Morgunblaðið - 04.10.1994, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 04.10.1994, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓir 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hlaup hafið í Þjórsárjökli sem er sprunginn og byrjaður að skríða fram Morgunblaðið/Árni Sæberg HLAUPIÐ er í miðhluta jökulsins. Helsta einkenni þess er gruggugt vatn. Vatnavextir eru hins vegar ekki teljandi. Þjórsár- kvíslar vaxa lítt „ÉG LENTI í erfíðleikum með að komast áfram upp á jöklinum vegna sprungna fyrir rúmri einni eða tveimur vikum. Mér varð svo ljóst eftir að hafa fengið þyrlu til að komast að mælipunktum hvers kyns var,“ segir Oddur Sigurðsson jarðfræðingur hjá Orkustofnun. Hann var við mælingar á Þjórsár- jökli þegar hann varð var við að jökullinn var farinn að hlaupa. Oddur líkir hlaupinu við hlaup í Síðujökli í vor. Hvorki sé þó um jafnáberandi né jafnstórt hlaup að ræða. „Jökullinn er að hluta til far- inn að skríða fram í jaðarinn. Skrið- ið heldur væntanlega áfram næsta mánuð eða tvo,“ sagði Oddur. Hann sagði að hlaupinu fylgdi gruggugt rennsli og einhverjir vatnavextir. Þeir væru áhugaverðir til dæmis í tengslum við virkjunarmöguleika og gætu orðið allt að 10% á löngum tíma. Hann bjóst við að hlaupið næði hámarki einhvern tíma á næstu vikum. Ekki sagði Oddur að hætta stafaði af hlaupinu. En jök- ullinn sjálfur væri gjörsamlega ófær. Smáflugrélar þjón- ustaðar í Keflavík NÝ þjónustumiðstöð fyrir smáflug- vélar í innanlands- og feijuflugi er í byggingu á Keflavíkurflugvelli á vegum Suðurflugs hf. Fyrsti hluti miðstöðvarinnar verður að öllum lík- indum tekinn í notkun næsta vor en skv. áætlun er gert ráð fyrir að byggingin taki hálft annað ár. Full- gerð verður þjónustumiðstöðin 2.200 fm og hljóðar kostnaðaráætlun upp á 75 milljónir króna. Nýja þjónustumiðstöðin verður við hliðina á flugskýli Flugleiða, norð- vestur af Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar verður boðið upp á alla almenna þjónustu í innanlandsflugi og milli- landaflugi smærri flugvéla auk við- gerðarþjónustu og varahlutaþjón- ustu fyrir vélarnar. Að sögn Erics A. Kinchins, stjórn- arformanns Suðurflugs, sem rekur bæði leiguflug og kennsluflug, er ekki ætlunin að ná viðskiptum af öðrum með byggingu þjónustumið- stöðvarinnar. Tilgangurinn sé að bæta úr aðstöðuleysi og bjóða þjón- ustu sem ekki hefur verið til staðar til þessa. Þannig vildu forráðamenn Suðurflugs taka þátt í því að auka millilendingar á Keflavíkurflugvelli. ■ Þjónustumiðstöð/16 Morgunblaðið/Ásgeir Haraldsson Isjaki á Skallanum Aukin bjartsýni um hagnað hjá Flugleiðum Afkoma batnaði iim nær 400 milljónir TAP Flugleiða af reglulegri starf- semi nam alls 76 milljónum fyrstu sjö mánuði ársins en var 468 milljón- ir á sama tíma í fyrra. Er því alls um að ræða 392 milljóna bata í reglulegri starfsemi hjá félaginu sem fyrst og fremst er rakinn til verulegrar fjölgunar farþega, sparn- aðar í rekstri og hagstæðra vaxta- kjara. Óreglulegir Iiðir rekstrarins voru félaginu hins vegar mun óhagstæð- ari fyrstu sjö mánuði ársins en í fyrra. Flugflotinn var endurmetinn miðað við gengi dollars og var bók- fært verð hans lækkað um 239 millj- ónir umfram gengishagnað af lán- um í uppgjörinu. Þá naut félagið ekki lækkunar tekjuskattsskuld- bindingar sem nam 180 milljónum í fyrra. Að öllu þessu samanlögðu nam heildartap Flugleiða því um 93 milljónum fyrstu sjö mánuðina sam- anborið við 79 milljóna tap árið áður. Miklar sveiflur innan ársins Miklar sveiflur hafa verið á af- komu Flugleiða innan ársins eins og jafnan áður. Þannig var heild- artap fyrst.u þijá mánuði ársins 963 milljónir. A öðrum ársfjórðungi var 231 milljónar hagnaður og í lok júní vartapið því 732 milljónir. í júlímán- uði einum var hagnaður að fjárhæð 639 milljónir en einnig er gert ráð fyrir verulegum hagnaði í ágúst og september. Rekstraráætlun Flugleiða gerir ráð fyrir að hagnaður verði af starf- seminni á þessu ári. ■ Tapið um 93 milljónir/17 ■ Jákvæð þróun í rekstri/26 ÞESSI borgarísjaki varð á vegi skipverja á rækjutogaranum Nökkva HU 15 frá Blönduósi sem komu heim úr tveggja vikna túr nú um mánaðamótin. Jakann sáu þeir á reki er togarinn var stadd- ur 60 mílur úti af Húnaflóa, á Skallamiðum svokölluðum. Þór Jakobsson veðurfræðingur, sem hefur yfirumsjón með hafísrann- sóknum hjá Veðurstofunni, segir borgarísjaka jafnan áberandi á þessum slóðum um þetta leyti ársins en þeir eiga uppruna sinn í skriðjöklum Grænlands. Segir Þór að hæð borgarísjaka geti far- ið allt að 70 metra yfir sjávarmál og séu þeir jafnan um 8-9 sinnum stærri undir yfirborði, en nafn- giftin sé sennilega rakin til þess hve þeim svipi til hamraborga. Innbrot í ljósmyndaver Tækjum fyrir rúm- lega millj- ón stolið BROTIST var inn í ljósmyndaver í Síðumúla 27 í fyrrinótt og stolið ljósmyndatækjum fyrir á aðra millj- ón króna. Að sögn Lárusar Karls Ingason- ar, sem á ljósmyndaverið ásamt Brynjólfi Jónssyni, var gluggi á gafli hússins spenntur upp og farið inn um hann. Lárus segir að inn- brotsþjófurinn eða -þjófarnir hljóti að vera mjög smávaxnir því að glugginn sé mjög þröngur. Að sögn Lárusar voru verðmæt- ustu og léttustu tækin tekin og ekkert skemmt. Mestu verðmætin liggi í tveimur Hasselblad-ljós- myndavélum og fjórum eða fimm linsum. Auk þess saknar Lárus síma og símsvara. Lárus segir að töluverðan kjark þurfi til að bijótast inn í húsið, því það sé beint á móti Síðumúlafang- elsinu auk þess sem öryggisfyrir- tækið Securitas hafí aðsetur í því. Öll tækin skráð Lárus segir að tækin séu öll skráð og þess vegna muni reynast erfitt að koma þeim í verð hérlendis. Hann segir að þeir Brynjólfur séu þokkalega tryggðir og muni líkleg- ast ekki verða fyrir miklu fjárhags- tjóni vegna innbrotsins, en í augna- blikinu séu þeir svo að segja mynda- vélalausir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.