Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 4
4 E LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ NÝIR GEISLADISKAR MED TÓNUST EFTIR PÁL PAMPICHLER Póll Pampichler Pálsson Til stendur að austur- rískt fyrirtæki gefi Ot geisladisk með tónlist eftir Pál Pampichler Pálsson og nýlega kom út diskur með tón- list Páls sem Kammer- sveit Reykjavíkur gaf út. Guðrún Guðlaugs- dóttir ræddi við Pál Pampichler um þetta efni og fleira E* G ER BÚINN að fá grænt ljós hjá stjóm Sinfóníuhljómsveitar íslands um að gefa út geisladisk með verki sem ég samdi fyrir tveim- ur árum. Ljáðu mér vængi, heitir verkið, það er samið fyrir mezzo- sopran, Rannveigu Príðu Braga- dóttur, og hljómsveit,“ sagði Páll í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins. Verk Páls hefst og endar á ljóði eftir Huldu. Einnig notar Páll ljóðið Vorsól eftir Stefán frá Hvítadal, tvö kvæði eftir Kristján Morgenstern og kvæði eftir austur- ríska skáldið George Trakl og þýska skáldið Hermann Hesse. „Þetta eru góð kvæði allt saman. Eg samdi tónlistina við þau af því að mig hefur lengi langað að skrifa tónlist fyrir Rannveigu Fríðu Bragadóttur og hljómsveit. Ég var að leita að góðum textum og tókst loksins að fínna texta sem ég var ánægður með,“ sagði Páll. Páll Pampichler kom til íslands árið 1949 þegar hann fékk ársleyfi í hljómsveit sem hann var Jaá fast- ráðinn í heima í Graz,. „Eg gekk til starfa hjá Sinfónínuhljómsveit íslands þegar hún var stoftiuð árið 1950 og blés með á trompet þegar fyrstu tónleikar hennar voru haldn- ir í Austurbæjarbíói undir stjóm Róberts Abrahams Ottósonar. Ég hef víða komið við í tónlist hér, enda langaði mig að ílendast hér og hjálpa til við að byggja upp ís- lenskt tónlistarlíf sem var í bemsku á þessum árum.“ Páll kvaðst þó hafa verið á heimaslóðum undan- farið. „Ég fæddist í Graz í Austur- ríki og þar á ég gott með að skrifa, þar er meira næði en hér heima á Islandi. í Graz er líka gott að ganga úti og gaman að hitta gamla vini, þá fáu sem eftir eru,“ segir hann og hlær við. Verkið, sem Lotus fyrirtækið í Salzburg í Austurríki, ætlar að gefa út á hinum fyrirhugaða geisladiski var fmmflutt í maí 1993. „Markus Schirner, sem hefur komið hingað tvisvar sem píanóeinleikari með Sinfóníuhljómsveit íslands, fékk þetta verk hjá mér á snældu. Fram- kvæmdastjóri Lotus heyrði verkið hjá honum og hringdi eftir það í mig og kvaðst endilega vilja gefa það út. Ég var mjög ánægður, þetta er maður sem ég þekki ekki neitt,“ sagði Páll. Lotus er tiltölulega nýr útgáfuað- ili sígildrar tónlistar. Nýlega kom út geisladiskur frá fyrirtækinu með leik Markusar Schirner á verkum eftir Schubert. „Fyrir skömmu var Markus Schirner svo valinn bestur úr hópi tíu afbragðs píanóleikara af þýskum hljómplötugagnrýnend- um. Það er mikil viðurkenning," sagði Páll Pampichler. „Fram- kvæmdastjóri Lótus sagðist líka vilja fá á geisladiskinn Konsert fyr- ir klarinett og hljómsveit sem Sig- urður í. Snorrason var einleikari í þegar konsertinn var frumfluttur árið 1983. Eitt verk enn verður á diskinum, það er Conserto di Giub- ileo. Það var samið árið 1990 fýrir Sinfóníuhljómsveit Islands, sem þá átti 40 ára afmæli." Ennfremur kvaðst Páll vera að leita eftir íjárstuðningi við þetta verkefni hjá nokkrum aðilum. „Ég vona að þeir sem ég hef leitað til sjái sér fært að styðja útgáfu á þessum fýrirhugaða geisladiski með verkum mínum. Það kostar mikið fé að fá hingað til landsins stjórn- anda og einsöngvara, sem verður Rannveig Fríða Bragadóttir,“ sagði Páll. Um daginn kom út ný geisladisk- ur með verkum eftir Pál Pampichler Pálsson. Kammsveit Reykjavíkur gefur diskinn út og kallar hann Kristalla. Á honum eru verk sem Páll samdi á árunum 1970 til 1991. Þetta eru ljóðræn verk sem flutt eru af mismunandi kammermúsik- hópum. Söngvarar á diskinum eru Rannveig Fríða Bragadóttir og Signý Sæmundsdóttir. Meðal verka á þessum nýja geisladiski eru Lantao sem Páll kvaðst hafa samið undir áhrifum kínverskrar náttúru þegar hann fór til Kína með Karla- kór Reykjavíkur árið 1979. Einnig eru á diskinum Sex íhugulir söngv- ar við ljóð eftir George Trakl. Páll kvaðst hafa samið mikið af tónlist undanfarið. „Ég er að mestu hættur sem stjómandi Sinfóníu- hljómsveitar íslands. Ég dró mig í hlé til að geta helgað mig tónsmíð- um,“ sagði hann. „Þetta er oft skemmtilegt verkefni en ekki alltaf. Stundum reynir mikið á mann. Ég er með stórt verk í smíðum fyrir sinfóníuhljómsveit og blandaðan kór. Ef illa gengur hristir maður bara hausinn og fer út,“ sagði Páll og hló. Hann kvaðst ætla að helga sig tónsmíðum hér eftir. „Ég verð til skiptis hér og í Graz, þar sem mér tókst nýlega að festa kaup á lítilli íbúð sem foreldra mínir áttu og ég ólst upp í. Ég á systur í Graz sem rekur þar dansskóla, sem margir íslendingar hafa heimsótt. Geisla- diskurinn sem Lotus fyrirtækið ráð- gerir að gefa út mun hafa mikla þýðingu fyrir mig. Hann verður víða kynntur. Nú þegar hefur stórt þýskt fyrirtæki sýnt á huga á að gefa út á nótum Ljáðu mér vængi, þegar verkið kemur út á diski verður vafa- laust enn meiri áhugi á því. Ég vona bara að þeir sem ég hef leitað til um íjárstuðning verði mér hlið- hollir," sagði Páll Pampichler Páls- son tónskáld að lokum. Listin tileinkuð mann- réttindum Listaklúbbur Leikhúskjallarans KÍNA, Spánn, Suður-Ameríka, Rússland. Menn ferðast um allan heim til að skynja og skilja ólíka menningarheima. Á mánu- dagskvöldið er nóg að fara í Lista- klúbb Leikhúskjallarans. Dagskrá- in að þessu sinni er helguð 20 ára starfi íslandsdeildar Amnesty Intemational. Flutt verða verk tón- listarmanna, skálda og rithöfunda sem gert hafa mannlega þjáningu að viðfangsefni verka sinna og fært í form bókmennta og lista. „Kannski verður listin aldrei meira virði en einmitt þegar hún segir eitthvað sem virkilega kemur við fólk,“ segir Sigríður Margrét Guðmundsdóttir framkvæmda- stjóri Listaklúbbsins. „Dagskráin er fyrst og fremst af listrænum toga. Ólíkir listamenn nota þarna list sína til að koma merkilegu málefni á framfæri. Þetta er vett- vangur til að spyija sig spurninga um menn og málefni, vettvangur til að halda vöku sinni.“ Af dagskrárliðum nefnir Sigríð- ur upplestur Hjörleifs Sveinbjörns- sonar úr þýðingu sinni á bók Jung Chang Villtum svönum. „Verkið varpar ljósi á heilt samfélag sem er svo ólíkt okkar vestræna menn- ingarheimi. Samfélag sem reynist allt öðruvísi en margir höfðu gert sér í hugarlund. Á undan upplestri Hjörleifs talar Ágúst Þór Árnason um mannréttindabrot í Asiu- löndunum.“ Meðal annarra atriða eru gítarleikur Péturs Jónassonar, Ijóðaupplestur leikaranna Hinriks Ölafssonar og Vigdísar Gunnars- KVIKMYNDIR &LIST Kvikmyndasýningar í Norræna húsinu um listamenn frá Norðurlöndum KVIKMYNDIR og list nefnist dagskrá í Norræna húsinu dagana 13. til 17. mars í tilefni norrænu menningarhátíðarinnar Sólstafa. Sýndar verða kvikmyndir sem flestar fjalla um listamenn frá Norðurlöndum. Forstjóri Nor- ræna hússins, Torben Rasmussen, á hugmyndina að þessari dagskrá og valdi hann myndirnar sem sýnd- ar verða. Myndimar eru fengnar fyrir milligöngu fínnska kvikmyndafyrir- tækisins Walhalla. Walhalla hefur starfað í tuttugu ár við að kynna kvikmyndir frá Norðurlöndum og hafa þeir af því tilefni sett saman sérstaka dagskrá um norræna list og listamenn sem sýnd verður á öllum Norðurlöndunum. Þessar myndir sem nú verða sýndar eru hluti af þeirri dagskrá. Flestar eru kvikmyndirnar frá því eftir 1980, en sú elsta, Thor- valdsen, er frá árinu 1949. Dagskráin er sem hér segir: 13. mars: Það fallega er svo erf- itt. Kvikmynd um sænska listmálar- ann Carl Fredrik Hill. 14. mars: Linnea í tijágarði mál- arans. Teiknimynd um sænska telpu og málarann Claude Monet. Hnefafylli af mold — hvað erum við annað? Kvikmynd um „Döder- hultam". 15. mars: Toipilaan Omakuva. Kvikmynd um finnsku listakonuna Helene Schjerfbeck. Á sunnudaginn kemur skaí ég mála svartan blett betur. Stuttmynd um Helene Schjerfbeck. „Jos tahtoo ...“ Stutt- mynd um Akseli Gallen-Kallela. 16. mars: COBRA og eftir ... Kvikmynd um danska listamanninn Asger Jom og aðra sem tilheyra COBRA-hópnum, frá Kaupmanna- höfn, Brussel og Amsterdam. Eitt ár með Henry. Stuttmynd um Henry Heerup frá Danmörku. 17. mars: Thorvaldsen. Stutt- mynd um myndhöggvarann Bertil Thorvaldsen. Þessir kollóttu stein- ar. Stuttmynd um Siguijón Ólafs- son. Sýningarnar eru eins og fyrr seg- ir í Norræna húsinu og hefjast klukkan 17. S.A. ELOKUVA & TAIÐE Finnski kórinn Akademen syngur á islandi 6, ÞÚSUND VATNA UÚFA LAND FINNSKI kórinn Akademen eða Akademiska sángföreningen fullu nafni kemur til íslands mið- vikudaginn 15. mars og heldur tón- leika í Reykjavík og á Selfossi. Kór- inn er elsti kór Finnlands og á sér merka sögu. Kórinn var stofnaður 1838 af Fredrik Paeius sem var lektor í tón- list við keisaralega Alexanderhá- skólann í Helsingfors. Pacius var í fararbroddi og mikill áhrifamaður tónlistarlífs höfuðborgarinnar á þessum árum og var markmið hans karlakór sem tekist gæti á við vandasöm og viðamikil kórverk. Frumflutti þjódsönginn Árið 1848 þegar Finnland laut enn Rússum frumflutti Akademen tjóðsöng Finna, Várt Land, við texta Johans Ludvigs Runebergs og stjórnaði Pacius sjálfur. í þýðingu Matthíasar Jochumssonar er upp- hafserindið þannig: Vort föðurland, vort fósturland, ó, fagra veldis-orð, ei Iækkar foid við lagarsand, ei lyftist frón við sólarbrand meir elskað en vor óðalsstorð, vor allra lífsins-borð. Síðar í söngnum er Finnland kall- að „þúsund vatna ljúfa land“. Finnsk þjóðernisvakning var hafin og varð söngurinn strax að þjóðsöng í huga Finna. Akademen flutti einn- ig Suomis sáng fyrstur kóra og tók þátt í uppsetningu fyrstu finnsku óperunnar, Kung Karls jakt eftir Pacius við texta Zakarias Topelius- ar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.