Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994 35 BREF TIL BLAÐSIIMS Hver er ábyrgur ef raf- magnseftirlit er ekki sam- kvæmt lögum? Frá Sigurði Magnússyni: ÉG LEYFI mér enn að vekja at- hygli á „rafmagnsöryggismálum" þjóðarinnar. Tilefni skrifa minna nú eru greinar, sem birtust í Morg- unblaðinu 27. október og 1. nóvem- ber sl. Eins og grein- arnar bera með sér hafa í þessu tilfelli orðið mi- stök sem ollu dauða tveggja hesta. Ég vil benda á, að það hefðu getað verið Sigurður menn, sem dóu Magnússon af völdum þeirra mistaka sem greint er frá í blaða- greinunum. í seinni blaðagreininni er sagt að rafmagn hafi komist í jötur og milligerðir, sem hafa þá verið úr leiðandi efni. Spennujöfnun Sé rétt frá öllu gengið á i-afmagn ekki að skaða þá, sem koma við leið- andi byggingarhluta, þó að spenna hafi verið tengd við jarðskautið í töflunni, eins og segir í greininni. Leiðandi byggingarhluta á að „spennujafna“. Mistök rafveitu- mannanna hefðu ekki valdið slysi ef allur frágangur leiðandi bygging- arhluta hefði verið réttur. Lokuð augu Ég held áfram að undrast blindu og heyrnarleysi þeirra, sem stýra rafmagnsöryggismálum þessa lands og hafa minnkað rafmagnseftirlit um 90%. Þarf stórslys á mönnum til að vekja ráðuneytismenn og sér- fræðinga Rafmagnseftirlits ríkisins af EES-draumi? Nú er keppst við að fela skömmina með yfirlýsingum og hönnun á tilskipunum og eyðu- blaðaframleiðslu, þar má vel merkja ráðleysi. Það má ætla að einhveijir ætli að nota eyðublöðin á sama hátt og strúturinn notar sandinn. Spekúlantar óánægðir Skoðunarstofu-spekúlantar eru einu sinni ekki sáttir við fyrirkomu- lagið því þeir hafa ekki verkefni, þar sem reglur stangast á hvor við aðra, þannig er kerfið í upplausn. Þar minni ég á plástrafund sem haldinn var í iðnaðarráðuneytinu í nóvember 1993. Bindindisdagur fjölskyldunnar 24. nóvember Með ráði o g rænu Frá Ómari Smára Ármannssyni: Á HVERJU ári þarf lögreglan í Reykjavík að hafa afskipti af um eitt þúsund ökumönnum, sem drukk- ið hafa áfengi áður en þeir leggja af stað. Vítað er að u.þ.b. 100 þeirra höfðu lent í umferðaróhöppum eða slysum áður en til þeirra náðist, stundum með hryllilegum afleiðingum. Á hverju ári þarf lögreglan auk þess að hafa afskipti af um 6.000 einstakling- um vegna ölvunar á al- mannafæri. Lögreglan þarf að stilla til friðar í heimahúsum og á veit- ingastöðum eftir að átök ölvaðs fólk höfðu keyrt úr hófi. Hún þarf að aðstoða slasað fólk sem ekki kann fótum sínum forráð sökum áfengisneyslu. Og hún þarf að færa ölvaða og viðskotailla heimilisfeður til vistunar í fanga- geymslu eða aka húsmæð- rum og börnum til umönn- unar í kvennaathvarfi. Víðast hvar setja áhrif áfengisins mark sitt á störf lögreglumanna sem og á líf og líðan allt of margra einstaklinga og fjölskyldna í okkar annars fallega landi. Spyija má; hvers vegna kemur margt fólk sér sjálfviljugt í það ástand að missa möguleikann á að geta ráðið sínum gerðum? Oft er sagt að fólk drekki áfengi eða neyti annarra vímuefna til að flýja eitt- hvað, sem býr í því sjálfu, eða til að öðlast eitthvað annað og meira en það hefur. Það getur varla verið, því áreiðanlegt er að fólk getur án efa haft meiri áhrif á gengi sitt og gæfu án áhrifa vímuefna og líklegra er að þannig farnist því betur en ella. Á þindindisdegi fjölskyldunnar 24. nóvember nk. sameinast fjölskyldan Rauði kross íslands óskar eftir sagnfræðingi til að rita 70 ára sögu félagsins. Æskilegt er að verkið hefjist í byrjun árs l995.Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri ritstörf, berist til skrifstofu Rkí, Rauðarárstíg 18,105 Reykjavík. Ykjur, SÍR mótmælir Eins og áður hefur komið fram í blaðagrein fullyrða nokkrir innan iðnaðarráðuneytisins (hafa gert það með bréfi til mín), að þessi mála- flokkur sé í lagi. Þetta er stórlega ýkt hjá þeim, flestir telja að þessi mál séu í molum og sé vitnað til stjórnarfundar Sambands íslenskra rafveitna, sem haldinn var 12. októ- ber sl., kom fram m.a. að stjórn SÍR telur að iðnaðarráðuneytið hafí farið offari í breytingum á rafmagnsör- yggismálum og óskar eftir viðræðum um þau mál sem fyrst. Ólög Minn skilningur er sá, að aðeins örfáir menn innan Rafmagnseftirlits ríkisins og iðnaðarráðuneytisins séu ánægðir með rafmagnsöryggismál í landinu. Einnig vil ég ítreka fýrri skoðun mína að rafmagnseftirlit er ekki framkvæmt samkvæmt gild- andi lögum og það eru ólög og svik. Hvað ætlar hæstvirtur ráherra, hr. Sighvatur Björgvinsson, að sætta sig við það lengi að hafa flumbruráð- gjafa sem eru ekki þeim vanda vaxn- ir sem við er að etja í rafmagnsör- yggismálum á íslandi. Fer tilraunum með rafmagns- öryggismál ekki senn að ljúka? Hver vill? Hver vill breyta gangi mála og því óöryggi sem landsmenn búa við í rafmagnsöryggismálum? Hver vill hvetja iðnaðarráðuneytið og Raf- magnseftirlit ríkisins til að láta af þessum tilraunum? Það hefur sýnt sig að þetta fyrirkomulag passar ekki fámennri þjóð. Ef ég man rétt var gert ráð fýrir endurskoðun á þessari miklu upp- stokkun rafmagnseftirlitsins eftir tveggja ára reynslutíma sem senn er liðinn. Það er ljóst, eftir þessa misheppn- uðu tilraun, að öruggasta leiðin er að skoða allar veitur strax þegar þær eru tilbúnar, eins og gert var. Þá er komið fyrirbyggjandi eftirlit og jafnframt það ódýrasta, fyrir alla. SIGURÐUR MAGNÚSSON, Hofteigi 14, Reykjavík. FÓLK getur haft meiri áhrif á geng og gæfu án áhrifa vímuefna, segir C Smári Ármannsson. um að hafna neyslu áfengis og ann- arra vímuefna. Tilgangurinn með þessum sérstaka degi er að sú ákvörðun hvers og eins að neyta ekki vímuefna, sem vonandi flestir taka á þeim degi, vari svo lengi, sem skynsemin segir ti! um. Þar fara saman hagsmunir lögreglu og al- mennings. ÓMAR SMÁRIÁRMANNSSON, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Revkjavík. FYRSTAIBUÐIN... Ný 3ja herbergja íbúó kr. 6.480,000 - Ný 4ra herbergja íbúó kr. 7.080.000 4ra herbergja ibúó 3ja herbergja íbúó ...er nær en þig gmnar Almannarómur segir að erfiðara sé að kaupa nýja íbúð en gamla. Ármannsfell hefur afsannað það. T !MiL 'lii Wfflf' ikMii i; áfac.BLMUMHU 200.000 kr. I; Við undirrítun kaupsamnings 4.602.000 kr. Með húsbréfum ■■ 1.000.000 kr. ■; Lán seljanda Við undirritun kaupsamnings Með húsbréfum Lán seljanda Við afhendingu 1.278.000 kr. Við afhendingu 200.000 kr. 4.212.000 kr. 1.000.000 kr. 1.068.000 kr. Þú færð allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Funahöfða 19 eða í síma 873599. Ármannsfell hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.