Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER/1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Aðild Svíþjóðar, Finnlands og hugsanlega Noregs að Evrópusambandinu mun ekki bara hafa í för með sér miklar breytingar í þessum ríkjum. Steingrímur Signrgeirs- son segir að hún muni einnig breyta Evr- ópusambandinu þó að það verði ekki með jafnróttækum hætti. JACQUES Delors, forseti framkvæmdastjórnar ESB, var hin ánægðasti og veifaði sænskum fána því til staðfestingar, er úrslitin í þjóðaratkvæðagreiðslunni lágu fyrir. Hvað breytist með Svíum? EF SVÍAR hafna aðild er ekki nóg með að Þjóðverj- ar verði vonsviknir. Þeir munu teljá sig hafa verið svikna,“ sagði sendiherra Svíþjóðar í Bonn í sam- tali við sænskt dagblað um síðustu helgi. Minnti hann á að Þjóðveijar hefðu haft mikil afskipti af aðild Norðurlandaþjóðanna að ESB. Þjóðveijar hefðu hvatt Norður- löndin til að sækja um aðild og síðan lagt sitt af mörkum til að nauðsynlegar málamiðlanir næð- ust í aðildarviðræðunum. Það var á þingi Norðurlanda- ráðs í mars 1992 sem Helmut Kohl kanslari Þýskalands bauð öllum EFTA-ríkjunum að sækja um aðild að Evrópubandalaginu (eins og það hét þá). Sagði Kohl að Norðurlöndin væru nátengd í menningarlegu og viðskiptalegu tilliti og gætu miðlað af dýrmætri reynslu sinni. Mörg önnur aðildarríki Evrópu- sambandsins hafa ekki verið jafn- áfjáð í aðild Norðurlandanna og á það ekki síst við um ríki í suður- hluta álfunnar. Ástæðurnar eru augljósar. Með aðild Norðurlandanna færist þungamiðja sambandsins í norð- urátt og aðrar áherslur verða áberandi í samstarfinu. Fyrstu viðbrögð margra þýskra stjóm- málamanna og stjórnmálaský- renda vom líka einmitt að fagna því að með aðild Svíþjóðar [og Finnlands] næðist betra ,jafn- vægi“ innan ESB, líkara hinu sögulega jafnvægi álfunnar. Aug- ljóst er einnig að Þýskaland mynd- ar miðju hins nýja jafnvægis- ástands. Staða Þjóðveija mun líka styrkjast til muna er ríki í austur- hluta Evrópu fá aðild að Evrópu- sambandinu. Það Evrópusamband sem þá verður til staðar mun hugsanlega eiga fátt sameiginlegt með Evrópusambandi þeirra tólf ríkja sem nú mynda það. En hveiju munu Norðurlöndin breyta? í fyrsta lagi munu þau láta meira af hendi peningalega til Evrópusambandsins en þau fá til baka í gegnum styrkjakerfi þess. Það má því búast við að þau muni berjast fyrir ráðdeild og gegn spillingu innan ESB. í öðm lagi verða pólitískar áherslur þeirra eflaust í flestu líkari áherslum Þjóðveija og jafnvel í einhveijum tilvikum Breta en Suður-Evrópuþjóðanna. Stefnu- mið þeirra verða eflaust jarð- bundnari og praktískari en sú háfleyga Evrópuhugmyndafræði, sem nú ræður ríkjum. Til lengri tíma litið mun það hafa mikil áhrif á þróun ESB. Svíar vega þyngst En þó að minnsta kosti þijú og hugsanlega fjögur EFTA-ríkjanna gangi í ESB um næstu áramót er það ákvörðun Svía um síðustu helgi, sem mun koma til með að hafa mest áhrif. „Með allri virð- ingu fyrir Finnum, Norðmönnum og Austurríkismönnum,“ segir danska blaðið Berlingske Tidende í leiðara, „gerir efnahagslegur styrkur og landfræðileg stærð Svíþjóðar það að verkum að ákvörðun sænsku þjóðarinnar vegur þyngst.“ Blaðið bendir einn- ig á að það sé athyglisvert fyrir Dani að gera sér grein fyrir því að ekkert hinna norrænu ríkjanna fór fram á einhveijar undanþágur frá Maastricht-samningnum í að- ildarviðræðum við ESB. „Munu Danir einnig í framtíðinni verða sér á báti meðal norrænu þjóðanna í evrópsku samhengi en nú með öfugum formerkjum?" spyr leið- arahöfundur Berlingske Tidende. Franska blaðið Le Monde veltir fyrir sér áhrifunum af aðild Sví- þjóðar í forystugrein og segir enn ekki ljóst hver þau komi til með að verða. Bretar geti fagnað því að enn eitt EFTA-ríkið bætist í hóp ESB-ríkjanna. Jacques Del- ors, forseti framkvæmdastjórnar ESB, er sagður vona að Svíar muni styðja áform sambandsins í félags- og velferðarmálum en þó gera nauðsynlegar breytingar á eigin velferðarkerfi. Fréttaritari annars fransks dagblaðs, Libération veltir aftur á móti fyrir sér hvaða Evrópusam- bandi Svíar hafi samþykkt aðild að. Spyr hann hvort að hugsan- legt sé að Svíþjóð verði eitt þeirra ríkja sem muni gera endanlega út af við hugmyndina um sameig- inlegan gjaldmiðil og hvort að þeir muni verða talsmenn um- hverfisvemdarsjónarmiða í sam- starfinu. Eða snýst áhugi þeirra einungis um að tryggja sænskum stórfyrirtækjum staerri markað? spyr fréttaritarinn. Evrópuumræðan að hefjast Svíar sjálfir eru aftur á móti rétt að byija sjálfir á umræðunni um það, fyrir hvaða málum þeir muni beita sér fyrir innan Evrópu- sambandsins. Til þessa hefur öll orka sænskra stjórnmálamanna farið í að sannfæra kjósendur um að Evrópusambandsaðild sé annað hvort æskileg eða óæskileg. Jafn- vel í kosningabaráttunni fyrir þingkosningarnar í september var Evrópuumræðan lítt áberandi, kannski ekki síst vegna þess að stærsti flokkurinn, Jafnaðar- mannaflokkurinn, var klofinn í afstöðu sinni til málsins og vildi ekki opinbera þann klofning um of rétt fyrir kosningar. Nú verður ESB-umræðan hins vegar að taka á sig aðra mynd. Svíar eru komnir inn í Evrópusam- bandið hvort sem þeim líkar það betur eða verr. Óháð því hvaða afstöðu menn tóku í aðildarum- ræðunni verða þeir nú að móta stefnu sína í innri málum ESB. Meira að segja Vinstriflokkur- inn, sem hvað harðast barðist gegn ESB-aðild, hefur nú ákveðið að söðla alfarið um og vill gera samkomulag við ríkisstjóm jafn- aðarmanna um afgreiðslu þings- ins á gjaldi Svía til ESB. „Þó að við séum andstæðingar ESB- aðildar berum við ábyrgð á því að fjármögnunin verði eins góð og réttlát og hægt er,“ segir Jo- han 1/önnroth, varafomiaður flokksins. Þá ætlar flokkurinn að beijast fyrir auknum völdum Evr- ópuþingsins þó að hann hafi í kosningabaráttunni lagst gegn öllu yfirþjóðlegu valdi. Það er afstaða Vinstriflokksins að nú verði menn að sýna raunsæi og taka þátt í uppbyggingu Evr- ópusambandsins. Þeir stjórnmála- menn sem ekki horfist í augu við raunveruleikann séu dæmdir til pólitísks áhrifaleysis. Það verða samt jafnaðarmenn í ríkisstjórn Ingvars Carlssons sem munu hafa mest áhrif á Evrópu- stefnu Svía fyrstu árin. Flokk- urinn hefur aftur á móti ekki full- mótað neina slíka stefnu. Nær helmingur kjósenda flokksins greiddi atkvæði gegn aðild og margir þingmenn og jafnvel ráð- herrar börðust gegn ESB. Helstu stuðningsmenn aðildar í flokksfor- ystunni tóku hins vegar höndum saman með pólitískum andstæð- ingum á hægri vængnum til að reyna að knýja aðild í gegn. Það er fyrst nú sem að menn geta sest niður og samið „sænsku stefnuskrána". En hvað mun felast í henni? Svíar hafa þegar lýst því yfir að þeir hyggist beijast fyrir opnara stjórnkerfi innan ESB. Þá má gera ráð fyrir að breið pólitísk samstaða náist um það í landinu að leggja áherslu á umhverfísmál, atvinnumál, kynjajafnrétti og frekari fjölgun aðildarríkja. Það verður aftur á móti að koma í ljós þegar fram í sækir hvort að Svíar verði hallari undir sjónarmið Þjóðveija, Breta eða Dana í Brussel og Strassborg. Major endurnýj- ar ráðgjafaliðið London. The Daily Telegraph. SARA Hogg, iormaður ráðgjafar- nefndar um stefnu bresku stjórnar- innar og náinn ráðgjafi Johns Maj- ors forsætisráðherra, mun láta af störfum um næstu áramót. Svo er einnig með Jonathan Hill, pólitískan aðstoðarmann Majors, en afsagnir þeirra eiga að ryðja brautina fyrir nýjum ráðgjafahópi með tilliti til næstu þingkosninga. Þótt Hogg og Hill láti af störfum að eigin ósk, þá hafa þau verið gagn- rýnd harðlega vegna þeirra mörgu vandræðamála, sem stjórnin hefur lént í, en þau hafa verið lykilmenn í svokallaðri „eldhússtjórn" Majors. Með brotthvarfi þeirra má heita, að allt, gamla ráðgj afaliðið sé farið og þingmenn íhaldsflokksins vona, að nýir menn geti haldið betur á málun- um. í sumar er leið var skipaður nýr blaðafulltrúi í Downingstræti 10, Christopher Meyer, og John Ward, gamalreyndur þingmaður, kom í stað Sir Grahams Brights sem lengi hefur séð um samskipti ráðuneytis- ins og þingsins. Major fór mjög fögrum orðum um þau Hogg og Hill og sagði, að þau hefðu átt mikinn þátt í kosninga- sigri íhaldsflokksins 1992. Hogg, sem var áður efnahagsmálaritstjóri The Daily Telegraph, vildi sjálf hætta í tíma fyrir næstu kosningar en hún hefur ekki verið í neinu uppá- haldi hjá þeim hluta flokksins, sem amast við Evrópusambandinu. Reuter Fanga athygli ferðamanna SLÖNGUTEMJARAR í Colombo, höfuðborg Sri Lanka, reyna nú að ná athygli ferðamanna í upphafi ferðamannatímabilsins á eynni. Þús- undir ferðamanna, flestir frá Evrópu, koma á ári hverju til Sri Lanka. Smuguveiðarnar Þorskkvóti skerðist um 25.000 tonn Ósló. Morgunblaðið. ÞORSKKVÓTINN í Barentshafi hefði orðið 25.000 tonnum meiri á næsta ári ef „sjóræningjaveiðarn- ar“ í Smugunni og á Svalbarða- svæðinu hefðu ekki komið til, að sögn norska blaðsins Aftenposten. „Veiðamar, meðal annars ^ í Smugunni, gera veijanlega nýt- ingu auðlindanna ómögulega," sagði Gunnar Kjonnoy, deildar- stjóri í norska sjávarútvegsráðu- neytinu. „Við erum meðal annars sammála um að auka eftirlitið á fiskveiðisvæðunum sem deilt er um.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.