Morgunblaðið - 25.04.1995, Síða 12
ÞYSKALAND
Dortmund
tapaði í
Múnchen
Dortmund er ekki lengur með
stig umfram önnur lið í þýsku
deildinni eftir leiki helgarinnar. Þá
sótti efsta liðið Bayem Miinchen
heim og mátti þola 2:1 tap en Werd-
er Bremen gerði 2:2 jafntefli við
Kaiserslautern og er komið upp að
hlið Dortmund.
Fyrri hálfleikur í Munchen var
markalaus en Alexander Zickler og
Christian Ziege skoruðu fyrir
heimamenn áður en Lars Ricken
minnkaði muninn átta mínútum
fyrir leikslok. Andreas Möller lék
ekki með Dortmund og kom það
greinilega niður á leik liðsins en
hann var dæmdur í bann fyrir leik-
araskap eins og fram kom fyrir
helgi.
Bayern er í sjötta sæti fjómm
stigum á eftir efstu liðunum og þó
margir lykilmenn væru ekki með
vegna meiðsla lék liðið vel. „Bæði
lið komu til leiks eftir tap í Evrópu-
keppni og þetta var harður leikur,"
sagði Trapattoni, þjálfari Bayern.
„Ég er ánægður með seinni hálfleik
og úrslitin vom sanngjörn. Ef liðið
heldur áfram á sömu braut er enn
möguleiki á UEFA-sæti.“
Ottmar Hitzfeld, þjálfari Dortmund,
var raunsær. „Fyrra markið gaf
Bayern byr undir báða vængi og
sigurinn var verðskuldaður. Við
lögðum okkur ekki nógu vel fram
til að sigra.“
Bjarki Gunnlaugsson var í byrj-
unarliði Niirnberg sem gerði jafn-
tefli við Herta Berlín, 1:1, en var
skipt útaf þegar níu mínútur vom
eftir. Hann fékk góða dóma í Kic-
ker fyrir leik sinn, eða 3 í einkunn.
Niirnberg á við mikla fjárhagserfíð-
leika að etja og em skuldið félags-
ins komnar yfir hættumörk að mati
þýska knattspymusambandsins og
ef ekki verður bætt úr því fyrir
næsta keppnistímabil fær liðið ekki
að leika í atvinnumannadeildinni og
verður dæmt niður í áhugamanna-
deild.
■ Úrslit / B10
vom í fremstu víglínu. Arnar átti — og var skipt útaf í leikhléinu.
við meiðsli að stríða — var slæmur Guðmundur Benediktsson kom inná
af beinhimnubólgu, að sögn Ásgeirs í hans stað.
ARIMAR Gunnlaugsson gerði mark Islands í Chile.
KNATTSPYRNA
Jafnt gegn
Chilebúum
íTemuco
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu gerði góða ferð til Chile
um helgina — mætti heima-
mönnum í vináttuleik, og skildu
þjóðirnar jafnar, 1:1, íborginni
Temuco. Arnar Gunnlaugsson
skoraði fyrir ísland í fyrri hálf-
leik, og höfðu íslensku strák-
arnir forystu í leikhléinu.
Asgeir Elíasson, landsliðsþjálfari
var nokkuð ánægður með sína
menn. „Við spiluðum ágætlega í
fyrri hálfleiknum og mér fannst við
hættulegri. Þeir komust reyndar í
gegn einu sinni og fengu þá gott
færi, en Birkir varði vel. Tvisvar
munaði svo litlu að þeir kæmust
aftur í gegn en það slapp,“ sagði
Ásgeir. „Okkur gekk ágætlega að
halda boltanum og spila honum;
vomm jafn mikið ef ekki meifa með
boltann en þeir, nema síðustu mín-
útur hálfleiksins."
Amar gerði mark íslands
skömmu fyrir miðjan hálfleikinn.
„Þetta var mjög gott mark sem kom
eftir spil hægra megin,“ sagði Ás-
geir. Eyjólfur, Amar, Arnór og
Hlynur Stefánsson áttu hlut að
máli, og eftir gott samspil fékk
Hlynur knöttinn í vítateignum,
markvörðurinn kom út á móti hon-
um og þá sendi Hlynur fyrir mark-
ið á Amar 'sem átti auðvelt með
að skora í tómt markið.
„Þeir skoruðu svo fljótt í seinni
hálfleiknum — mark sem við áttum
auðveldlega að geta komið i veg
fyrir. Við það datt leikurinn svolítið
niður hjá okkur, þeir sóttu mikið
en komust þó nánast aldrei í færi.
Miðjan og vörnin hjá okkur var
sterk vamarlega og við vorum í
sjálfu sér ekki í hættu með að tapa
leiknum, en það verður að segjast
að við komumst lítið fram á við.
Þeir héldu boltanum vel og lengi,
en það gekk verr hjá okkur að halda
honum."
Ásgeir var ánægður með sína
menn, sem fyrr segir, sérstaklega
kvað hann vörn og miðju hafa kom-
ið vel út. Ekki vildi hann þó nefna
neina leikmenn sérstaklega.
íslenska liðið var þannig skipað:
Birkir Kristinsson var í markinu,
Guðni Bergsson var aftastur í
þriggja manna vöm og Daði Dervic
og Kristján Jónsson fyrir framan
hann. Þorvaldur Örlygsson var á
hægri kantinum, Rúnar Kristinsson
á þeim vinstri og inni á miðjunni
Sigurður Jónsson, Hlynur Stefáns-
son og Amór Guðjohnsen. Eyjólfur
Sverrisson og Amar Gunnlaugsson
Góð staða Juventus
þrátt fyrir óvænt tap
JUVENTUS mátti þola sitt fimmta tap í ítölsku 1. deildinni í vet-
ur, og jafnframt það óvæntasta, þegar liðið tapaði á heimavelli
á sunnudag, 0:1 gegn Padova sem er í botnbaráttu deildarinnar.
Þrátt fyrir tapið trónir Juventus
öruggt í fyrsta sætinu. Liðið
hefur 61 stig, átta fleiri en Parma
sem sigraði örugglega um helgina.
Sex umferðir eru eftir á Ítalíu.
Padova lék á köflum mun betur
en Juventus. Bandaríkjamaðurinn
Alexei Lalas hafði auga með sókn-
armönnum Juventus þeim Ravanelli
og Baggio en hægri bakvörður
Padova kom stórliðinu oft í opna
skjöldu með snörpum skyndisókn-
um.
Parma sigraði Inter Milan sem
hafði ekki tapað í átta leikjum í
röð. Vöm Inter gaf sig ekki fyrr en
í síðari hálfleiknum en þá skoraði
Argentínumaðurinn Nestor Sensini
tvívegis og Gianfranco Zola einu
sinni.
AC Milan færðist upp í þriðja
sæti deildarinnar með stórsigri á
Tórínó 5:1 en leikur liðanna fór
fram seint á sunnudagskvöldið.
Klinsmann
til Bayem?
FRAMTÍÐ þýska knattspymu-
mannsins Jiirgen Klinsmann hjá
Tottenham er óráðin og sjálfur
sagði leikmaðurinn í gær að
hann væri að íhuga tilboð frá
þýska félaginu Bayern Miinchen
og frá ítölskum félögum. Klins-
mann sem átt hefur frábært
tímabil og notið mikilla vinsælda
í Englandi sagði að hann mundi
taka lokaákvörðun í næsta mán-
uði. „Það er alls ekki útilokað
að ég verði áfram þjá Spurs á
næsta tímabiii, það er hins vegar
hluti af starfinu að íhuga allt
og hlusta á hvað önnur félög
hafa fram að færa,“ sagði Þjóð-
veijinn.
Dejan Savicevic kom Mílanóliðinu á
sporið með því að skora fyrsta
markið eftir nítján mínútur.
Nágrannaliðin Roma og Lazio
áttust við á Ólympíuleikvanginum
og hafði Lazio betur. Pierluigi Cas-
iraghi kom Lazio yfir fyrir hlé og
Giuseppe Signori gerði síðara mark-
ið úr vítaspyrnu í seinni hálfleik.
Fyrirliði Roma, Guiuseppe Giannini
var rekinn af leikvelli fyrir ljótt
brot á 80. mínútu. Englendingurinn
Paul Cascoigne sem nýbyijaður er
að leika aftur eftir árshlé vegna
meiðsla vermdi varamannabekkinn
mestan tímann en kom inná í síð-
ari hálfleiknum.
Sampdoria, sem missti niður
tveggja marka forskot gegn Arse-
nal í Evrópukeppninni í síðustu
viku, lenti í því sama um helgina í
leik Fiorentina. Sampdoria hafði 2:0
yfir en missti leikinn niður í jafn-
tefli. Ruud Gullit skoraði bæði mörk
Sampdoria, það síðara á 71. mínútu
en það dugði ekki til sigur. Gabriel
Batistuta og Francesko Baiano
jöfnuðu fyrir Fiorentina.
Keuter
ALEXEI Lalas, bandaríski varnarmaðurlnn sterki hjá Padova,
t.h., fylglst grannt með Ravanelli, framherja hjá Juventus.