Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C
266. TBL. 82. ÁRG.
SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Lottóæði
grípur Breta
RÚMLEGA 15 miHjónir Breta höfðu
keypt miða í breska lottóinu á hádeg-i
í gær en fyrsti útdráttur fór fram í
beinni útsendingu jB/iC-sjónvarpsins í
gærkvöldi. Búist var við að miðar seld-
ust fyrir 45 miHjónir punda og að fyrsti
vinningur yrði um 7 milljónir punda
eða 750 milljónir íslenskra króna. Við-
tökurnar eru margfalt betri en búist
hafði verið við.
Morgunblaðið/RAX
Fullt tungl vakir yfir Bj arnanúpi
BRYNDÍS ÍS 69, áratuga gamalt aflaskip, siglir inn til Bolungarvíkur eftir að hafa verið á rækjuveiðum í ísafjarðardjúpi.
Sólin skín enn á snæviþakinn Bjarnanúp á Snæfjallaströnd en fullt tungl vakir yfir tilbúið að taka við.
Andstæðingar aðildar að
ESB með forystu í Noregi
Ósló. Reuter.
NIÐURSTÖÐUR fimm nýrra skoðanakann-
ana, sem birtar voru í Noregi í gær, benda
til þess að andstæðingar aðildar landsins að
Evrópusambandinu (ESB) hafi örugga for-
ystu á stuðningsmenn aðildar. Kosið verður
um ESB-aðild i þjóðaratkvæði sem fram fer
annan mánudag, 28. nóvember.
í könnun sem Aftenposten birti í gær kom
fram að 49% sögðust andvíg aðild, 38% voru
henni fylgjandi og 13% óákveðin.
I samskonar könnun blaðsins 15. nóvem-
ber voru 48% andvíg, 40% fylgjandi og 12%
óákveðin.
Andstaðan óbreytt
Andstaðan við ESB-aðild reyndist hins
vegar óbreytt frá fyrri könnun sem MMI-
stofnunin gerði fyrir Dagbladet, eða 49%.
Tvær Galliíp-kannanir
benda hins vegar til
minnkandi andstöðu
Stuðningsmönnum hafði hins vegar fækkað
um 3% í 33% og óákveðnum fjölgað úr 15%
í 18%.
Þá voru 53% á móti aðild en 47% fylgjandi
í könnun sem stofnunin Scan-Fact gerði fyr-
ir Verdens Gangog 56% sögðu nei en 44% já
í könnun sem Nielsen-stofnunin gerði fyrir
nokkur vinstriblöð.
í þessum tveimur könnunum var einungis
tekið tillit til þeirra sem tóku afstöðu með
eða á móti aðild, en ekki tekið fram hversu
margir voru óákveðnir.
Hins vegar hefur dregið úr andstöðu við
ESB-aðild samkvæmt tveimur nýjustu könn-
unum Gallup. í könnun, sem gerð var fyrir
sjónvarpsstöðina TV2 og birtist í gær, reynd-
ust 43% andvíg aðild eða einu prósenti færri
en áður. Pjölgaði óákveðnum sem því nam,
eða úr 18% í 19. Fylgi við aðild stóð hins
vegar í stað í 38%.
Veruieg aukning hefur orðið á stuðningi
við aðild Noregs að Evrópusambandinu sam-
kvæmt könnun stofnunarinnar fyrir norsk
landbúnaðarsamtök sem birt var seint í
fyrrakvöld. Þar styðja 39,8% aðspurðra að-
ild, eða 9% fleiri en viku áður, en 42,9% eru
henni andvíg. Hafði andstæðingum fækkað
um 1,7% frá samskonar könnun Gallup viku
fyrr.
Óskrifuð bók
slær öll met
DELL-forlagið í New York hefur keypt
útgáfurétt að ástarsögu, sem Nick
Evans, 44 ára breskur höfundur, hefur
enn ekki lokið við, fyrir 3,15 milljónir
dollara, jafnvirði 214 milljóna króna.
Er það hæsta verð sem borgað hefur
verið fyrir fyrsta skáldverk rithöfund-
ar. Varð forlagið hlutskarpast níu út-
gáfufyrirtækja. Kvikmyndarétturinn
að sögunni, sem heitir Hrossahvíslar-
inn, var keyptur fyrir þrjár milljónir
dollara fyrir mánuði. Fyrstu 200 síður
bókarinnar voru kynntar á bókastefnu
í Frankfurt en búist er við að Evans
(júki handritinu um áramót.
Rammg’ert
fangelsi
RAMMGERÐASTA og öruggasta fang-
elsi Bandaríkjanna verður brátt tekið
í notkun í Colorado. Þar verða vistaðir
illræmdustu glæpamenn landsins, sem
litla eða enga von hafa um náðun, s.s.
mafíósinn John Gotti, glæpaforinginn
Jeff Fort frá Chicago og CIA-mennirn-
ir Edwin Wilson, sem seldi vopn til
Líbýu, og Aldrich Ames, sem njósnaði
fyrir Rússa. Vistin miðast við að ein-
angra fangana frá umhverfinu fremur
en endurhæfa þá. Verða þeir að vera
23 stundir á sólarhring í klefum sínum
og fá ekki að fara út úr þeim nema
með hand- og fótajárn. Fyrir hverjum
klefa eru tvöfaldar dyr sem læstar
verða með fjarstýringu.
Korpúlfsstaðir
- glæsilegsta
stórbýli
á íslandi
Tímamót
14
ÍFÓTSPOR
FEÐRANNA
vœsramannNNUiíF
Á SUNNUDEGI