekki hafa séð hann. Einungis hefði verið hægt að mynda fáeina fermetra í einu og ekki hefði verið farið langt frá flakinu. Sænskir rannsóknarmenn telja að stefnis- hlutinn hafi fallið af skipinu. Boðin bárust seint Finnar viðurkenndu í gær að um hálf klukkustund hefði liðið frá því að neyðarkall barst frá Estonia til Finnlands þar til fregnir af því bárust til sænsku strandgæslunnar. Segist formaður rannsóknarnefnd- ar slyssins ekki vita hver ástæða þessa sé. Gallar í fleiri ferjum Svíar, Finnar, Danir og Norð- menn hafa fyrirskipað rannsókn á stafnhlerum feija sinna í kjölfar slyssins og hafa þegar komið í ljós minni háttar gallar á þeim búnaði á mörgum skipanna. Verður skipt um læsingar á mörgum skipanna, svo að þeim verði læst með hand- afli. Mjög hefur verið gagnrýnt að ein ferjanná sem sem tók þátt í björgunaraðgerðunum í síðustu viku, hélt áfram siglingum þrátt fyrir að stefni hennar væri skemmt. Þá var haft eftir Stena Sealink- útgerðinni að ekjufeija hennar sem fór á rnilli Svíþjóðar og Bretlands í síðasta mánuði, hefði siglt þá leið þrátt fyrir að áhöfn skipsins vissi að læsing á stafnhlera hefði klippst í sundur. Feijan hefur nú verið tekin til skoðunar. Talið er að það taki vikur, jafn- vel mánuði að bera kennsl. á lík þeirra farþega sem hafa fundist, um 100 talsins. Nú þegar hefur tekist að bera kennsl á nokkur lík er ólíklegt er talið að það takist með öll þeirra. Um eitthundrað manns vinna við að bera sarnan líkin og upplýsingar um þá í.ém saknað er. Islensk kona tekur sæti á sænska þinginu Kosningar í Slóvakíu „Var alveg óvið- búin þessu“ „ÉG ER komin til Stokkhólms en sálin er enn heima á Gotlandi," sagði Ingibjörg Sig- urðardóttir, sem tekur í dag sæti á sænska þinginu. Ingibjörg var fyrsti varamaður Jafn- aðarmanna á Gotlandi og tekur sæti á þingi þar sem annar þing- manna flokksins á eynni er talinn af en hann var farþegi um borð í ferjunni Estoniu, sem fórst á Eystrasalti í síðustu viku. Ingibjörg fer inn á þing sem varamaður en hún segir að búist sé við að þeir sem enn er saknað af Estoniu verði formlega lýstir látnir innan mánaðar vegna trygginga ofl. Þá rnuni hún að öllum líkindum verða annar þingmaður Got- lands á þingi, í stað Klas Görans Larsons. „Þetta er erfitt núna en maður verður samt að halda áfram. Ég var ekki viðbúin þessu og það tekur því tíma áð setja sig inn í hlutina. Nýir þingmenn verða settir á námskeið til að kynna þeim starfsað- stöðuna og svo kemur fljótlegaí ljós við hvaða málaflokka ég mun starfa. Ég óskaði eftir því að vinna að málum atvinnulausra en það er óvíst að ég fái þá ósk uppfýllta,“ segir Ingibjörg. Fjöl- skylda hennar verður áfram búsett á Gotlandi og vonast Ingibjörg til þess að geta verið heima allar helg- ar en í Stokkhólmi í miðri viku. Ingibjörg Sigurðardóttir Litlar líkur á sterkri sljórn Bratislava. Reuter, The Daily Telegfraph. VLADÍMÍR Meciar, fyrrverandi forsætisráðherra Slóvakíu, hóf í gær viðræður um myndun nýrrar stjórnar eftir að flokkur hans vann stórsigur í þingkosningum á föstu- dag og laugardag. Takist Meciar að mynda nýja stjórn þykir ólíklegt að hún verði langlíf. Flokkur Meciars, Hreyfing fyrir lýðræðislegri Slóvakíu (HZDS), fékk 35% atkvæða í kosningunum, 25 prósentustigum meira en næst- stærsti flokkurinn. Sameiginlegt val, kosningabandalag undir for- ystu kommúnistaflokksins fyrrver- andi, Flokks lýðræðislegra vinstri- manna, fékk aðeins 10,4%, en hafði 18% fylgi samkvæmt síðustu skoð- anakönnunum. Ungverski borgara- flokkurinn, flokkur ungverska minnihlutans, fékk 10,2%, en ólík- legt er að hann verði með í næstu stjórn. Reuter INDVERJI sem grunur leikur á að hafi sýkst af plágunni biður þess að vera tekinn inn á sjúkrahús í Nýju Delhí. Plágan á Indlandi talin vera í rénun N>ju Delhí, Surat. Reuter, The Daily Telegraph. PLÁGAN á Indlandi virtist í rén- un í gær og sjúkrahús leyfðu yfir 200 sjúklingum að fara heim úr sóttkví.. Indverskir embættismenn sögðu í gær að enginn hefði lát- ist af völdum plágunnar siðasta sólarhringinn og færri kæmu á sjúkrahús með einkenni hennar, háan hita, hósta og bijóstverki. Indversk heilbrigðisyfirvöld segja að 50 manns hafi látist af völdum plágunnar, 48 í borginni Surat í vesturhluta landsins og tveir í Nýju Delhí. Síðdegis á sunnudag voru 4.059 manns á sjúkrahúsum með einkenni plágunnar. Rannsókn á hluta af 500 sjúklingum, sem eru í sóttkví í Nýju Delhí, leiddi hins vegar í ljós að 90% sjúklinganna höfðu ekki smitast af plágunni, heldur voru með algenga kvilla eins og flensu og lungnakvef. Jitendra Tuli, talsmaður Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar í Nýju Delhí, sagði að ind- versk heilbrigðisyfirvöld hefðu hafið vel skipulagða herferð til að stemma stigu við útbreiðslu plágunnar. „Á fimmtudag eða föstudag ættum við að vita fyrir víst hvort tekist hafi að halda henni í skefjum,“ sagði hann. Læknar í Surat gagnrýndu hins vegar yfirvöld og sögðu þau reyna að gera lítið úr útbreiðslu plágunnar vegna efnahagslegra áhrifa hennar, til að mynda á ferðaþjónustuna. Læknarnir sögðu að þeim hefði verið hótað uppsögnum ef þeir veittu fjöl- miðlum upplýsingar um pláguna án heimildar. Þeir telja að allt að 150 manns hafi látist af völd- um plágunnar í Surat, en ekki 48 eins og yfirvöldin segja. Olíunni dælt úr Bliicher Dröbak. Reuter. OLÍUBORPALLUR hefur verið fluttur inn í Oslóarfjörð og er von- ast til, að með honum verði unnt að koma í veg fyrir olíumengun frá þýska herskipinu Blucher, sem sökkt var í síðasta stríði. Pallinum hefur verið komið fyrir ofan skipið þar sem það liggur á hvolfi um 30 km fyrir sunnan Ósló. Norðmenn sökktu Bliicher, sem var 12.200 tonn og eitt af stærstu her- skipum Hitlers, þegar Þjóðverjar réðust inn í Noreg og fórust með því 600 manns. Liggur flakið á 80 metra dýpi og er olían farin að leka úr geymunum, um 50 lítrar á dag. Opið virka daga frá kl. 14:00 - 22:00 laugardaga og sunnudaga frá kl. 14:00 -19:00. Við hvetjum sjálfstæðisfólk til þess að líta inn, kynna sér störf og viðhorf Sólveigar og taka með sér kynningarefni til frekari dreifingar. Með kjöri Sólveigar í 3ja sæti stuðlum við að sterkum D-lista í vor. Skjaldborg stuðningsmanna SÓLVEIGAR PÉTURSDÓTTUR er að V egmúla 2 S. 881380 og 881382 ■Nýtt! ABT - BAÐÞILJUR ■■■■■■■■■■■■■■■■Dj 'k&'kik'k Stórglæsilegar amerískar flísa- baðþiljur í miklu úrvali á hreint ótrúlega lágu verði! Stærð: 122 x 244 cm Komið og skoðið í sýningarsal okkar í Ármúla 29. 9 Þ. Poigrímsson & Co., Ármúla 29, 108 Rvík., s. 91-38640 - 91-686100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.