Morgunblaðið - 04.10.1994, Side 50

Morgunblaðið - 04.10.1994, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MIÐAVERÐ KR. 500 FYRIR BÖRN INNAN 12ÁRA. Stórmyndin ÚLFUR (Woif) DÝRIÐ GENGUR LAUST. Vald án sektarkenndar. Ást án skilyrða. Það er gott að vera ... úlfur! Jack Nicholson og Michelle Pfeiffer eru mögnuð I þessum nýjasta spennutrylli Mike Nichols (Working Girl, The Graduate). Önnur hlutverk: James Spader, Kate Nelligan, Christopher Plummer og Richard Jenkins. „Úlfmaðurinn endurvakinn og settur í fyrsta flokks umbúðir Hollywood-snillinga. Sjálfsagt stendur varúlfsgoðsögnin í mörgum, þar fyrir utan er Úlfur afar vönduð í aila staði og Nicholson í toppformi". ★★★ S.V. Mbl. ★★★ Eintak ★★★ Ó.T. Rás2 Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.20. B.i. 16 ára. GULLÆÐIÐ (City Slickers II) Wliðaverð 400 kr. Sýnd kl. 11. AMANDA-VERÐLAUNIN 1994 BESTA MYND NORÐURLANDA SÝND KL. 5, 7 og 9. ★ ★★★★ STJÖRNUBÍÓLÍNAN ★★★★★ Sími 991065. Verð kr. 39,90 mínútan. „Flóttinn frá Absolom"-getraun. 70 vinningshafar verða dregnir út miðvikudaginn 5. okt. og fá miða á forsýningu myndarinnar „Flóttinn frá Absolom" fimmtudagskvöldið 6. okt. Einnig fá 3 heppnir vinningshafar mánaðarkort í líkamsrækt hjá World Class. llr dagbók lögreglunnar í Reykjavík 190 ökumenn fá mál skráð í ökuferilsskrá Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson KALLA þurfti til tækjabifreið slökkviliðs á sunnudagskvöld svo hægt væri að ná ökumanni út úr bifreið, sem ekið hafði verið aftan á strætisvagn á gatnamótum Seljaskóga og Engja- sels. Ekki urðu teljandi meiðsl á fólki. Á TÍMABILINU 30. september til 3. október eru 559 færslur í dagbók lögreglunnar. Hlutfalls- lega flest málin eru tengd ölvun eða áfengisneyslu með einum eða öðrum hætti. Um heimilisófrið var að ræða í 3 tilvikum, 32 háv- aðatilvik, 9 innbrot, 11 þjófnaðir, 11 líkamsmeiðingar, 12 skemmd- arverk, 10 rúðubrot og 2 mál vegna bruggunar. Alls voru 45 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og um eitt hundrað öðrum var gefín áminn- ing vegna hraðaksturs. Ástæða þótti jafnframt til að kæra 47 aðra ökumenn fyrir ýmis önnur umferðarlagabrot. Allir þessir 190 ökumenn fá mál sín skráð í ökuferilsskrá og ekki er ólíklegt að athuga þurfi feril einhverra þeirra nánar. Einn þeirra var kærður fyrir að aka á 80 km hraða á Miklubraut, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km, á laugardagsmorgun. Aðeins 13 mínútum seinna var hann kærður fyrir að aka á móti rauðu ljósi á gatnamótum Háaleitis- brautar og Kringlumýrarbrautar á 95 km hraða. Þar er einnig leyfilegur hámarkshraði 60 km. 26 árekstrar og 9 umferðarslys Á tímabilinu var tilkynnt um 26 árekstra og 9 umferðarslys til lögreglu. Á föstudag missti öku- maður vald á bifreið sinni á Laugavegi við Mjölnisholt með þeim afieiðingum að bifreiðin lenti á umferðarmerki og valt. Öku- maðurinn var fluttur á slysadeild. Síðdegis meiddist farþegi lítils háttar eftir árekstur tveggja bif- reiða í Skeifunni og flytja þurfti bam á slysadeild eftir að það hafði orðið fýrir reiðhjóli á Suðurlands- braut. Þá var farþega af bifhjóli ekið á slysadeild eftir að þijú ung- menni höfðu fallið af því á Dælu- stöðvarvegi. Á föstudagskvöld fór farþegi á slysadeild eftir árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Stekkjarbakka og Breiðholts- brautar. Tveir farþegar voru flutt- ir á slysadeild eftir árekstur tveggja bifreiða á Vesturlandavegi við Nesti á sunnudag. Síðdegis á sunnudag fann ökumaður til eymsla eftir árekstur tveggja bif- reiða á Miklubraut við Lönguhlíð. í öllum tilvikum virtist vera um minni háttar meiðsl að ræða. Sýnum fyrirhyggju Á næstu dögum mega öku- menn búast við hálku eða ísingu á götum borgarinnar. Reynsla fyrri ára er sú að fyrsta hálkudag- inn reyni ökumenn að fara var- lega en þrátt fyrir það verða fjöl- mörg óhöpp. Koma vetrarins er óumflýjanleg. Það er. einungis spurning hvenær. Nauðsynlegt er að ökumenn búi ökutæki sín miðað við aðstæður og hugi sér- staklega að vetrarhjólbörðunum. Reynslan er að þann dag, sem fyrsta hálkan myndast á götunum eða sjá má far í fyrsta snjóinn þyrpist fólk með bifreiðar sínar á hjólbarðaverkstæði með tilheyr- andi töfum og óþægindum. Allir koma á sama staðinn á sama tíma. Af hveiju ekki að sýna fyr- irhyggju og ganga í þau verk á meðan tími er til? Unglingar með skotvopn Á föstudagskvöld var bifreið stolið frá sendli, sem yfirgefið hafði bifreiðina með vélina í gangi. Bifreiðin fannst yfirgefin á laugardagsmorgun á Vatns- endavegi. Aðfaranótt laugardags veittist maður að konu á gangi í Álfta- mýri. Maðurinn náði af henni veski og hljóp síðan á brott. Eng- in verðmæti voru í veskinu. Aðfaranótt sunnudags voru tveir drengir handteknir eftir inn- brotstilraun í söluturn við Gnoð- arvog. Þeir hafa áður komið við sögu slíkra mála hjá lögreglu. Á laugardag var tilkynnt um að skothvellir hefðu heyrst í Sundunum. Þegar lögreglan kom á vettvang voru tveir unglingar, 14 ára ög 16 ára, með skotvopn undir höndum. Hafði sá yngri hleypt af tveimur haglaskotum á gosflöskur. Lagt var hald á hagla- byssuna og riffil. Olvaðir unglingar Talsvert bar á unglingum í miðborginni á föstudags- og laug- ardagskvöld. Fyrra kvöldið og um nóttina voru 17 unglingar færðir í unglingaathvarf íþrótta- ogtóm- stundaráðs. Haft var samband við foreldra þeirra og þeim gerð grein fyrir stöðu mála. Afrit af skýrslum um einstök atvik verða send barnaverndaryfirvöldum. Á laugardagsnótt þurfti lögreglan að hafa afskipti af 10 einstakling- um undir 16 ára aldri. I flestum tilvikum var um drukkna ungl- inga að ræða. Næsta sameiginlega umferðar- átak lögreglunnar á Suðvestur- landi verður dagana 10. til 17. október nk. Að gefnu tilefni verð- ur athyglinni að þessu sinni sér- staklega beint að ungum öku- mönnum en tölulegar upplýsingar sýna að þeir eiga hlutdeild í hlut- fallslega mörgum umferðaróhöpp- um og -slysum á hveiju ári. Mark- miðið er að fá unga ökumenn til þess að gera sitt til að fækka megi slysum í umferðinni. Bruggun upprætt Tvö bruggmál komu upp um helgina. Á fyrstu níu mánuðum ársins hafði lögreglan í Reykjavík haft afskipti af 26 framleiðslu- málum ólöglegs áfengis á starfs- svæði sínu. Á sama tímabili árið 1993 voru þeir 21 en 6 árið 1992. Ástæðan er ekki endilega sú að framleiðslustöðum hafi fjölgað í umdæminu, heldur hefur mark- visst verið unnið að því að hafa uppi á þeim og uppræta. >/úfcJ;*i^/Lif/;i | I 1 7 Frumsýnd í Regnboganum og Borgarbíói, Akureyri á föstud. Forsýning á mibvikudag MORE 10 rtísklingar k 1.110,- l \# BGÐEIND Austurströnd 12 Sími 612061 • Fax 612081 Sjábu hlutina í víbara samhcngi!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.