Morgunblaðið - 04.10.1994, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 47
FÓLK í FRÉTTUM
SJÓNPÍPAN var mjög vinsæl meðal unga fólksins.
f
i. mm
Þröngt
mega sátt-
ir sitja
►ÞRÍR kafbátkr úr þýska sjó-
hernum heimsóttu íslenska
landhelgi á dögunum og var
gestum og gangandi þá boðið
að skoða tvo þeirra. Þar fékk
fólk að kynnast því að þröngt
mega sáttir sitja, alltént um
borð í kafbáti. Sem dæmi um
það má nefna að tveir áhafnar-
meðlimir mega deila hverju
rúmi og rúmunum er breytt í
bekki á matmálstímum. Tuttugu
og þrír eru í hverri áhöfn og
eina næðið sem fæst um borð
er á salerninu. Nokkur hundruð
manns nýttu sér tækifærið og
skoðuðu kafbátana.
DAVÍÐ í eldhúsinu. AÐSTAÐAN skoðuð.
Ættarmót Miðdalsættar
ÆTTARMÓT Miðdalsættar var
haldið laugardaginn 24. september
í Hlégarði í Mosfellsbæ, þar sem á
fimmta hundrað manns komu sam-
an. í kaffisamsæti sem þar fór fram
söng barnakór ættarinnar Maí-
stjörnuna og Grímur Norðdahl
bóndi í Úlfarsfelli flutti Vigdisi
Finnbogadóttur, forseta íslands,
frumsamið ljóð en hún er af Mið-
dalsætt. Henni var einnig færður
fimm arma kertastjaki að gjöf. Um
kvöldið bauð Vigdís síðan eldri kyn-
slóð ættarinnar heim að Bessastöð-
um og á sunnudeginum bauð hún
börnunum til sín sem kunnu vel að
meta tækifærið til að skoða Bessa-
staði.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞRJÁR kynslóðir á ættarmótinu, fremri röð frá vinstri: Guðrún
Eggertsdóttir Norðdal, Sara Dögg Traustadóttir, Úlfur Örn
Guðrúnarson. Aftari röð frá vinstri: Auður Valdís Guðmunds-
dóttir og Lydia Guðrún.
BÖRNIN syngja fyrir f orsetann á Bessastöðum.
JOLA
‘PORTIO*
alla virka daga
Jólaportið
- jólamarkaöur
alla virka daga
í husi Kolaportsins
frá 2.-23. desember
í desember opnum viö glæsilegan
jólamarkaö í hinu nýja markaðshúsi
Kolaportsins viö Geirsgötu.
• Opnunartími veröur kl. 14-19,
mánudaga til föstudaga
og kl 14-22 á Þorláksmessu.
• Fjölbreyttar uppákomur veröa alla
dagana aö ógleymdum jólasveinunum
og sérstökum jólaleik.
• Umfangsmikil og öflug kynning í
dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi.
• Rúmgóö aöstaöa (2500 fermetrar),
notaleg kaffitería og næg bílastæði.
Ahugasamir seljendur ATH!
• Hagstæð leigugjöld á söluaðstööu -
aöeins 29.000.- kr.
fyrir allt tímabilið (án vsk).
Skráning og upplýsingar
í síma 625030!
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
- kjarni málsim!
AUTJÚMN COLOURS!
HAUSTLITIR!