Morgunblaðið - 04.10.1994, Side 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
A TVINNUAUGL YSINGAR
Heimilisaðstoð
Kona óskast til að gæta barna og til heimilis-
starfa. Óreglulegur vinnutími.
Upplýsingar í síma 614336 eftir kl. 17.00.
&
Mosfellsbær
Leikskólafulltrúi
óskast til starfa hjá Mosfellsbæ. Um er að
ræða 50% starf. Leikskólafulltrúi mun hafa
yfirumsjón og eftirlit með faglegu starfi leik-
skóla.
Umsækjandi þarf að hafa menntun leikskóla-
kennara með framhaldsmenntun á sviði
stjórnunar, svo og reynslu af stjórnunarstörf-
um. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf hið fyrsta. Laun eru samkvaemt kjara-
samningi Leikskólakennarafélags íslands og
Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skila á bæjarskrifstofu
Mosfellsbæjar, Hlégarði, fyrir 15. október nk.
Löglærður fulltrúi
Staða löglærðs fulltrúa við embættið er laus
til umsóknar.
Upplýsingar gefur undirritaður á skrifstofu-
tíma í síma 97-81363.
Sýslumaðurinn á Höfn,
Páll Björnsson.
^/ýf'
TÖLVARI
HOF sf., sem er eignarhaldsfélag Hag-
kaups, IKEA o.fl., óskar eftir að ráða tölv-
ara til starfa í tölvudeild fyrirtækisins.
STARFSSVIÐ tölvara er að annast dagleg-
an rekstur tölvukerfa HAGKAUPS og
veita aðstoð til notenda. Meginmarkmið
er að rekstur tölvukerfa gangi sem liðleg-
ast fyrir sig.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur
séu menntaðir á sviði rafeindavirkjunar
og/«ða kerfisfræði, hafi haldbæra reynslu
og þekkingu á eftirfarandi; netstýrikerfi
Lan Manager, Unix (TCP/IP,-DNS) og not-
endahugbúnaði; Word Exel. Áhersla er
lögð á góða hæfileika í mannlegum sam-
skiptum, útsjónarsemi, skipulagsgáfu auk
dugnaðar og eljusemi í starfi.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með
7. október nk. Ráðning verður fljótlega.
Vínsamlega athugið að umsóknar-
eyðublöð og allar nánari upplýsiugar
eru eingöngu veittar hjá STRA Starfs-
ráðningum hf. Skrifstofan er ópin
alla virka daga frá kl. 10.00-16.00, en
viðtalstímar eru frá kl. 10.00-13.00.
.1
ST
I.
Starfsráðningar hf
Suðurlandsbraut 30 ■ 5. hæð ■ 108 Reykjavík
Sími: 88 30 31 Fax: 88 30 10
Cuðný Harðardóttir
AUGL YSINGAR
Fasteignasala
Fasteignasala í Reykjavík óskar eftir að ráða
til starfa lögmann eða löggiltan fasteigna-
sala. Um er að ræða hlutastarf eftir nánara
samkomulagi.
Áhugasamir leggi inn umsóknir á afgreiðslu
Mbl. fyrir 7. október nk. merktar: „J - 18012“.
Við opnum nýtt og glæsilegt bakarí
í Seljahverfi íoktóber. Vilt þú
vinna með okkur?
Við leitum að röskum, snyrtilegum og hress-
um starfskröftum í vaktavinnu.
Umsóknum óskast skilað á afgreiðslu Mbl.
fyrir 8. október merktum: „Bakarí-11916“.
Bakaríið Austurveri
TIL SÖLU
IMotaðar skemmur til sölu!
Við getum nú boðið notaðar stálgrindar-
skemmur á mjög hagstæðu verði. Allar eru
klæddar sterkum PVC-dúk, með gráum hlið-
um og hvítum himni. Stórar dyr á öðrum gafli.
H-hall: Vegghæð 3 metrar, hæð í mæni 4,5
metrar, dyr 3x3 metrar.
Stærð 9x12 metrar kr. 551.000 + vsk.
Stærð 9x18 metrar kr. 686.000 + vsk.
Stærð 9x24 metrar kr. 789.000 + vsk.
A-hall: Braggalöguð - hæð í mæni 4,15 metrar.
Stærð 8,7x30 metrar kr. 987.000 + vsk.
Greiðslukjör koma til greina.
Tjaldaleiga Kolaportsins,
Garðastræti 6, sími 625030.
Útgáfufyrirtæki
Til sölu er lítið rótgróið útgáfufyrirtæki, sem
hefur í gegnum árin gengið vel. Velta fyrir-
tækisins getur verið 10-20 milljónir eftir
dugnaði og framtaki þess, sem á og rekur.
Hagnaður + laun eiganda geta verið 4-8
milljónir eftir dugnaði og framtaki eiganda.
Fyrirtækið þarf 25-30 fm lagerhúsnæði og
eitt skrifstofuherbergi fyrir starfsemi sína.
Söluverð fyrirtækisins með lager og við-
skiptavild er 6,9 millj. og verður það aðeins
selt áreiðanlegum og traustum einstak-
lingi/um. Möguleiki er á að láta bifreið eða
íbúð upp í hluta söluverðs. Einnig kemur til
greina að lána söluverð til 4-5 ára gegn
góðum tryggingum.
A móti öllum fyrirspurnum verður tekið hjá
Ólafi Gústafssyni hrl., Kringlunni 7, í síma
888666 á skrifstofutíma.
MVNDUSTRSKÓUNN
í HflFNABFIRÐI
Innritun fer fram í síma 52440 og á skrif-
stofu skólans að Strandgötu 50 frá kl. 13-17.
Á kvöldin í síma 654031.
í boði verða eftirtalin námskeið:
Fjöltækninámskeið fyrir börn, teiknun og
málun fyrir unglinga.
Teiknun (model), málun, vatnslitamálun.
A TVINNUHÚSNÆÐI
Bjart og gott húsnæði
Til leigu í Bíldshöfða 10 1.050 m2 á annarri
hæð. Húsnæðið er að mestu einn salur.
Næg bílastæði.
Uppl. í síma 32233. Bílsími: 985-31090.
Áskorun
Kolaportið hf. vill hér með vekja athygli á
því, að í vörslum þess er ýmis óskilavarning-
ur, sem enginn eigandi hefur fundist að. -
Vegna þessa er þeirri áskorun hér með beint
til allra þeirra, sem telja sig eiga vörur í
geymslu hjá Kolaportinu, sem þeir hafa ekki
verið að selja undanfarnar helgar, að hafa
samband sem fyrst við skrifstofu Kolaports-
ins í síma 625030 og ná í vörur sínar fyrir
1. nóvember 1994. Eftir þann tíma áskilur
Kolaportið sér allan rétt til að selja slíkar
vörur fyrir áföllnum kostnaði.
KOLA PORTIÐ
Mé?n KaÐStOQr
Húseigendur
húsfélög
verkkaupar
Samtöknm iðnaðarins hafa í sumar borist óvenju
margar kvartanir vegna óprúttinna
viðskiptahátta verktaka sem hafa hvorki
fagréttindi né fagþekkingu, bjóða nótulaus
viðskipti og leggja ekki fram verklýsingu eða
geraverksamning. Aðgefnutilefni viljaSamtök
iðnaðarins leggja áherslu á eftirfarandi:
■ Skiptið við fagmann. Samkvæmt
iðnlöggjöfinni skulu verktakar í löggiltum
iðngreinum hafa meistararéttindi.
* Forðist ólöglega þjónustu. Nótulaus
viðskipti eru ólögleg og gera kaupanda verks eða
þjónustu réttlausan gagnvart verktaka.
* Gerið ráð fyrir endurgreiðslu virðisauka-
skatts. Virðisaukaskattur af vinnu við
nýbyggingar, endurbætur og viðgerðir á
íbúðarhúsnæði fæst endurgreiddur hjá
skattstjórum. Eyðublöð þess efnis fást hjá
skattstjóra og á skrifstofu Samtaka iðnaðarins
sem jafnframt veita aðstoð við útfyllingu.
* Girðið fyrir hugsanlegan ágreining við
uppgjör. Mikilvægt er að fá verklýsingu með
tilboði og gera verksamning, að öðrum kosti
hefur kaupandi ekkert í höndunum yfir það sem
hann er að kaupa. Stöðluð verksamningsform
fást á skrifstofu Samtaka iðnaðarins.
Samtök iðnaðarins ráðleggja fólki að leita
upplýsinga um verktaka áður en
samningur er gerður. Hjá Samtökum
iðnaðarins og meistarafélögum fást
upplýsingar um hvaða meistarar og
verktakar eru félagsbundnir.
SKIPTIÐ
AÐEINS VIÐ
FAGLEGA VERKTAKA!
©)
SAMTÖK
IÐNAÐARINS