Morgunblaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR UIMGLINGA - sagði HaraldurGuðmundsson úrTBR, unglingameistari í badminton Gaman að byvja afluraðspila eflir sumarfrí „ÉG hef unnið Orra áður og hann mig. Þetta var ágætur leikur hjá okkur og góður miðað við hvað lítið er liðið af tímabilinu er maður í ágætri þjálfun. Þetta er ellefta árið mitt í badminton og ég tími ekki að hætta þó mikið sé að gera í skólanum, því þetta er svo skemmtilegt. Svo er alltaf gaman að byrja aftur eftir sum- arfrí," sagði Haraldur Guðmundsson sem um fyrri helgi varð Unglingameistari pilta í Reykjavík með sigri á Orra Erni Árnasyni. Umrætt mót var það fyrsta í vet.ur en flestir bytjuðu æf- ingar fyrir einum mánuði. „Sjálf- sagt væri betra að grípa í spaðann yfir sumartímann og einu sinni í viku væri nóg til að halda sér við. Ég stefni að því að komast í mitt besta form í nóvember og stefni svo að því að komast í undir átján ára liðið sem fer á Evrópumótið," sagði Haraldur sem eins og aðrir spilarar XBR æfa undir stjórn Jónasar Hu- ang sem einnig þjálfar landsliðið. Jónas fæddist í Kína en hefur þjálf- að hér á landi undanfarin ár og er íslenskur ríkisborgari. í fyrra voru þessir hópar með sérþjálfara en Jónas sér nú einn um alla þjálfun. Mikið af mistökum „Þetta var barningur, við vorum ekki nógu öruggar og gerðum mik- ið af mistökum,“ sagði Margrét Dan Þórisdóttir úr TBR sem sigr- aði bæði í einliðaleik stúlknaflokks- ÚRSLIT Unglingameistaramót Reykjavíkur Úrslitaleikir Piltar og stúlkur: Haraldur Gúðmundsson - Orri Öm Áma- son 15:11, 15:13. Margrét Dan Þórisdóttir - Magnea Magn- úsdóttir 11:4, 11:5. Bjöm Jónsson/Sveinn Sölvason - Orri Öm Ámason/Haraldur Guðmundsson 20:14 og 18:14. Erla Hafsteinsd./Magnea Magnúsdóttir - Áslaug Hinriksd./Ágústa Arnard. 15:5, 15:6. Orri Árnas./Margrét Dan - Sveinn Sölv- -as./Erla B. Hafsteinsd. 18:13, 7:15 og 18:16. Drengir og telpur Magnús Ingi Helgason - Pálmi Sigurðs- son 15:5 og 15:8. Ása Antonsdóttir - Eliy Ingvarsdóttir 11:6, 9:11 og 11:7. Magnús I. Helgason/Pálmi Sigurðsson - Hallgrímur Arnarson/Ingóffur Ingólfsson 15:6, 15:3. Magnea Gunnarsd./Magnús I. Helgason - Hrand Atlad./Pálmi Sigurðsson 15:9, 15:6 Sveinar og meyjur Helgi Jóhannesson - Elvar Guðjónsson 11:2 og 11:4. Katrin Atladóttir - Aldís Pálsdóttir 11:2 ins og í tvenndarleik. Tvenndar- leikurinn var reyndar æsispennandi og stóð yfir í klukkutíma áður en að Margrét og Orri Árnason náðu að hala inn síðasta stigið í oddalot- unni gegn Sveini Sölvasyni og Erlu B. Hafsteinsdóttur. Erla tók undir það að þær væru ekki komnir í sitt besta form. „Við höfum æft í einn mánuð og það er ekki nóg. Við vorum'óörugg og uppgjafirnar voru slakar hjá okkur.“ KR-strákarnir urðu Haustmeistarar í fjórða fiokki A-liða með sigri á Val í úrslitaleik. Haustmótinu að Ijúka KIMATTSPYRNUVERTÍÐINNI hjá yngri flokkum er nú senn að Ijúka en þegar er lokið keppni i flestum flokkum á Haustmótinu í knattspyrnu en mótið er opið Reykjavíkurfélög- unum. Fram sigraði Leikni 1:0 í úrslita- leik A-liða í sjötta flokki drengja. Pjölnir sigraði hjá B-liðum með sigri á KR í úrslitaleik, Fylkir sigraði Fjölni 2:1 hjá C-liðum og ÍR-strákarnir sigruðu hjá D-liðum með því að sigra Fjölni eftir víta- spymukeppni. Víkingur sigraði í A-liði 5. flokks en liðið bar sigurorð af Fram í úr- slitaleik. KR sigraði bæði hjá B- og C-liðum þessa aldursflokks og lagði Þrótt að velli í báðum úrslita- leikjunum. KR varð sigurvegari A-liða í fjórða flokki, liðið lagði Val að velli 2:1 eftir framlengdan leik og Fylk- ir sigraði Fjölni í leik B-liðanna. Haustmótinu er lokið í þriðja flokki kvenna en ekki tókst að afla upplýsinga um úrslit. Keppni í,öðr- um flokkum lýkur á næstu dögum. Morgunblaðið/Frosti SIGURVEGARAR á Unglingameistaramóti Reykjavíkur sem haldið var um fyrri helgi. KNATTSPYRNA Þrír marka- kóngar frá Blönduósi TÍU drengir og tvær stúlkur fengu viðurkenningu frá Knatt- spyrnusambandinu fyrir góða knatttækni en keppni i knatt- þrautum sem nefnt hefur verið Markakóngur KSÍ hefur staðið yfir í allt sumar og notið mikilla vinsælda, sérstaklega á lands- byggðinni. Athygli vekur að af þeim tólf einstaklingum sem hlutu viðurkenningu komu þrír drengir frá Blönduósi en þeir leika með Hvöt. Þau tólf sem fyrir valinu urðu sýndu listir sínar í leikhléi á landsleik íslands og Svíþjóðar á Laugardalsvelli fyrir skömmu, en þau eru: Hjalti Jóhannsson, Kristó- fer Þór Pálsson og Finnur Karl Vignisson, allir frá Hvöt á Blöndu- ósi, Jóhann Sveinbjörnsson frá Hugin á Seyðisfirði, Pálmi Pálma- son Völsungi Húsavík, Grétar Rafn Steinsson KS Siglufirði, Guðlaugur Andri Axelsson Skallagrími Borg- arnesi, Þorsteinn Gestsson Tinda- stól á Sauðárkróki, Hulda Harðar- dóttir ÍR Reykjavík, Anna Linda Ágústsdóttir IR, Helgi Ólafsson og Ásgeir Jóhannsson úr Leikni Reykjavík. Drengjalandslið næsta árs undirbúið: Úrlökumót haldið í Grindavík Morgunblaðið/Frímanna Ólafsson HVER VEIT nema hér séu á ferðinni framtíðarlandsliðsmenn. Talið frá vinstri, Jóhann Aðalgeirsson, Pálmar Guðmundsson og Jón Guðmundsson, frá Grindavík. og 11:3. Helgi Jóhannesson/Elvar Guðjónsson - Gunnlaugur Sölvason/Agnar Hinriksson 15:6, 15:1. Katrín Atlad./Aldís Pálsd. - Ágústa Niels- eij/Eva Petersen 15:4 og 15:9. Hnokkar og hnátur Birgir Haraldsson - Baldur Gunnarsson 11:6 og 11:6. Birgir Haraldss./Leifur Sigurðsson - Sturla Friðrikss./Hilmar Foss 15:0, 15:0. Birgir Haraldss./Ragna Ingólfsd. - Bald- ur Gunnarss./Tinna Jlelgad. 15:8, 15:9. Tátur Ragna Ingólfsdóttir - Hrafnhildur Ás- geirsdóttir 11:7 og 12:9. Ragna Ingólfsd./Hrafnhildur Ásgeirsd. - Lára Hannesdóttir/Halldóra Elín Jóhannsd. 15:1 og 15:11. Boðhlaupsmet Ranglega var sagt frá því á slðustu ungl- ingasíðu að kvennasveit hefði sett íslands- met í 4x100 m boðhlaupi á norrænu ungl- ingalandskeppninni sem fram fór í Hudd- inge í Svíþjóð. Hið rétta er að íslandsmet í flokki 19-20 ára setti karlasveitin en hún var skipuð þeim Ólafi Traustasyni og Bjama Þór Traustasyni úr FH, Ármenn- ingnum Hauki Sigurðssyni og Jóhannesi Marteinssyni úr ÍR. Sveitin hljóp á 42,27 sekúndum en fyrra metið var 43,32 sett fyrir fimm áram. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið gætu verið kenniorð KSÍ sem safnaði saman 80 drengjum á aldr- inum 14 og 15 ára [-fíniQnfl i Grindavik í siðasta Ólafsson mánuði. Þar var skrifar frá haldið úrtökumót Gríndavfk fynr þessa drengi sem konia til með að skipa drengja- landslið Islands á næsta ári. Yfírumsjón með landsliðum ís- lands hefur Ásgeir Elíasson lands- liðsþjálfari en Gústaf Björnsson aðstoðarþjálfari var í Grindavík til aðstoðar. „Við erum að byija með drengjalandsliðið fyrir næsta ár. Hér eru 6 lið, 80 strákar, af öllu landinu sem við skoðum og veljum síðan hóp úr til að æfa áfram. Kerfi okkar byggir á 5 trúnaðarmönnum um allt land sem hafa valið stráka til að spila og þeir gista einnig sam- an hér í Grindavík. „Þetta gefur strákunum líka al- mennan áhuga og að hafa eitthvað til að hlakka til. Tíminn er notaður til að skoða veikar og sterkar hliðar hjá hveijum og einum og það er síðan lagt á herðar þeirra sjálfra að vinna með heima þannig að við erum einnig að hvetja til æfinga utan venjulegra æfinga hjá heima- félögunum þannig og undirstrikum það að hver verður að skila sínum þætti þó liðið komi fram sem hóp- ur. Þá má ekki gleyma því að knatt- spyrna er hópíþrótt og við eflum félagsandann með því að vera sam- an á þennan hátt,“ sagði Gústaf við Morgunblaðið. Gústaf lét mjög vel að allri að- stöðu í Grindavík til knattspyrnu- iðkunar en einnig var spilað í Njarð- vík og Vogum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.